Morgunblaðið - 24.03.1982, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.03.1982, Blaðsíða 16
1 6 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1982 Hvað kostar Hvalfjarðarbrú? eftir Guðmund Vésteinsson, Akranesi Hugmyndir um brú yfir Hval- fjörð hafa verið til umræðu manna á meðal öðru hvoru undan- farin ár. Kr það mjög að vonum, þar sem Hvalfjörður er oft erfiður yfirferðar og mörgum þykir krók- ur þessi tafsamur og leiðinlegur. Miðað við beina leið lengir krókur þessi leiðina norður og vestur um fast að því fimmtíu kílómetra. Kostnaður þjóðarbúsins af akstri þess bílafjölda, sem árlega fer fyrir Hvalfjörð eða framan við (með Akraborg), en það voru um 300.000 bílar á árinu 1981, er um 31 milljón krónur við akstur 50 km leið á bundnu slitlagi. Er þar ein- vörðungu talinn rekstrarkostnað- ur ökutækja og tími ökumanna. Ofullkomin athugun á hrú yfir Ilvalfjörð Þegar svokölluð Hvalfjarðar- nefnd skilaði skýrslu um athugan- ir sínar á samgöngumöguleikum um Hvalfjörð, árið 1972, var þar fátt að finna um brúargerð utar- lega í Hvalfirði (aðeins brú milli Hvamms og Hrafnabjarga, sem er rétt utan við olíustöðina). Hins vegar kannaði nefndin möguleika á því að gerá veg á grjótfyllingum yfir grynningarnar yst í firðinum og síðan vegstokk eða veggöng úr steinsteyptum einingum, sem lögð yrðu á botn fjarðarins, en dýpi er á þessum slóðum um 30—35 m í norðanverðum Hvalfirði. Þessi framkvæmd var ekki talin sérlega arðbær, en áætluð arðsemi hennar var metin aðeins um 3%. Heildarkostnaður við slíka fram- kæmd var áætlaður 4500 milljónir þáverandi króna. Miðað við hækk- un byggingarvísitölu mun þetta vera um 1350 milljónir á núgild- andi gjaldmiðli. Til samanburðar má geta þess, að kostnaður við Borgarfjarðarbrú var á vígsludegi 155 milljónir króna. „Sú reynsla, sem Is- lendingar hafa ödlast við gerd meiriháttar brúarmannvirkja, eins og BorgarfjarÖarbrúar og brúna yfir SkeiÖar- ársand, hlýtur að vera landsmönnum hvatning til aö takast á við stærri og erfiðari verkefni á því sviði“. miklu dýpi og þétta þau. Ennfrem- ur hlyti hér að skipta mestu máli, að um jarðskjálftasvæði væri að ræða og brú mundi standast jarðskjálfta mun betur en slík Köng. Arni Ingólfsson fór fram á það við forráðamenn Skánska Cem- entgjuteriet að þeir gerðu grófa kostnaðaráætlun um brú utarlega í Hvalfirði á grundvelli einingar- verðs í sambærilegum fram- kvæmdum, sem þeir hefðu unnið og miðað við, að botn Hvalfjarðar væri sæmilega traustur. Fyrir- tækið vann slíka áætlun, og valdi leiðina Laufagrunn-Kúludalsá, sem er yst í Hvalfirði. Kostnað- aráætlun þessi var 89 milljónir sænskra króna. Með tilliti til gengis sænsku krónunnar á þess- um tíma og hækkunar bygg- rakið er að finna í bréfi, sem sam- göngumálanefnd Akraneskaup- staðar sendi hinn 5. apríl 1974 til samgöngumálaráðherra, en í bréfi þessu er gerð allítarleg grein fyrir máli þessu og þar segir m.a. þetta: „Við undirritaðir gerum okkur alls ekki vonir um að ráðist verði í slíka brúarframkvæmd allra næstu árin, en við væntum þess, að undir- búningsvinna og botnrannsóknir vatn til sjávar runnið. Orkukrepp- an hefur haft í för með sér stór- hækkun á rekstrarkostnaði bíla og ökutækja. Umferð um Hvalfjörð hefur vaxið að mun og hún mun áreiðanlega halda áfram að aukast á komandi árum. Af þessum ástæðum m.a. notaði ég tækifærið meðan ég sat á Al- þingi nýverið og flutti tillögu til þingsályktunar um að fela ríkis- stjórninni að láta fara fram at- hugun á gerð brúar yfir utanverð- an Hvalfjörð. Vaxandiuppbygging norðan Hvalfjarðar A síðustu árum hefur mikil upp- bygging á ýmsum sviðum átt sér stað á svæðinu norðan Hvalfjarð- ar. Þéttbýlisstaðir, eins og Akra- nes og Borgarnes hafa stækkað og fólki fjölgað. Hér koma við sögu að sjálfsögðu, framkvæmdir við Borgarfjarðarbrú, sameiginleg hitaveita fyrir áðurnefnda staði, bygging verksmiðjunnar að Grundartanga með tilheyrandi hafnaraðstöðu og raflínulögnum, auk grósku í hinum hefðbundnu atvinnugreinum og fleira. Borgarfjarðarhérað er þegar orðið eitt fjölsóttasta útivistar- og sumardvalarsvæði íbúa á höfuð- borgarsvæðinu og fátt bendir til að úr þeirri þróun muni draga í framtíðinni. Allar forsendur eru fyrir áframhaldandi