Morgunblaðið - 24.03.1982, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 24.03.1982, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1982 íslendingar þjóðarbrot, sem tekið er eftir í Kanada - segir Magnús Elíasson, borgarfulltrúi í Winnipeg VESTUR-ÍSLENDINGURINN Magnús Elíasson, er Cæddur í Árnesbyggð á Nýja-lslandi skammt norðan Winnipeg 1911. Foreldrar hans voru Guðmundur Elíasson, fæddur í Görðum undir Jökli, sem kom til Norður- Dakota 1891, og Margrét Sveinsdóttir, fædd á Fosshóli í Víðidal, Húna- vatnssýslu, og kom hún til Winnipeg árið 1900. Hét bújörð þeirra Lauf- hóll. Magnús fór snemma að skipta sér af stjórnmálum og hefur átt sæti í borgarstjórn Winnipeg síðan 1968, en í borginni býr rúmur helmingur íbúa Manitoba-fylkis. Magnús var á ferðinni hér á landi fyrir skömmu og ræddi blaðamaður Morgunblaðsins þá við hann og bað hann fyrst að segja frá stjórnmálaferli sínum. „Ég hef nú starfað í tæp 30 ár að stjórnmálum og alla þá tíð verið flokksbundinn. Ég tilheyri sosál-demokratískum flokki, sem sprottinn er upp úr verka- lýðshreyfingunni og bændah- reyfingunni. bað er erfitt að bera þennan flokk saman við flokka á Islandi, til þess eru aðs- ta'ður of ólíkar, en í þessum flokki eru engir kommúnistar, þó ef til vill megi líkja honum við vinstri flokkana hér. Þá ber þess að geta að kanadíska þjóðin skiptist í geysimörg þjóðabrot, sem sum hver styðja sama flok- kinn. Þannig styður til dæmis meirihluti kanadískra gyðinga þennan flokk, eiginlega samkvæmt siðvenju. Störf mín innan flokksins hafa aðallega snúizt um borgarstjórnarmál, en þó hef ég haft talsverð afskipti af fylkis- og alþjóðamálum. Ég var til dæmis útbreiðslustjóri flokksins í sléttufylkjunum í 14 ár og hef satt að segja talað á pólitískum fundum um þvert Kanada að undanskildu Quebec, þar sem ég tala ekki frönsku. Ég er einn af þeim, sem starfað hef í flokknum frá stofnun hans 1932 og var einn af uppbyggjen- dum hans og skipuleggjendum í British Columbia og hef líklega starfað við um 70 kosningar, verið í kjöri í tveimur fylkjum og þjóðarkosningum, en aldrei náð kjöri nema til borgarstjórnar Winnipeg. Skýringin á því er sú, að ég hef oft fórnað mér í vonlitla baráttu, aðeins til þess að reyna að auka útbreiðslu flokksins og vegna þess að ég var mjög vel að mér í bændapólitíkinni og landbú- naðarmálum. Ibúar Winnipeg eru um 590.(XX) og skiptist borgin í 29 kjördæmi, sem hefur einn fulltrúa hvert. Flokkur minn á 7 fulltrúa. P’lokkurinn er einnig ráðandi í fylkisstjórninni og þegar baráttan hófst 1957 var ég sendur til Manitoba og það var sagt að það hefði verið mest fy- rir þrautseigju mína að meirih- luti náðist 12 árum síðar. Nú mér er auðvitað margt minnis- stætt úr baráttunni, ég stóð oft í miklum kosningaátökum, því ég var álitinn góður við að stjórna og skipuleggja baráttuna og þótti nokkuð góður ræðumaður. Ég gat talað í heila klukkustund blaðalaust og var þekktur fyrir að byrja ræður mínar á hnytt- num gamansögum og átti létt með að vekja athygli áheyrenda og halda henni vakandi, enda hafði ég gert nokkuð af því að kcnna ræðumennsku. Það var einhvern tímann skrifað um mig að enginn hefði heimsótt jafnmörg flokksheimili í sléttu- fylkjunum og ég. Þá vann ég talsvert með núverandi landst- jóra Kanada og hefur hann sagt að hann hafi lært talsvert af mér. Edward Schreyer heitir hann og er þýzkættaður og talar 5 tungumál. Ég á sæti í bor- garstjórninni