Morgunblaðið - 26.03.1982, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1982
Ráðherrar ósammála
um kaupkröfur ASI
RÁÐHERKARNIR Svavar Gestsson og Steingrímur Hermannsson eru
ekki sammála í afstöðu sinni tii kaupkrafna Alþýöusambands íslands eins
og frá var greint í Morgunblaðinu í gær. Svavar sagði á aöalfundi Vinnu-
veitendasambands íslands i fyrradag, að hann teldi kröfur ASÍ um 13%
launahækkun hógværar og unnt væri að verða við þeim fyrir þá lægst
launuðu. Steingrimur sagði hins vegar, að hann teldi kröfurnar of háar
miðað við upplýsingar um þróun þjóðartekna. l»ví þyrfti að endurskoða
þessar kröfur.
Ráðherrarnir tóku þátt í pall-
borðsumræðum á fundinum
ásamt þeim Geir Hallgrímssyni,
formanni Sjálfstæðisflokksins, og
Kjartani Jóhannssyni, formanni
Alþýðuflokksins. í þeim umræð-
um bar Eggert Hauksson upp
spurningar til ráðherranna um
hvort kröfur ASÍ samræmdust
efnahagsmarkmiðum ríkisstjórn-
arinnar.
Svavar sagði, að unnt væri að
verða við þessum kröfum fyrir þá
lægst launuðu með tilteknum
ráðstöfunum. í því sambandi
nefndi hann jöfnun á miili þeirra
lægst launuðu og þeirra hærra
launuðu, sparnað í ríkisrekstri,
minni milliliðakostnað og loks
aukna framleiðslu og framleiðni.
Þorsteinn Pálsson, framkvæmda-
stjóri VSI, spurði ráðherrann
hvað hann ætti við með lægstu
laun og sagðist ráðherrann ekki
treysta sér til að draga þau mörk,
en þau mörk ættu að vera samn-
ingsatriði. Svavar sagði að í síð-
ustu samningum hefði verið sam-
ið um ákveðið lágtekjumark og
þar hefði verið skynsamlega að
verki staðið. Þorsteinn benti á, að
kröfur hærra launuðu ASÍ-félag-
anna væru mun hærri en hinna
og spurði í framhaldi af því hvort
ríkisstjórnin myndi beita áhrif-
um sínum til að jafna launabil
eða hvort vinnuveitendur ættu að
glíma við þann vanda. Svavar
sagði, að jöfnuð yrði að tryggja.
Þorsteinn Pálsson spurði
ennfremur hvort ríkisstjórnin
hefði uppi áform um að mæta
launahækkunum fyrir þá lægst
launuðu með sparnaði. Ráðherr-
ann sagði, að það yrði t.d. sparn-
aður að leggja Framkvæmda-
stofnun niður í núverandi mynd
og setja upp sérstaka byggða-
stofnun. I efnahagsráðstöfunum
ríkisstjórnarinnar hefði verið
gert ráð fyrir 100 milljón króna
sparnaði til ákveðinna verkefna,
en svaraði spurningunni ekki að
öðru leyti. Þorsteinn spurði að
síðustu hvort ráðherrann tryði
því að auka mætti framleiðni svo
í sjávarútvegi að hann gæti borið
umrædda launahækkun. Ráð-
herrann sagðist telja, að enn
mætti auka framleiðni í fiskveið-
um, en sagðist reyndar efast um
að ná mætti þessu markmiði í
sjávarútvegi í heild.
AFS-maður á íslandi
Hér á landi var staddur á
vegum skiptincmasamtak-
anna AFS Belgíumaðurinn
Ivo Bemelmans dagana
20.—23. mars. Hann hefur
umsjón með starfsemi AFS í
níu löndum Norður-Evrópu,
þar á meðal á íslandi. Mark-
mið ferðar hans hingað var
að kynnast landinu og ræða
við fulltrúa AFS um rekstur
samtakanna hér. I því skyni
að fá nánari vitneskju um
starfsemi AFS ræddi Mbl.
við Bemelmans.
