Morgunblaðið - 26.03.1982, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1982
VERKSMIMAN, HlÍlljÓllft kfÓllS
tap áætlað á þessu ári
„Frumvarp á Alþingi er varðar þennan vanda"
segir Hjörleifur Guttormsson iönaðarráðherra
TALIÐ er að tap á járn-
blendiverksmiðjunni á
Grundartanga geti numið allt
að 50 milljónum norskra
króna á þessu ári eða um 83
milljónum íslenzkra króna.
Ríkisstjórnin hefur nú í und-
irbúningi frumvarp til bjarg-
ar járnblendiverksmiðjunni
og verður það væntanlega
lagt fram eftir næstu helgi.
„Þessi vandi járnblendiverk-
smiðjunnar hefur blasað við lengi
og er vandinn tilkominn vegna
lágs verðs og erfiðra markaðsað-
staeðna," sagði Hjörleifur Gutt-
ormsson iðnaðarráðherra þegar
Morgunblaðið ræddi við hann í
gærkvöldi. „Við fengum fyrst
mynd af þessu skömmu fyrir jól
og óskaði iðnaðarráðuneytið þá
frekari gagna frá íslenzka járn-
blendifélaginu og bárust þau til
ráðuneytisins hinn 20. febrúar
síðastliðinn. Það var farið yfir
þessi gögn á vegum iðnaðarráðu-
neytisins og skilaði ég greinar-
gerð um stöðuna til ríkisstjórnar-
innar. Nú hefur verið mótuð
stefna til að bregðast við þessum
vanda og þess er að vænta að
flutt verði frumvarp á Alþingi, er
varðar þennan vanda, en afla
þarf vissra heimilda í þessu sam-
bandi," sagði Hjörleifur.
„Miðað við allt og allt, er það
talinn skárri kostur að halda
fyrirtækinu gangandi, heidur en
að stöðva það og er það niður-
staðan, sem við höfum komist að.
Því verður reynt að hlaupa undir
bagga þótt það kosti sitt. Annars
fer öll framtíð fyrirtækisins eftir
því hvernig markaðurinn og verð
þróast," sagði Hjörleifur Gutt-
ormsson.
60% hækk-
un bifreiða-
trygginga
Tryggingaráöuneytið hefur
heimilaö tryggingafélögunum aö
hækka ábyrgðar- og framrúðu-
tryggingar sínar um 15%, en
þessar tryggingar hafa hækkaö
jafnhliöa vísitöluútreikningi á
þriggja mánaöa fresti. Heildar-
hækkunin á árinu er því 60,1%.
Slysatrygging ökumanns og
farþega hækkar hins vegar um
50% og fer úr 20 krónum í 30
krónur.
Þá er rætt um, að vátrygg-
ingarupphæðirnar hækki úr
2,7 milljónum króna í 3,8 millj-
ónir króna, eða 40,7%, en
breytingar á þeim þurfa að
fara í gegnum Alþingi.
Orkustofnun borar í Helguvlk:
Verkið greitt í ís-
lenzkum krónum
Jú, við töpum náttúrulega, en þetta er ákvörðun okkar
yfirmanna, segir Jakob Björnsson orkumálastjóri
BANDARÍSKA verktakafyrirtæk-
iö Bernard Johnson Inc. tilkynnti
Almennu verkfræöistofunni í gær
aó þaö drægi til baka skeyti sem
þaó sendi á þriðjudag en þar til-
kynntu þeir að þeir litu svo á að
umræddur verkþáttur Orkustofn-
unar í Helguvík hvað varðar bor-
anir og rannsóknir væri tekinn út.
Nú samþykkja þeir að Orkustofn-
un hefji verkið strax. Að sögn
Svavars Jónatanssonar forstjóra
Almennu verkfræðistofunnar
kemur þetta svar að vestan eftir
að Orkustofnun hafði tilkynnt, að
hún væri reiðubúin að hefja verkið
samkvæmt fyrri samningi óbreytt-
um, en að tilskyldum nokkrum at-
riðum, m.a. því að greiðsla fyrir
verkið færi fram í íslenzkri mynt.
