Morgunblaðið - 24.03.1982, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1982
27
íslenskur snilling-
ur - Hörður Áskelsson
eftir dr. Jakob
Jónsson
Fátt gleður gamalt fólk meira
en það að yngri kynslóðinni vegni
vel og að hún geti sér góðan orðs-
tír við þau verkefni, sem hún hefir
valið sér. Eitt slíkt gleðiefni hlaut
ég í vetur, er ég brá mér til Þýska-
lands. Ég var boðinn á ráðstefnu
sem haldin var á vegum akademíu
hins kaþólska biskupsembættis í
Aachen. Ferðin varð mér til
óblandinnar ánægju, og það dró
ekki úr gleði minni að gista hjá
frænda mínum, Herði Askelssyni
organista, og konu hans, Ingu Rós
Ingólfsdóttur. Þau hjónin standa
nú á vegamótum, þar sem lokið er
námi í hljómlistinni með frábær-
um árangri, og framundan eru
verkefnin vegleg og fögur. Það var
birta og gleði yfir heimili þeirra
Harðar og Ingu Rósar og andi list-
arinnar sveif þar yfir vötnunum.
Allir sem til þekkja hér heima,
vita, að bæði hjónin hafa hlotið
aðdáun og hylli þess fólks, sem
kann að njóta söng- og hljómlist-
ar. Og margir bíða þess með til-
hlökkun, að þau flytjist hingað
heim og haldi áfram að leggja
fram sinn skerf í sönglífi þjóðar-
innar. En þeir hinir sömu munu
fagna því af heilum huga, að þau
hafa vakið aðdáun og fögnuð í því
landi, þar sem þau hafa numið og
starfað til þessa. Það mun ekki
hafa vakið litla athygli, þegar
ungur útlendingur var ráðinn
organisti og söngstjóri við eina af
stærstu kirkjum í höfuðborg Rín-
arlanda. En mér hefir borist
blaðagrein, sem staðfestir, að sú
ráðning hefir ekki valdið von-
brigðum. „Der Weg“ nefnist ev-
angeliskt sunnudagsblað fyrir
Rínarlönd og hinn 24. jan. síðast-
liðinn birtist þar viðtal við Hörð.
Geri ég ráð fyrir að mörgum vin-
um þeirra hjóna og unnendum
sönglistar muni þykja gaman að
lesa það sem þar er sagt um ferii
og starf manns, sem ætlað er að
taka við ábyrgðarmiklu starfi hér
heima.
Greinin hefst þannig:
„Hann talar þýsku eins og Þjóð-
verji. Hefir þegar gert sig kunnan
í Dússledorf með nokkrum hljóm-
leikum og er söngstjóri um tíma í
höfuðborg þessa landshluta: Hörð-
ur Áskelsson. Hljómlistarmaður
frá íslandi, sem er staðgengill
Oskars Gottliebs Blarr við Nean-
der-kirkjuna til maímánaðar 1982.
bæði söfnuður og söngflokkur
hafa lært að meta hann. Margir
munu sakna hans, þegar hann fer
héðan eftir stutta embættistíð,
þegar að því kemur, að hann fari.“
Blaðamaðurinn skýrir frá
námsferli Harðar á Islandi og er-
lendis. Er þess getið, að hann hafi
stundað framhaldsnám í Sam-
bandslýðveldinu Þýzkalandi.
Orgelleik hjá Konrad Voppel og
Hans-Dieter Möller, söngstjórn
hjá prófessor Hartmut Schmidt,
og A-prófið tók hann í marzmán-
uði í fyrra.
I viðtalinu rekur Hörður sjálfur
sögu íslenzkrar kirkjusönglistar í
stórum dráttum og nemur að lok-
um staðar við nöfn manna eins og
dr. Páls ísólfssonar og dr. Róberts
Ottóssonar. Nefnir hann um leið
stórhug og framkvæmdir íslenzku
þjóðarinnar í sambandi við
kirkjubyggingar, ekki sízt Hall-
grímskirkju, sem veiti möguleika
til þess, að sett verði upp orgel
með 60—80 registrum.
Ég sé ekki ástæðu til að geta
frekar um það, sem segir í grein-
inni, um framþróun íslenzkrar
tónlistar, það er öllum almenningi
kunnugt. En öll frásögnin lýsir
áhuga og vongleði hins unga
tónsnillings, ekki síður en fram-
kvæmdum á sviði listarinnar hér
heima fyrir. Og Hörður lætur í
ljósi gleði sína yfir því, að íslend-
ingar séu sem óðast að keppa að
því að standa öðrum jafnfætis, þó
að þeir hafi komið síðar til leiks
en þær þjóðir, sem sköpuðu sín
frægu músíkverk fyrir mörgum
öldum.