Þar kom m.a. fram að 55 lönd
ættu nú aðild að samtökunum
sem eru bandarísk að uppruna.
Að sögn Bemelmans er markmið
AFS að gera 16—17 ára ungling-
um kleift að dveljast annað hvort
tvo mánuði eða eitt ár í senn er-
lendis við nám. Hlutverk sam-
takanna væri að útvega fjöl-
skyldur til að taka að sér þessa
nemendur meðan á dvölinni
stendur. M.ö.o. væri tilgangurinn
að dómi Bemelmans að gefa
unglingum kost á að kynnast
menningu framandi landa, tungu
þeirra og siðum.
Hann kvað flest störf samtak-
anna unnin af sjálfboðaliðum. Þó
Ivo Bemelmans
væru nokkrir starfsmanna AFS
á launum.
Að sögn Bemelmans er starf-
semi samtakanna einkum fjár-
mögnuð með sérstöku gjaldi sem
nemendum er dveljast á vegum
AFS erlendis er skylt að greiða.
Auk þess hafa ýmis fyrirtæki
styrkt samtökin með fjárfram-
lögum.
Það kom fram hjá Bemelmans
að nokkuð erfitt væri að útvega
íslenskar fjölskyldur til að veita
erlendum skiptinemum viðtöku.
íslandsmótið í bridge:
Þrír riðlar í Reykjavík
— Einn á Akureyri
í kvöld hefst undankeppni ís- Albert Sigurðsson á Akur-
landsmótsins í sveitakeppni og eyri.
verður spilað í fjórum riðlum.
Verða þrír riðlanna spilaðir í
Kristalsal Hótels Loftleiða en
einn riðill í Iðnskólanum á Ak-
ureyri.
Fyrsta umferðin, sem spil-
uð verður í kvöld, hefst kl. 20
en laugardag verða spilaðar
tvær umferðir og tvær á
sunnudag, hefjast leikirnir kl.
13.15 og kl. 20.
A Loftleiðum verður Agnar
Jörgensson keppnisstjóri en
Kæmi það sennilega til af því að
fólk teldi að því bæri að vera ein-
hverjum sérstökum mannlegum
eiginleikum búið eða vel fjáð til
að vera fært um að taka við þess-
um unglingum. Að dómi Bem-
elmans er þetta mesti misskiln-
ingur. Tilgangur dvalarinnar hér
væri að erlendir unglingar
semdu sig að nýju umhverfi,
tækju þátt í fjölskyldulífinu og
stunduðu nám. Það væri öldungis
óháð því hvort ákveðnir mann-
kostir byggju í fólki eða það hefði
mikið fjárráð.
Að sögn Bemelmans er mikill
áhugi hérlendis meðal íslenskra
unglinga að dveljast eriendis á
vegum AFS. Þó vildu forráða-
menn samtakanna gefa jafn-
mörgum erlendum nemum tæki-
færi til að dveljast hér á landi og
íslenskum unglingum erlendis.
Nú væru um 45 íslenskir
skiptinemar í öðrum löndum, en
mun færri útlendir nemar hér.
Að lokum kvaðst Bemelmans
mjög ánægður með dvöl sína hér.
Hún hefði verið lærdómsrík og
skemmtileg.
AI GIA SIV, \.
SÍMINN KR:
\l (.LYSlVi XSIMINN KR:
' ^ 22480
C5)
JllorounhlnÖib
Iðngarðar
í Vestmannaeyjum
Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur samþykkt aö
kanna möguleika á byggingu iöngaröa. Aöilar sem
áhuga hafa á aö setja á stofn iðnfyrirtæki í Vest-
mannaeyjum (nýiönaö) eru hvattir til aö kynna sér
þessa möguleika. Nánari upplýsingar gefur Siguröur
Jónsson, í síma 98-1871 eöa 98-1593.
