Morgunblaðið - 02.02.1982, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1982
Knattspyrnan í Evrópu
i Áhorf endum f ækkar f Englandi
t
k
k
k
k
t
k
I
I
i
k
I
k
k
k
t
k
k
k
k
k
I
k
l
k
Einhver umfangsmesta deildar
keppni í knattspyrnu sem til er, er
nú vel á veg komin þó svo að veður
far hafi stigið á hemlana í bili. Er
hér að sjálfsögðu um ensku knatt-
spyrnuna að ræða, en milljónir
manns um heim allan fylgjast af
ótrúlegri ánægju og áhuga með
keppni þessari. Ástandið er samt
ekki gott í ensku knattspyrnunni og
getum við nefnt sem dæmi, að á síð-
asta keppnistímabili borguðu
22.907.569 manns sig inn á hina
2.028 deildarieiki sem fram fóru í
deildunum fjórum. Að meðaltali
voru áhorfendur því 11.300 á leik
hverjum, en það er lægsta meðaltal
síðan eftir síðari heimsstyrjöldina.
Til samanburðar má geta þess, að
keppnistímabilið 1949—'50 voru að
meðaltali 22.500 manns á leik hverj-
um.
Skýringar á þessu eru sjálfsagt
fleiri en ein og þrjár þeirra eru
öllum kunnar. I fyrsta lagi er það
vegna atvinnuleysis og verðbólgu,
almenningur hefur hreinlega ekki
ráð á að fara á völlinn lengur. í
öðru lagi er verulegur fjöldi fólks
^ sem fer ekki lengur á völlinn af
^ ótta við óaldarlýð sem víða veður
jafn spennandi að fylgjast með
ensku knattspyrnunni og mörg
liðanna skipa fastan sess í hugum
meira að segja fjölda íslendinga.
Lið eins og Manchester Utd. Liv-
erpool og fleiri eiga marga dygga
stuðningsmenn hér á landi. Að
þessu sinni veðja flestir á Ipswich
sem vaentanlegan sigurvegara í 1.
deild og margir hafa auk þess lát-
ið í ljós grun um að Liverpool sé á
uppleið á ný eftir frekar mistæka
upphafsmánuði. Þrátt fyrir að
Ipswich hafi leikið langt frá því
eins vel og þegar best lét á síðasta
keppnistímabili, stendur liðið bet-
ur að vígi í 1. deildar slagnum en
önnur. Mörg lið eru nærri toppn-
um og freista þess að ná efsta sæt-
inu og má þar nefna Manchester
City, Swansea, Southampton,
Tottenham og Manchester Utd. Þó
telja flestir, að ef eitthvert þess-
ara liða kemur til greina, þá séu
það helst þau tvö síðast nefndu.
%
*
*
t
Í
Í
I
I
Í
I
t
I
I
Í
Í
*
*
*
uppi og svífst einskis. Mörg dæmi
eru þess að blásaklaut fólk er lim-
lest eða hreinlega drepið fyrir það
eitt kannski að vera á röngum stað
á röngu augnabliki, eða hreinlega
vegna þess að það heldur ekki með
sama liði og einhver tuddi með
hníf innanklæða. í þriðja lagi má
geta þess, að það er mál margra,
að geta breskra knattspyrnu-
manna sé ekki hina sama og hér
áður fyrr. Dálítið stöðnun hefur
átt sér stað auk þess sem nokkrir
af færustu knattspyrnumönnun-
um hafa tekið að leika með erlend-
um félögum. Kom það best í ljós,
er Englendingar leyfðu í nokkurri
neyð innflutning erlendra leik-
manna og einn þeirra, Hollending-
urinn Franz Thijssen, var kjörinn
leikmaður 1. deildarinnar á síð-
asta keppnistímabili.