Svavar sagði í gær að hann hefði
tilkynnt Orkustofnun þessa niður-
stöðu og þeir fallist á að hefja
verkið nú þegar. Umrædd „tilskil-
in atriði" eru eftirtalin: Að
greiðsla umreiknist úr dollurum
yfir í íslenzkar krónur, miðað við
gengisskráningu sl. þriðjudag, að
Almenna verkfræðistofan afli
nauðsynlegra leyfa landeigenda
fyrir verkframkvæmdir og að með
þessari ákvörðun taki Orkustofn-
un enga afstöðu með eða á móti
ágreiningsatriðum milli iðnaðar-
ráðuneytis og verkkaupa hvað
varðar framhaldsframkvæmdir í
Helguvík.
Að sögn Svavars Jónatanssonar
er augljóst, að ákvörðunin um
greiðslur í íslenzkri mynt, miðað
við gengisskráningu sl. þriðjudag,
þýðir fjárhagslegt tap fyrir
Orkustofnun, nema engar breyt-
ingar verði á gengi íslenzku krón-
unnar á þessu tímabili. Hann
sagði að samningunum hefði ekki
verið breytt. Hér væri eingöngu
um að ræða samkomulag um að
greiðslur yrðu reiknaðar yfir í ís-
lenzkar krónur, miðaðar við geng-
isskráningu þennan dag. Jakob
Björnsson orkumálastjóri var
spurður álits á því, hvort þetta
þýddi fjárhagslegt tap fyrir
Orkustofnun. Hann svaraði: „Jú,
við töpum náttúrulega, en þetta er
ákvörðun okkar yfirmanna að
þetta skuli vera í íslenzkum krón-
um og við verðum náttúrulega að
hlýða því.“ Að sögn Svavars og
Jakobs er hér um að ræða verk
upp á um 900 þúsund íslenskar
krónur, miðað við gengisskrán-
ingu sl. þriðjudag.
Ummæli Steingríms Hermannssonar um „pólitísk öfl“:
Felst í þeim alvarleg ákæra
á hendur utanrlkisráðherra
— segir Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins
„ÉG UNDRAST mjög þessi ummæli
Steingríms Hermannssonar for-
manns Framsóknarflokksins. Það
liggur Ijóst fyrir, aó sá aðili hérlend-
is sem getur haft áhrif á þessa
ákvöröun er utanríkisráöherra, sem
SIGURJÓN Björnsson, prófessor, gef-
ur kost á sér í rektorsembætti Há-
skóla íslands gegn háskólarektor Guó-
mundi K. Magnússyni, en rektorskjör
fer fram I. apríl nk.
Háskólarektor sagði í samtali við
Mbl. að hann gæfi kost á sér áfram.
í nýútkomnu fréttabréfi Háskóla Is-
lands er grein eftir Sigurjón, sem
heitir Rektorskjör og stefnumótun,
og segist Sigurjón þar gefa kost á
sér í rektorsembættið.
fer meö mál varnarliösins", sagði
Geir Hallgrimsson formaður Sjálf-
stæóisflokksins m.a., er Mbl. spuröi
hann álits á ummælum Steingríms
Hermannssonar í viðtali við I)ag-
blaóið og Vísi í fyrradag, en þar seg-
Félag háskólakennara gengst
fyrir umræðufundi um málefni há-
skólans í hátíðarsal háskólans á
mánudaginn og munu þeir Guð-
mundur og Sigurjón vera þar fram-
sögumenn, en fundarstjóri verður
Gunnar Schram.
Við síðasta rektorskjör var kosið
á milli þeirra Guðmundar og Sigur-
jóns.
ir hann m.a.: „Spurningar um sam-
spil horsins og einhverra pólitískra
afla hér á landi eru réttlætanlegar."
