Morgunblaðið - 24.03.1982, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1982
Ast er...
.. að tnía.
TM Reg U.S. Pat Off —all riohts reservod
CW82 Loe Ange*es Tlmes Syndicate
Með
morgurtkaffinu
555
WíNcr 352
Gjördu svo vel, hér er ristaða
brauðsneiðin þín! Hvert fer hann á hverju kvöldi?
HÖGNI HREKKVISI
í/.2a 1980
MrNaught Svnd . Inr
,HCV5NI/. • pBTTA E £ FlJÓTA6ÁT<jR.!
Byggðarþróun í Arneshreppi í Strandasýslu:
Vanhugsuð fyrirætlun
í Morgunblaðinu 12. mars sl.
var greint frá tillögu þingmanna
Vestfjarðakjördæmis um byggð-
arþróun í Árneshreppi í
Strandasýslu. I þessari tillögu
telja flutningsmenn langbrýn-
asta verkefnið í Árneshreppi að
bygKja höfn í Norðurfirði.
Eg er sammála flutnings-
mönnum um að uppbygging þarf
að eiga sér stað í Árneshreppi,
en það er svo langt frá því að
Norðurfjörður sé rétti staðurinn
til að mynda byggðarkjarna.
Til glöggvunar fyrir þá sem
ekki þekkja til, ætla ég að gefa
hér í upphafi smá staðháttalýs-
ingu frá Norðurfirði.
Norðurfjörður er lítil vík sem
gengur norður úr Trékyllisvík. I
vík þesari er ekkert undirlendi ef
frá er talinn hluti þriggja lítilla
bújarða í botni þessarar víkur.
Að sunnan takmarkast þessi vík
af þverhníptu urðarnesi, en að
norðan háum bökkum og klett-
um.
Við norðanverðan „Norður-
fjörð“ er Kaupfélag Stranda-
manna með verslun sína á upp-
fyllingu í fjörukambinum, og
sláturhús í langri og mjórri
skúrbyggingu klesstri undir
bökkunum háu. Þarna er ekkert
undirlendi og má til gamans
geta þess að ef 10—12 bílar
kæmu að versluninni í einu, þá
yrði sá sem fyrstur kom að bíða
þar til hinir væru farnir. Við
þessa verslunarmiðstöð hrepps-
búa er lítil bryggja, en vandinn
sem við er að fást þarna, er það
að „fjörðurinn" er svo grunnur
að skipin koma aldrei nær norð-
urströnd „fjarðarins" en sem
næst miðju, og aldrei innar á
„fjörðinn" en sem svarar til línu
dreginni úr urðarnesinu og
sunnanverðu þvert yfir „fjörð-
inn“.
Til þess að sanna regluna að
enginn sé alvondur, er einn stað-
ur við „Norðurfjörð" sem hugs-
anlegt væri að byggja höfn, en
það er klettanes út í sjóinn
skamman spöl fyrir utan verslun
Kaupfélagsins. Á þessu er þó
mjög leiður annmarki. Þannig
vill til að vegarstæði út að þess-
ari hugsanlegu höfn er ekkert,
og yrði því að fylla upp vegar-
stæði í fjörunni. Og svo annað
lika að kaupfélagsstjórinn og
oddvitinn, sami maður, byggði
stóran bílskúr árið 1980 þvert
fyrir þann eina stað sem hugsan-
legur vegur gæti tengst uppfyll-
ingunni sem Kaupfélagið stend-
ur á. Og til þess að af þessari
framkvæmd gæti orðið yrði því
fyrst að kaupa þennan bílskúr til
niðurrifs.
Ef við lítum nú á höfn í „Norð-
urfirði" frá atvinnuöryggissjón-
armiði kemur mjög athyglisvert
í ljós. Þegar hafís kemur upp að
landinu kemur hann venjulega
fyrst á þessum slóðum. Og því er
það iðulega sem hann sest að í
Trékyllisvík og „Norðurfriði" um
lengri eða skemmri tíma, og
væri þá ekki um að ræða neina
umferð skipa eða báta, og þar af
leiðandi engin atvinna heldur.
Ef þingmenn Vestfjarðakjör-
dæmis halda að það sé hægt að
efla byggð með svo ótryggum at-
vinnuhorfum þá er það önnur
uppskrift en notuð er alstaðar
annars staðar á landinu. En er
þá Árneshreppur vonlaus um að
geta eflt vöxt sinn og byggt upp
byggðarkjarna? Nei það er sko
öðru nær.
í Árneshreppi er svæði þar
sem hægt er að láta rísa 20—30
þúsund manna byggð við þau
landsskilyrði sem góð þykja á
Suðurlandi. Þessi staður er
svæðið frá Gjögri að Reykja-
neshyrnu. Þetta svæði er mjög
hentugt fyrir byggðarkjarna þvi
þarna eru víöáttumikil malar-
holt sem ekki þarf mikið að
hreyfa til að þar geti risið byggð.
