Morgunblaðið - 24.03.1982, Page 20

Morgunblaðið - 24.03.1982, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1982 * Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthias Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 110 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 7 kr. eintakið. Kjarabarátta og kosningar Hinn 21. ágúst 1981 komst Kjartan Ólafsson, varaformaður Al- þýðubandalagsins, að þeirri niðurstöðu í forystugrein í Þjóð- viljanum, að líkindi væru fyrir því( að þjóðartekjur á mann myndu aukast um 2% á árinu 1981 og gaf varaformaðurinn jafnframt til kynna, að sú aukning ætti að renna til að hækka grunnkaup laun- þega. Alþýðubandalagið boðaði sem sé þá stefnu, að grunnkaup mætti hækka um 2%. í ár, 1982, er ekki spáð neinni aukningu þjóðartekna. Væri varaformaður Alþýðubandalagsins og ritstjóri Þjóðviljans jafn rökfastur nú og fyrir rúmu hálfu ári, myndi hann mæla gegn öllum grunnkaupshækkunum í ár. Skrif varaformanns Alþýðubandalagsins í blað sitt undanfarið benda hins vegar ekki til þess, að hann sé lengur sömu skoðunar og 21. ágúst 1981. Nú heldur hann því á loft, að sveitarstjórnakosn- ingarnar séu kjarabarátta, hafi samningar um kaup og kjör ekki tekist fyrir þær. Benda orð hans til þess, að Þjóðviljinn og Alþýðu- bandalagið hafi gefið verkalýðsrekendum flokksins fyrirmæli um að semja ekki fyrir kosningar og draga viðræður um kjaramál á lang- inn fram yfir þær. Þeir ætli að reyna að endurtaka leikinn frá 1978, þegar barist var undir kjörorðunum „samningana í gildi“ og „kjör- seðillinn er vopn í kjarabaráttunni", nota eigi verkalýðshreyfinguna enn einu sinni í flokkspólitískum tilgangi í þágu Alþýðubandalags- ins, slagorðin frá því sl. haust, „kommar vilja kjaramildi" og „núll- leið í launamálum", eigi ekki lengur við. í Þjóðviljanum í gær er komist að þeirri niðurstöðu, að fái Alþýðubandalagið illa útreið í kosningunum hafi kjósendur „notað atkvæðaseðilinn til að biðja um kjaraskerðingu". Þá er því einnig slegið föstu í Þjóðviljanum, að „sigur Alþýðubandalagsins í sveitarstjórnakosningunum treystir ríkisstjórnina í sessi". Þessi skrif Þjóðviljans sýna svo ekki verður um villst, að alþýðu- bandalagsmenn vilja ekki láta kosningarnar í vor snúast um sveit- arstjórnarmál — þeir þora til dæmis ekki að leggja störf sín í borgarstjórn Reykjavíkur undir dóm kjósenda. Hitt er svo sannar- lega mikil bíræfni hjá kommúnistum að ætla að berjast fyrir kosn- ingarnar sem sérstakir málsvarar launþega, þróun kaupmáttar síð- an 1978 sýnir ótvírætt, að öll loforð, sem kommúnistar gáfu þá, hafa verið svikin. En vonar Þjóðviljinn, að Alþýðubandalagið geti verið í skjóli verkalýðshreyfingarinnar í kosningunum nú eins og 1978? Er það síðasta haldreipi hinnar nýju stéttar og flokksbroddanna, sem hafa gengið markvisst á hlut launþega bæði innan flokks og utan, að forvígismenn launþega heyi fyrir þá kosningabaráttuna? Skrif Þjóðviljans gefa ærið tilefni til þess, að á næstu dögum og vikum verði fylgst náið með yfirlýsingum forvígismanna Alþýðusambands- ins og þær metnar í því ljósi, sem kommúnistar hafa nú varpað á þessa menn. Þorskastríð og selastríð Hér í blaðinu var á fimmtudaginn í síðustu viku birt yfirlit yfir áhrif sela á fiskveiðar