Morgunblaðið - 24.03.1982, Síða 13

Morgunblaðið - 24.03.1982, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1982 Hannes H. Gissur- arson skrifar um bókmenntir l'otta hefti Stefnis er helgað landsfundi Sjálfstædisflokksins 1981, og er i þvi ræAa endurkjörins formanns, Geirs Hallgrimssonar, við setningu hans og viðtal við nvkjörinn varaformann, Friðrik Sophusson. Landsfundarhefti Stefnis llreinn laiftsson (ritstj.): Stefnir, 4. heftir 1981. Útg. Samband ungra Sjálfstæð- ismanna 1981. Mikill fjörkippur er kominn í starf ungra Sjálfstæðismanna, sem var heldur dauflegt á árunum 1977—1981. Eitt gleggsta dæmið um þetta er tímaritið Stefnir, sem Sambands ungra sjálfstæðis- manna gefur út, en það er orðið ágætt þjóðmálatímarit undir rit- stjórn Hreins Loftssonar, en var áður lítið annað en auglýsinga- blað. Fjóða hefti Stefnis árið 1981 var helgað landsfundi Sjálfstæðis- flokksins í nóvember það ár, en á honum var Geir Hallgrímsson endurkjörinn formaður flokksins og Friðrik Sophusson kjörinn varaformaður — báðir stjórnar- andstæðingar — og samþykkt stjórnmálaályktun gegn vinstri stjórn Gunnars Thoroddsens. Verður ekki um það efast eftir þennan fund, að langflestir Sjálfstæðismenn eru stjórnar- andstæðingar, og er mér sagt, að fréttamönnum vinstri blaðanna hafi brugðið mjög, er þeir sáu á honum hið mikla afl, sem felst þrátt fyrir allt í Sjálfstæðis- flokknum. í Stefni er viðtal við nýkjörinn varaformann. Hver er maðurinn? Friðrik Sophusson er í hópi þeirra stjórnmálamanna, sem hafa verið vanmetnir fremur en ofmetnir. Þetta er ekki síst vegna þess, að hann haslaði sér völl í flokknurn, en ekki í fjölmiðlum, og því hefur ekki borið eins á honum og sumum öðrum. Hann var kjörinn fulltrúi ungra manna í miðstjórn 1969 (sigraði Ólaf B. Thors) og formað- ur Sambands ungra sjálfstæð- ismanna 1973 (sigraði Björn Bjarnason) og gegndi því starfi til 1977, hlaut síðan mikið fylgi í prófkjöri haustið 1977 og var kjör- inn á þing fyrir Reykvíkinga í þingkosningunum 1978. Hann hef- ur háð marga harða baráttuna og oftar en ekki sigrað. Að vísu hafa vinir hans — og þá á hann marga — ráðið yfir öflugri kosningvél, en sigrarnir eru þó umfram allt hon- um sjálfum að þakka. Hann er bóngóður og skapgóður, hroki er ekki til í honum, hann er duglegur, vel að sér um stjórnmál og laginn funda- og samningamaður, og hann á lengi eftir að vera í forystusveit Sjálfstæðisflokksins, ef ég er einhver spámaður. „Hann Dndir forystu Geirs II. Haardes hag- fræðings hefur nýtt líf færst í starf ungra sjálfstæðismanna. kann að fyrirgefa," sagði einn fylgismaður hans í prófkjörinu 1977, sem hafði barist mjög gegn honum á þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna fjórum árum áður, og þá kunnáttu verða allir stjórnmálamenn að hafa. Friðrik er í hópi frjálslyndustu mannanna í Sjálfstæðisflokknum. Hann hafði forystu um stefnu- mörkun ungra Sjálfstæðismanna undir kjörorðinu „Báknið burt!