En hvað sem knatt^pyrnugæð-
um, atvinnuleysi, verðbólgu og
fantabrögðum líður, þá er alltaf
Framkvæmda-
stjórar I. deildar-
liða í Englandi
Arsenal: Terry Neill
Aston Villa: Ron Saunders
Birmingham: Jim Smith
Brighton: Mike Bailey
Coventry: Ðave Sexton
Everton: Howard Kendall
Ipswich: Bobby Robson
Leeds: Allan Clarke
Liverpool: Bob Faisley
Man. City: John Bond
Man. United: Ron Atkinson
Middlesbrough: Bobby Murdoch
Nottingham F.: Brian Clough
Notts County: Jimmy Sirrel
Southampton: Lawrie McMenemy
Stoke: Richie Barker
Sunderland: Alan Durban
Swansea: John Toshack
Tottenham: Keith Burkinshaw
West Bromwich: Ronnie Allen
West Ham: John Lyall
Wolves: John Barnwell
En ef vikið er aftur að vanda-
málum ensku knattspyrnunnar,
þá þykir mörgum því skjóta
skökku við, að á sama tíma og
fjöldi áhangenda knattspyrnunn-
ar eiga ekki fyrir aðgangseyri, þá
borga félögin slíkar upphæðir
fyrir „stjörnuleikmenn", að
óheyrilegt er. Manchester Utd er
án nokkurs vafa ríkasta félagið og
getur yfirboðið öll félög ef það
hefur á annað borð áhuga á. Þann-
ig náði liðið í þá Bryan Robson og
Frank Stapleton í upphafi keppn-
istímabilsins, var Robson dýrari
og fór á tæpar tvær milljónir
sterlingspunda. Mörgum þótti
farsinn ná nýjum og áður óþekkt-
um tindum, er Trevor Francis var
seldur frá Nottingham Forest til
Manchester City snemma í haust.
Var Francis þar með seldur fyrir
milljón pund eða meira í annað
skiptið. Francis er fyrstur manna
til að fordæma upphæðirnar, en
leikmennirnir eru ekki spurðir
þegar verð er sett á þá. Oftar en
einu sinni hafa leikmenn verið
seldir fyrir óskaplegar upphæðir
án þess að sýna eitt eða neitt.
Tökum sem dæmi Justin Fas-
hanu, sem hefur gersamlega horf-
ið eftir að hafa gengið til liðs við
Nottingham Forest frá Norwich.
Þó er hann fastamaður í liði For-
est. Nefnum einnig Garry Birtles,
sem Manchester Utd. keypti frá
Forest. Hann hafði verið í herbúð-
um United í heilt ár áður en hann
skoraði sitt fyrsta deildarmark
fyrir liðið. Hann hefur verið snjall
í vetur, enda kominn tími til. Og
svo má einnig geta þess í þessu
sambandi, að Hollendingarnir
Arnold Muhren og Franz Thijssen
kostuðu Ipswich algert „smotterí"
miðað við það sem innlendir leik-
menn í hæsta gæðaflokki kosta.
Nýtt spútnik-lið á Ítalíu
Undrið í ítölsku knattspyrnunni er
lið Fiorentina. Liðið náði snemma
forystu i ítölsku deildarkeppninni,
drifið áfram af frábærum leik fyrir
liðans Giancarlo Antognioni. En
nokkru fyrir áramót gerðist það í
leik gegn Genoa, að markvörður
Genoa gerðist sekur um grófan
háskaleik og bæði viðbeins- og höf-
uðkúpubraut Antognioni. Mátti An-
tognioni t eljast heppinn að sleppa
lifandi og lá reyndar um skeið milli
heims og helju. Bjuggust víst flestir
við því að lið Fiorentina myndi
brotna við þetta mótlæti, en útkom-
an var hins vegar sú, að þetta stapp-
aði bara stálinu í leikmenn liðsins
og það hefur enn forystu í deildinni,
hefur meira að segja aukið hana.
Enn er þó það langt til vors og for-
ystan það naum, að allt getur gerst
og kemur það væntanlega í hlut Juv-
entus að klekkja á Fiorentina. Juv-
entus hefur orðið að leika án lykil-
manna sinna, þeirra Marco Tardelli
og Roberto Bettega, sem eiga við
slæm meiðsl að stríða, en engu að
síður er liðið óhagganlegt úr hópi
bestu liða Ítalíu.
Einn góðkunnur kappi er á
fleygiferð í ítölsku knattspyrn-
unni, Joe Jordan, fyrrum miðherji
Leeds, Manchester Utd. og skoska
landsliðsins. Hann leikur með AC
Mílanó, en hvorki hann eða liðið
hefur sýnt nokkuð að ráði, ACM
reyndar meðal neðstu liða. Joe er
þó eins og hann er, ávallt að og
gefur sig hvergi.
