Morgunblaðið - 26.03.1982, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.03.1982, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1982 í stuttu máli Ný stjómarskrá: Aukaþing í ágúst 1982? Úttekt á atvinnumálum Siglufjaröar og Raufarhafnar Tíu þingmenn Alþýðuflokks hafa flutt tillögu til þingsályktunar um auka- þing til að afgreiða nýja stjórnarskrá fyrir lýðveldið, svohljóðandi: „Alþingi ályktar, að kallað skuli saman aukaþing, skv. heimild í 22. gr. stjórnarskrár- innar, í ágúst 1982, til að fjalla um og afgreiða nýja stjórnarskrá fyrir lýðveldið lsland.“ I’ingflokkurinn tjáir sig í greinargerð fylgjandi því að hin nýja stjórnarskrá feli í sér ný ákvæði um mannréttindi, umhverfísmál, dómsmál, þjóðareign á landi, þjóðaratkvæði og störf Alþingis. I>á segist þingflokkurinn „reiðubúinn til að ræða hugmyndina um ísland allt sem eitt kjördæmi, skiptingu landsins í kjördæmi eftir fjórðungum, auk Reykjavíkur, og endurbætur miðað við gömlu kjördæmaskipunina er nú gildir“. Flokkur- inn hafnar einmenningskjördæmum algjörlega. aðurinn var) er við því að búast, að til alvarlegs atvinnuleysis komi, nema fólk flytji búferlum Uttekt atvinnumála á Siglufirði og á Kaufarhöfn Þrír þingmenn Sjálfstæðis- flokks, Halldór Blöndal, Eyjólfur Konráð Jónsson og Lárus Jónsson, flytja tillögu til þingsályktunar, svohljóðandi: „Alþingi ályktar að kjósa 7 manna nefnd til að gera úttekt á atvinnumálum Raufar- hafnar og Siglufjarðar með hlið- sjón af þeim breyttu viðhorfum, sem hrun loðnustofnsins hefur valdið. Niðurstöður nefndarinnar ásamt tillögum um nýja atvinnu- uppbyggingu skulu lagðar fyrir ríkisstjórnina svo fljótt sem verða má og kynntar alþingismönn- um .. I greinargerð segir m.a.: „Ef ekkert annað kemur í staðinn (fyrir þá undirstöðu sem loðnuiðn- hópum saman.“ Fjáraukalög 1978 Fram hefur verið lagt frumvarp til fjáraukalaga fyrir 1978 að fjár- hæð kr. 37.298.624.000,- Þá hefur verið lagt fram frumvarp til laga um samþykkt á ríkisreikningi fýrir þetta sama ár. Málefni El Salvador Kjartan Jóhannsson (A) mælti í gær fyrir tillögu til þingsályktun- ar um málefni E1 Salvador, en samkvæmt henni skal Alþingi lýsa yfir samúð Islendinga með þjóð- inni í E1 Salvador í „þeim hörm- ungum ógnarstjórnar, ofbeldis og kúgunar, sem hún má þola, og beinir því jafnframt til utanrík- Albert Guðmundsson: Fái fjárfestingarheim- ildir eins og aðrir Albert (iuAmundsson (S) sagði í um- ræóu um bókasafn Landsbanka og Seðlabanka, sem frá var sagt á þing- síðu Mbl. sl. miAvikudag, aA rétt væri hjá Halldóri Asgrímssyni, formanni bankaráðs SeAlabanka, aA fjármagn þurfí til að bjarga verðmætum frá glöt- un. Kn ég lít þaiuig á, sagAi Albert, að ríkisstarfsmenn, hvort sem eru í bönk- um eða annars staðar, geti ekki verið sjálfskipaðir verðmætagæzluaðilar. Þeirra verksvið er afmarkað. Ég tel ekki skipta máli, hvort viðkomandi rík- isstofnun er fjársterk eða ekki, hún þarf sína heimild „til þess að ráðstafa fjármagni almennings eða sinna stofn- ana“. „Ég vil og undirstrika," sagði Al- bert, „sem ég tel hafa komið fram í þessum umræðum, að það þarf að endurskoða lög um Seðlabanka ís- lands og staðsetja hlutverk hans í þjóðfélaginu. Það eru 3 bankastjórar í Seðlabankanum. Hvernig stendur á því að þeir geta tekið að sér auka- störf hingað og þangað? Eru þeir of margir? Ef svo er þarf að fækka þeim. Það þarf að setja þeim erind- isbréf. Og það þarf að gilda um bankastarfsemi eins og önnur ríkis- fyrirtæki almennt, að sækja þurfi fjárfestingarheimildir til Alþingis." isráðherra, að ísland beiti áhrif- um sínum eftir megni fyrir póli- tískri lausn deilumála i landinu og þá sérstaklega fyrir því, að Banda- ríkin láti af hernaðarstuðningi sínum við ríkisstjórn landsins ...