Morgunblaðið - 26.03.1982, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1982
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavik.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 110 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 7 kr. eintakið.
Vinnuveitendur
móta stefnu
Vinnuveitendur eru afdráttarlausir í afstöðu sinni til kröfugerðar
Alþýðusambandsins. Á aðalfundi Vinnuveitendasambandsins á miö-
vikudag var kaupkröfugerð ASÍ og landssambanda þess hafnað, „enda er
hún með öllu óraunhæf miðað við núverandi efnahagsaðstæður," segir S
ályktun aðaifundarins. Línurnar eru skýiar nú í upphafi kjarasamninga
en að vanda er ógerningur að segja fyrir um, hvað gerist í samninga-
málunum. Augljóst er, að Alþýðubandalagið ætlar að gera kjaramálin
að flokkspólitísku máli, en allir hljóta að vera að sammála um, að
rökstuðningur formanns þess, Svavars Gestssonar, í kjaramálum hljóm-
ar eins og öfugmælavísa, þegar orð og efndir hans í þessu efni eru höfð í
huga.
Páll Sigurjónsson, formaður Vinnuveitendasambandsins, vakti máls á
því í ræðu sinni á aðalfundinum, að með óbreyttri stefnu, sem fælist í
því að auka kostnað atvinnufyrirtækja umfram það, sem gerist í sam-
keppnislöndunum, væri í raun verið að gera íslenskar vörur dýrari en
keppinautanna. Afleiðingin væri öllum ljós: Fólk einfaldlega hættir að
kaupa dýrari vöruna. Þegar ekki væri unnt að hækka vöruna meira á
erlendum markaði, væri aðeins tvennt til, að auka framleiðni eða lækka
gengið. Hins vegar væri ekki unnt að auka framleiðnina í takt við
verðbólguna og því væru gengislækkanir jafn algengar og raun ber vitni.
Að sjálfsögðu þarf skipulegar og samræmdar aðgerðir til að komast
út úr þessum vítahring. Enginn efast um, að launaákvarðanir eru meðal
lykilþáttanna vilji menn sigrast á verðbólgunni. „Verkefnið framundan
er ekki að hækka launin, heldur að auka svigrúm atvinnulífsins til
nýsköpunar," sagði Páll Sigurjónsson. Hann taldi nauðsynlegt að auka
hlutdeild fjármagnsins í þjóðarkökunni til að komast hjá stöðnun og ört
versnandi lífskjörum — á skömmum tíma höfum við hrapað úr 5. sæti í
8. sæti á lista OECD um þjóðartekjur á mann í einstökum löndum.
Með þessum rökum sló formaður Vinnuveitendasambandsins fram
þeirri staðhæfingu, að forystumenn verkalýðsfélaganna verði á næst-
unni „að finna sér önnur verkefni, en að búa til kröfugerð um launa-
hækkanir". Hinn bitri sannleikur væri, að á næstu tveimur árum sé
enginn grundvöllur fyrir kaupmáttaraukningu.
Á síðari árum benda menn hér á landi og í útlöndum á það með
sívaxandi þunga og sannfæringarkrafti, að við mat á efnahagslegum
forsendum og töku ákvarðana í efnahagsmálum, séu stjórnendur fyrir-
tækja og fjármálastjórar þeirra mun hæfari en stjórnmálamenn.
Stjórnendur fyrirtækja verði að taka afleiðingum gerða sinna, afkoma
fyrirtækisins, hagur og heill starfsmanna byggist á því, að þeir taki
réttar ákvarðanir. öðru máli gegni um stjórnmálamennina, þeir feli
eigin mistök í slagorðaglamri við kosningar og á milli kosninga ráðskist
þeir með fé skattgreiðenda, en líti á vasa þeirra eins og ótæmandi
nægtabrunn.