uppbyggingu og fjölgun fólks norðan Hvalfjarðar og hlýtur það með öðru að leiða til aukinnar umferðar um Hvalfjörð. Langtímaáætlun um vega- og brúargerð Borgarfjarðarbrú var mjög um- deild í upphafi en sú reynsla, sem þegar er fengin af henni tvímæla- laust mjög jákvæð. Það viður- kenna flestir nú orðið. Sú reynsla, sem Islendingar hafa öðlast við gerð meiriháttar brúarmann- virkja, eins og Borgarfjarðarbrúar og brúnna yfir Skeiðarársand hlýtur að vera landsmönnum hvatning til að takast á við stærri og erfiðari verkefni á því sviði. Á síðasta vori samþykkti Al- þingi að láta gera langtímaáætlun um vega- og brúargerð á næstu 20 árum. I sambandi við þá áætlun hlýtur að teljast eðlilegt að fram fari ítarleg athugun á möguleik- unum á gerð brúar yfir utanverð- an Hvalfjörð. Eins og fram kemur í tilvitnuninni úr bréfinu til sam- göngumálaráðherra hér að fram- an, þarf að framkvæma fullkomn- Hvalfjörður. Hugmyndir um vegstokka á botni Hvalfjarðar -t Þegar Hvalfjarðarnefnd skilaði skýrslu sinni þótti ýmsum t.d. hér á Akranesi, sæta nokkurri furðu, að ekkert skyldi vera þar um at- huganir eða áætlanir um brúar- gerð í utanverðum firðinum. Menn höfðu t.d. fréttir af því frá Sví- þjóð, að þar va;ri nýbúið að taka í notkun 6000 m langa brú milli Olands og meginlands Svíþjóðar, sem m.a. var gerð með forspennt- um strengjasteypubitum. Með þeirri aðferð hafa margar stór- brýr verið byggðar og munu vera dæmi um að haf milli stöpla sé yfir 2(X) m. Eitt kunnasta verk- takafyrirtæki í Svíþjóð, Skánska (’ementgjuteriet, tók að sér þessa brúargerð og varð kostnaðurinn við hana um 80 milljónir sænskra króna. I pplýsingar frá Skanska ('ementgjuteriet Á þessum árum starfaði á veg- um bæjarstjórnar Akraness sér- stök samgöngumálanefnd. Einn nefndarmanna, Árni Ingólfsmm, læknir, sem þá var nýfluttuWfcil Akraness eftir nokkurra ára veru í Svíþjóð, fór í september 1973 á fund forráðamanna þessa fyrir- tækis og átti hann m.a. viðrjAur við Henry Johanson, verkfræoing og einn forstjóra þess, og afhenti honum eintak af Hvalfjarðar- skýrslunni. porstj5rjnn kynnti sér skýrsluna og lýsti þeirri skoðun sinni, að heppilegast væri að brða Hvalfjörð utarlega. Taldi hann veggöng mun dýrari en brú. Erfitt væri að koma þeim fyrir á svo ingarvísitölu hér á landi er þetta nú um 356 milljónir króna. Fyll- ingar á grynningunum sunnan til í firðinum myndu í dag kosta um 50 milljónir króna. Er þá gengið út frá að 500.000 m:t af fyllingarefni þurfi í þær og er hér tekið mið af nýlegu einingarverði í sambæri- legum framkvæmdum t.d. í grjótgörðum í Akraneshöfn. Með öðrum orðum, að heildarkostnað- ur væri um 406 milljónir króna í dag. En þetta er aðeins þriðjungur kostnaðar við það mannvirki, sem Hvalfjarðarnefnd lét gera athug- un á í utanverðum Hvalfirði. Bréf til samgöngu- rádhorra 5. apríl 1974 Þær upplýsingar, sem ég hef hér hcfjist sem fyrst. Við æskjum þess, að hætt verði að eyða almannafé í náttúruverndarrannsóknir í Botns- vogi og Brynjudalsvogi og í boranir innarlega í firðinum. Notið heldur peiiingana til botnrannsókna utar- lega t.d. milli Hnausaskers og Innra-llólms, til að fá úr því skorið, hvort brúarsmíði sé framkvæman- leg, eins og góðar líkur benda til.“ Var arösemi Hvalfjaröar- brúar 10% fyrir áratug? Samgongumálanefndin á Akra- nesi leiddi að því nokkrar líkur í bréfi sínu frá 1974, að arðsemi brúar yfir Hvalfjörð gæti verið um 9—10% miðað við þær for- sendur, sem getið hefur verið um. Frá því að þetta var hefur mikið ar rannsóknir á botni Hyalfjarðar milli Hnausaskers og Hólabrúar, sem er rétt innan við Innra-Hólm, en þá leið má^elja þá álitlegustu, eins og ég geri grein fyrir í grein- argerð með tiflögu minni og rakti ítarlegar í framsöguræðu á AI- þingi hinn 9. mars sl. Til slíkrar rannsóknar þarf að ætla þann tækjakost, mannafla og fjármuni, sem hún hlýtur að útheimta. s Eg vil géra að lokaorðum þess- ara, greinar niðurlagsorð í því bréfi, sem ég hef áður til vitnað hér að framan, en telja má víst, að allir geti verið þeim sammála: „Brú yfir ilvalfjörð, utarlega, er stórmál og hagsmunamál allrar þjóð- arinnar." Akranesi, 15. mars 1982. Guðmundur Vésteinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.