okkar Islendinga. Segja má, að áhrif sela séu tvíþætt, þeir eru hýsill fyrir hringorma og éta mikið magn af fiski. Vísir menn hafa komist að þeirri niðurstöðu, að í ár verði tíndar 130 milljónir hringorma úr þorski í frystihúsum víða um land. Þá hefur einnig komið fram, að hcr við land éti selurinn um 50 þúsund tonn af nytjafiski. Er það yfirleitt smár fiskur, svo að talið er, að við töpum nú um 100 þúsund tonnum af nytjafiski í selinn á hverju ári. Vegna samdráttar í selveiðum er talið líklegt, að sela- stofninn við landið vaxi. Hagsmunasamtök í sjávarútvegi hvetja til aukinnar selveiði og er nú um það rætt að verðlauna seladráp. Síðast þegar samið var við Breta um fiskveiðar í íslenskri lögsögu, á árinu 1976, þá veiddu togarar þeirra hér við land 53.534 tonn og að meðaltali veiddu Bretar hér á ári um 120 til 130 þúsund tonn. Við háðum einarða baráttu fyrir því að stöðva þessar veiðar og töldum lífshagsmuni okkar í húfi. Þótt Bretar væru ýmsum til ama, var þó til dæmis sá mikli munur á þeim og selnum, að þeir dreifðu ekki hringormum í fiskinn. Barátta okkar við Breta vannst meðal annars fyrir þá sök, að við nutum samúðar og skilnings í öðrum löndum, ekki síst í Bretlandi, við vorum lítilmagninn í átökum við breska ljónið. Þótt menn séu sammála um nauðsyn aðgerða gegn selnum hér á landi, sem þó er kannske ekki víst, er augljóst, að seladráp fyrir verðlaunafé myndi mælast illa fyrir erlendis hjá áhrifamiklum aðilum, sem tekið hafa málstað lítilmagnans andspænis mannskepnunni. I þorskastríðinu var mikið rætt um áróðursstríð. Verði hafið selastríð er áróðurs- þátturinn ekki síður mikilvægur en í þorskastríði. Til að áróðurinn út á við verði í lagi, er nauðsynlegt að inn á við séu menn sammála — hagsmunasamtök sjávarútvegsins hafa lagt fram tillögur sínar. Er einhver á móti? Menn eru furðu framferdi iðnaði — sagði Þorvaldur Garðar Kristjánsson í umræðum utan dags Forsætisráðherra svaraöi ekki spurningum sem beint var til hans í IJMRÆÐUM utan dagskrár á Al- þingi í gær var fjallað um Helguvík- urmál og deildu þeir hart Ólafur Jó- hannesson, utanríkisráðherra, og Iljörleifur Guttormsson, iðnaðar- ráðherra. Auk þeirra tóku Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra, og Svavar Gestsson, félagsmálaráð- herra, og margir alþingismenn til máls. Þorvaldur Garðar Kristjánsson (S) hóf þessa umræðu utan dag- skrár og sagði hann í upphafi máls síns: „Svo sem alkunna er urðu þau tíðindi 12. mars síðastliðinn, að iðnaðarráðherra gaf orkumála- stjóra fyrirmæli, sem jafngiltu riftingu á skriflegum samningi, sem Orkustofnun hafði gert við Almennu verkfræðistofuna vegna jarðvegsrannsókna í Helguvík þar sem ætlunin er að reisa hina nýju eldsneytisgeyma fyrir varnarliðið. Menn hafa verið furðu lostnir yfir þessu framferði hæstvirts iðnað- arráðherra. Virðist svo vera, hvort sem um er að ræða stjórnarsinna eða stjórnarandstæðinga. Að minnsta kosti telur hæstvirtur utanríkisráðherra þetta framferði einstætt í sinni röð, og bregður samráðherra sínum, hæstvirtum iðnaðarráðherra, um valdníðslu." Þorvaldur Garðar ræddi síðan nokkuð um stjórn Orkustofnunar, skipan hennar og hlutverk, og bar síðan fram eftirfarandi spurn- ingar: „Hver eru afskipti stjórnar