Morgunblaðið - 02.02.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1982
21
^^1 III II I II II II i—
HDrðHlrl
Jóhannes búinn
að velja sterkan
landsliðshóp
Jóhannes Atlason landsliðsþjálf-
ari í knattspyrnu valdi um helgina
landsliðshópinn sem sækir heim
Kuwait, Quatar og Sameinuðu
furstadæmin í mars næstkomandi.
Mun undirbúningur fyrir keppnina
hefjast strax og auðið er, enda er
naumur tími til stefnu. Hópinn skipa
eftirtaldir leikmenn:
Markverðir:
Þorsteinn Bjarnason ÍBK
• Njáll Eiðsson Val
inn í fyrsta sinn.
landsliðshóp-
Guðmundur Baldursson Fram
Bjarni Sigurðsson ÍA
Aðrir leikmenn:
Örn Óskarsson ÍBV
Sigurður Halldórsson IA
Ómar Rafnsson UBK
Ólafur Björnsson UBK
Viðar Halldórsson FH
Marteinn Geirsson Fram
Trausti Haraldsson Fram
Ásbjörn Björnsson KA
Ómar Torfason Vík.
Hörður Hilmarsson UMFG
Sigurður Lárusson íA
Njáll Eiðsson Val
Sigurlás Þorleifsson ÍBV
Sigurður Grétarsson UBK
Jón Einarsson UBK
Eins og komið hefur fram í
fréttum, leikur íslenska landsliðið
sex leiki ytra, tvo gegn hverri
þjóð. Fyrsti leikurinn verður gegn
Quatar 28. febrúar.
Þrjú heimsmet
• ÞRJU heimsmet voru sett um
helgina. Reinaldo Nehmiah sló
gamla metið í 60 metra grinda-
hlaupi innanhúss, hljóp á 6,82
sekúndum. Hann setti einnig
heimsmet í 50 metra spretti, en
AP gaf ekki upp tímann. Þriðja
heimsmetið setti Jeanette Bold-
en, er hún hljóp 60 metra á 6,60
sekúndum. Metin voru sett á
móti í Dallas í Texas.
• Atli Kðvaldsson í færi upp við markið í leik. llm síðustu helgi skoraði
hann fyrir lið sitt í „Bundesligunni“.
Öruggt
hjá Ingólfi
INGÓLFUR Jónsson sigraði í
karlaflokki á Mullersmótinu í
skíðagöngu sem haldið var í
Hveradölum í leiðindaveðri um
helgina. Ingólfur, sem er í SR,
fékk tímann 24,16 minútur, en
gengnir voru 8 kílómetrar. Örn
Jónsson SR varð annar á 27,35
en aðrir keppendur voru dæmdir
úr leik.
í flokki 17 ára og yngri sigr-
aði Garðar Sigurðsson SR á
18,16 mínútum, gengnir voru 5
kílómetrar. í flokki 18 ára
kvenna og yngri sigraði hins
vegar Rannveig Helgadóttir
SR á 10,38 mínútum, gengnir
voru 2,5 kílómetrar.
FH sigraði
26—2
FH VANN stóran sigur á Þrótti í
meistaraflokki kvenna í ís-
landsmótinu í handknattleik á
sunnudag. Eftir að staðan hafði
verið 14—0 í hálflcik lauk leikn-
um með sigri FH, 26—2. Lið Vals
og Fram gerðu jafntefli 12—12,
eftir mikin hörkuleik á sunnu-
dagskvöld. Þá sigraði lið V'íkings
lið KR nokkuð örugglcga með 19
mörkum gcgn 13.
Lið FH cr nú efst í 1. deild
mcð 15 stig cftir 8 leiki.
Atli skoraði eitt af
f jórum mörkum Diisseldorf
ATLI Eðvaldsson cr kominn aftur
inn í myndina hjá Fortuna Diisscl-
dorf í þýsku úrvalsdcildinni í
knattspyrnu, en hann sknraði fyrsta
mark liðsins í stórsigri, 4-1, gegn
Armenia Bielefeldt um hclgina.
