Morgunblaðið - 02.02.1982, Page 10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1982
10
Myrkir músíkdagar
Tónlíst
Egill Friðleifsson
Norræna húsið, 29. janúar 1982
Verk eftir Jónas Tómasson
„Tilgangur Myrkra músíkdaga
er að leggja rækt við íslenska
tónlist, ný íslensk verk, og erlend
verk, sem okkur þykja áhuga-
verð,“ segir í efnisskrá Myrkra
músíkdaga. Ekki fæ ég betur séð
en markmiðið sé nákvæmlega
það sama og Musica Nova vinnur
að og er það vel, enda standa
sömu einstaklingarnir að báðum
þessum fyrirbærum í mörgum
tilvikum. Samtímatónlist hefur
víða átt erfitt uppdráttar og
mætt bæði fordómum og sinnu-
leysi. Á þessu er að verða greini-
leg breyting hérlendis a.m.k.
Margir minnast með ánægju er
Musica Nova var endurlífgað sl.
ár með myndarlegum tónleikum
á Kjarvalsstöðum þar sem m.a.
var frumflutt kammerverk í 12
þáttum eftir jafn marga höf-
unda, og er Myrkir músíkdagar
voru fyrst haldnir fyrir tveimur
árum kom í ljós, að drjúgur hóp-
ur áheyrenda var tilbúinn að
hlusta á nýja íslenska tónlist í
heila viku, tónhöfundum til upp-
örvunar og neytendum til
ánægju.
Að þessu sinni verða fimm
tónleikar haldnir á Myrkum
músíkdögum og þrír að auki á
vegum annarra aðilja. Þar munu
16 islensk tónskáld leggja til
tónverk, þar af eru sex þeirra
frumflutt. Allt ber þetta vott um
grósku og framsækni og vænt-
anlega gefur þetta góða mynd af
því helsta, sem er að gerast í
tónsköpun í landinu um þessar
mundir. Vonandi láta listunn-
endur slíkt tækifæri ekki fram
hjá sér fara án þess að gefa því
gaum.
Myrkir músíkdagar hófust
með tónleikum í Norræna hús-
inu sl. föstudagskvöld og voru
þar eingöngu flutt verk eftir
Jónas Tómasson, en þau voru
Notturno III, Sonata XIII, Aube
et serena, Sonata VIII, Kantata
III og Ballet III sem var frum-
flutt. Flytjendur voru átta ágæt-
ar konur, nefnilega þær Helga
Þórarinsdóttir, Helga Ingólfs-
dóttir, Laufey Sigurðardóttir,
Carmel Russill, Manuela Wiesl-
er, Anna Áslaug Ragnarsdóttir,
Rut Magnússon og Júlíana Elín
Kjartansdóttir. Þarna hafði
Manuela Wiesler nokkra sér-
stöðu en hún lék nótnalaust, og
fannst mér þar vel að verki stað-
ið. Tónleikarnir hófust á Nott-
urno III sem þær Helgurnar
Þórarins- og Ingólfsdóttir léku.
Það var mér alveg sérstök
ánægja að heyra þetta verk á ný,
því mér er enn í fersku minni er
það var frumflutt austur í
Skálholti fyrir um einu og hálfu
ári. Það verða nefnilega örlög of
margra samtímaverka að ryk-
falla eftir frumflutning. Verkið
samanstendur af sex stuttum
þáttum sem hver um sig er ákaf-
lega skýr í formi og aðgengi-
legur. Raunar má segja það
sama um öll þau verk, sem flutt
voru þetta kvöld. Þau eru öll
stutt, og þar af leiðandi aldrei
leiðinleg, sum eru nokkuð
ómstríð án þess þó að skeri í
eyrun, og yfir flestum hvílir ein-
hverskonar íhugul ró og stabíli-
tet, sem er í þægilegri andstöðu
við gauraganginn í samtíðinni
þar sem gengur ekki á öðru en
ört lækkandi gengi og ört vax-
andi verðbólgu.