til loka næsta árs og nú er óvíst að ég gefi kost á mér til áfram- halds, ég er ekki eins sprækur og ég var fyrir 25 árurn." Hvernig hefur þér tekizt að varðveita íslenzkuna svona vel? „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á íslenzkum skáldskap og með því að lesa hann hef ég haldið málinu vel við og getað farið vel með það. Það eru mar- gir, sem furða sig á því hve vel ég kann íslenzkuna, en ég lærði hana sem barn og hún var ná- nast mitt eina tungumál þar til ég fór að sækja skóla. Þau skáld íslenzk, sem mér finnst bezt, eru Stefán G. þó hann sé dálítið þun- gur, Jónas Hallgrímsson, Einar Benediktsson, Guttormur Gut- tormsson og KN, sem var mjög hagmæltur og ég kann mikið ef- tir þessa menn. Þá hefur mér ætíð fundizt gaman að lesa Bó- lu-Hjálmar og Númarímur Sigu- rðar Breiðfjörð. Islendingar í Kanada halda sér vel saman sem þjóðarbrot, en málið er mikið til að hverfa og nú eru íslenzkar messur til dæmis að verða sjaldgæfar í Winnipeg. Islend- ingadagurinn í Gimli er einn af elztu og mestu þjóðhátíðum fyl- kisins en jafnvel þar er málið að hverfa. En í Kanada eru íslend- ingar þekkt þjóðarbrot, sem mikið ber á og koma þeir nær alls staðar við og ég held að það sé varla sá þáttur í fylkislífinu, sem Islendingar hafa ekki tekið þátt í. Það eru um 15.000 íslend- ingar í Winnipeg og síðan 1883, er fyrsti Islendingurinn var ko- sinn í borgarstjórn, hefur alltaf að minnsta kosti einn átt sæti þar og nú erum við 2, Eirí- kur Stefánsson auk mín. Ég stóð meðal annarra fyrir fyrsta ís- lendingadeginum, sem haldinn var við friðarboðann milli Brit- ish Columbia og Washington og ég er einnig formaður Skandin- avíufélagsins, en starfsemi þess er minni en ætla mætti vegna þess að það hefur nánast enginn fólksflutningur verið þaðan síðastliðin 50 ár. Þegar Win- nipeg átti 100 ára afmæli var ég með í því að setja upp eins konar þjóðhátíð 30 þjóðabrota í tilefni afmælisins. Þar setti hver þjóð upp sinn skála, þar sem hún kynnti menningu sína, listir, matarvenjur og heimilisiðnað. Þetta átti aðeins að vera í þetta eina skipti, en vakti svo mikla athygli og hrifningu að þetta varð árlegur viðburður og sten- dur í 8 daga samfieytt. Þó ég hafi aðallega sinnt bor- garstjórnar- og innanfylkis- málum hef ég mikinn áhuga á alheimsmálunum, aðallega verð- bólgu- og peningamálum og or- kumálum, mengun sjávarins og umhverfisvernd og vonast til þess að geta sinnt þessum málum meira. Ég er ekki einn af þcim, sem eru alveg vissir um að menning Vesturlanda sé jafnva- ranleg og margir vilja halda. Það þarf að gera mikið til að svo verði, einkanlega á sviði umh- verfisverndar og mengunar, en ég vona að það takist," sagði Magnús að lokum. Attræð: Anna Jóhannesdóttir Syðra-Langholti II Mig langar að senda hér afmæl- iskveðju til Önnu vinkonu minnar og velgjörðarkonu. Anna Jóhannesdóttir í Syðra- Langholti er áttræð í dag. Hún er fædd 24. mars 1902 að Fremri- Fitjum, Fremri-Torfustaðahreppi í Húnavatnssýslu, dóttir hjónanna Þuríðar Jóhannesdóttur og Jó- hannesar Kristóferssonar, er þar bjuggu myndarbúi. Þau systkinin voru átta talsins auk uppeldis- bróður svo snemma vandist Anna á að taka til hendi við margvísleg störf. Stórbýlið P'remri-Fitjar er staðsett milii Víðidals og Mið- fjarðar. Jörðin er stór og víðlend og minnir um margt á heiðarbýlið, enda drjúg hlunnindi að Arnar- vatnsheiði. Systkinahópurinn lagði fyrir sig að ævistarfi hefðb- undin