Morgunblaðið - 24.03.1982, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1982
17
Fjórðungssamband Norðlendinga:
Steinullarverksmiðja á Sauðárkróki
er sameiginlegt mál Norðurlands
Úr myndinni Don Giovanni, sem
endursýnd verdur í Tjarnarbíói í
kvöld.
Fjalakötturinn
endursýnir tvær
kvikmyndir
Fjalakötturinn, kvikmynda-
klúbbur framhaldsskolanna, mun í
kvöld og á morgun cndursýna tvær
kvikmyndir vegna rnikillar aðsókn-
ar. í kvöld kl. 21 verður óperan
Don Giovanni endursýnd í Tjarn-
arbíói og annað kvöld kl. 21 verður
franska myndin Hæg hreyfing
eudursýnd.
Don Giovanni er eitt fárra
dæma þar sem ópera hefur verið
færð yfir á hvíta tjaldið. Upp-
setningar í óperuhúsum hafa oft
verið kvikmyndaðar en það er
sjaldgæfara, að óperur séu færð-
ar yfir á mál kvikmyndarinnar.
Leikstjórinn Joseph Losey færist
mikið í fang, en tekst listilega að
koma óperunni til skila.
Hæg hreyfing er mynd franska
leikstjórans Jean-Luc Godard,
sem þekktur er fyrir að fara allt
annað en troðnar slóðir í mynd-
um sínum.
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi frá Fjórðungssam-
bandi Norðlendinga:
„Á fjórðungsþingi Norðlendinga,
sem haldið var á Húsavik 3.—5.
september 1981, var algjör einhug-
ur um að styðja eindregið hug-
myndir Steinullarfélagsins hf. um
steinullarverksmiðju á Sauðár-
króki. Lagði þingið sérstaka
áherslu á, að nefnd sú, sem skipuð
var til að fjalla um málið á vegum
iðnaðarráðherra, komst að þeirri
niðurstöðu, að á grundvelli byggða-
legra og fjárhagslegra sjónarmiða
bæri að staðsetja steinullarverk-
smiðju á Sauðárkróki. Ennfremur,
að Ijóst er að staðarval verksmiðju
á Sauðárkróki muni ekki hafa áhrif
á rekstrarkostnað hennar í sam-
anburði við staðsetningu annars
staðar. Á fundi fjórðungssambands
og launþeganefndar fjórðungssam-
bandsins í febrúar 1980, sem hald-
inn var á Sauðárkróki, var ákveðið,
að Fjórðungssamband Norðlend-
inga gerði uppbyggingu steinullar-
verksmiðju á Sauðárkróki að sam-
eiginlegu máli, sem allar byggðir
Norðurlands sameinuðust um sem
Kvikmyndasýning
í Norræna húsinu
í KVÖLD, miðvikudag, kl. 20.30
verður sýnd kvikmyndin Den AIL-
varsamma Leken, gerð eftir
skáldsögu Hjalmars Söderbergs í
Norræna húsinu.
Myndin er gerð 1976—’77 af
sænsku kvikmyndastofnuninni
og norska kvikmyndafélaginu.
Leikstjóri er Anja Breien.
Kvikmyndin er sýnd á vegum
sænska sendikennarans. Að-
gangur er ókeypis.
Skákmót Norðurlands:
Mikil barátta
um efstu sætin
ilúsavík, 22. marz.
SKÁKMOTI Norðurlands lauk á
Húsavík i gær. Urslit urðu þau i
meistaraflokki, að þrír keppendur
urðu jafnir með 5'/í vinning, en
eftir stigaútreikningi hlaut gestur
mótsins, Jón Kristinsson frá
Hólmavík, gullverðlaunin, en Jón
er margreyndur skákmeistari. Tit-
ilinn skákmeistari Norðurlands
hlaut Jakob Kristinsson, Akur-
eyri, og næstur honum varð Gylfi
Uórhallsson, Akureyri.
Meistaratitilinn í kvenna-
flokki hlaut Ásrún Árnadóttir
og önnur varð Arnfríður Prið-
riksdóttir, báðar úr Eyjafirði.
Unglingameistari Norðurlands
varð Emil Friðriksson, Akur-
eyri, með 7 vinninga, og næstur
honum Arnar Þorsteinsson, Ak-
ureyri, einnig með 7 vinninga,
en þriðji varð Haraldur Sigur-
jónsson, Húsavík, með 6'/2 vinn-
ing.
Mótinu lauk með hraðskák-
keppni og sigraði Jakob Krist-
Jón Kristinsson
insson, í kvennaflokki Svein-
fríður Halldórsdóttir úr Eyja-
firði og í unglingaflokki varð
Arnar Þorsteinsson, Akureyri,
hlutskarpastur.
Að mótinu loknu ávarpaði
forseti bæjarstjórnar Húsavík-
ur, Jónína Hallgrímsdóttir,
keppendur og afhenti sigurveg-
urunum sigurlaunin.
— Fréttaritari.
Hafnfirðingar
Minnum á afmælisfagnaöinn í Góötemplarahúsinu
nk. laugardagskvöld.
Forsala aögöngumiöa og miöapantanir aö Austur-
götu 10, sími 51874.
Félag óháöra borgara.
Tm
upphaf stærri iðnþróunar á Norður-
landi.
Lögð var á það rík áhersla, að
uppbygging jarðefnaiðnaðar á
Suðurlandi og steinullarverk-
smiðju á Sauðárkróki væru að-
skilin verkefni, þar sem gætt
væri verkaskiptingar á milli al-
hliða jarðefnaiðnaðar til útflutn-
ings og steinullarframleiðslu
vegna innanlandsmarkaðar. í
þessu sambandi er bent á að
Steinullarfélagið hafi haft allt
frumkvæði og hugmyndir um
steinullarverksmiðju fyrir inn-
anlandsmarkað og því sé það
með öllu fráleitt að Jarðefnaiðn-
aður eigi rétt á því að draga til
sín og njóta ávaxtanna af braut-
ryðjendastarfi Sauðkrækinga,
þegar þeirra eigin áætlanir um
útflutning reyndust óraunhæfar.
Að sama skapi er það fráleitt að
brautryðjendastarf Jarðefnaiðn-
aðar um útflutning steinefna
væri í engu metið og verkefnið
með valdboði afhent öðrum aðila.
Fjórðungssambandið undirstrik-
ar að með staðsetningu steinull-
arverksmiðju á Sauðárkróki er
ekki verið að bregða fæti fyrir
atvinnuuppbyggingu á Suður-
landi sem er best sett allra
landshluta um jarðefni og
orkuöflun í landinu. Hér hefur
verið lagt hlutlægt mat á tillögu
iðnaðarráðherra og tekið tillit til
frumkvæða Steinullarfélagsins
um þann framleiðslumöguleika,
sem reynslan hefur sýnt hag-
kvæmastan."
• •
FAGURRI ATHOFN
HÆFIR GÓÐUR
FATNAÐUR
fatnaður sem nýtist hvenær sem er eftir ferminguna
Buxurnareru úr 100% bómull og litireru dökkblátt
eða grátt, vestispeysan er til í dökkbláum lit og
hvítar tvíhnepptar skyrtur.
verð: Buxur kr. 395,- skyrtur kr. 290,- peysur kr. 295,- bindikr. 90,-
LAUGAVEGI47,
AUGLÝSINGASTOFA KRISTÍNAR HF. 6.163