Úrslit í 1 1. deild frá 1888
Nr. 1 Nr. 2 Nr. 3
1888/B9: Preston Aston Villa Wolverhampton
1889/90: Preston Everton Blackburn
1890/91: Everton Preston Notts County
1891/92: Sunderland Preston Bolton
1892/93: Sunderland Preston Everton
1893/94: Aston Villa Sunderland Derhy
1894/95: Sunderland Everton Aston Villa
1895/96: Aston Villa Derby Everton
1896/97: Aslon Villa Sheffield U. Derby
1897/98: Sheffield U Sunderland Wolverhainpton
1898/99: Aston Villa Liverpool Burnley
99/1900: Aston Villa Sheffield U. Sunderland
1900/01: Liverpool Sunderland Notts County
1901/02: Sunderland Everton Newcastle
1902/03: Sheffeieid W. Aston Villa Sunderland
1903/04: Sheffield W. Manchester C. Everton
1904/05: Newcastle Everton Manchester C.
1905/06: Liverpool Preston Sheffield W.
1906/07: Newcastle Briston C. Everton
1907/08: Manchester U. Aston Villa Manchester C.
1908/09: Newcastle Everton Sunderland
1909/10: Aston Villa Liverpool Blackburn
1910/11: Manchester U. Aston Villa Sunderland
1911/12: Blacklmm Everton Newcastle
Í912/13: Sunderland Aston Villa Sheffield W.
1913/14: Hlackhurn Aston Villa Middlesbrough
1914/15: Everton Oldham Blackburn
1919/20: West Broinwich Burnley Chelsea
1920/21: Burnley Manchester C. Bolton
1921/22: Liverpool Tottenham Burnlev
1922/23: Liverpool Sunderland Huddersfield
1923/24: Huddersfield Cardiff Sunderland
1924/25: Huddersfield West Bromwich Bolton
1925/26: Hudderfield Arsenal Sunderland
1926/27: Newcastle Huddersfield Sunderland
1927/28: Everton Huddersfield Leicester
1928/29: Sheffield W. Leicester Aston Villa
1929/30; Sheffield W. Derby Manchester C.
1930/31: Arsenal Aston Villa Sheffield W
1931/32. Everton Arsenal Sheffield W.
1932/33: Arsenal Aston Villa Sheffield W
1933/34: Arsenal Huddersfield Tottenham
1934/35: Ars.mnl Sunderland Sheffield W.
1935/36: Sunderiand Derbv Huddersfield
1936/37: Manchester C. Charlton Arsenal
1937/38: Arsenal Wolverhampton Preston
1938/39 Everton Wolverhampton Charlton
1946/47 Liverpool Manchester U. Wolverhampton
1947/48: Arsenal Manchester U. Burnley
1948/49: Portsmouth Manchester U. Derbv
1949/50: Portsmouth Wolverhampton Sunderland
1950/51; Tottenham Manchester U. Blackpool
1951/52: Manchester U. Tottenham Arsenal
1952/53: Arsenal Preston Wolverhampton
1953/54: Wolverhampton West Bromwich Huddersfield
1954/55: Uhelsea Wolverhampton Portsmouth
1955/56: Manchester U. Blackpool Wolverhampton
1956/57: Manchester IJ. Tottenham Preston
1957/58: Wolverhampton Preston Tottenham
1958/59: Wolverhampton Manchester U. Arsenal
1959/60: Burnley Wolverhampton Tottenham
1960/61 Tottenham Sheffield W. Wolverhainpton
1961/62. Ipswich Burnley Tottenham
1962/63: Everton Tottenham Burnlev
1963/64: Liverpool Manchester U. Everton
1964/65: Miinchester IJ. Leeds Chelsea
1965/66 Liverpool Leeds Burnley
1966/67: Manchester U. Nottingham Tottenham
1967/68: ManchesterC. Manchester U. Liverpool
1ÍI68/69: Leeds Liverpool Everton
1969/70: Everton Leeds Chelsea
1970/71: Arsenal Leeds Tottenham
1971/72: Dttrby Leeds Liverpool
1972/73: Liverpool Arsenal I.eeds
1973/74: l.<-<*ds Liverpool Derhy
1974/75: ilerhy Liverpool * Ipswich
1975/76: I<iverpool Queens Park Manchester U.
1976/77: Liverpool Manchester C. Ipswich
1977/78: Nottinxham Liverpool Everton
1978/79- Liverpool Nottingham West Bromwich
1979/80: Liverpool Manchester U. Ipswich
1989/81: Aston Villa Ipswich Arsenal
a
fT
>2