“ — 1977 og var einn af höfundum bók- arinnar llppreisnar frjálshyggjunn- ar 1979. Hann segir í viðtalinu í Stefni, að hann aðhyllist þær hugmyndir, sem komið var í orð- um að í stefnuskránum Endurreisn í anda frjálshyggju og Leiftursókn gegn verðbólgu, en lætur þessi orð falla um Framkvæmdastofnun ríkisins: „Að mínu áliti er Fram- kvæmdastofnunin samt óþarfur milliliður í lánamálum atvinnu- veganna og minnisvarði um það að okkur hefur mistekist að móta raunhæfa byggðastefnu. Þar á ofan læðist að mörgum sá grunur, að stofnunin sé notuð til að hygla sambandsfyrirtækjunum, enda er hún stundum kölluð lánadeild SÍS. Það er átakanlegt að horfa á SÍS kaupa hvert fyrirtækið af öðru. Stórveldið er um þessar mundir á eins konar rýmingarsölu einka- framtaksins, sem á undir högg að sækja vegna skilningsskorts stjórnvalda á eðlilegum rekstr- argrundvelli atvinnufyrirtækja í landinu." Allir hugsandi menn, sem eiga ekki annarlegra hags- muna að gæta, hljóta að taka und- ir þessi orð. Framkvæmdastofn- unin er smánarblettur á stjórn Sjálfstæðisflokksins 1974—1978, þótt sú stjórn hafi að vísu hlotið harðari dóm en hún á skilið. Geir H. Haarde hagfræðingur, formaður Sambands ungra Sjálf- stæðismanna, skrifar forystugrein og nefnir í henni furðulegar ásak- anir Gunnars Thoroddsens, fyrr- verandi varaformanns Sjálfstæð- isflokksins, vegna ályktana ungra Sjálfstæðismanna á síðasta þingi þeirra haustið 1981 um vinstri stjórn hans. Gunnar lætur svo sem þessar ályktanir feli í sér kröfu um, að hann verði rekinn úr flokknum. En það gera þær ekki, heldur fela þær í sér kröfu um, að í framtíðinni velji menn um Sjálfstæðisflokkinn og vinstri flokkana, geri það upp við sig, hvorum þeir fylgja. Það erjejfmik- ill misskilningur, að stjórnar- myndun Gunnars 1980 í andstöðu við flesta sjálfstæðismenn sé sam- bærileg við andstöðu nokkurra þingmanna flokksins við stjórn- armyndun Ólafs Thors 1944. Nú gekk minnihlutinn til samstarfs við vinstri flokkana, en þá gekk minnihlutinn ekki til samstarfs við aðra flokka, heldur var and- stæður samstarfi við þá. Margt annað efni er í heftinu. Birt er ræða Geirs Hallgrímsson- ar við setningu landsfundarins, en í henni segir hann: „Sjálfstæðis- flokkurinn, heill og óskipur, sam- einaður, megnar einn að afstýra 13 vaxandi áhrifum sósíalista innan- lands og áhrifum alþjóðakommún- ismans að utan. Sjálfstæðisflokk- urinn er brjóstvörn sjálfstæðis þjóðarinnar og frelsis einstakl- ingsins í samræmi við yfirlýsingu stofnenda hans fyrir 52 árum.“ Geir ræðir einnig um frjálslyndi og stjórnlyndi, en þau hugtök not- 'aði Jón Þorláksson, fyrsti formað- ur flokksins. Jón taldi sig vera frjálslyndan íhaldsmann, þvi að hann reyndi að halda í fengið frelsi, en hann taldi samhyggju- menn „stjórnlynda umrótsmenn", því að þeir reyndu að fórna frels- inu fyrir eitthvað annað. Pétur J. Eiríksson hagfræðing- ur skrifar um einokun ríkisút- varpsins og spyr, við hvað vinstri menn séu hræddir, með því að þeir neita fólki um frelsi til að velja um útvarpsefni á markaðnum. Björn Bjarnason blaðamaður skrifar um „friðarhreyfingu“ síð- ustu ára og telur, að hún fari ranga leið að réttu marki. Lýðræð- isþjóðirnar verði að hafa nægi- legan hernaðarmátt, til þess að enginn þori að ráðast á þær. Bald- ur Guðlaugsson lögfræðingur skrifar um ævisögu Ólafs Thors eftir Matthías Johannessen og fagnar því tækifæri, sem kynslóð hans hefur til þess að fræðast í bókinni um einstaklinginn og stjórnmálamanninn Ólaf Thors, en hann var látinn, áður en þessi kynslóð hóf afskipti af stjórnmál- um. Birtur er kafli bókar um Ráð- stjórnarríkin eftir svissneskan blaðamann, Roger Bernheim, en hann bjó lengi í austri. Margt fleira má nefna úr heftinu, þótt þetta sé látið nægja. I forystugrein Geirs H. Haardes er vikið að því mikla trausti, sem ungum sjálfstæðismönnum hefur verið sýnt síðasta árið, en enginn vafi er á því, að það má í einhverju þakka