Morgunblaðið - 24.03.1982, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 24.03.1982, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1982 23 Stefnuskrá Kvennafram- boðs í Reykjavík kynnt FORSVARAR Kvennaframboðs í Keykjavík efndu til hlaöamannafund ar nýlega til að kunngcra stcfnuskrá samtakanna. Af hclstu stefnumálum má nefna að Kvennaframboðið berst fyrir auknum áhrifum borgarbúa á stjórn borgarinnar. I>að yrði m.a. gert með stofnsetningu fleiri hverfasam- taka í Rcykjavik og þeim tryggt vald til að hafa áhrif á mál er hvcrfið varða. . Knnfromur leggja samtökin áherslu á að leiðrétta það launamis- rétti sem þeim finnst milli karla og kvenna á atvinnumarkaðnum. Að dómi þeirra sem standa að kvennaframboðinu eru störf kvenna mun lægra metin til launa en störf karla. Fjölskyldumál skipa veglegan sess í stefnuskránni. Er m.a. stefnt að vaxandi fullorðins- fræðslu til að bæta stöðu kvenna í atvinnulífinu. Auk þess beitir Kvennaframboðið sér fyrir aukinni þátttöku samfélagsins í uppeldi barna. Það væri m.a. unnt með þvi að reisa fleiri dagheimili að sögn kvennanna. Einnig væri nauðsyn- legt að gefa foreldrum kost á styttri og sveigjanlegri vinnutíma. Það kom fram á fundinum að Kvennaframboðið hyggst gefa út blað til að kynna stefnumál sín nánar. I fyrsta tölublaðinu sem kemur út í næstu viku verður fram- boðslisti Kvennaframboðsins opinberaður. Að sögn Kristínar Ástgeirsdótt- ur mætti líta á Kvennaframboðið sem pólitíska aðgerð sem yrði að vega og meta eftir að upp er staðið. Þó kvaðst hún þess fullviss að til- urð samtakanna mundi hafa var- anieg áhrif þó ekki væri nema á stefnuskrá hinna ráðandi stjórn- málaflokka í þjóðfélaginu. Ennfremur sagði Kristín að Kvennaframboðið hafi vakið mikla athygli erlendis. Enda vart að undra þar sem ekki hafi komið til slíks framboðs erlendis um langt skeið. Myndin er tekin á blaðamannafundi sem Kvennaframboðið i Reykjavík stóð að. Frá vinstri til hægri: Helga Jóhannsdóttir, Guðrún Jónsdóttir og Kristín Ástgeirsdóttir. (Ljó»m. KAX) Skarð kom í varnar- garðinn við Kúðafljót llnausum, 23. marz. IIÉK er auð jörð, svo vart sér í snjó. Veturinn hcfur farið vel með okkur, cn þó finnst mér hann hafa verið lang- ur, en hann byrjaði snemma eða um miðjan scptember eftir eitt stysta sumar á öldinni. Félagar úr Ungmennafélaginu Ármanni sýndu leikritið Skjald- hamra eftir Jónas Árnason hér í Kirkjuhvoli á laugardags- og sunnudagskvöld. Undirtektir áhorf- enda voru ágætar. Leikstjóri er Jónína Kristjánsdóttir og verður leikritið sýnt í nágrannahéruðun- um. Þrjú þorrablót og góufagnaður voru haldin hér á milíi sanda í vet- ur. Þessi mót eru orðin hefðbundin og styttir þann tíma vetrarins, sem annars er hvað daufastur, en þessi mót og leiksýningin hafa stytt stundir manna hér. I rigningunum á þorra brotnaði skarð í varnargarðinn við Kúða- fljót, en fljótlega var gert við það. Þessi garður er alltof veikur og er hluti sveitarinnar í hættu ef ekkert verður að gert. í rigningunum nú undanfarið hafa vegirnir oft á tíð- um vcrið ömurlegir. Fyrir 10—15 árum hefði ekki þótt trúverðugur spámaður sem hefði sagt þetta fyrir. Þó þarf engan að undra þetta, því í mikilli nauðsyn var reynt að