Síðan segir blaðið:
„Prófritgerð sína skrifaði þessi
stórgáfaði hljómlistarmaður ekki
aðeins um heimafengið efni, held-
ur „Lútherslög á íslandi", stór-
áhugaverð ritgerð, sem mikill
gróði er af að lesa. Prófraun hans
sem söngstjóra var hin fræga
Hördur Áskelsson
„Það er gott og bless-
að, að erlendar stór-
borgir geti skapað ís-
lenzkum snillingum
skilyrði til listrænna
starfa, en helst þyrftum
við að leggja kapp á að
Ijúka við þau musteri
listarinnar, sem hér eru
í smíðum.“
„Gloria" eftir Vivaldi, og tilheyr-
endur voru stórhrifnir. Um jóla-
leyti hélt hann framúrskarandi
kammerhljómleika með músík frá
þremur löndum við mikinn orðs-
tír. Nú er þess beðið með eftir-
væntingu hvað hann hafi upp á að
bjóða fram til maímánaðar á
þessu ári. Með aðstoð konu sinnar
Ingu Rósar (sem er ellóleikari frá
skóla prófessors Goritzki) hefir
hann haldið marga uppbyggilega
„einkahljómleika" fyrir söfnuðinn.
Dætur þeirrá tvær, Inga (2) og
Guðrún (7) hafa heldur ekki farið
á mis við músíkgáfuna. Sem sagt:
Það er skaði, að dvöl hans hér er
aðeins um stundarsakir. Þeim sem
vanir voru að hlýða á O.G. Blarr,
hlaut örugglega að finnast, að
Hörður væri hinn æskilegasti
staðgengill hans. Næstu hljóm-
leikar Harðar verða 14. marz í Jó-
hannesarkirkju, Requiem eftir
Gabriel Fauré, orgelkonsert eftir
Francis Poulenc.
Af blaðaviðtalinu má ráða, að
Jóhannesarkirkja í Dússeldorf sé
álíka stór og Hallgrímskirkja í
Reykjavík. Það er gaman að hugsa
til þess að Islendingar eigi tónlist-
arfólk sem er í færum um að hag-
nýta hin beztu skilyrði sem veita
má í fornum menningarborgum
Evrópu, og við óskum ungum tón-
listarmanni til hamingju með þá
viðurkenningu sem hann hefir
fengið og tækifærin sem honum
gefast. Og sömuleiðis henni Ingu
Rós, sem sagði mér eitt sinn, að
hún hefði valið cellóið af því að
það hefði sál. Kannski hafa hljóð-
færin sál, bæði orgel og celló, en
sennilega gætu þau ekki mikið
nema sálir þeirra Harðar og Ingu
Rósar kæmu til sögunnar.
En það er einnig annað sem
minna má á í leiðinni. Það er gott
og blessað að erlendar stórborgir
geti skapað íslenzkum snillingum
skilyrði til listrænna starfa, en
helst þyrftum við að leggja kapp á
að ljúka við þau musteri listarinn-
ar, sem hér eru í smíðum. Upp með
llallgrímskirkju. Nógir eru pen-
ingarnir, ef þeir eru bara settir á
réttan stað.
Jakob Jónsson
FLUGLEIÐIR
Nú œtlum vlð hjá Flugleiðum að bjóða þér í spennandi íerð. Álangastaðurinn
er Chicago við Michiganvatn. Þar er að íinna salarikustu steikur vestursins.
írœgar byggingar eins og Wrigley'shúsið, Sears Tower og Baha'ihoíið, frá-
baerar verslunarmiðstöðvar eins og Woodlield Shopping Mall, sem er rétt utan
við borgina.
Gott fólk hjá traustu félagi
Dvalið verður á Holiday Inn hótelinu allar nœtumar sjö. Brottfarir verða viku-
lega á sunnudögum, sú fyrsta er páskaferð 4. apríl. Verðið er ekki síður spenn-
andi en áíangastaðurinn og inniíalið er flugfar, gisting, ílutningur til og frá
flugvelli, kynnisíerð um borgina og íslensk fararstjóm. Að auki er möguleiki á
ýmsum skoðunarferðum m.a. siglingu um Michiganvatn.
Verð írá 5.970 kr.
: • M • *• •• -
** »• «•
VANTAR ÞIG VINNU (nj þaRFTU AÐ KAUPA?
VANTAR ÞIG FÓLK í ÆTLARÐU AÐ SELJA?
t2
Þl AIGLYSIR l.M ALLT LAXD ÞEGAR
Þl AIGLYSIR I MORGINBLAÐIM