Morgunblaðið - 02.02.1982, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRUAR 1982
23
KR lagði UMFN
með 1 stigs mun
KR-ingum tóksl að leggja Njarðvík-
inga með eins stigs mun, í spenn-
andi leik, í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik í íþróttahúsi Hagaskólans
á sunnudagskvöldið. Lokatölur urðu
72:71 (43:37) KR í vil, eftir spenn-
andi og afdrifaríkar lokamínútur.
KR hafði 10 stiga forystu er 5 mínút-
ur voru til leiksloka, en þá tók
Ilanny Shouse til sinna ráða og skor
aði 9 stig í röð fyrir Njarðvíkinga án
þess aiKR næði að svara og voru þá
3 mínútur til leiksloka. Þá skoraði
Stew Johnson körfu fyrir KR og jók
muninn í 3 stig en Valur Ingimund-
arson minnkaði muninn í 1 stig er
rúm mínúta var til leiksloka, en það
dugði Njarðvíkingum ekki, þrátt
fyrir að þeir fengju næg tækifæri til
að komast yfir, og KR-ingar stóðu
sem sigurvegarar í lokin.
Leikurinn var mjög jafn framan
af, liðin skiptust á um að skora og
jafnt var á flestum tölum þar til á
13. mínútu er KR-ingar náðu for-
ystunni og varð hún mest 7 stig til
fyrir leikhlé, en 6 stig, 43:37 í hálf-
leik.
Eftir leikhlé héldu KR-ingar
síðan forystunni til leiksloka, þó
Njarðvíkingum tækist af og til að
minnka muninn í 1 og 2 stig. Þeir
voru síðan miklir klaufar að ná
ekki forystunni á síðustu mínútu
leiksins, er Shouse mistókst þrí-
vegis í röð undir körfu KR-inga og
Gunnari Þorvarðarsyni mistókst
sending er 43 sekúndur voru til
KR: Njarðvík
72 — 71
leiksloka. KR-ingar höfðu þá eins
stigs forystu og náðu að halda
knettinum til leiksloka.
Þrátt fyrir tapið hafa Njarðvík-
ingar enn 4 stiga forystu í úr-
valsdeildinni, en þeir verða að
leika betur en að þessu sinni ef
þeir ætla sér ekki að hleypa
Frömmurum of nálægt sér. Danny
Shouse var að venju atkvæðamest-
ur Njarðvíkinga, skoraði 44 stig,
en aðrir leikmenn voru nokkuð frá
sínu bezta og enginn þeirra náði
að skora fleiri en 9 stig.
Stew Johnson var beztur
KR-inga, bæði í vörn og sókn og
Garðar Jóhannsson var góður í
fyrri hálfleik.
Stig KR: Stew Johnson 31,
Garðar Jóhannsson 19, Jón Sig-
urðsson 8, Ágúst Líndal 6, Stefán
Jóhannsson 4 og Birgir Mikaels-
son og Páll Kolbeinsson 2 hvor.
Stig UMFN: Danny Shouse 44,
Valur Ingimundarson 9, Gunnar
Þorvarðarson 8, Jónas Jóhannes-
son 6 og Jón Viðar Matthiasson og
Sturla Örlygsson 2 hvor.
HG
• Stu Johnson gnæfir hátt yfir aðra leikmenn og skorar tvö stig fyrir KR.
Aðrir á myndinni eru f.v. Stefán Jóhannsson, Sturla Örlygsson, Valur Ingi-
mundarson, Jónas Jóhannesson og Bjarni Jóhannesson.
Einkunnagjðfin
KR
Garðar Jóhannsson 8
Jón Sigurðsson 7
Ágúst Líndal 6
Stefán Jóhannsson 6
Iiirgir Mikaelsson 5
Páll Kolbeinsson 5
Aðrir léku of lítið til að fá cinkunn.
IIMFN
Gunnar Þorvarðarson 7
Valur Ingimundarson 7
Jónas Jóhannesson 6
Jón Viðar Matthíasson 5
Sturla Örlygsson 5
Ingimar Jónsson 5
Smári Traustason 5
Aðrir léku of lítið eða ekki.
