Morgunblaðið - 02.02.1982, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1982
Hljóðmúr Allaballaauð-
valdsins í Byggingarfé-
lagi verkamanna rofinn
Eftir Bjarna G.
Tómasson
Á sumri komanda eru 42 ár
síðan flutt var í íbúðir fyrsta
flokks Byggingarfélaxs verka-
manna. Sumarið 1940 líður þeim
seint úr minni; sem þá áttu fyrir
heilili að sjá, eða voru þá farnir
að afla tekna. Heimskreppan var
þá búin að liggja á okkur eins og
mara á annan áratug. Þennan
sólbjarta vormorgun var
Reykjavík orðin morandi af her-
mönnum, sem höfðum hernumið
ísland þetta minnisstæða ár,
1940. Umskiftin voru ótrúleg.
Allir fengu næga vinnu, en
minnisstæðast er mér þegar sá
ótti vaknaði að Bretar ætluðu að
hernema hús Byggingarfélags-
ins. Það voru því ekki hvað mig
snerti höfð vettlingatök við að
koma dótinu inn í búðina um leið
og leyfið kom.
Það eru mörg vötn runnin til
sjávar síðan það kærleiksverk
varð að veruleika, að Byggingar-
félag verkamanna var stofnað og
lög um byggingarsjóð voru gefin
út, undirrituð af Haraldi Guð-
mundssyni 9. janúar 1935. 1939,
27. maí, eru gefin út bráða-
Bjarni G. Tómasson.
birgðalög sem endurbót á nefnd-
um lögum. Emil Jónsson gefur
út lög. nr. 30/1970, þau ganga út
frá því að byggingarfélög verka-
manna, sem starfað hafa á
grundvelli eldri laga hætti störf-
um. Þar með er Byggingarfélag
verkamanna í Reykjavík orðinn
lokaður félagsskapur. I lögunum
segir: „Byggingarfélag verka-
manna getur á félagsfundi
ákveðið einhliða að fela sveitar-
stjórn hlutverk sitt. I framhaldi
af slíkri ákvörðun skal slíta fé-
laginu svo sem samþykktir þess
og lög um samvinnufélög nr. 46
frá 1937 mæla fyrir um.“ Þetta
færðum við okkur ekki í nyt.
Þegar Magnús H. Magnússon
var félagsmálaráðherra, þá kvis-
aðist að nú mættum við eigendur
íbúðanna sjá um söluna á frjáls-
um markaði. En Adam var ekki
lengi í Paradís. Magnús samdi
frumvarp. I því segir í 17. gr.
undir lið um kaupskyldu og for-
gangsrétt sveitarfélaga orðrétt:
„Nú hafnar sveitarstjórn for-
kaupsrétti sínum skv. 4. mgr. 16.
gr. og er þá íbúðareiganda
frjálst að selja íbúð sína öðrum
aðila, enda greiði hann að fullu
eftirstöðvar láns Byggingarsjóðs
verkamanna. Sveitarstjórn skal
þá gefa út yfirlýsingu til þing-
lýsingar, um að niður séu fallnar
allar kvaðir, sem verið hafa á
íbúðinni hvað varðar forkaups-
rétt og takmarkanir á ráðstöfun-
arrétti." Núgildandi lög eru um
Húsnæðisstofnun ríkisins nr.
51/1980, samin í ráðherratið
Svavars Gestssonar. Þar er þessi
„En hafa íbúðareig-
endur athugað að hið
nýja auðvald Allaball-
anna framkvæmir nú
eignaupptöku í stórum
stfl. Það sem upphaf-
lega var stofnað til
styrktar félitlu fólki er
nú snúið gegn því. Vita
þeir að yfirvöld eru
með sífelldum laga-
breytingum að þreifa
fyrir sér hvernig best
sé að hafa af gömlu
fólki meir en helming
þess, sem hægt er að
selja íbúðir þeirra á á
frjálsum markaði.“
4. mgr. 17. gr. í frumvarpi Magn-
úsar skráð að mestu orðrétt.
