Morgunblaðið - 24.03.1982, Síða 37

Morgunblaðið - 24.03.1982, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1982 ö'á VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI KC TIL FÖSTUDAGS í Velvakanda fyrir 30 áriitti Gjögtið í næturkyrrðinni NÆTURGÖLTARI, sem ég hitti á förnum vegi, sagði mér þessa sögu. Nýlega var ég á labbi heim klukkan langt gengin tvö um nótt. Þegar ég fór fram hjá Steininum við Skólavörðustíg, heyrði ég greinilega létt högg í næturkyrrð- inni. Og þar sem ég vissi ekki hverju þetta sætti, staldraði ég við og litaðist um. Ég sá fljótlega, hvers kyns var. Utan á fangelsismúrnum hékk snæri og í því lítil tuðra á stærð við vettling. Við tuðruna var bundin spýta eins og sakka og gjögti hún við vegginn, því að ým- ist var kippt í þetta eða slakað á eins og þegar dorgað er. SKATTSTJÓRINN í REYKJANESUMDÆMI Slrandgctii 8*10 — 222 Hafnarlirði — Simi 51788 Hafnarfirði Hendrik aóhannesson Norðurgötu 20 245 SANDGERÐI 2 6. jan. 1932 Nnr. 4144-7273 e 1 a ð ilér með tilkynnist yðui > áö 1 1:1 ’ u'!'aö taka til endurálagningar opinber gjöld yðar 1981 og fella-niður til frádrattar qkr. , 267.700.-, cnduigr. fargjöld, : um «. ■ ki eru rra- dráttarbær, þar sem vegalengd milli heimilis og vinnustaðar nær t*kki 25 km. Er yður hér með gefinn kostur á að koma að athugasemdumvarðandi ofangreint innan 10 daga frá dags. bréfs þessa. Virðingarfyilst, f.h. skattstjórans í Reykjanesumdæmi. Stefán Vilhj álmsson. Á miða, sem fylgdi útgerðinni, stóð eitthvað á þessa leið: Veg- farandi góður, viltu gera svo vel og láta 3 sígarettur og eldspýtur í pokann. Þrír fangar. — Kcppni um minnsta utsvar á nef ÞAÐ þykir vel sloppið að eiga til fæðis og skæðis, þegar búið er að sníða af kaupi manna í út- svör, skatta og óteljandi gjöld, sem almenningur er krafinn um. Þó er ekki því að leyna, að menn sleppa misvel af ýmsum ástæðum, meðal annars er álagið breytilegt eftir hreppum. Nú er það venja að birta til- kynningar um útsvör í ýmsum kaupstöðum landsins, en væri ekki rétt að samkeppni hæfist um, hvar væri lagt minnst á menn? Þau ættu að hefja um það grimmilega orrustu sveitar- og bæjarfélögin, hvert gæti jafnað minnstu niður á nef. Það gæti orðið býsna gaman að sjá vinningaskrána eftir þá keppni. Mngmenn og ráðherrar lesa kvæði sín ÞAÐ er ekkert launungarmál, að margir forystumenn í stjórnmálaheiminum eru skáld- mæltir vel. Stundum lenda þing- skáldin meira að segja í ráðherra- stóli. Við og við bregður fyrir stökum frá hendi þingskáldanna og þykir jafnan nokkur fengur að. Leggja menn yfirleitt eyrun við því, sem þessi skáld flytja. Vill nú ekki útvarpið grípa til þeirrar nýbreytni að fá þessa ágætismenn til að lesa upp ljóð sín eina kvöldstund, svona 4—5 kemp- ur úr þingsölunum? Ég þori að ábyrgjast, að þeir fengju fram- úrskarandi áheyrn, og varla eru þeir svo steigurlátir að neita. Kolin eru léleg ÞAÐ er býsna margt, sem ekki tjóar að sákast um og eitt af því, sem varla fæst bætt, þó að fjargviðrazt sé út af því, eru kolin, sem eru á boðstólum. Ég er hræddur um að þau þættu að minnsta kosti slök, ef þau væru íslenzkur iðnaður. Menn kvarta undan grjótinu, sem þau eru óvenjulega auðug af. Hitt er þó allra verst, hve hitalítil þau eru. Þarna flýta þau sér að brenna upp, en virðast ekkert hirða um að ylja svolítið umhverf- ið. — Gersamlega ótæk kol. Henrik