Orkustofnunar af samningi stofn- unarinnar við Almennu verk- fræðistofuna? Var samningurinn gerður með vilja og vitund stjórnarinnar? Hefir ráðherra haft samráð við stjórnina um aðgerðir sínar vegna samningsins? Hver er afstaða stjórnarinnar til samningsins og aðgerða ráð- herra? Það sem hér er spurt um varðar formhlið þessa máls. Það er spurningin um valdþurrð. Þar að auki er efnishlið málsins. Það er valdníðsla hæstvirts iðnaðarráð- herra eins og hæstvirtur utanrik- isráðherra hefir orðað það.“ Lokaorð Þorvalds Garðars voru þessi: „Annars vegar heldur hæstvirtur utanríkisráðherra því fram, að samningunum hafi verið rift. Hins vegar segir hæstvirtur iðnaðarráðherra, að samningun- um hafi ekki verið rift. Óneitan- lega varðar miklu máli hvor þeirra félaga hefur á réttu að standa. Ég vænti þess, að þeir tjái sig báðir um þetta atriði. Ef þeim kemur ekki saman um hver stað- reyndin er í þessu efni óska ég eftir, að hæstvirtur forsætisráð- herra skýri í þessari umræðu frá hver skoðun hans og ríkisstjórnar- innar er á þessu máli. Undan því verður ekki skorast. Það er það minnsta, að hæstvirtur forsætis- ráðherra geri hæstvirtu Alþingi grein fyrir skoðun ríkisstjórnar- innar í svo mikilvægu máli, sem hér um ræðir." Hjörleifur Guttormsson, iðnað- arráðherra, sagði meginatriði þessa máls vera það, að engum samningum hefði verið rift að til- stuðlan iðnaðarráðuneytisins. Hann sagðist hafa óskað eftir því 10. marz að dokað yrði við með framkvæmdir samningsins, en samningurinn hefði þá verið á döf- inni. Það hefði tekið vikutíma að athuga þessa samninga og því hefði lokið fimmtudagin 18. marz. Orkumálastjóra hefði verið til- kynnt um niðurstöður athugunar ráðuneytisins á samningnum mánudaginn 22. marz og þann dag hefði verið send út fréttatilkynn- ing um málið. Iðnaðarráðherra las síðan fyrrnefnda fréttatilkynn- ingu, sem birtist í Morgunblaðinu í gær. Um stjórn Orkustofnunar sagði Hjörleifur, að hún ynni á ábyrgð iðnaðarráðherra og hefði fylgzt með þessu máli, meðal annars á tveimur fundum. Hann ítrekaði, að aldrei hefði staðið til að rifta þessum samningum af hálfu iðn- aðarráðuneytisins. Vitni að því aö um fyrir- skipanir var aö ræða Ólafur Jóhannesson, utanríkis- ráðherra, sagði að vinnubrögð iðn- aðarráðherra væru vægast sagt mjög undarleg að sínu mati. 10. marz hefði iðnaðarráðherra gefið fyrirmæli um að hætta við efndir á verksamningnum. Það þýddi ekki fyrir iðnaðarráðherra að halda því fram, að um góðlátleg tilmæli hefði verið að ræða. Utan- ríkisráðherra sagðist hafa næg vitni að þvi, að um beinar fyrir- skipanir hefði verið að ræða. Hann sagði að Orkustofnun hefði skrifað undir samninginn og stofnunin væri ekki þekkt að því að standa ekki við sín heit. „Þetta voru ekki góðlátleg tilmæli, þetta voru fyrirskipanir,“ sagði Ólafur Jóhannesson. Hann sagðist telja þennan at- burð einstæðan og kvaðst ekki þekkja fordæmi þess í íslenzkri stjórnarfarssögu að ráðherra gripi inn í og segði stofnun sem Orku- stofnun að hætta við verk, sem samningar hefðu verið gerðir um. Slíkt sagðist hann telja stór- hættulegt fordæmi. Hann spurði hvort einhver viðstaddra þing- manna þekkti dæmi þessa og sagði, að sér þætti vænt um ef þau dæmi yrðu þá nefnd. Ólafur sagð- ist ætla, að ekkert slíkt dæmi finndist og þetta félli ekki að rétt- arhugmyndum íslendinga. 