Geir sagði einnig: „Það felst í um-
mælum Streingríms Hermannssonar
alvarleg ákæra á utanríkisráðherra
og forvera hans sem formanns
Framsóknarflokksins."
Kjartan Jóhannsson formaður
Alþýðuflokksins var spurður sömu
spurningar. Hann svaraði: „Mér
finnst fráleitt að Steingrímur
Hermannsson sé með ásakanir af
þessu tagi og hann leggjast heldur
lágt. Ef hann veit um draugagang
í eigin flokki þá á hann að upplýsa
hann.“
Ólafur Jóhannesson utanríkis-
ráðherra var spurður hvernig
hann túlkaði ummæli Steingríms.
Hann svaraði: „Ég vil ekkert segja
um það. Það er bezt að hann út-
skýri sín ummæli sjálfur."
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
bæði í gær og fyrrakvöld hefur
ekki tekist að ná sambandi við
Steingrím Hermannsson til að
spyrja hann hvað hann meini með
þessari yfirlýsingu.
Embætti háskólarektors:
Sigurjón gefur kost á
sér gegn Guðmundi
Fyrirhugað byggingarsvæði Mjólkursamsölunnar að Bitruhálsi.
Fyrsta skóflustungan
að nýrri mjólkurstöð
PALMI Jónsson, landbúnaðarrað-
herra, tók í gær fyrstu skóflustung-
una að nýrri mjólkurstöö Mjólkur-
samsölunnar í Reykjavík að Bitru-
hálsi. Á næstu 5—7 árum er fyrir-
hugað, að ný móttökustöö fyrir
mjólk, mjólkurgeyma, pökkunarsali,
birgöageymslur, ísgerö, bílaþvotta-
stöð, bílaverkstæði, skrifstofur og
fleiri rísi að Bitruhálsi.
Árið 1966 var Mjólkursamsöl-
unni í Reykjavík tryggð lóð af
borgaryfirvöldum að Bitruhálsi.
Lóðin er 5,7 hektarar að flatar-
máli og er fyrirhugað að bygg-
ingar verði svo rúmar, að þær geti
þjónað hlutverki sínu og hýst allar
þær fjölbreyttu og flóknu vélar,
sem mjólkur- og dreifingarstöð
þarf að hafa. Undanfarin ár hefur
Mjólkursamsalan tekið á móti um
og yfir 35 millj. kg mjólkur og
mjólkurvara og dreift þessu
magni til neytenda, sem nú munu
vera um 140 þúsund á svæðinu við
Faxaflóa sunnanverðan.
Nú eru liðlega 30 ár liðin síðan
Mjólkursamsalan flutti að Lauga-
vegi 162 og er húsnæðið á Lauga-
veginum löngu orðið allt of lítið
fyrir starfsemi Mjólkursamsöl-
unnar.
Páhni Jónsson landbúnaöarráöherra
tók fyrstu skóflustunguna aö nýrri
mjólkurstöö í gær. Mynd Mbl.: Kmilii
Félag kartöflubænda í Eyjafirði:
Marklausar ásakan-
ir á formann Stétt-
arsambands bænda
MORGUNBLAÐINU hefur borist eft-
irfarandi ályktun sem samþykkt var á
fundi í stjórn Félags kartöflubænda
við Kyjafjörð sl. miðvikudag:
Fundur í stjórn Félags kartöflu-
bænda við Eyjafjörð lýsir því yfir að
ásakanir þær á formann Stéttar-
sambands bænda, Inga Tryggvason,
sem fram komu í Mbl. í viðtali við
Sveinberg Laxdal sunnudaginn 21.
mars, eru með öllu marklausar og
fráleitt að kenna honum á nokkurn
hátt um þann vítaverða drátt, sem
orðið hefur á afgreiðslu bjargráða-
sjóðslána.
Guömundur l'órisson, Kristján
Hannesson, Höróur Adolfsson og
Eirikur Sigfússon.