Morgunblaðið - 24.03.1982, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 24.03.1982, Qupperneq 40
Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10100 J*lorj3unI)Iní>ií> í>fr0Miul^lnl>i®> Síminn á afgreiðslunni er 83033 J>lorjjiml)Int>ií> MIÐVIKIJDAGUR 24. MARZ 1982 Samningur Almennu verkfræðistofunnar og Orkustofnunar úr sögunni: Iðnaðarráðherra ber ábyrgð á því hvernig máluin er komið Jafndægur að vori voru um helgina og er dagurinn nú orðinn lengri en nóttin. Um leið og dag lengir færist meira líf í fjörurnar. Ljó.sm. (.unnlaugur Hngnvalds.son. — segir Olafur Jóhannesson, utanríkisráðherra „I»AÐ ER VISSU.EíiA illa farið að íslenzkir aðilar skyldu ekki fá þetla verk í llelguvík og það var mikið húið að leggja á sig til þess að svo gæti orðið, en þegar til þess er stofnað með þessum hætti, þá verða menn að vera við því húnir að taka afleiðingunum. Iðnaðar- ráðherra her auðvitað alveg áhyrgð á því hvernig komið er. Að öðru leyti get ég ekki tjáð mig um málið, þar sem mér er núverandi staða þess ekki nógu kunnug," sagði utanríkisráðherra, Olafur Jóhann- esson, í samtali við Morgunhlaðið í gærkvöldi. missa af þessari upphæð, þar sem þeir borar, sem nota átti, hefðu annars verið verkefnalausir. Það var ekkert því til fyrirstöðu af hálfu Orkustofnunar og Almennu verkfræðistofunnar að breyta samningum eins og iðnaðarráðu- neytið óskaði og við vorum tilbún- ir til þess, þannig að þetta kom verulega á óvart. Ég kann ekki skýringu á því hvers vegna svona hefur farið, en þetta er sjálfsagt liður í pólitískum átökum, sem hafa átt sér stað, en það kann ég ekki að rekja nánar,“ sagði Jakob Björnsson, orkumálastjóri, í gærkvöldi. Morgunblaðið reyndi að ná tali af iðnaðarráðherra í gærkvöldi vegna þessa máls, en án árangurs. „Mér hafa borizt þau skilaboð frá yfirverktökum okkar í Banda- ríkjunum, Bernard Johnson Inc- orporated, að bandaríski sjóher- inn samþykki engin frávik frá fyrri samningum, sem gerðir hafa verið á milli Almennu verkfræði- stofunnar og Orkustofnunar um jai ðvegskannanir í Ilelguvík. Því liggur það Ijóst fyrir að Orku- stofnun fær ekki verkið og því er þetta nú aðeins mál á milli sjó- hersins og aðalverktaka þeirra í Bandaríkjunum, við erum alveg út úr myndinni," sagði Svavar Jóna- tansson, framkvæmdastjóri Al- mennu verkfræðistofunnar, í sam- tali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Morgunblaðið hafði ennfremur samband við forsætisráðherra, Gunnar Thoroddsen, í gærkvöldi og sagðist hann ekkert hafa um málið að segja, umfram það er hann hefði sagt á þingfundi fyrr um kvöldið. Þar sagði hann meðal annars, að utanríkisráðherra hefði lagt sig fram um að eins mikið af þessum framkvæmdum yrði unnið af Islendingum og framast væri unnt. Bandaríkja- menn hefðu hins vegar tilhneig- ingu til þess að reyna að vinna eins mikið af slíkum framkvæmd- um og þeir gætu. Forsætisráð- herra sagði það ennfremur von sína, að íslenzkar stofnanir og ís- lenzkir starfsmenn ynnu þetta verk. Hvort af því yrði, sagðist hann ekki geta sagt um. Hann sagðist telja það mjög æskilegt að af því gæti orðið og taldi að allir þingmenn gætu tekið undir það. „Mér skilst að þetta mál sé búið og ég get náttúrulega ekkert við því gert. Ég hef rétt aðeins heyrt þetta og get því varla haft nokkra skoðun á þessu. Samningsupphæð- in var tæplega 1 milljón í íslenzk- um krónum og það er slæmt að Utanríkisráðherra um afskipti iðnaðaráðherra í Helguvfkurmálinu: Vinnubrögðin verði víti til varnaðar um alla íramtíð Kjarni málsins hvort staöið jrði við gerða samn- inga eða ekki, sagði Birgir Isleifur Gunnarsson „ÞESSI vinnubrögð iðnaðarráð- herra eiga að vera víti til varnaðar um alla framtíð,“ sagði Olafur Jó- hannesson meðal annars í umræð- um um Ilelguvíkurmálið utan dagskrár á Alþingi í gær. Etanrík- isráðherra var stórorður í garð Hjörleifs Guttormssonar og sagðist hafa næg vitni að því, að iðnaðar- ráðherra hefði gefið bein fyrirmæli um að samningum um fram- kvæmdir á vegum Orkustofnunar í Helguvík yrði rift. Ekki hefði verið um góðlátleg tilmæli að ræða eins og iðnaðarráðherra léti nú i veðri vaka. Olafur sagði, að ákvörðun iðnaðarráðherra stæðist ekki stjórnarfarslega og spurði