áðurnefndum fjörkipp í starfi þeirra. Þau Kjartan Gunn- arsson og Inga Jóna Þórðardóttir, hafa tekið við störfum fram- kvæmdastjóra flokksins, Davíð Oddsson var valinn borgarstjóra- efni flokksins í prófkjöri í Reykja- vík, Friðrik Sophusson var kjörinn varaformaður á landsfundi, og fleiri ungir menn en nokkru sinni fyrr voru kjörnir í miðstjórn á landsfundi. Ég er að vísu ekki þeirrar skoðunar, að sýna eigi mönnum traust af þeirri ástæðu einni, að þeir séu ungir, heldur um- fram allt af þeirri ástæðu, að þeir séu frambærilegir, en það er fagn- aðarefni, að þeir menn, sem ég hef nefnt, eru hvort tveggja. Þetta Stefnishefti er fullt tilefni til bjarsýni um framtíðana — frá sjónarmiði sjálfstæðismanna séð. Oxford í janúar 1982. Leikfélag Mosfells sveitar I gildru Leiklist Jóhann Hjálmarsson Leikfélag Mosfcllssveitar: GILDRAN eftir Robert Thomas. læikstjóri: Krna Gísladóttir. læikmynd: Njörður Snæland og Ilreinn Þorvaldsson. Leiksviðsstjóri: Guðrún E. Arnadótt- ir. Ljósamaður: Trausti Gylfason. Þýðandi: Helga Thoroddsen. Einhvern tímann reyna öll áhugaleikfélög við Gildruna. Röð- in er nú komin að Leikfélagi Mos- fellssveitar, en það er níunda leik- félagið sem sýnir Gildruna. Gildran er að mörgu leyti kjörið verkefni fyrir áhugaleikfélög. Um er að ræða spennandi sakamála- leikrit með óvæntum endi. Höf- undurinn, Robert Thomas, kann sæmilega til verka. Hér eru ekki nýstárleg tök á efni, en vel má eyða einni kvöldstund í að horfa á leikrit af þessu tagi. Það er til dæmis góð æfing fyrir leikfélag sem kannski vill leggja eitthvað meira til mála í framtíðinni. í Gildrunni segir frá nýkvænt- um eiginmanni sem leitað hefur til lögreglunnar vegna þess að kona hans hverfur að heiman. Lögregluvarðstjórinn er eitthvað efins um framburð eiginmannsins, hið skyndilega hvarf eiginkonunn- ar sem er rík og á von á miklum arfi eftir frænda sinn. En málin gerast enn flóknari þegar kona birtist sem segist vera týnda eig- inkonan og eiginmaðurinn vill ekki viðurkenna að svo sé. Við sögu kemur einnig prestur, lista- maður og hjúkrunarkona. Leikstjóri Gildrunnar er Erna Gísladóttir, Iðnó-lærð leikkona og hefur oft látið að sér kveða hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Hún hefur leikstýrt þessu verki mjög snoturlega, fengið leikarana til að lifa sig inn í hlutverkin og gera þeim bærileg skil á áhugamanna- vísu. Eiginmanninn leikur Birgir Sig- urðsson og kemur til skila óstyrk- leik hans sem fer vaxandi eftir því sem líður á sýninguna. Eiginkon- una leikur Helga Thoroddsen, en hún er einnig þýðandi leikritsins, leikur hennar þokkalegur. Varð- stjórinn er Grétar Snær Hjartar- Lcúkhópur Leikfélags Mosfellssveitar. son. Hann sýnir mikla röggsemi í hlutverkinu og er sannfærandi þjónn réttvísinnar. Sigvaldi Kristjánsson sem leikur séra Guð- brand gerir þessari lævísu pers- ónu eftirminnileg skil. Pétur Bjarnason túlkar vel Kreon lista- mann, túlkun hans lýsir ósvikinni leikgleði. Sara Elíasdóttir fer með hlutverk hjúkrunarkonunnar, einnig hún er á réttum stað í hlut- verki sínu. Á köflum var töluverður viðvan- ingsbragur á leiknum, einkum hvað varðaði framsögn, en það fyrirgefst. Leikmynd var vel gerð. Leikfélag Mosfellssveitar hefur sýnt með Gildrunni að það hefur á að skipa áhugasömu fólki með góða leikhæfileika. En til þess að vekja eftirtekt utan sveitar þarf meira átak. Jóhann Hjálmarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.