Það, sem hér hefur verið fjall-
að um þau lög, sem gefin hafa
verið út varðandi byggingarsjóð
er ekki tæmandi, enda um frum-
skóg að ræða, eða tíu lagabálka,
en þessi lög snerta okkur íbúðar-
eigendur á ýmsan hátt, og sýna
hvað við hefðum getað gert. Eg
sótti t.d. um það bréflega til
borgarráðs að borgin hafnaði
forkaupsrétti sínum á minni
íbúð. Eg var hafður fyrir narra.
Lá þó fyrir samþykkt í borgar-
ráði þess efnis að hafna for-
kaupsrétti á íbúðum Byggingar-
félags verkamanna í Reykjavík.
Varðandi B.v. get ég sagt
þetta. Ég sótti um það að fá
stærri íbúð. Þegar íbúðin var
auglýst sótti ég um hana með
bréfi, dagsettu 24. apríl, 1978.
Bréfinu var aldrei svarað og því
síður að talað væri við mig. í
bréfinu var tekið fram að ég
væri stofnandi að B.v.
Þeim fækkar óðum, sem fluttu
á sama tíma inn í fyrstu íbúðir
B.v. Viðhorf þeirra hefur breyst
til félagsins, það er ekki hægt að
sjá að þetta sé sama félagið og
upphaflega var stofnað. .
En hafa íbúðareigendur at-
hugað að hið nýja auðvald Alla-
ballanna framkvæmir nú eigna-
upptöku í stórum stíl. Það sem
upphaflega var stofnað til
styrktar félitlu fólki er nú snúið
gegn því. Vita þeir að yfirvöld
eru með sífelldum lagabreyting-
um að þreifa fyrir sér hvernig
best sé að hafa af gömlu fólki
meir en helming þess, sem hægt
er að fá fyrir íbúðir þeirra á
frjálsum markaði.
Þetta er ekkert annað en átt-
hagafjötrar, sem binda eigendur
við íbúðirnar, sökum þess að þeir
verða annaðhvort að gefa meir
en heilming eigna sinna eða sitja
á sínum stað sem í ráðstjórn
væri. Ýmsir í eldri flokkunum,
sem verða að sæta þessum afar-
kostum, hafa við íbúðarkaup sín
aldrei fengið lán hjá félaginu,
greitt allt á borðið.
Þessi mál verða ekki leyst
nema eigendur standi þétt sam-
an og sameinaðir um sama sjón-
armiðið, að eigendur fái ráðstöf-
unarréttinn í sínar hendur yfir
íbúðunum og þeim þinglýst sem
þeirra eign, það er ekki eign sem
ekki er hægt að ráðstafa. Þeir
fiska ekki, sem ekki róa.
Laugavegi 63, á horni Vitastígs og Laugavegs.
Verksmiðjuverð
Kvenfatnaöur, svo sem kápur, jakkar, dragtir, úlpur, anorakar, buxur.
Ennfremur barnabuxur og efnisbútar.
Athugið:
Opið frá kl. 13-18 S0LID0
Afetvrci## - Bátavélar
Eigum fyrirliggjandi 80 hestafla Ford Marcraft Diesel
bátavélar meö skrúfu og skrúfuöxli. Vélarnar eru með PRM
265 niðurfærslugír 3:1. 2 Alternatorar 30 og 90 AMPER. 24
Volta rafkerfi. Jabsco lensidælu með kúplingu. Tvöföld
stjórnun á vél. Aflúrtak fyrir vökvadælur. Varahlutir og
verkfæri samkvæmt reglum Siglingamálastofnunar.
Leitiö upplýsinga. Góðir greiösluskilmálar.
Getum afgreitt vélar strax á gömlu gengi.
Vélar & Taeki hf.
rRYGGVAGATA 10 BOX 397
REYKJAVlK SlMAR: £'286 - 21460
Fjölskyldutekjur
hæstar á kúabúum
FVRIK nokkru kom úl ársskýrsla líurciknisloln landbúnaðarins fyrir árið 1980.