hvað liði heilbrigðri skynsemi. Þorvaldur Garðar Kristjáns- „Ráölegg engum að hengja upp skreið fyrir Nígeríumarkað44 segir Magnús Friðgeirsson NfGERÍlISTJÓRN stöðvaði í gær all- an innflutning til landsins, með því að neita bönkum um áhyrgðir. Getur þetta haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir íslendinga sökum mikilvægi skreiðarmarkaðarins þar. A siðasta ári fluttu íslendingar út skreið til Nígeriu fyrir um I milljarð króna og og var það um 1/5 af heildarútflutn ingsverðmæti islenzkra sjávarafurða. Bragi Fliríksson framkvæmda- stjóri Skreiðarsamlagsins sagði þegar Morgunblaðið ræddi við hann, að svona nokkuð hefði gerst áður í Nígeríu, en þessi ákvörðun stjórnarinnar þar væri eflaust tek- in vegna minnkandi tekna af olí- unni. Engu að síður þyrftu Nígeríu- menn að flytja inn matvæli, því þeir framleiddu engan veginn nóg sjálfir, fólksfjölgunin væri það mikil. Þá hefði fólk flutt úr sveit- unum til borganna á undanförnum árum, sem þýddi aukna matvæla- eftirspurn. Bragi sagði að hann vildi sjá hvað gerðist á næstu dög- um áður en hann ráðlagði mönnum að hætta að hengja upp skreið fyrir Nígeríumarkað. Kvað hann íslend- inga hafa fengið bankaábyrgðir fyrir hluta af þeirri skreið sem framleidd var í fyrra fyrir nokkr- um dögum og færi sú skreið brátt til Nígeríu. Magnús Friðgeirsson hjá sjávar- afurðadeild Sambandsins sagði, að stjórnvöld í Nígeríu hefðu senni- lega stigið þetta skref til þess að geta markað framtíðarstefnu í inn- flutningsmálunum. Olíutekjur landsins hefðu snarminnkað. Um hríð hefði landið framleitt 2,4 millj. tunna af olíu á dag, en nú væri framleiðslan komin niður í 1,3 millj. tunna. Sagði Magnús að sér finndist sjálfsagt að Islendingar færu varlega í að framleiða skreið fyrir Nígeríumarkað á næstunni, en að sínu mati væri Ítalíumarkað- urinn ekki fullnýttur. Nú vissi eng- inn hvernig Nígeríumenn myndu haga sínum skreiðarinnflutning og ekki mætti gleyma því að Norð- menn hefðu framleitt ógrynni af skreið fyrir Nígeríumarkað að und- anförnu og væri framleiðslan á þessu ári orðin 100% meiri en árið 1980. son hóf þessa umræðu og lagði hann nokkrar spurningar fyrir iðnaðarráðherra og forsætis- ráðherra. Þeim spurningum var í fáu svarað. Þorvaldur Garðar sagði, að hlutur iðnaðarráðherra í þessu máli væri ekki góður, hvort heldur framferði hans heyrði undir valdníðslu eða vald- þurrð. Margir þingmenn tóku til máls við umræðurnar og tóku þeir undir orð Ólafs Jóhannes- sonar, utanríkisráðherra. Hjörleifur Guttormsson sagð- ist hafa beðið um að dokað yrði við með framkvæmd samnings- ins meðan lögmæti hans væri at- hugað og ástæðan hefði verið við- kvæm deila um verk- og valdsvið milli ráðuneyta. Svavar Gestsson sagði það valdþurrð eða vald- níðslu af hálfu bandariska sjó- hersins ef hann teldi sig vera í stöðu til að hafa í hótunum við íslenzk stjórnvöld. Kjarni máis- ins væri sá, að Bandaríkjamenn væru að reyna að reka fleyg í stjórnarsamstarfið. Kjartan Jóhannsson sagði að fyrir drætti iðnaðarráðuneytis- ins í málinu væru aðeins tylli- ástæður og Friðrik Sophusson sagði, að þeir annmarkar sem iðnaðarráðuneytið hefði fundið á samningnum væru haldlitlir. Las hann umrædda lagagrein máli sínu til sönnunar. Birgir ísleifur Gunnarsson sagði kjarna máls- ins vera þann hvort staðið yrði við gerða samninga eða ekki. Geir Hallgrímsson sagði, að iðn- aðarráðherra hefði gengið í þetta mál að áeggjan félagsmálaráð- herra. Geir spurði forsætisráð- herra um valdsvið ráðherra, en í orðum Gunnars Thoroddsen var ekki að finna svör við þeim spurningum, sem til hans hafði verið beint. Sjá nánar á mióopnu: Menn furðu lostnir yfir framferði iðnaðarráöhcrra. „Annars hjálpi okkur allir heilagir“ OLAFUK Jóhanncsson sagði að- gerðir iðnaðarráðherra í Helgu- víkurmálinu ekki standast laga- lcga og ákvörðun um riftun samninga væri einstæð og hættu- leg íslcnzkum rétti. Þar sem iðnaðarráðherra sta'ði í stórræðum þessa dag- ana og framundan væru við- ræður við Alusuisse sagðist Ólafur vona, að þar stæði iðn- aðarráðherra á sterkari laga- legum grundvelli. „Annars hjálpi okkur allir heilagir," sagði Ólafur Jóhannesson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.