Að því var vikið í upphafi, að formaður Alþýðubandalagsins væri nú
tekin til við slagorðasönginn, sem hljómaði hæst í kosningunum 1978,
um að kommúnistar væru einu forvígismenn verkalýðsins. Neikvæð
þróun kaupmáttar sýnir hið gagnstæða. En þessi flokkspólitísku afskipti
kommúnista hafa leitt annað af sér, eins og fram kom í ræðu Páls
Sigurjónssonar á aðalfundi Vinnuveitendasambandsins, þegar hann
hvatti til þess, að fleiri menn úr atvinnulífinu tækju þátt í stjórnmálum
í flokkum sínum. Atvinnurekendur ættu sjálfir að gefa kost á sér til að
taka þær ákvarðanir, sem eru á vettvangi stjórnmálanna. Þessi hvatn-
ingarorð eru meðal annars afleiðing af þeirri flokkspólitísku afstöðu,
sem verkalýðshreyfingin hefur tileinkað sér. Stjórnmálastörf eiga síður
en svo að vera bundin við einhverja ákveðna stétt og hættulegt er, ef hér
myndast stétt atvinnustjórnmálamanna, sem snýst til varnar eins og
þeir hafi fengið einkaleyfi á landstjórninni, ef menn eru hvattir til
virkari pólitískrar þátttöku. Það eru svo sannarlega tímamót, ef
atvinnurekendur ætla að verða pólitískt afl með þessum hætti, að sækj-
ast sjálfir eftir áhrifastöðum í stjórnmálalífinu. I því felst svo sannar-
lega ögrun, sem fróðlegt verður að sjá viðbrögðin við.
Skaðabætur og
iðnaðarráðherra
Borgarráð Reykjavíkur hefur ályktað, að iðnaðarráðherra geti bakað
ríkissjóði bótaskyldu með því að draga óeðlilega staðfestingu á
loglega settum gjaldskrám Hitaveitu og Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Áskilur borgarráð sér rétt til að krefjast bóta fyrir tekjutap veitnanna,
hafi gjaldskrárnar ekki verið staðfestar fyrir 1. apríl næstkomandi. Hér
er skýrt að orði kveðið um atriði, sem þvælst hefur hjá ríkisstjórninni
um nokkurra vikna skeið og iðnaðarráðherra getur ekki leyst með skyn-
samlegum hætti frekar en nokkurt annað mál.
Það er dæmigert um stjórn vinstri manna á landi og borg, að nú séu
uppi hugmyndir um skaðabótamál milli borgarsjóðs og ríkissjóðs vegna
sundurlyndis milli þeirra, sem segjast fara með öll völd hjá ríki og borg.
Og hvað er í húfi vegna óstjórnar þessara aðila? Fjárhagslegum grund-
velli hefur verið kippt undan Hitaveitu og Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Nú þurfa þessi fyrirtæki að taka erlend lán til að kosta rekstur sinn.
Nýframkvæmdir liggja niðri. Borgarbúar geta tæplega farið í málaferli
við vinstri menn vegna þessarar óstjórnar, hins vegar geta þeir gert upp
við þá í kosningunum í vor.
Björgun skipverjanna tíu aí* Sudurlandi
Aðstæður til björgunar
voru ekki ýkja slæmar
— segir flugstjóri brezku björgunarþyrlunnar
„ÞETTA GEKK sæmilega fyrir sig
og aðstæður til björgunar ekki ýkja
slKmar, að vísu mjög lágskýjað og
45 hnúta vindur. Við vorum yfir
björgunarbátnum eftir tveggja og
hálfrar klukkustundar flug frá
Lossiemouth i Skotlandi, fengum
leiðbeiningar frá Nimrod-þotu, sem
leitaði frá Kinloss, og Hercules-
flugvél af Keflavikurflugvelli. Stað-
arákvörðun settum við inn í flug-
tölvu þyrlunnar, sem síðan vísaði
okkur leiðina að björgunarbátnum.
Einnig gátum við miðað út neyðar-
sendi bátsins," sagði fluglautinant
Lakey, flugstjóri brezku björgunar-
þyrlunnar, i samtali við Mbl. í
gærkvöldi.