Það ár fa'rðu 216 bændur búreikninga í samvinnu við Búreikningastofuna. Aðeins
voru leknir með 141 reikningur til endanlegrar úrvinnslu. Af þeim voru 52 kúabú,
blönduð bú voru 34 og sauðfjárhú 55. Meðalstærð allra búa var 543 ærgildi.
Kúabúin voru stærst með 756 ærgildi, blönduðu búin voru með 518 ærgildi en
sauðfjárbúin með 358 ærgildi. Meðalfjirlskvldutckjur hækkuðu frá fyrra ári um
53% en framleiðslukostnaður um 47%. Framleiðslutekjur reyndust vera 249 þús-
und nýkr., þa'r höfðu hækkað um 50%. Fjölskyldutekjur voru hæstar á kúahúun-
um, reyndust þær vera 122 þús. kr. Að meðaltali á öllum búunum voru fjölskyldu-
tekjur 97 þúsund nýkr.
Uppgjör einstakra búgreina var
gert eftir svokallaðri framlegðarað-
ferð. Hún er fólgin í því að breyti-
legum kostnaði er skipt milli bú-
greina en ekki föstum kostnaði, þ.e.
launagreiðslum, vöxtum, fyrningum
o.fl. Framlegð búgreina er fundin
með því að draga breytilegan kostn-
að frá framleiðslutekjum, en fram-
legð af öllu búinu fæst með því að
leKgja saman framlegð einstakra
búgreina.
Meðalframlegð á vetrarfóðraða
kind var kr. 348, hver vetrarfóðruð
kind gat því greitt þessa upphæð
fyrir vinnu, vexti og fyrningar.
Framleiðslutekjur á kind voru að
meðaltali tæpar 500 kr. Árið 1980
var meðalnyt árskúa 3.478 ltr. Fram-
legð á árskú reyndist vera 6.656 kr.
en breytilegur kostnaður var 4.211
kr.
Það sem hafði mest áhrif á af-
komu kúabænda var nythæð kúnna.
Framlegðin á árskú var því meiri
sem meðalnytin var hærri. Á þeim
búum sem meðalnyt eftir árskú var
3.165 ltr. var framlegðin 5.664 kr. en
þar sem meðalnytin var 3.889 ltr. var
framlegðin 7.502.
Framleiðslukostnaður á heyi
reyndist vera kr. 0,74 á kg.
Skuldaaukning á árinu var að
meðaltali tæp 21 þús. en skulda-
aukning umfram eignaaukningu
reyndist vera 4.780 kr. Skuldaaukn-
ing varð mest á blönduðu búunum.
Á undanförnum árum hafa orðið
nokkrar sveiflur í tekjum eftir bú-
tegund. Árin 1969—1973 og
1976—1980 skipa kúabúin efsta sæti.
Sauðfjárbúin voru efst árin 1974 og
1975. Árið 1976 voru fjölskyldutekj-
ur svipaðar á öllum þrem bútegund-
unum, en 1977—1979 voru sauðfjár-
búin í neðsta sæti. Öll hin árin voru
blönduðu búin með minnstu tekjurn-
ar.
Ritstjóri Ársskýrslunnar er Jó-
hann Ólafsson, en hann er jafnframt
forstöðumaður Búreikningastofu
landbúnaðarins. Ársskýrslan fæst
hjá Búnaðarfélagi íslands. (Ath. all-
ar upphæðir eru taldar í nýkrónum.)
GULLFOSS % IW~> AIRP0RT
AÐALSTRÆTI9 SIMI12315
ENDUROG HENDUR - MIOB/EJARMARKAONUM
AOALSTR/FTI9 - 101 REYKJAVIK - ICELAND - TEL : 27620
MIÐBÆJARMARKAÐNUM 021015
Markaðurinn metravara
SEYMA HF