teygja sem mest úr vegakerfinu og voru vinnubrögðin eftir því. Víðast vantaði burðarlag og ofaníburður ónógur. Sæmilegt vegakerfi er auð- vitað allsstaðar forsenda nútíma mannlífs og þá ekki síst hér, þar lir. ritstjóri. I greinarkorni í blaði yðar sunnu- daginn 21. mars sl. komu fram vin- samleg ummæli um Grænlands- kynninguna í Norræna húsinu, sem staðið hefur nú í viku hverri í tæpa tvo mánuði og verður fram haldið fram í maí. Greinarhöfundur fór einkar hlýlegum orðum um rabb mitt um Austur-Grænland og sé honum þökk fyrir það. Þetta langar mig að taka fram: 1. Ferð okkar félaga úr Kópavogi var farin um mánaðamótin júlí/ ágúst 1979. 2. Angmagssalik er ekki næsti bær við flugvöllinn. Það er byggðin Kulusuk (áður Kap Dan) á sam- ncfndri eyju. 3. Ferðin til Angmagssalik frá sem lcngst er til hafnar á landinu. Þess má geta að nú sést aðeins dreif af loðnu, sem rekið hefur á fjörurnar, en það-hefur varla komið fyrir síðan byrjað var að veiða loðnu hér undan söndunum. flugvelli tók 2 klst. á báti en ekki 4. 4. í Angmagssalik búa um 800 manns. 5. Ég gat þess að dæmi væru þess að fiskur hefði verið færður til vesturstrandarinnar til þess að meta hann af fiskmatsmönnum, sem engir hefðu verið í Ang- magssalik. Vaknað hefði sú spurning, hvort ekki hefði verið hentugra að flytja fiskmatsmen- nina til fiskaflans. 6. Um framtíðarhorfur í Ang- magssalik vil ég vera sem fáo- rðastur frá eigin brjósti. En þegar þær bar á góma vitnaði ég til umsagna ráðamanna á Græniandi. Með þökk fyrr birtinguna. Vinsamlegast, Hjálmar Olafsaon Að gefnu tilefni Stálvaskar VVJ_LJ7 I Og ARABIA -| blöndunartæki hreinlætistæki j RA BABSTOFHNNl LOADSTOFA RMÓI.A 23 — SlMI e Útsala Alls konar karlmannafatnaður. T.d. karlmannaföt nýkomin. Terelyne/ull kr. 898. Terelyne/ull/Mohair kr. 998. Úlpur. Terelyne-buxur, flauelsbuxur, galla- buxur, skyrtur, frakkar, peysur, sokkar o.fl. ódýrt. Andrés, Skólavörðustíg 22. Glugginn Rýmingarsala mikil verölækkun Glugginn Laugavegi 49 HeilsunnarvegnaWsy&s&W>$yss&M á matarborðið og í matseldina \Fœst í apótekum KAMANA SALT Við borðum of mikið salt Meira en góðu hófi gegnir heilsu okkar vegna. 9 grömm venjulegs matarsalts — samsvar- andi 1 teskcið — binda 1 litra áf vatni I líkamanum, sem jafngildir 1 aukakilái. Vatnið binzt m.a. i vefina undir húðinni, og er það ekki til fegurðarauka. Úr venjulegu matarsalti fáum við of mikið natríum. I KAMANA-saltinu hefur stór hluti natríum magnsins verið tekinn út og í staðinn bætt í kalium og magnesíum. i Neyzla KAMANA-salts leiðir einnig til aukins útskilnaðar af natríum með þvagi, en of mikið natrium veldur hækkuðum blóð- þrýstingi. Með því að nota KAMANA-salt í stað venju legs matarsalts, drögum við úr natríum neyzlunni. Það er ekki að finna bragðmun á venjulegu matarsalti og KAMANA-salti. KAMANA-salt fæst í aoótekum. I.jósmynd Mbl. Kmilía. Hafrafell kynnti Peugeot-línuna FYKIKT/EKH) Hafrafell, sem flytur inn frönsku I'eugoet-bílana hélt sýningu á línu fyrirtækisins um helgina og kom mikill fjöldi gesta. Kílarnir, sem fyrirtækió selur, eru Reugoet 104, 305, 504, 505 og 604. I>eir eru fáanlcgir í mismunandi útfærslum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.