Morgunblaðið - 24.03.1982, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 24.03.1982, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1982 Guðrún Helgadóttir um safn Seðlabankans: Karl Marx er ekki í skinnbandi — enda „pjattsafnið“ á móti honum „IJpphaf bóka- og skjalasafns Seölabankans sem skipulegs safns má rekja aflur til ársins 1962,“ sagði Tómas Arnason, viðskiptaráóherra, í svari viö fyrirspurn frá Cuðrúnu Helga- dóttur (Abl) á Alþingi í gær, „en þá var hafin flokkun marg- víslegra gagna í eigu Landsbanka og Seðlabanka, er geymd vóru í kjallara Neskirkju. Albert Gudmunds.son GuArún Helgadóttir Halldór Asgrímsson Halldór Blöndal Tómas Arnasnn Vilmundur Gylfason Var þar m.a. um að ræða marg- vísleg skjöl og bókhaldsgögn, er náðu allt aftur til stofnunar Landsbankans 1886. Þann 16. febrúar 1981 var síðan gert sam- komulag milli Landsbanka og Seðlabanka um vörzlu bóka- og skjalasafns bankanna að Einholti 4. Söfnunum í Einholti 4 má skipta í fjóra flokka: 1) íslenzkar bækur, skýrslur, blöð og tímarit, 2) erlendar bækur, skýrslur og tímarit, 3) söguleg skjöl Lands- banka og Seðlabanka með vænt- anlegri viðbót frá öðrum bönkum, s.s. íslandsbanka, 4) mynt- og seðlasafn. Hvað hefur safn- ið að geyma? Tómas Arnason, viðskiptaráð- herra, sagði safnið hafa eftirfar- andi að geyma: • Hvers konar bækur, opinber- ar skýrslur og smárit, sem fjalla um hagsögu og stjórnmál lands- ins, bæði fyrr og síðar. Einnig mikið af almennum sögulegum ritum, er lýsa þróun þjóðfélagsins í gegn um aldirnar, þ.á m. staðar- lýsingar og almennar landlýs- ingar. • I erlenda safninu eru marg- vísleg hagfræðirit, bæði sígild og nútímaverk. Einnig ýmis tímarit og bankaskýrslur, s.s. skýrslur frá fjölda erlendra stofnana, sem Is- lendingar hafa átt viðskipti við með einhverjum hætti. • I skjalasafninu eru öll skjöl Seðlabanka, svo og söguleg skjöl Landsbanka frá upphafi, enda var Seðlabankinn í raun lengst af hluti hans. Einnig eru þar sérsöfn, svo sem bréfa- og skjalasafn Tryggva Gunnarssonar og skjala- safn Jóns Arnasonar. • Mynt- og seðlasafn, sem að stofni til er safn, er Seðlabanki og Landsbanki áttu. Bæði er um að ræða innlenda og erlenda peninga, s.em víða höfðu borizt að gegn um árin. Safnið bíður nú endanlegrar uppsetningar í Einholti 4 en vænt- anlega verður hægt að opna það almenningi síðar á þessu ári. Söfnin hafa til afnota þriðjung hússins að Einholti 4, um 450 fer- metra, þar af um 100 fermetrar ætlaðir mynt- og seðlasafni. Til kaupa vegna bókasafnsins var varið 59.000 krónum 1980 og 138.000 krónum 1981. Eftir að safnið komst loksins í viðunandi húsnæði hefur verið unnið skipulega að faglegri skrán- ingu þess og er stefnt að því, að hinn íslenzki hluti þess verði tölvuskráður í samvinnu við Landsbókasafnið. Við safnið vinna, auk forstöðu- manns, sem einnig hefur umsjón með annarri starfsemi í Einholti 4, bókasafnsfræðingur í hálfu starfi, bókbindari, aðstoðarmaður, sem einnig vinnur önnur störf, og skrifstofumaður í hálfu starfi. Hlutverk safnsins er að þjóna starfsmönnum bankanna en þegar uppsetningu þess og skráningu er lokið verður það opnað, einkum fræðimönnum og þeim er sinna rannsóknarstörfum varðandi þau efni, er safnið spannar. Ráðherra sagði myndarlega og menningarlega að þessu safni staðið. Það hefði mikið varðveizlu- og sögulegt gildi og myndi