Svo er annað atriði sem ekki er
svo þýðingarlítið í ákvörðun
byggðar, því í Gjögurnesinu er
heit uppspretta meira að segja
mjög heit, svo það eru miklar
líkur á því að þessi byggð gæti
verið hituð upp hitaveitu. Þá eru
það hafnarmálin. Frá Gjögri er
mjög stutt á fiskimið í Húnafló-
anum og úti fyrir Norð-Vestur-
landi. Einnig lægi höfn á þessu
svæði vel við sem Landshöfn. Og
í þriðja lagi eru fiskveiðar nú
þegar stundaðar frá Gjögri og
Djúpuvík svo höfn á Gjögur-
svæðinu yrði til að styrkja þá
byggð sem fyrir er og kalla á
uppbyggingu. Er þá einhver
staður þarna sem væri hugsan-
legt hafnarstæði? Ég þori að
segja já. Ég held að heppilegasta
svæði fyrir höfn í hreppnum sé á
svæðinu frá Gjögri að bænum
Kjörvogi sem er rétt fyrir innan
þorpið Gjögur.
Ef þingmenn Vestfjarðakjör-
dæmis bera heill byggðar í Ár-
neshreppi fyrir brjósti, ættu þeir
að forðast að láta hafa sig til
verka sem frekar eru hugsuð
sem .efling fámenns hóps ætt-
ingja í hreppnum en til framtíð-
ar uppbyggingar. Það þekkja all-
ir sem eitthvað hafa lesið um
eyðingu byggðar á Hornströnd-
um hvað þar gerðist.
Með þökk fyrir birtinguna.
Guðbjörn Jónsson
Frábær danssýn
ing á Broadway
Til Velvakanda
Við hjónin fórum á Broadway sl.
laugardagskvöld, eingöngu vegna
þess að við heyrðum svo vel látið
af dansatriði sem var sýnt á veg-
um HR-dansflokksins. Það er eig-
inlega liðin tíð að við fáum að sjá
dans hvort heldur er á skemmti-
stað eða í sjónvarpi. Það kom þó
fyrir hér áður fyrr að haldnar
voru nemendasýningar á vorin og
dansprógröm voru sýnd í sjón-
varpi, en því miður hefur dansin-
um ekki verið sinnt sem skyldi hin
síðari ár.
Við hjónin og fólkið sem var
með okkur vorum ekki lítið hrifin
þegar við sáum þetta frábæra
skemmtiatriði sem á sér langa
sögu eða 60 ár. Það var stórkost-
legt að sjá að þetta er hægt en við
vitum að það liggur mikil vinna á
bak við slíkt, ekki síst vegna þess
— ég held ég fari með rétt mál —
að Hermann Ragnars hefur ekki
rekið dansskóla hin síðari ár. Það
væri gaman að vita af hverju
svona fær maður skuli ekki halda
áfram að kenna dans.
Við hjónin stunduðum dansnám
hjá Hermanni Ragnars og kohu
hans fyrir mörgum árum, en þar
sem við urðum að flytja frá
Reykjavík segir það sig sjálft að
við urðum að hætta dansnámi. Ég
vil að lokum skora á Hermann
Ragnars að halda áfram á þessari
braut — ekki síst þar sem við höf-
um nú loksins fengið húsnæði þar
sem hægt er að færa upp danssýn-
ingar við fullkomnar aðstæður.
Ég óska Broadway til hamingju
með gott skemmtiatriði.
F.h. okkar hjóna,
Sigríður Björnsdóttir
Þessir hringdu . . .
Dónaskapur heldur í
hávegum hafóur
Kristján Valdimarsson, Halldór
Jónsson og Jóhannes Sturlaugsson
höfðu samband og óskuðu að eftir-
farandi tilmæli til dyravarða á
Broadway yrðu birt í Velvakanda:
„Árshátíð Menntaskólans við
Sund fór að þessu sinni fram á
Broadway miðvikudaginn 17.
þessa mánaðar. Þótti okkur það
mikill agnúi á þessari skemmtun
hvernig dyraverðir staðarins
komu fram við gestina og viljum
beina því til þeirra að vera dálítið
mannlegri framvegis. Að okkar ál-
iti voru þeir hreint og beint fanta-
legir við fólkið, en ætlum þó ekki
að tíunda það frekar hvað þarna
gerðist. Það eru allir sem við höf-
um talað við hér í skólanum um
þetta sammála um að þarna hafi
dónaskapur heldur verið í háveg-
um hafður."
Kndurflytjið erindi Dórunnar
Klvu um málefni aldraðra —
væri ekki hægt art fá þart birt
í dagblörtunum
5573—0024 hringdi: „Mig langar
til að vekja athygli á erindi Þór-
unnar Elvu Magnúsdóttur um
málefni aldraðra, sem hún flutti í
útvarpsþættinum „Um daginn og
veginn" fyrir um það bil mánuði,“
sagði hún. „Mér fannst þetta er-
indi hennar alveg frábært því þar
kom fram mikill skilningur á hög-
um aldraðra. Margir sem ég þekki
eru mér samdóma um að þetta er-
indi sé einhvert besta innlegg í
umræðuna um málefni aldraðra
sem fram hefur komið á þessu ári
aldraðra. Ég vil því eindregið
Þórunn Elfa Magnósdóttir
hvetja til þess að erindið verði
endurflutt í útvarpi og finnst mér
líka að dagblöðin ættu að athuga
hvort ekki sé hægt að birta það —
þarna er tvímælalaust um fyrsta
flokks efni að ræða.“