• Víkingurinn, Steinar Birgisson, sækir að vörn KR-inga í leiknum á laugardag. Leikur liðanna var mjög harður og
var Víkingum alls vikið 10 sinnum af leikvelli. IJósni. Kax.
Leikur KR-inga hrundi
í síðari hálf leiknum
- og Víkingar gengu auðvitað á lagið
VÍKINGUR sigraði KR 23—19 í 1.
deild íslandsmótsins í handknatt-
leik um helgina, í leik sem var fjarri
því að vera jafn spennandi og
skemmtilegur og búast mátti við.
Eins og liðin léku á laugardaginn
var það hreinlega miklu betra liðið
sem sigraði. Náðu Víkingar um tíma
átta marka forystu í síðari hálfleik
þrátt fyrir að hverjum þeirra á fætur
öðrum væri vikið af leikvelli. Tvíveg-
is í síðari hálfleik voru aðeins fjórir
Víkingar inn á og alls voru Víkingar
reknir tíu sinnum af leikvelli.
Það var kraftur í KR-ingum
fyrstu mínúturnar, Gunnar Gísla-
son skoraði glæsilegt mark strax á
Rúmenar
sigruöu
RÚMENÍA sigraði á allsterku
6-landamóti í handknattleik um
helgina, hinu svokallaða Jerez de La
Frontera-móti sem haldið er árlega á
Spáni. Mótið stóð yfir í viku og
tryggðu Rúmenar sér sigur með
37—22 sigri gegn Kúbu í síðasta
leiknum. Onnur úrslit í síðustu um-
ferðinni: Rússland sigraði Spán
22—21 og Japan sigraði Kína
30—22. Rúmenía hlaut 9 stig í leikj-
unum fimm, vann alla keppinauta
sína utan Spán, en þjóðirnar skildu
jafnar. Rússar fengu 8 stig, Spánn 7
stig, Japan 4, Kúba 2 og Kína ekkert
stig.
Staðan í
úrvalsdeild
í körfuknattleik
EFTIR leik helgarinnar á milli KR
og UMFN er staðan í úrvalsdeild-
inni þcssi:
Njarðvík 14 11 3 1201—1097 22
Fram 14 9 5 1171 — 1079 18
Valur 14 8 6 1134—1100 16
KR 14 8 6 1086—1152 16
ÍR 14 5 9 1089—1150 10
ÍS 14 1 13 1110—1262 2
Næsti leikur í úrvalsdeildinni er á
fimmtudag, þá leika ÍS og Valur í
fþróttahúsi Kennaraháskólans kl.
20.00.
fyrstu mínútu leiksins og Haukur
Ottesen breytti stöðunni síðan í
2—0 með miklu harðfylgi. En það
var strax ljóst, að festa var ekki
fyrir hendi í vörn KR að þessu
sinni. Þá kom og fram, þó það
kæmi ekki berlega í ljós fyrr en í
síðari hálfleik, að í sóknarleiknum
voru miklir brestir, leikmenn KR
eru afar misjafnir og ef mótlætið
er umtalsvert fer allt í vitleysu.
Eftir að staðan var orðin 2—0
fyrir KR, átti Víkingur næsta leik,
2—2 mátti sjá á töflunni og þegar
KR skoraði þriðja markið og
komst í 3—2 var þaö í næstsíðasta
skiptið sem liðið hafði forystu í
leiknum. Síðan var jafnt upp í
6—6, en Víkingur náði svo tveggja
marka forystu sem liðið hélt fram
undir lok hálfleiksins, er KR náði
að skora tvö síðustu mörkin eftir
að Páli Björgvinssyni hafði verið
vikið af leikvelli.
Síðasta skiptið sem KR hafði
forystu í leiknum var á fyrstu
mínútu síðari hálfleiksins, er AI-
freð Gíslason sendi einn af
þrumufleygum sínum í netið,
12—11 fyrir KR. En það var ekki
forsmekkurinn að því sem í vænd-
um var hjá KR, það dofnaði á ein-
beitingunni og nokkrar sóknarlot-
ur í röð fóru í vaskinn. Páll
Björgvinsson kom heldur betur við
sögu þessar upphafsmínútur síð-
ari hálfleiks, hann komst einn upp
í hraðaupphlaupum þrisvar sinn-
um í röð, skoraði tvívegis og fisk-
aði víti sem gaf mark í þriðja til-
vikinu. Framtak Páls breytti stöð-
unni úr 11 — 12 í 14—12. Næstu
mínúturnar réðu svo úrslitum.