“ Sjócfnavinnsla á Reykjanesi Kjartan Jóhannsson (A) o.fl. biðja iðnaðarráðherra um skýrslu um núgildandi áætlanir um stofnkostnað og arðsemi sjóefna- vinnslu á Reykjanesi, svo og um framkvæmdaáætlun. I greinar- gerð segir, efnislega, að í ljós hafi komið í blaðaskrifum, að fyrri áætlanir standist ekki, og því sé nauðsynlegt, að iðnaðarráðherra láti Alþingi í té sem gleggstar og réttastar upplýsingar um forsend- ur rekstrar og framkvæmda. Sjú k ratryggi ngargjald og söluskattur Alþingi hefur nýlega samþykkt tvenn lög: • Lög um 2% sjúkratrygg- ingargjald, sem reiknist af gjald- stofni útsvara hvers skattborgara, þeim hluta, sem er umfram kr. 101.250,- • Lög um heimild til að kveða á með reglugerð að frá heildsölu- verðmæti verksmiðjuframleiddra íbúðarhúsa, barnaheimila og leikskóla megi framleiðandi draga við söluskattsuppgjör tiltekinn hundraðshluta verðsins, eftir nán- ari reglum þar um. Hafnarfjörður og ÍSAL Þingmenn Reykjaneskjördæmis hafa borið fram fyrirspurn til for- sætisráðherra: • Hvað líður afgreiðslu ríkis- stjórnarinnar á ósk Hafnarfjarð- arbæjar um endurskoðun á hlut- deild bæjarins í framleiðslu- gjaldstekjum af ÍSAL, samkvæmt samningsbundinni kröfu bæjaryf- - irvalda? • Hvenær má vænta lagafrum- varps um þetta efni í samræmi við ákvæði samnings milli iðnaðar- ráðuneytisins og bæjarstjórnar frá því í maímánuði 1976, sem bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur óskað atbeina forsætisráðherra við? ÞURRKUR FRÍSKA ÞIG UPP í sveitinni, í bílinn, á skrifstofuna. Einfalt og þægilegt í notkun. GEBORG, SIMI 38083 FÆST í SNYRTIVÖRUVERSLUNUM OG STÓRMÖRKUOUM Svipmynd á tröppum Stjórnarráðsins. Það hefur verið tveggja bakka veður í stjórnarráði lýðveldisins undangengin dægur. Hér sjást þrír af fjórum ráðherrum Framsóknarflokksins gá kampa- kátir til veðurs af tröppum Stjórnarráðsins. Lánsfjárlög í burðarliðnum: Lán skal tek- ið á lán ofan — en framlög til verklegra framkvæmda skert, sögðu stjórnarandstæðingar Neðri deild Alþingis samþykkti í gær hækkanir á lántökuheimildum stjórnarfrumvarps til lánsfjárlaga 1982 upp í 673.970.000 nýkr., eða jafnvirði þeirra í erlendri mynt. Jafnframt skal fjármálaráðherra heimilt að taka lán á innlendum lánsfjármarkaði að fjárhæð allt að 152.000.000 nýkr. Þá er fyrirtækjum með eignaraðild ríkissjóðs heimilt að taka lán á árinu allt að kr. 18.000.000.—, Landsvirkjun allt að kr. 404.500.000.—, Framkvæmda- sjóði allt að kr. 254.000.000.—, Iðn- rekstrarsjóði allt að kr. 10.000.000.—, Orkubúi Vestfjarða allt að kr. 39.500.00.—, ýmsum hita- veitum allt að kr. 123.000.000.—, auk heimilda til handa sveitarfélög- um. Matthías Bjarnason (S) gagn- rýndi, að þrátt fyrlr verulega skuldaaukningu á árinu, væri ekki ætlunin að standa við fyrirheit, sem ráðherrar hefðu gefið, til að Byggðasjóður geti risið undir þeim verkefnum, varðandi fjár- hagslega endurskipulagningu fyrirtækja og vegna rekstrarerfið- lejjta fyrirtækja i útgerð, fisk- vinnslu og iðnaði, er stjórnvöld hefðu velt yfir á sjóðinn. Eggert Haukdal (S) vék að „fyrirheitum gefnum af þremur ráðherrum, f.h. ríkisstjórnarinn- ar“, um fjármagnsútvegun til þessa verkefnis. Hann sagði og „mjög hafa skort á framlög til Byggðasjóðs, sem honum beri að lögum, og er þessi ríkisstjórn ekki til fyrirmyndar í þeim efnum". Ég er ósammála, sagði Eggert, hinum mikla niðurskurði á verklegum framkvæmdum, einkum til vega- mála, en niðurskurður á rekstrar- liðum mætti vera meira. Ekki bjóst hann þó við miklu í því efni, og minnti á Norðurlandaráðsþing þar sem „30 manns hafi verið að spóka sig á kostnað þjóðarinnar, flestir að óþörfu". Pétur Sigurðsson (S) gagnrýndi harðlega, hvern veg ríkisstjórnin hygðist ráðskast með lífeyrissjóði verkalýðsfélaganna, sem væru Matthías Bjarnason þeirra réttmæt eign, og þau sem eigendur ættu að hafa fullan ráðstöfunarrétt á, en þeim er gert skylt að verja 40% af ráðstöfun- arfé sínu til kaupa á skuldabréfum ríkissjóðs og byggingarsjóðs. Felld var tillaga, sem sjálfstæðismenn fluttu, þess efnis, að þetta atriði skyldi háð samkomulagi milli ríkisvalds og verkalýðsfélaga. Frumvarpið kemur væntanlega til þriðju umræðu í neðri deild nk. mánudag. Það þarf síðan aftur til einnar umræðu í efri deild vegna breytinga sem á því vóru gerðar í síðari þingdeild, en verður vænt- anlega að lögum í næstu viku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.