Bielefeldt náði forystunni á 33. mín-
útu er Riedel skoraði mark úr víta-
spyrnu. En Atli jafnaði fyrir Fortuna
á 40. mínútu og yfirburðir liðsins í
síðari hálfleik voru miklir, Dusend
skoraði á 58. mínútu, W'enzcl úr víti
á 67. mínútu og loks Thomas Allofs
á 73. mínútu. Eins og sjá má á stöð-
unni hér að ncðan, er Fortuna nú
komið af mesta hættusvæðinu í
dcildinni, en þó eru mjög mörg lið í
fallhættu ef grannt er skoðað. Urslit
leikja urðu sem hér segir:
„Þetta var okkar dagur“
- sagði Ólafur H. Jónsson, þjálfari Þróttar eftir sigurinn gegn FH
Wordor Hromon — Hayorn Miinrhon fr
K. Dussoldorf — Arm. Hiolofoldt 4-1
Karlsruho — B. Miinohont'ladharh l-|
Kinlr. Hraunst hwoij» — Stuttj'arl fr
Kaisorslaulcrn — Duishurj; .*!-«
Hor. Dortmund — llamhur^or S\ 2-3
Nurnhorj; — Krankfurl fr.
Darmsladl 9K — Hayor Lovorkuson fr
FC Köln — Hochum 1-0
FC Köln notaði tækifærið og
skaust í efsta sætið með sigrinum
gegn Bochum. Leikurinn þótti afar
slakur, en sigurinn þó sanngjarn.
Útherjinn Pierre Littbarski skor-
aði sigurmarkið á 75. mínútu.
Umskiptin í leik Dortmund og
HSV voru mikil og skyndileg,
heimaliðið lék á als oddi í fyrri
hálfleik og hafði tveggja marka
forystu, en þeir Keser og Burgs-
muller sáu um það. í síðari hálf-
leik snérist dæmið hins vegar ger-
samlega við. HSV hafði þá mikla
yfirburði. Daninn Lars Bastrup
skoraði tvívegis og jafnaði, sigur-
markið skoraði síðan Horst Hrub-
esch rétt fyrir leikslok.
Borussia Mönchengladbach
sótti Karlsruhe heim og hafði
heimaliðið óvænta og umtalsverða
yfirburði þrátt f.vir að liðið sé í
hópi neðstu liða, en BMG í hópi
efstu. Erwin Gross skoraði fyrir
Karlsruhe á 58. mínútu og það var
ekki fyrr en rétt fyrir leikslok, að
Mill jafnaði fyrir BMG.
Loks vann Kaiserslautern ör-
uggan sigur gegn Duisburg sem
getur hreinlega ekkert. Funkel
skoraði fyrsta niarkið á 34. mín-
útu, en fleiri urðu mörkin ekki
fyrr en þremur mínútum fyrir
landsleik, en Brummer og Dusek
bættu mörkum við. Staðan er nú
I. KC Kiiln I!) 12 4
Havorn Múnohon 19 13 2
Horussia Dorlmund 20 10 K
Wordor Hromon 19 9 3
Ilamhuri'cr SN |7 9 4
Horussia Dorlm. 20 9 4
Kinlrachl Frankf. IK 9 2
Kinlraohl Hraunsohw. |K 10 0
VFB Siullgarl IK 6 6
I. FC Kaisorslaulorn 17 3 7
VFL Hoohum 19
Kortuna Dússoldorf 19
I. FC Núrnhorj; 19
Darmsladl 9K |9
Hayor Ix-vorkuson IK
Arminia Hiolofoldlt 20
Karlsruho SC 17
MSV Duishurt; IK
3 39-14 2K
4 44-27 2K
2 38-26 2K
5 31-29 23
4 46-23 22
7 35- 25 22
7 46-36 20
K 32-2K 20
6 25- 28 18
5 36-33 17
8 28-30 16
5 5 9 31-39 15
6 3 10 28-40 15
4 6 9 22-42 14
4 5 9 22-38 13
4 5 11 19-32 13
4 4 9 25-35 12
4 2 12 23-45 10
5 6
Það var kált á hjalla í húningsklef-
um Þróttara eftir hinn örugga sigur
gegn FH og grcinilegt, að íeikmcnn
stefna á sigur í 1. deild. „Þctta var
okkar dagur,“ sagði Ólafur H.
Jónsson, þjálfari liðsins eftir sigur-
inn.
„Við byrjuðum illa og FH náði
þriggja marka forustu en þá
breyttum við vörninni, úr flatri
vörn í 3—3, fórum vel út á móti
þeim. Þetta virtust FH-ingar ekki
ráða við og við kafsigldum þá í
síðari hálfleik þegar við keyrðum
hraðann upp; breyttum stöðunni
úr 14—13 í 21—14. Við náðum
þessu með sterkri vörn og frá-
bærri markvörzlu Ólafs Bene-
diktssonar. Það fylgist einatt að,
sterk vörn og frábær markvarzla.