Eitt hálfspaugilegt atvik átti
sér stað á tónleikunum. Sonata
XIII, sem var nr. tvö á efnis-
skránni, endar með því að verkið
leysist upp í endurteknar nótur,
sem smám saman deyja út.
Sjálfsagt hefur þar farið saman,
að þessi endir var vel skrifaður
af hendi höfundar og vel fluttur
af spilurum, nema hvað áheyr-
endur virtust ekki átta sig á því
að verkinu væri lokið. Þá brostu
flytjendur breitt. Það bros fór
þeim vel.
Húsfyllir var og höfundi og
flytjendum vel tekið.
28611
Hraunbær
Raöhús á einni hæö um 140 fm.
Sérstaklega vandaö. Bílskúr.
Bræöraborgarstígur
3ja herb. 80 fm ibúð á 2. hæð í
steinhúsi. Örlítiö undir súö.
Laugavegur
3ja herb. 80 fm ibúö á 4. hæö.
Bein sala.
Njálsgata
Lítil 2ja herb. kjallaraíbúö Mik-
ið endurnýjuö. Ósamþykkt.
Verö 260 þús.
Austurberg
4ra herb. 100 fm íbúö á 2. hæð.
HÚS OG EIGNIR
Bankastræti 6
Lúðvík Gizurarson hrl.,
kvöldsimi 17677.
Hafnarfjörður
Nýkomiö til sölu:
Álfaskeið
2ja herb. íbúö á efstu hæö í
fjölbýlishúsi. Bílskúr. Góö sam-
eign og frystiklefi. Verð kr.
600—650 þús.
Móabarð
4ra herb. íbúö á jaröhæö í þri-
býlishúsi. Sér inngangur. Verö
kr. 600—650 þús.
Alfaskeið
2ja herb. íbúö á 2. hasð í fjölbýl-
ishúsi. Góöur bílskúr. Mikil
sameign og frystiklefi.
Árnl Gunnlaugsson. hrl.
Austurgotu 10.
Hafnarfirdi. sími 50764
SIEMENS
Vestur-þýzkur
gæöa-gripur
Nýja
SIWAMAT
þvottavélin er fyrir-
feröarlítil, nett, en full-
komin.
Norrænn styrkur
til bókmennta
nágrannalandanna
Fyrsta úthlutun norrænu ráö-
herranefndarinnar (mennta- og
menningarmálaráöherrarnir)
1982 — til úthlutunar á styrkj-
um til útgáfu á norrænum bók-
menntum í þýöingu á Norður-
löndunum — fer fram í maí.
Frestur til aö skila umsóknum
er 1. apríl 1982.
Eyðuþlöö ásamt leiöbeiningum
fást hjá menntamálaráöuneyt-
inu í Reykjavík.
Umsóknir sendist til:
Nordisk Ministerrád
Sekretariatet for
nordisk kulturelt
samarbejde,
Snaregade 10 DK-1205
Köbe' avn K
Sími: DK 01-114711 og þar má
einnig fá allar nánari upplýs-
ingar.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTAR-
STÖÐINNI
26600
SELÁS — SELJAHVERFI
Höfum mjög góöan kaupanda aö raöhúsi eöa einbýl-
ishúsi í Seljahverfi eöa Selási. Húsiö þarf ekki aö vera
fullbúið. Útb. allt aö 1,2 millj., þar af 325 þús. viö
samning.
Fasteignaþjónustan,
Austurstræti 17,
Simi 26600. Ragnar Tómasson, lögmaður.
NEÐRA-BREIÐHOLT
Höfum kaupanda aö rúmgóöri 4ra herb. íbúö í
Neðra-Breiöholti.
SELJAHVERFI
Höfum góöan kaupanda aö raöhúsi eöa einbýlishúsi
í byggingu í Seljahverfi.
Fasteignaþjónustan,
Austurstræti 17,
sími 26600.
Ragnar Tómasson
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
ÞÓRSGATA
Höfum til sölu ibúð í fjölbýlis-
húsi, sem selst tilbúin undir tré-
verk og málningu. Á fyrstu hæö
eru stofa, borðstofa, svefn-
herb.. eldhús og baö. Bilskýli og
geymslur á jaröhæð. Sameign
verður fullfrágengin. Teikningar
á skrifstofunni. Verö 830 þús.