búnaðarstörf, þannig tóku |>rjú systkini Onnu við búinu að Fremri-Fitjum, bræðurnir Tryggvi og Guðmundur ásamt systurinni Láru, sem nú er látin. Hinir bræðurnir, þeir Skarphéð- inn, Jakob, Kristófer og Lúðvík, gerðust einnig bændur í Húna- þingi og er Lúðvík nú einn þeirra á lífi og er búsettur í Hafnarfirði. Uppeldisbróðirinn Marinó Jóns- son er búsettur í Reykjavík. Anna á til ágætis fólks og merkismanna ættir sínar að telja í báðar ættir af Norður- og Vesturlandi. Guðmundur bróðir Onnu fór til búfræðináms að Bændaskólanum að Hvanneyri og Anna réðist þar til starfa. Þar kynntist hún ungum og efnilegum búfræðingi, Sig- mundi Sigurðssyni, er þar stund- aði nám 1924—1926. Anna og Sig- mundur heitbundust og að námi loknu á Hvanneyri fór Sigmundur m.a. til jarðræktarstarfa á Suður- landi, en var öllum stundum með hugann bundinn við leit að góðri bújörð. Anna fór hinsvegar til hússtjórnarnáms að Staðarfelli og lauk því með mjög góðum vitnis- burði. Anna og Sigmundur gengu í hjónaband 23. maí 1929, en Sig- mundur hafði keypt Syðra- Langholt í Hrunamannahreppi og hafið þar búskap vorið áður. Var nú ráðist í miklar framkvæmdir í Syðra-Langholti og þótti mörgum þau frumbýlingarnir færast mikið í fang að kaupa slíka stórjörð og hefja þar búskap. Það kom þó fljótlega í Ijós að Sigmundur og Anna voru vandanum fyllilega vaxin, enda þau stórhuga athafna- og framkvaundamanneskjur og fyrr en varði varð Syðra-Langholt eitt stærsta bú á Suðurlandi og stórbýli eins og þau gerast best. Sigmundur Sigurðsson var fa;ddur að Litla-Kálfalæk í Hraunhreppi í Mýrasýslu 8. mars 1903, en hann lést 12. mars 1981. Foreldrar hans voru hjónin Kristjana Bjarnadóttir og Sigurð- ur Sigmundsson, er fyrst bjuggu að Litla-Kálfalæk og síðar að Miklaholti í Hraunhreppi á Mýr- um. Foreldrar Sigmundar og systkini fluttu með honum að Syðra-Langholti, er hann hóf þar búskap og urðu foreldrar Sig- mundar þeirrar gæfu aðnjótandi að búa hjá Sigmundi og Önnu langan ævidag, en af þeim er risin mikill ættbogi í Hrunamanna- hreppi, enda dugmikið mann- kostafólk. Sigmundur og Anna eignuðust sex mannvænleg börn. Þau urðu fyrir þeirri þungbæru sorg að missa fyrsta barn sitt Öldu, efni- lega dóttur, á unga aldri. Önnur börn þeirra eru: Jóhannes, stúdent frá Menntaskólanum á Laugar- vatni, bóndi að Syðra-Langholti og kennari við skólann á Flúðum, kvæntur Hrafnhildi Jónsdóttur * J*jr J * J frá Sauðárkróki, þá er dóttirin Kristjana, gift Brynjólfi Geir Pálssyni, bónda að Dalbæ í Hrunamannahreppi og síðan bú- fræðingarnir, tvíburarnir Sigurð- ur og Sigurgeir. Sigurður rak búskap með foreldrum sínum að Syðra-Langholti en hefur einnig stundað ýmis önnur störf, m.a. verið ritstjóri Eiðfaxa, en Sigur- geir er bóndi og kaupmaður að Grund á Flúðum í Hruna- mannahreppi og er kvæntur Sól- veigu Ólafsdóttur úr Borgarnesi. Yngstur er sonurinn Sverrir, bú- settur í Reykjavik og hefur starf- að sem verktaki, var kvæntur Þór- stínu Benediktsdóttur. Barnabörn Sigmundar og Önnu eru nú alls sautján og barnabarnabörnin fimm. Syðra-Langholt er landstór jörð. Ræktunarland er gott og er nú svo til allt framræst og hefur verið tekið til ræktunar. Þangað er staðarlegt heim að líta, reisuleg íbúðarhús og mikil og stór útihús, er reist hafa verið af mikilli fram- sýni og stórhug. Iðgræn tún og vel ræ“ktaðir akrar í stórkostlegum víðáttum. Þarna er stundaður stórbúskapur, mikil jarðyrkja og framfarir og 1976 