Eg er mjög ánægður. Við náðum
þeim markmiðum sem við settum
okkur fyrir leikinn, að sigra, og
hlutum tvö dýrmæt stig. Þetta var
góður leikur af okkar hálfu og ég
vil geta þess, að dómgæzla þeirra
Björns Kristjánssonar og Karls
Jóhannssonar var mjög góð,“
sagði Ólafur H. Jónsson.
— Nú eru þrjú lið efst og jöfn á
toppi 1. deildar, Víkingur, Þróttur
og FH og KR skammt undan.
Hverja telur þú möguleika ein-
stakra liða?
„Ef við spilum þá leiki sem eftir
eru eins og í dag, þá verðum við í
toppbaráttunni og ég er bjartsýnn
• ÞORGILS Óttar, FH, reyndi að
stöðva Pál Olafsson, Þrótti, I leik
liðanna á laugardag. Sjá allt um
lciki helgarinnar á bls. 23, 24, 25.
á sigur. En við eigum erfiðan leik
fyrir höndum við KR og ætlum
okkur sigur.
Það vantar breidd í iið FH.
Leikur liðsins hrynur ef Kristján
Arason er tekinn stíft. Þá skortir
meiri breidd og hitt er líka, að lið-
ið er ekki eins afgerandi hér í
Höllinni eins og suður í Hafnar-
firði; þar eru þeir feikisterkir.
Víkingar eru mjög sterkir og
erfiðir viðureignar og ég er þeirr-
ar skoðunar að baráttan um ís-
landsmeistaratign standi milli
þessara þriggja liða. KR-ingar
eiga við svipuð vandamál að stríða
og FH-ingar; þeir byggja um of á
einum leikmanni, Alfreð Gísla-
syni. Það þarf að gæta þessara
tveggja leikmanna mjög vel.
Hitt er svo, að ekkert þessara
liða er nógu „stabilt“, nógu afger-
andi í dag. Ég tel að Valur eigi
eftir að taka stig af þessum liðum.
En eins og ég sagði, ef við leikum
eins og í dag, náum upp sömu bar-
áttu í vörninni og sömu mark-
vörzlu, þá förum við langt með
sigur í 1. deild,“ sagði Ólafur H.
Jónsson.
II.Halls.
Steiner sigraði
Austurríkismaðurinn Anton
Steiner sigraði í svigi í heims-
mcistarakcppninni í skíða-
íþróttum sem fram fer í
Schladming í Austurríki um
þessar mundir. Sigur hans var
öruggur er Andreas W’enzel féll
f síðari ferð sinni, en hann var
með lang besta tímann eftir
fyrri ferðina. Tími Steiners var
1:41.26 mínútur samanlagt.
Bojan Krizaj frá Júgóslavíu
fékk reyndar besta tímann, en
hann sleppti hliði í síðari -ferð-
inni og var dæmdur úr leik.
Miller enn sigursæll
JOHNNV Miller sigraði á opna
Andy Williams-golfmótinu í
San Diego um helgina og var
mikil spenna undir lokin, enda
hatðist ekki sigur fyrr en eftir
harða keppni við snillinginn
Jack Nicklaus. Þegar upp var
staðið hafði Miller sigrað á
samtals 270 höggum, eða 18
undir pari, Nicklaus lék á sam-
tals 271 höggi. Nicklaus hland-
aði sér í toppslaginn einkum á
frammistöðu sinni fyrsta dag
mótsins, en þá setti hann vall-
armet, lék á 64 höggum, eða
átta undir pari. Fór hann þá
tvær holur á „erni“, eða tveim-
ur undir pari.
Miller hreppti 54.000 dali í
verðlaun fyrir sigurinn, en
Nicklaus stakk einnig dágóðri
summu í vasann. enda var
hann einn og yfirgefinn í öðru
sæti. Tom Kite og John W'eis-
kopf voru jafnir I 3.-4. sæti,
háðir léku á samtals 273 högg-
um.
*
• 9 9 * 9 9 f W * € * ff
9II | |l I t'M €99 9 f 99 * 9# ff • ff-9- • 9 *•» 999 • 9 I* 9 99 Mttll 99 99.9 M| ff 9