Morgunblaðið - 02.02.1982, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1982
11
Hárgreiðslu- og hár-
skerastofur sameinaðar
HitU 4li
HÁRSNYRTISTOFAN að Hótel
Loftleiðum hefur nú tekið til starfa
undir stjórn þeirra Sigríðar Guð-
mundsdóttur, hárgreiðslumeistara,
og Svönu L. Ingvaldsdóttur, hár
skera- og hárgreiðslusveins. Rakara-
stofan, sem áður var á öðrum stað í
húsinu, og hárgreiðslustofan hafa nú
verið sameinaðar og eru miðsvæðis í
húsinu, næstar sundlaug og snyrti-
stofu.
Þær Sigríður og Svana störfuðu
áður á Rakara- og Hárgreiðslu-
stofunni á Klapparstíg. Sigríður
lærði hins vegar hjá Helgu Jóa-
kimsdóttur, en Svava lærði á Rak-
ara- og Hárgreiðslustofunni á
Klapparstíg. Þær annast alhliða
hársnyrtingu og klippingar.
Breyting sú, sem hér hefur á orðið,
er til hagræðingar fyrir hótelgesti
og aðra viðskiptavini sem koma úr
Reykjavík og nágrannabæjum.
Snyrtistofan að Hótel Loftleið-
um undir stjórn Elísabetar
Matthíasdóttur, snyrtifræðings,
er næst hársnyrtistofunni. Elísa-
bet hefur starfrækt snyrtistofuna
að Hótel Loftleiðum í rúmt ár.
Hún starfaði áður á Snyrtistofu
Rósu og Mæju í Hafnarfirði, en
lærði í Snyrtiskóla Margrétar
Hjálmtýsdóttur.
Á sömu hæð hótelsins og snyrti-
HLJÖMAR
Kápumynd bókarinnar.
Nótnabók með 39
harmónikkulögum
KOMIN er út bókin „Nikkan hljóm-
ar“, en hún hefur að geyma 37 dans-
lög eftir Guðjón Matthíasson og 2 lög
eftir Sverri Guðjónsson.
Útgefandi er Letur, en í bókinni
eru útsetningar laganna fyrir har-
mónikku, en einnig eru þær gerðar
fyrir píanó og gítar. Lögin eru
polkar, valsar, masúrkar, rælar og
skottísar og eru ljóðin m.a. eftir
Hugrúnu, Núma Þorbergsson, Dav-
íð Stefánsson og Brynjólf Guð-
mundsson auk lagahöfund.
Leiðbeininga-
bók um út-
fyllingu skatt-
framtals
„SVONA á að telja fram til skatts
1982“ heitir rit, sem nýlega er komið
út og er leiðarvísir um ýmislegt er
lýtur að skattframtali. Fjallað er
einnig um hvernig kæra skal álagn-
ingu og fleiri atriði.
Höfundur leiðbeininga þessara
er Jónas Jónasson og Leiðarvísir
sf. er útgefandi. Ágóði af sölunni
rennur til Vinafélags aldraðra,
sem stofnað var 1. desember sl. og
mun félagið ráðstafa ágóðanum.
Sem fyrr segir er auk leiðbeininga
fjallað um skattakærur, niðurfell-
ingu gjalda, fylgiskjöl, frest, bréf
til yfirvalda og leiðréttingar. Skrá
er yfir aðsetur skattstjóra hinna
ýmsu umdæma og gefnir þar upp
skrifstofusímar auk þess sem get-
ið er aðseturs ríkisskattstjóra.
stofurnar tvær eru, er einnig
sundlaug. Þar er að finna gufuböð
og ljósalampa sem einnig eru ætl-
aðir til lækninga. Ennfremur
heilsuræktartæki, og nuddsér-
fræðingur er á staðnum sem ann-
ast þá hlið þjónustunnar. Sérstök
vatnsnuddtæki verða sett upp í
sundlauginni á næstunni.
Með þeim breytingum og hag-
ræðingum, sem nú hafa verið
gerðar að Hótel Loftleiðum, er þar
nú á einum og sama stað heilsu-
ræktar- og alhliða snyrtistaður.
BYDURÞO
VENJULECA TÉKKA EÐA
ÁBYRGOAR
TÉKKA
FRÁ ÚTVECSBANKANUM MW
\'zy
Sé Útvegsbankinn þinn viðskiptabanki, eða opnir þú þar
reikning nú, getur þú sótt um að íá rétt
til útgáíu ábyrgðartékka.
Þá fylgir hverjum tékka sem þú gefur út, skilyrðislaus
innlausnarábyrgð írá
Úvegsbanka íslands að upphœð kr. 1.000-
Hve mikið fé þú átt inni á tékkareikningi þínum
skiptir þann engu máli sem tekur við tékka írá þér.
Bankinn ábyrgist innlausnina, s.s. áður segir.
Jaíníramt íœrð þú skírteini írá Útvegsbankanum
sem sannar það
að bankinn treystir þér fyrir útgáfu ábyrgðartékka.
Allir aígreiðslustaðir bankans veita
nánari upplýsingar um ábyrgðartékkana og notkun þeirra.
UTVEGSBANKI
ÍSLANDS