Fast verð.
LUNDARBREKKA
3ja herb. íbúö á 3. hæö, ca. 90
fm. Verð 700—750 þús.
ÁSGARÐUR
2ja herb. ibúö á jarðhæö. Verö
500—550.
HRAUNBRAUT
3ja herb. íbúö á fyrstu hæö, 85
fm. Bilskúrsréttur. Verð 630
þús.
HRAUNBÆR
2ja herb. íbúö, 65 fm á 2. hæö.
Verð 550 þús.
BREIÐHOLT —
BAKKARNIR
2ja herb. íbúö á 2. hæö, 68 fm.
Verö 560 þús.
HRAUNBÆR
2ja herb. íbúö á fyrstu hæð, 55
fm. Verö 480—500 þús.
SKÁLAHEIÐI
3ja herb. risíbúö, 75 fm. Ný-
standsett.
VESTURBÆR
REYKJAVÍK
3ja herb. risíbúö, 75 fm. Verö
580 þús.
EINSTAKLINGSÍBÚÐ
VIÐ STÓRAGERDI
2 herb. og eldhús. Verð 400
þús.
GRUNNUR—
ÁLFTANESI
Grunnur að 167 fm einbýlishúsi.
Verö 400 þús. Teikningar á
skrifstofunni.
NJÁLSGATA
2ja herb. kjallaraíbúö, nýstand-
sett, 35 fm. Verö 270 þús.
LAUGAVEGUR
3ja herb. ibúð á efstu hæð í
steinhúsi, 70 fm. Verð 450 þús.
EIGNIR ÚTI Á LANDI
Parhús, Hverageröi, stærri
gerðin. Verö 500 þús.
EINBÝLISHÚS
SELFOSSI
Hæö og ris ásamt upphituöum
bílskúr.
Óskum eftir öllum
stærðum fasteigna á
söluskrá.
Ath.: Erum fluttir á
Skólavörðustíg 18, 2.
hæð.
Pétur Gunnlaugsson lögfr.,
Skólavörðustíg 18, 2. hæö.
Símar 28511 28040 28370
HITABLÁSARAR
85788
Hafnarfjörður
3 herb. 90 fm jarðhæö í eldra
steinhúsi, ósamþykkt. Verö 270
þús.
Vestubær
Nýleg 3ja herb. íbúð á 2. hæð,
suöursvalir.
Æsufell
3ja herb. rúmgóö ibúö á 3. hæö.
Afhending samkomulag.
Vesturberg
3ja herb. íbúö á 1. hæö. Þvotta-
hús á hæöinni. Til afhendingar 1.
júni.
Öldugata
3ja herb. ibúö á 1. hæö meö sér
inngangi. Afhending samkomulag.
Frakkastígur
4 herb. ca. 100 fm íbúö í fjölbýlis-
húsi. Allt endurnýjaö og ný-
standsett. Sér inngangur.
Asparfell
4ra—5 herb. ibúö á 6. hæö. laus í
júni. Möguleiki á bílskúr.
Hulduland
4ra herb. endaíbúö á fyrstu hæö.
Suöur svalir. Verö 900 þús.
Hagamelur
4ra herb. 115 fm 1. hæö í þríbýlis-
húsi. Suðursvalir. Laus nú þegar.
Álftahólar
5 herb., 125 fm íbúö á 3. hæð
ásamt bílskur. Möguleiki á aö
taka minni íbúð upp í. Til afhend-
ingar 1. júní.
Seljabraut
Endaraöhús á þremur hæöum. Til
afhendingar nú þegar.
Langholtsvegur
150 fm efri sérhæö, ásamt 48 fm
bilskúr.
Völvufell
130 fm raöhús á einni hæö ásamt
bílskúr.
A FASTEIGNASALAN
ASkálafell
Bolholt 6, 4. hæð.
Sölustjóri: Valur Magnússon.
Viöskiptafræöingur: Brynjólfur Bjarkan.