þjóna hlutverki á sviði viðkomandi fræða og rannsókna. Þarna eru mikil verðmæti, sem bjargað er til framtíðar. Til gamans má nefna að í myntsafni er danskur einseyr- ingur frá 1881, en einn slíkur seld- ist á rúmar 20.000 danskar krónur í fyrra. Skjala- og bókasafn Seðla- og Landsbanka til umræðu í spurningatíma Alþingis „Pjattbókasafn“ Guðrún Helgadóttir (Abl) hafði beint ýmsum spurningum til ráð- herra, varðandi safnið, tilurð þess, kostnað, tilgang og fjárfest- ingarheimildir. Hún sagði þarna samankomnar miklar fagurbók- menntir bundnar í fegursta skinnband, sumar hverjar sem Landsbókasafn ætti ekki eintak af. Engin þessara bóka væri þó lánuð út. Hvaða heimildir standa til slíkrar fjárfestingar, sem þarna hefur átt sér stað? spurði hún, og taldi skyldu bankaráð- herra að láta Alþingi í té allar upplýsingar varðandi þetta safn viðkomandi ríkisbanka. Ráðherra svaraði efnislega sem að framan segir. Guðrún taldi svör ráðherra duga skammt. Ekki hefðu fengizt svör um, hvað þessi herlegheit kostuðu. Hún vitnaði til laga Seðlabanka, hvern veg skuli ráð- stafa rekstrarafgangi í arðgreiðsl- ur og sérsjóði. Af þessu fé hljóti það að vera tekið, sem þetta „pjattbókasafn" kostaði. Ekki væri þetta safn heldur aðili að samskrá bókasafna. Guðrún sagði að Karl Marx væri ekki bundinn í skinn í safni þessu, vegna þess að það væri á móti honum. Þá sagði hún að arður af Seðla- banka í Finnlandi gengi til ríkis- ins. Hér væri um peninga að ræða sem þörf kynni að vera fyrir ein- hversstaðar í þjóðfélaginu. Verði opið safn Vilmundur Gylfason (A) sagði eðlilegt að spurt væri um safn þetta. Aðalatriðið væri þó að safn- ið yrði opið safn en ekki aðeins fyrir fáa útvalda. Ráðherra verður að tryggja þá framvindu mála. Varðveizlusafn — til fræðistarfa Halldór Asgrímsson (F), sem jafnframt er formaður bankaráðs Seðlabanka, sagði að með safni þessu væri miklum verðmætum bjargað, sem rekið hefði á fjörur bankanna á löngum ferli. Hér væri um að ræða safn, sem væri hugsað sem varðveizlusafn, fyrst og fremst til fræðiiðkana, auk þess að vera heimilda- og skjala- safn fyrir bankana. Verið væri að skrá þetta safn og koma því fyrir. Þegar því er lokið verður það opnað. Svo einfalt er málið. Seðlabankinn og sinfónían Óafur Þ. Þórðarson (F) sagði margar stofnanir sinna menning- armálum slælegar en æskilegt væri, vegna fjármagnsskorts. Gott væri að vita af stofnun, er sinnti menningarmálum, og hefði pen- inga umfram verkefni. Máske Seðlabankinn taki að sér að sjá um Sinfóníuhljómsveitina og bjargi þeim verðmætum, sem henni heyra til! Ef eitthvað er vel gert... Halldór Blöndal (S) sagði við- komandi banka og þá aðila, sem á þeirra vegum hefðu unnið að um- ræddu varðveizlusafni, hafa skilað frábæru starfi, sem framtíðin myndi meta að verðleikum. Ekki sé við hæfi að ráðast alltaf að því, sem vel sé gert, og illa klæddi það fólk, er sífellt væri gælandi við „menningarsnobb", að gagrýna ráðstöfun fjármuna til menning- arvarðveizlu. Ekki sjálfskipaðir verðmætagæzlumenn Albert Guðmundsson (S) taldi rétt, sem fram hefði komið, að fjármuni þyrfti tii að bjarga verð- mætum frá glötun. Hinsvegar væri hér ekki um sjálfskipaða verðmætagæzlumenn að ræða. Seðlabankinn hefði afmarkað verksvið í þjóðfélaginu. Það þarf að endurskoða lög um Seðlabank- ann, sagði Albert. Ef bankastjórar hans eru of