Morgunblaðið - 24.03.1982, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1982
35
Athugasemd vegna
listgagnrýni
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi athugasemd frá Helga
l>ór Axelssyni, fyrir hönd Virku sf.,
sem er sá aðili, sem sett hefur upp
bútasaumasýninguna á Kjarvals-
stöðum. Athugasemdin er vegna list-
gagnrýni og er svohljóðandi:
Vegna Íistgagnrýni Braga Ás-
geirssonar sl. laugardag um búta-
saum tel ég rétt að sjónarmið eig-
anda safnsins Mrs. Michell komi
fram, þar sem hún sá um uppsetn-
ingu þess. Áður en farið var að
koma teppunum fyrir, tók hún
fram, að hún vildi hengja þau upp
á þann hátt sem hún hafði vanist
víðast hvar í Bandaríkjunum og
taldi hæfa sögusýningu efnis og
vinnu í bútasaumi, en ekki eins og
tíðkaðist með málverk eða nýja
list.
Á málverkasýningum er venjan
sú að hafa upplýsihgar um verkin
í sýningarskrá og skoða þau úr
fjarlægð, en hér skiptir hins vegar
máli nálægð áhorfandans við
verkin, svo hann sjái vel það efni
og vinnuaðferðir sem notaðar eru.
Af þeim sökum voru upplýsingar
um þau settar við hlið þeirra.
I kvöld höldum viö áfram meö poka-
hlaupskeppnina, en hún hófst nákvæm-
lega fyrir viku, og þá var háö mjög
spennandi keppni í þessari íþrótt og bar
sigur úr býtum sveit skipuö Verzlunar-
skólanemum. Viö höldum þessari
skemmtilegu keppni að sjálfsögöu
áfram í kvöld.
Nú drífur þú þig af staö og smalar sam-
an 5 hressum krökkum og lætur skrá
þig til keppninnar.
Lög kvöldsins veröa „That Girl“ meö
Stevie Wonder og „For More from
Toyah“ meö Landscape.
Láttu sjá þig í UÖLLUlAifi
EFÞAÐERFRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
NÝTT verkstæði, Knastás
hf., opnaði hinn 1. marz
síðastliðinn að Skemmu-
vegi 4, í Kópavogi. Verk-
stæðið sérhæfir sig í við-
gerðum á FIAT og Citroen
bifreiðum, en eigendurn-
ir, Dagur og Jón Jakobs-
synir hafa starfað hjá
FIAT-umboðinu síðastlið-
in 10 ár. Hjá Knastási er
unnt að fá framkvæmdar
allar almennar viðgerðir,
Ijósastillingar og skyndi-
viðgerðir. Ennfremur sel-
ur verkstæðið og setur á
bifreiðir grjóthlífar.
^Rvöldverðurinn
HX* í!,„. B 150
Sólarkvöld okkar hala nú sleglð öll
met. - rétt eins og sumaráœtlunln og
ferðabœklingurinn góði Nú kynnum
við Torontoferðirnar og skðpum
kanadíska hlöðustemmningu eins og
hún gerist best; mœtum í frjálslegum
klæðnaði og tökum lagið í góðra vina
hópi Allir lá ferðabœkling og að
sjálfsögðu verður kynningarkvik-
myndin sýnd
Kanadískt fjör frá fyrstu mínútu.
Reynir Jónasson harmonikkuleikari
og Jón Ólaísson píanóleikari taka á
móti gestum með dillandi hlöðu-
músík
í örstuttri ferðakynningu verður sagt
frá Kanadaferðunum og athyglin
vakin á þeim fjölmörgu möguleikum
sem þœr bjóða upp á
Spurningakeppnin verður á sínum
stað og nú keppa Tollvarðafélag
íslands og Iðja, félag verksmiðju-
fólks.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur sýnir
þjóðdansa
Ferðabingóið er ómissandi og að
venju spilað um veglega ferða-
vinninga.
Módelsamtökin sýna glœsileg föt
frá nýrri tískuverslun. Urður, Skóla-
vörðustíg 14.
Kór Langholtskirkju kemur i heim-
sókn og skemmtir gestum al alkunnri
snilld
Arnarflugsdúettinn frœgi tekur lagið
Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar
leikur fyrir dansi.
Aðgöngumiðar eru seldir og af-
greiddir í andyri Súlnasalar milli
kl. 16.00 og 18.00 og þú velur þér
borð um leið og þú sœkir miðana.
Síminn í miðasölunni er 20221 og hver
aðgöngumiði er um leið happ-
drættismiðl sem geíur þér möguleika
á 20.000 króna ferða vinningi. Rúllu-
gjald er innheimt við innganginn.
Næsta sólarkvöld er tileinkað
Portoroz.
Kynnir: Magnús Axelsson
Stjórnandi: Sigurður Haraldsson
Húsið opnað kl. 21.00 fyrir þá gesti
sem ekki snœða kvöldverð.
Töframaðurinn og eldgleypirinn
Micky Vaughan sýnir listir sínar
Hittumst á Sólarkvöldi - Par er fjörið!
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899