var borað í landaréignina eftir heitu vatni og reyndist það yfirfljótanlegt og er nú hagnýtt við hitun íbúðar- og útihúsa, við búskapinn auk yl- ræktar. Heimilin eru menningar- leg og bókakostur mikill. Stórbýlið stendur á töngum hálsi, sem geng- ur fram af Langholtsfjalli vestan- verðu með útsýni yfir búsældarleg héruð Suðurlands. I fjallinu er Alfaskeið, einn fegursti samkomu- staður sunnanlands, en þar voru miðsumars háðar árlega hátíðir Ungmennafélags Hrunamanna. Heimilið að Syðra-langholti er skemmtilegt rausnarheimili með miklum menningarbrag. Anna og Sigmundur voru samhent um rausn heimilisins og glæsibrag, enda miklir höfðingjar heim að sækja. Gestkvæmt er þar og gest- risni viðbrugðið og rausnin þar er engin sýndarmennska, hún er sönn og í fullu samræmi við stór- hug og viðmót húsráðenda. Heim- ilishaldið er ærið viðfangsefni og slikri gestrisni fylgir drjúg fyrir- höfn, en Anna á í ríkum mæli þá eiginleika, er húsfreyjustarf á stóru og mannmörgu sveitaheimili útheimtir. Vinnusemi, stjórn og reglusemi er henni í blóð borin. Auk þess ber hið fallega og hlýja heimili merki smekkvísi hennar og umhyggju. Starfsþrek hennar er ótrúlegt og minnist ég þess þau sumur, er ég dvaldi í Syðra- Langholti, að aldrei vaknaði ég það snemma eða sofnaði það seint, að Anna væri ekki að sinna hinum ýmsu störfum, er heimilið þarfn- aðist. Sigmundur var stórhuga við búskapinn og atorkusamur fram- kvæmdamaður. Hann valdist til ýmissa opinberra trúnaðarstarfa fyrir búnaðarsamtökin og sveit sína og var í fylkingarbrjósti sunnlenskra bænda um hálfrar al- dar skeið. Hann þurfti því oft að vera að heiman og kom þá bústjórnin á hinu stóra heimili í hlut Önnu, sem fórst það úr hendi af frábærum myndarskap. Eðli- lega hefur Anna því ekki haft mikinn tíma aflögu fyrir störf utan heimilisins, en engum dylst sem til þekkir, hversu mik- inn stuðning og styrk bóndi henn- ar sótti til hennar við hin marg- þættu trúnaðarstörf. Naut sín þar nærfærni hennar, greind og miklir mannkostir. Anna er víðlesin og gædd lifandi frásagnargáfu, enda áhugamálin mörg. Milli foreldra minna og fjöl- skyldu og fólksins í Syðra- Langholti hefur ávallt verið ein- læg og trygg vinátta. Og ósjálfrátt lítur maður á Syðra-Langholt sem sitt annað heimili, enda aldrei um annað talað en fara heim í Syðra- Langholt. Engum sem þangað kemur dylst að þar er gott fólk, enda vinahópurinn orðinn stór, sem í dag hyllir heiðurskonuna Önnu Jóhannesdóttur áttræða. Bestu heillaóskir Anna mín frá okkur öllum. Jón Oddsson Hlekkur færir út kvíarnar Uppboðsfyrirtækið Hickkur er að hefja starfsemi sína að nýju um þessar mundir eftir nokkurt hlé. Fyrirtæki þetta hefur staðið fyrir frí- merkjauppboðum og nú mun ætlun- in að auka starfsemina og standa einnig að uppboðum á mynt og minnispeningum, málverkum, mynd- um, listmunum og bókum. Hefur fyrirtækið sérfróða menn á sviði myndlistar og bóka sér til ráðuneytis í þeim efnum. Illekkur hf. hefur nú opnað skrifstofu að Skólavörðustíg 21a, á annarri hæð, og þar verður fyrst um sinn opið daglega milli klukk- an 17 og 19. Fyrirtækið var áður sameignarfélag Hálfdánar Heiga- sonar, Lórens Rafns, Sigfúsar Gurrtiarssonar og Sigurðar R. Pét- urssonar, en Hlekkur hf. mun héð- an í frá starfa sem hlutafélag áð- urnefndra manna og þeirra F’reys Jóhannessonar, Finns Kolbeins- sonar og Haralds Sæmundssonar. ■ J J.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.