Undirbúningsnefnd um iðngaröa.
Arsæll Jónsson læknir (lengst t.v.) tekur við gjöf til Landspítalans frá
Áslaugu Bourher og Doris Briem afhendir Karli Strand lækni gjöf til Borg-
arspítalans.
Vinahjálp gefur tæki
fyrir 100 þús. krónur
FÉLAGIÐ Vinahjálp afhenti í
fyrradag gjafir að verðmæti
100 þúsund krónur, tæki og
hljóðfæri, sem gefnar voru
deildum aldraðra á tveim
spítölum í Reykjavík. Félagið
hefur undanfarin ár safnað
fjármunum til tækjakaupa,
m.a. í þágu fatlaðra og
þroskaheftra.
Læknarnir Karl Strand á Borg-
arspítalanum og Ársæll Jónsson á
Landspítalanum tóku við gjöfum
þessum, sem Dóris Briem og Ás-
laug Boucher afhentu. Var öldrun-
ardeild Borgarspítalans, sem vera
á í húsi Hvítabandsins, gefið tvö
K0MDU
SKDÐAÐU
oq
REYNDU
nýju 4ra gíra elctavélina fná
o
Husqvarna
sjónvörp og myndsegulband og
öldrunardeild Landspítalans við
Hátún var gefið tvö sjónvörp, pí-
anó og segulband. Gjafirnar voru
afhentar við athöfn á Hótel Sögu í
gær.
Vinahjálp hefur síðustu ár m.a.
gefið tæki til Sólheima, Skálatúns,
Tjaldaness, Heyrnieysingjaskól-
ans, einnig í þágu gigtsjúkra og
krabbameinssjúklinga og til
Landakotsspítala. Er fjár aflað
með sölu muna á árlegum basar
Vinahjálpar.
Langabrekka
3ja herb. góö hæö í tvíbýlishúsi.
Stór lóð. Bílskúrsréttur.
Tjarnarból
Vönduö 6 herb. ca. 140 fm íbuð
á 2. hæð.
Þingholtín
Góö einstaklingsibúö. Laus
strax.
Keflavík
3ja herb. góð hæð i þríbýlis-
húsi. Hagstætt verð. Laus strax.
Orrahólar
Vönduð 3ja herb. 90 fm íbúö.
Dvergabakki
Falleg 3ja herb. íbúð á 3. hæð.
Tjarnargata
Vorum að fá í sölu tvær 110 fm
íbúö í sama húsi. Bein sala.
Vogahverfi
Gott einbýlish. á tveimur hæð-
um. Samtals 220 fm. Skiptist i
tvær góöar stofur og 6 rúmgóö
herb. Stór eldhus meö nýlegum
innréttingum, þrjár geymslur,
mikið skápapláss. Stór lóð.
Bílskur Húsinu mætti skipta í 2
íbúðir.
Fasteignir sf.
Tjarnargötu 10B, 2. h.
Friðrik Sigurb|órn»on, Iðgm.
FriObert Njálston, sölumaöur.
Kvöldsimi 53827.
Iðnaðarhúsnæði í Reykjavík
Dugguvogur
Jarðhæð um 350 fm. Góðar aökeyrsludyr. Verðhugmyndir kr.
5000 á fm. Hagstæð útb. Afhending etrax. Eignaskipti.
Síöumúli
Götuhæð og ein hæð (skrifstofuhæð). Grunnflötur 240 fm. Gott
ástand eignarinnar Hentar margháttaöri starfsemi.
Hamarshöfði
Grunnflötur ca. 250 fm. Mikil lofthæö. Fullfrágengiö húsnæöi. Allt
frágengiö utandyra. Góöar aökeyrsludyr. Ýmie eignaskipti mögu-
leg.
0 85009—85988
n ||Jl pllin f Dan V.S. Wiium lögfrpaóingur
• ** Ármúla 21
Ólafur Guömundsson sölum.