Jóhannesson skrifar: „Algjörlega óskiljan- legt hvernig skattstjóri getur reiknað okkur þetta sem tekjur“ lleiðraði Velvakandi. Fyrir hálfum mánuði fengum við hjónin, ásamt mörgum héðan úr Sandgerði, virðulegt bréf frá skattstjóra Reykjanesumdæmis, Stefáni Vilhjálmssyni, sem ég læt fylgja hér með ljósritað. Þessar 267.700 kr. gamlar sem talað er um, eru dregnar frá skattskyldum tekjum á launamiðanum, sem við fáum frá vinnuveitanda okkar á Keflavíkurflugvelli, þ.e. Varnar- liðinu. Þetta eru peningar sem við greiðum úr okkar eigin vasa, og sem er rútugjald, endurgreitt, hvort sem við förum á okkar eigin bílum eða öðrum, þessir peningar, endurgreidd fargjöld, eru færðir sem tekjur á skattaskýrslunni, og síðan aftur sem frádráttur. Það er okkur algjörlega óskiljanlegt, hvernig skattstjóri getur reiknað okkur þetta sem tekjur, peninga sem við þegar erum búin að greiða okkar skatt af. Skattstjóri bað um svar við at- hugasemdum innan 10 daga, og það gerði ég, ég mótmælti því, og benti honum á að það séu 32 km á milli staða, og ég bauð honum að koma og fylgjast með, þegar ég færi í vinnuna, og mæla þá vega- lengdina, og svarið sem ég fékk er þetta sem ég læt hér fylgja með. Hann bætir á mig 2000 nýkr. í viðbótarskatt, sæmilegt það. Hvað er það sem vakir fyrir skattstjóra með slíkri framkomu? Er þetta einhver hefnd, fyrir það að ég mótmælti þessu, og benti honum á að hann færi með rangt mál? Nú er það ekki bara ég sem mótmæli, heldur allir sem vinna á flugvell- inum. Það er hróplegt ranglæti, að S3? SlGeA V/öGA í ‘í/lveRam SKATTtTJORINN I AtYKJANf SUMOHMi -?í Wóyrf: iuA wvr- 7S7J HalnArfirOl '• •" A r3«. *3 f jra ye« k.A /vO/ ýt\ ’Wírt * /% T*k|ur III (kalla v»r(K kr III úMvaii k'7^6/ '•*/ ' ni/ iW nf/ *•*««' i - nt/ œt-yv íi>Vo S3S0 SV3 * PA •kantl|4»ii ™ 3-?o 4*n>JÍuA’> óy • sfyFi ó~ FLEKA MÓTAKERFI tré eöa stál — Tréfiakarnir eru framleiddir af Malthus as. i Noregi. Meat notuó kerfismót þar i landi. — Stálflekarnir eru framleiddir af VMC Stálcenfrum as. i Dan- mörku. Fjöldi byggingameistara nota þessi mót hér á landi. — Notió kerfismót. það borgar sig. — Ath. afgreiðslutími ca. 1—2 mán. við erum neydd til að greiða skatt af peningum, sem þegar er búið að greiða skatt af. Það er eins og skattstjóri hafi vaknað af Þyrni- rósarsvefni sínum, núna ári eftir að allir skattar eru greiddir, hversvegna? Hversvegna að ráð- ast á okkur Sandgerðinga? Því ekki líka þá sem eru í kring um okkur, eins og til dæmis í Vogun- um og víðar. Velvakandi góður, nú beini ég minni spurningu til lög- fróðra manna. Ér mér skylt að borga skatta af þessum endur- greiddu fargjöldum eða ekki? Virðingarfyllst, Henrik Jóhannesson, Norðurgötu 20, Sandgerði. — Stórt og smátt í mótauppslátt. 'B BREIÐFJÖRÐS BLIKKSMIÐJA HF Leitió nénari upplýsinga aóStgtúni? Simii29022 HAKI—v íram] Vinnupallar til sölu og leigu. Einfaldir — Traustir — Hagkvæmir. 'S BREIÐFJÖRÐS BLIKKSMIÐJA HF Leitió nénari upplýsinga aó Sigtúni 7 Simi>29022 Xnnihurðir Eigum fyrirliggjandi hinarvinsælu speldhurðir eðafulningahurðir.Tvennskonarefni: Massív fura, tilbúin undir lakk eða bæs og mótað harðtex (masonit),grunnmálaðarogtilbúnarundir málningu. Með hurðunum seljum við tilsniðna karma, dyrafalda (gerfiefni) og þröskulda. HURÐIR HF Skeifan 13-108 Revkjavik-Simi 816 55

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.