111 danska er auðlærð, sagði ráðherr- ann, og það gæti verið, að ein- hverjir ráðherrar, sem finndu til valds síns gripu til þess að beita þessari aðferð síðar. Þess vegna er hér um alvarlegt mál að ræða, sagði utanríkisráðherra. Ólafur sagði, að þessir starfs- hættir væru ekki þekktir hér á landi. Um málefnalegan ágreining gegndi allt öðru máli. Slíkur ágreiningur hefði verið milli hans og félagsmálaráðherra og sagðist Ólafur telja það eðlilegt að menn skiptust á skoðunum. Aðgerðir Hjörleifs væru allt annars eðlis og sagðist Ólafur halda því fram, að fyrir þeim væri enginn lagalegur grundvöllur. Hvort það væri valdníðsla eða valdþurrð, nema hvort tveggja væri, sagðist hann ekki ætla að segja, en þá notaði hann orðið valdníðsla sem laga- legt hugtak. Utanríkisráðherra sagðist efast um, að iðnaðarráðherra gæti skýrt vinnubrögð sín fyrir nokkrum manni þar sem lagagrundvöllinn vantaði. Ef Hjörleifur hefði spurt lögfræðinga iðnaðarráðuneytisins álits þá sagðist Ólafur hafa gam- an af að heyra álit þeirra. Þessi ákvörðun iðnaðarráðherra væri einstæð og hættuleg islenzkum rétti. Hann sagði iðnaðarráðherra standa í stórræðum þessa dagana og fram undan væru viðræður við Alusuisse. Ólafur sagðist vona, að iðnaðarráðherra stæði þar á laga- lega sterkari grundvelli. „Annars hjálpi okkur allir heilagir," sagði Ólafur Jóhannesson. * Verzlunarráð Islands: Kannar vanskil opinberra stofn- ana og fyrirtækja „VII) KOMUM einstökum kvörtun- um fyrirtækja um vanskil og við- skipti opinberra aðila á framfæri í bréfi til forsætisráðherra og fengum það svar eitt frá fjármálaráðuneyt- inu, að ef fyrirtæki innan Verzlun- arráðs íslands væru óánægð, gætu þau hætt lánsviðskiptum. Þessar kvartanir voru þó ekki nægilega margar til þess að við gætum fengið heildarmynd af ástandinu og því var ákveðið að efna til þessarar könnun- ar meðal verzlunarráðsrneðlima," sagði Kjartan Stefánsson, blaða- fulltrúi Verzlunarráðs íslands, er Mbl. spurði hann um könnun Verzl- unarráðsins meðal félaga sinna um vanskil og viðskipti opinberra aðila. Kjartan sagði, að Guðmundur Arnaldsson, hagfræðingur, hefði undirbúið könnunina og annaðist framkvæmd hennar. Könnunin er þannig framkvæmd, að félags- menn Verzlunarráðsins fá spurn- ingalista, þar sem spurt er um viðskipti þeirra við opinbera aðila, hvernig gengið sé frá samningum, hvaða vaxtakröfur séu hafðar uppi, þegar um gjaldfrest er að ræða og hvort verulegur dráttur á greiðslu sé venjulegur í viðskipt- um við opinbera aðila, eða menn sætti sig við lengri gjaldfrest hjá opinberum aðilum en í viðskiptum við aðra aðila. Þá er einnig ætlast til að gerð sé grein fyrir vanskila- upphæðum opinberra aðila um síðustu áramót. Kjartan Stefánsson sagði, að þær einstöku kvartanir, sem Verzlunarráðinu hefðu borizt, bentu til þess, að opinberir aðilar, stofnanir og fyrirtæki drægju greiðslur mikið lengur en aðrir viðskiptavinir og tilgangurinn með þessari könnun væri að fá ít- arlegar upplýsingar um það, hvort opinberar stofnanir og fyrirtæki eru meira í vanskilum en aðrir. Skilafrestur könnunarinnar er til 1. apríl nk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.