„Við vorum búnir að bjarga sjó-
mönnunum um borð eftir 15 mín-
útur og flugum þá rakleiðis til
Þórshafnar, um klukkustundar
flug, þar sem íslenzku skipbrots-
Brezk Sea King-björgunarþyrla
Roger Whitfield björgunarmaður:
Varð ekki var við
„AÐSTÆÐUR voru ekki mjög erfið-
ar, við erum ýmsu vanir og þraut-
þjálfaðir í hjörgunarstörfum við
miklu verri skilyrði. Að vísu var
ölduhæðin talsverð, en þetta gekk
tiltölulega vel fyrir sig. En þarna var
samt hætta á ferðum, og ég býst við
að íslenzku sjómennirnir hafi andað
léttar þegar ég seig niður til þeirra,
ekki varð ég var við hræðslu meðal
þeirra, og þeir voru hinir samvinnu-
þýðustu," sagði Roger Whitfield
björgunarmaður á björgunarþyrlu
brezka flughersins, í samtali við
Mbl. í gærkvöldi, en Whitfield og
félagar hans björguðu átta af skip-
verjum Suðurlands.
„Þegar við komum yfir björgun-
arbátinn, seig ég niður til skip-
brotsmannanna, hafði með mér 50
metra kaðaltaug, sem ég batt um
björgunarstólinn, svo ég gæti tog-
mennirnir voru fluttir í sjúkrahús.
Búið var að bjarga tveimur sjó-
mönnum úr bátnum þegar við
komum á vettvang. Frá Þórshöfn
héldum við til Vogeyjar, tókum
eldsneyti og biðum þess að taka
þátt í frekari leit.
„Sea King-björgunarþyrlurnar
eru sérstaklega gerðar til björgun-
ar við erfiðar aðstæður, getum
verið á lofti í 6'Æ stund án þess að
þurfa að taka eldsneyti. Við erum
í stöðugri þjálfun og höfum oft
þurft að vinna verk af þessu tagi
við miklu verri aðstæður. En
mannslífin eru jafn verðmæt,
hversu erfið sem björgunarað-
stæður kunna að vera, og þess
vegna erum við ánægðir með það
verk sem við leystum af hendi í
dag. Verst að þetta slys kostaði
eitt mannslíf,“ sagði Lakey.
Lakey, sem er 34 ára, sagði fjóra
menn að jafnaði um borð í björg-
unarþyrlum af þessu tagi, tvo
flugmenn og tvo björgunarmenn.
Annar björgunarmannanna fer
jafnan niður í sjóinn en hinn
stjórnar spilinu, sem skipbrots-
menn eru hífðir upp með. Hinn
flugmaðurinn gengur undir nafn-
inu fluglautinant Prince, og björg-
unarmennirnir heita Roger
Whitehead, sá er seig niður í
björgunarbátinn, og Mike Head-
land.
hræðslu
að hann til mín í hvert skipti sem
skipbrotsmenn hefðu verið hífðir
um borð.
Við hífðum tvo og tvo skipbrots-
menn upp í einu, og fór ég síðan
síðastur upp, um stundarfjórðungi
eftir að við fundum björgunarbát-
inn,“ sagði Whitfield, sem er 41
árs að aldri og hefur langa reynslu
af björgunarstörfum að baki.