margir og sinna ýms- um öðrum störfum á að fækka þeim. Og eitt á yfir alla að ganga, þegar ríkisstofnanir eiga í hlut, að sækja þurfi fjárfestingarheimildir til Alþingis. Fleiri tóku til máls Fleiri tóku til máls þó hér verði ekki rakið. Bæði bankaráðherra og Halldór Asgrímsson (formaður bankaráðs) lögðu áherzlu á, að verið væri að koma þessu safni fyrir, skrá það, svo opna mætti innan þess verkramma, sem um það yrði settur. I.jósmvnd Mbl. Kmilía. Velheppnuö bílasýning hjá Bifreiðum & landbúnadarvélum BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR héldu bílasýningu um helgina, þar sem sýndir voru allir þeir bílar, sem fyrirtækið flylur inn frá Sovétríkjunum, m.a. hinir vinsælu Lada-bílar. Sýningin þótti takast mjög vel og mikið fjölmenni sótti hana. Þrettánda helgarskákmótið haldið í Siglufirði um helgina ÞRETTÁNDA Helgarskákmótið verð- ur haldið í Siglufirði um næstu helgi. Mótið hefst klukkan 14.00 á fö.studag og að venju taka flestir af bestu skák- mönnum þjóðarinnar þátt í mótinu, þar á meðal verða Friðrik Olafsson, Helgi Olafsson, Margeir Pétursson og Jón L. Árnason. Vegleg verðlaun verða veitt í lok mótsins og eru 1. verðlaun 5000 kr., 2. verðlaun 3000 kr. og 3. verðlaun 2000 kr. Auk þess verða veitt 1000 kr. kvennaverðlaun og 1000 kr. old-boys verðlaun. Sá unglingur sem nær bestum árangri á mótinu fær fría skólavist á skákskólanum á Kirkju- bæjarklaustri og Flugleiðir gefa efsta manni mótsins farmiða, sem hann getur notað á einhverri af leið- um félagsins. Á þessu móti er einnig keppt um heildarverðlaun, sem gildir fyrir besta árangur í hverjum fimm mót- um og eru þau verðlaun 15 þúsund krónur. Helgi Ólafsson stendur best að vígi, að loknum tveim umferðum í þessari hrynu, en Jón L. Árnason er ekki langt á eftir honum. Á mótinu í Siglufirði verða tefldar níu umferðir eftir Monrad-kerfi. Fjórar umferðir verða tefldar á föstudaginn, fjórar á laugardaginn og ein fyrir hádegi á sunnudag. Eftir hádegi á sunnudag verður haldið hraðskákmót. Fjórtánda Helgarskákmótið verð- ur haldið á Raufarhöfn 24.og 25. apr- íl næstkomandi og fimmtánda mótið er ákveðið að verði í Borgarnesi um mánaðamót maí—júní. Skrúfudagurinn í Vélskólanum haldinn hátíölegur í 18. sinn AKLEGIIR kynningar- og nemenda- mótsdagur Vélskólans, Skrúfudagur- inn, verður haldinn hátiðlegur í 18. sinn laugardaginn 27. mars næstkom- andi og verður samfelld dagskrá milli klukkan 14.00 og 17.oo. Þennan dag gefst væntanlegum nemendum og vandamönnum þeirra kostur á að kynnast nokkrum þátt- um skólastarfsins. Nemendur verða við störf í verklegum deildum skól- ans og veita þeir upplýsingar um kennslutækin og skýra gang þeirra. Auk þess halda þeir sýningu á kennslubókum og öðrum kennslu- gögnum. Nemendur Vélskólans eru að búa sig undir hagnýt störf í þágu fram- leiðsluatvinnuvega þjóðarinnar, eins og segir í fréttatilkynningu frá skól- anum. Segir að þess vegna sé að vænta margra bæði yngri og eldri, sem fýsi að kynnast því með hvaða hætti þessi undirbúningur fari fram og hvernig búið sé að nemendum. Kaffiveitingar verða á vegum fé- lags vélstjórakvenna, Kvenfélagsins Keðjunnar, í matsal Sjómannaskól- ans frá klukkan 14.00. Að Skrúfudeginum standa þessir aðilar: Skólafélagið, Kvenfélagið Keðjan, Vélstjórafélag íslands og Vélskóli íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.