Gunnar Gíslason skoraði að því er
virtist gott mark, en dómararnir
Árni Tómasson og Rögnvaldur
Erlingsson voru allt of fljótir að
blása í flauturnar. Þeir tóku
markið af KR, en dæmdu þess í
stað vítakast og ráku Steinar
Birgisson út af. En þetta kom KR
ekki að haldi, Kristján Sig-
mundsson varði glæsilega vítakast
Alfreðs og tvö næstu mörkin skor-
uðu Víkingar. Þarna var óhætt að
segja að sá brotlegi hafi hagnast.
Á KR-liðinu var hvorki haus né
sporður eftir þetta, Víkingur jók
muninn smám saman allt þar til
staðan var orðin 22—14 en þá var
slakað á svo um munaði. Fimm af
síðustu sex mörkum leiksins skor-
uðu svo KR-ingar, en það breytti
engu, sanngjarn sigur Víkings var
fyrir löngu kominn í höfn.
Þrátt fyrir að talsvert væri áf
áhorfendum í Höllinni og jafnræði
með liðinum allan fyrri hálfleik,
var aldrei snefill af spennu eða
stemmningu í leik þessum, hvern-
ig svo sem á því stóð. Leikurinn
var frekar slakur og einkennileg
værð yfir öllu saman. En við
hverju var svo sem að búast þegar
liðin hafa ekki leikið svo mörgum
vikum skiptir. Víkingarnir höfðu
greinilega þolað hvíldina betur,
enda lið þeirra jafnara að getu og
leikreyndara að mörgu leyti. Þetta
var þó enginn toppleikur hjá ís-
landsmeisturunum, það þurfti
ekki. Það er erfitt að gera upp á
milli leikmanna Víkings, helst að
geta Guðmundar Guðmundssonar
og frammistöðu Kristjáns Sig-
mundssonar í síðari hálfleik, er
hann varði afar vel, þ.á m. tvö
vítaköst. Þá var þáttur Páls
Björgvinssonar í upphafi síðari
hálfleiks geysilega mikilvægur, en
Palli gerði þá beinlínis út um leik-
inn á nokkrum mínútum.
Gunnar Gíslason og Jóhannes
Stefánsson voru bestu menn KR
að þessu sinni, menn sem eiga
fullt erindi í landsliðið, þó ekki
endilega bara út á frammistöðuna
gegn Víkingum. Furðulegt raunar
hvað Jóhannes hefur þurft að bíða
eftir sínu tækifæri. Álfreð Gísla-
son var sterkur og skoraði glæsi-
leg mörk, en heldur fór nýtingin
versnandi þegar á leikinn leið.
Haukur Ottesen slapp bærilega
frá sínu, en aðrir KR-ingar virtust
hálfgeröir statistar að þessu sinni.
Markverðirnir eru þó undanskild-
ir, það var varla við þá að sakast.
í stuttu máli:
Islandsmótið í handknattleik, 1.
deild: KR — Víkingur 19—23
(11-11).
Mörk KR: Alfreð Gíslason 6, 2
víti, Jóhannes Stefánsson, Gunnar
Gíslason og Haukur Ottesen 3
hver, Haukur Geirmundsson 2,
Friðrik Þorbjörnsson og Ragnar
Hermannsson eitt hvor.
Mörk Vikings: Sigurður Gunn-
arsson 7, 5 víti, Páll Björgvinsson
5, 1 viti, Guðmundur Guðmunds-
son, Þorbergur Aðalsteinsson og
Olafur Jónsson 3 hver, Árni Ind-
riðason 1 mark.
Kristján Sigmundsson varði tvö
vítaköst og því þriðja brenndu
KR-ingar auk þess af, Víkingar
voru utan vallar í alls 20 mínútur,
en KR-ingar í 6 mínútur.
- gg