Athugasemd frá
Friðjóni Þórðarsyni
MORGUNBLAÐINU barst í gær-
kvöldi eftirfarandi athugasemd frá
Friðjóni Þórðarsyni, dómsmálaráð-
herra:
Út af yfirlýsingum og fréttum
af aðalfundi Sjálfstæðisfélags
Mýrasýslu, sem haldinn var í
Borgarnesi laugardaginn 20. þ.m.,
skal eftirfarandi tekið fram:
Ég sæki fundi sjálfstæðisfélaga
í Vesturlandskjördæmi eins oft og
við verður komið. Á þeim fundum
eru yíirleitt rædd þjóðmál, sem
efst eru á baugi. Það fer eftir at-
vikum, hvort ályktanir eru gerðar
á slíkum fundum og örsjaldan er
nokkur fréttatilkynning gefin út í
fundarlok. — Umræddur fundur
var vel sóttur og fór hið bezta
fram. Undirritaður svaraði mörg-
um fyrirspurnum. Eftir fundinn
datt einhverjum heimamanna í
hug að senda Morgunblaðinu
fréttir af svo ágætum fundi og féll
það í hlut Helga Bjarnasonar, sem
var einn fundarmanna. Ekki dreg
ég í efa, að Helgi hafi skýrt frá
umræðum fundarins af beztu sam-
vizku. Að sjálfsögðu svaraði ég öll-
um fyrirspurnum á stundinni eftir
því sem andinn blés mér í brjóst
og af beztu getu. Vafalaust hafa
mörg svörin þó orðið ófullnægj-
andi og hefði ég áreiðanlega vand-
að þau betur, ef ætluð hefðu verið
til birtingar. Yfirskrift frásagnar
af fundinum í Mbl. var þessi:
„Stjórnarsamstarfinu þarf að slíta
fyrir kosningar svo sjálfstæðis-
menn geti gengið til kosninga í
einum flokki". — Til þess að fyrir-
byKgja misskilning vil ég skýra
nánar, hvað fyrir mér vakti. Þegar
næst verður gengið til alþingis-
kosninga, mun hver stjórnmála-
flokkur út af fyrir sig ganga til
þeirra kosninga án samkomulags
eða skuldbindinga um samstarf
við einn eða annan flokk að kosn-
ingum loknum. Sjálfstæðismenn
um land allt munu þá fylkja liði
allir saman í einum flokki eins og
þeir gera nú til bæjar- og sveitar-
stjórnakosninga, hvort sem þeir
telja sig stjórnarsinna eða stjórn-
arandstæðinga um þessar mundir.
Núverandi ríkisstjórn gæti þess
vegna setið fram yfir næstu al-
þingiskosningar, eða þar til úrslit
þeirra eru kunn og ný stjórn verð-
ur mynduð.
Að lokum skal þess getið, að
fyrir tæpum þrjátíu árum, þegar
ég hóf afskipti af stjórnmálum, þá
var það ekki gert til þess að leggja
sérstaka rækt við hárfínar og
hnitmiðaðar pólitískar yfirlýs-
ingar, — og allra sízt til þess að
gerast pólitískur spámaður, —
heldur til þess að leggja mig allan
fram um að vinna fyrir kjördæmi
mitt og íbúa þess, — land og þjóð.
Friðjón Þórðarson.
P.S.
Út af ummælum þeim, sem Mbl.
hefur eftir forsætisráðherra 24.
þ.m., skal tekið fram, að hann
þekkir vel skoðanir mínar á þess-
um málum.
Vegna ummæla í leiðara Mbl.
25. þ.m., skal þess getið, að það er
rangt, að einn af fréttastjórum
Mbl. hafi hringt til mín kvöldið
áður en fréttin birtist. Það var ég,
sem hringdi til hans undir mið-
nætti á mánudagskvöld, en þá rétt
áður hafði ég heyrt, að eitthvað
stæði til að birta frá fundinum. —
Eru á þessu nokkur blæbrigði.
Athugasemd ritstj.
Það var rangt í leiðara Morgun-
blaðsins i gær, að einn af frétta-
stjórum Morgunblaðsins hefði
haft samband við Friðjón Þórð-
arson vegna umræddrar fréttar.
Hið rétta er að ráðherrann
hringdi sjálfur og biður Mbl. vel-
virðingar á þessum mistökum,
sem voru bundin við leiðarann, en
komu ekki fram í frétt blaðsins af
ummælum Gunnars Thoroddsens.
Þetta hefur hins vegar enga efn-
islega þýðingu. Friðjón Þóröarson
neitar því ekki að hann hafi gefið
umrædda yfirlýsingu á aðalfundi
sjálfstæðisfélags Mýrasýslu og til-
raunir hans til að skýra hana
frekar sýna einungis að Gunnar
Thoroddsen forsætisráðherra hef-
ur lagt mikinn þrýsting á dóms-
málaráðherra. Frásögn fréttarit-
ara Morgunblaðsins stendur
óhögguð. Það er hann sem skýrði
rétt frá, en ekki forsætisráðherra,
sem fullyrti, að rangt væri haft
eftir Friðjóni Þórðarsyni.