Morgunblaðið - 26.03.1982, Side 19

Morgunblaðið - 26.03.1982, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1982 19 Þingmenn stjórnarandstöðu: Ríkisstjórnin stefnir hús- næðislánakerfinu til falls l'orvaldur Garðar Kristjánsson (S) og Magnús H. Magnússon (S) beindu sl. þriðjudag fyrirspurnum til Svavars (íestssonar, félagsmálaráðherra, um stöðu hyggingarlánasjóds og fram- kvæmd bráðabirgðaákvæðis í lögum um llúsnæðismálastofnun ríkisins, þess efnis, að hún „skuli í samráði við veðdeild Landsbanka íslands hlutast til um að þeim einstaklingum, sem fengið hafa nýbyggingarlán á ár- unum 1974—1979 með hlutfallslegri verðtryggingu verði gefinn kostur á að skipta á skuldabréfum. Skal þá gefið út nýtt skuldabréf fyrir upp- fa-rðum eftirstöðvum eldra láns- ins.. • Svavar (iestsson, félagsmála- ráðherra, sagði m.a. í svari sínu að aðeins einn aðili hafi óskað eftir því að skuldabréfum hans verði breytt, en ljóst sé, að stofnunin hljóti að skipta um bréf, sam- kvæmt þessu lagaákvæði, hvenær sem farið verði fram á slíkt. Hitt má vera, að þetta atriði hafi ekki verið kynnt eða auglýst sem verð- ugt væri. Hér er fyrst og fremst um að ræða lán, sem tekin voru á ákveðnu tímabili, frá 1. maí 1978 til l. júlí 1979, þ.e. lán til 26 ára eða 33 ára. • '^iggeir Björnsson (S) sagði m. a. að fyrirgreiðsla til þeirra, sem voru að byggja á þessum tíma, þeg- ar kerfisbreyting lána var að ganga yfir, hafi verið ónóg, og viðkomend- ur þurft að fjármagna byggingar sínar með vaxtaaukalánum og öðr- um skammtímalánum. Þetta hafi skapað mörgum ærinn vanda sem skert hafi lífskjör viðkomenda, einkum utan höfuðborgarsvæðis, þar sem ekki er hægt að selja fast- eignir á sama verðlagi og á höfuð- borgarsvæðinu. Nauðsynlegt er, sagði Siggeir, að létta undir með þessu fólki, enda þarf ríkisvaldið að hvetja einstaklinga til að byggja yfir sig, m.a. af þeirri ástæðu, að með því er virkjað óhemju vinnu- afl, sem einstaklingar leggja fram og þjóðfélagið hefur ekki efni á að hafna því framlagi. • Kriðrik Sóphusson (S) sagði að sífellt fengist lægra hlutfall lánað úr Byggingarsjóði ríkisins, miðað við staðalibúð. Nú síðast þegar rík- isstjórnin hækkaði vexti af spari- skírteinum ríkissjóðs upp í 3,5% fylgdu lífeyrissjóðir að sjálfsögðu eftir. Þetta þýðir að Húsnæðis- málastjórn verður að taka lán með 3,5% vöxtum ofan á verðtryggingu til 12—14 ára, en lána út á sama tíma með 2 til 2,5% vöxtum til 26 ára. Allir sjá hvað gerist hjá slíkri stofnum á næstu 10—15 árum með sliku kerfi. I öðru iagi hljóti það að vera um- hugsunarefni þegar lánskjaravísi- tala hækkar umfram verðbótavísi- tölu, eins og gerðist á sl. ári, vegna verðbótaskerðingar ríkisstjórnar- innar, sem allaballar kalli „slétt skipti". í þriðja lagi held ég að það sé ástæða til þess í þessum umræðum að það komi fram varðandi launa- skattinn að til þess að það standist sem lýst hefur verið yfir, að % af kerfinu skuli vera hjá Byggingar- sjóði ríkisins og 'h hjá verka- mannabústöðum, þá má halda því fram, að það vanti 185 millj. kr. úr ríkis.sjóði vegna vangoldins launa- skatts, sem ríkissjóður heimtar inn í Húsnæðismálastofnun ríkisins. I»etta jafngildir 370 tveggja herbergja íhúðum á staðgreiðsluverði og er hún hærri upphæð hcldur en öll sú upp- hæð sem llúsnæðismálastofnun ríkis- ins eða Byggingarsjóður ríkisins ætl- ar að lána til nýbygginga á þessu ári. Samkvæmt sögn Sigurðar E. Guð- mundssonar, framkvæmdastjóra, munu það vera 164 millj. kr. Þannig hefur þessi hæstvirta ríkisstjórn sem nú situr farið með Húsnæð- ismálastofnunina, og það er full ástæða til þess, herra forseti, að það komi fram við þessa umræðu. • Magnús II. Magnússon (A) sagði m.a., að fyrirgreiðsla og framlög til Byggingarsjóðs ríkisins væri að verða að engu í höndum Nekx> 900 LORAN C. 8 leifta- og 30 punkta kerfi. Snertitakkar. Lítil fyrirferft. Til afgreiöslu strax. Framleiftsla í USA m/sjálfstýribúnaöi. 2 ára ábyrgft. Auðveldur í meöferö Verö 14.825,00. Benco Bolholti 4, Reykjavík S: 91-21945/84077 ríkisstjórnarinnar. Byggingarsjóð- ur ríkisins tekur nú við 40 sinnum mciri lánum en 1979 en fær sömu krónutölu frá ríkissjóði, þannig að á mjög stuttum tíma hafa mál þróast svo, að öll framlög ríkissjóðs duga aðeins til að borga mismun á vöxtum, eins og Friðrik Sophusson hafi réttilega vakið athygli á. e Þorvaldur Garðar Kristjánsson (S) taldi að ekki hafi verið fylgt nægilega eftir beinum fyrirmælum til Húsnæðismálastofnunar um framkvæmd lánabreytinga. e Svavar Gestsson, félagsmála- ráðherra, fullyrti, að fyrirgreiðsla opinberra aðila við húsnæðismála- kerfið á Islandi væri sízt minni ef ekki meiri en í nágrannalöndum okkar. Hinsvegar hefði bankakerf- ið „ekki fengizt til skipulegs sam- starfs í húsnæðismálum". Banka- kerfið hér er það eina á Norður- löndum, sem „ekki hefur fengizt til þess að taka skipulega þátt í því að byggja upp húsnæði fyrir fólk eða kaupa eldra húsnæði". • Kriðrik Sophusson (S) sagði orð félagsmálaráðherra koma sér á óvart. Hér talaði ráðherra, sem stæði að því að leggja nýja skatta til ríkisins á bankakerfið. Hér tal- aði ráðherra, sem með frammúr- boðum laðaði fjármagn framhjá bankakerfinu til kaupa á ríkis- skuldabréfum, og úr bankakerfinu í stórum stíl til slíkra kaupa. Hvaða fjármagn verður svo þar eftir til nýrra átaka í húsnæðismálum, ef ríkisvaldið heldur áfram sem horf- ir varðandi yfirtöku á sparnaði í landinu? • llalldór Blöndal (S) sagði fjór- um sinnum fleiri sækja um íbúðir hjá stjórn verkamannabústaða hér í Re.vkjavík en fá myndu. Hverjir eiga að sitja fyrir, spurði hann. Hvaða hugmyndir hefur ráðherra úm rétt þeirra 1000 sem enga úr- lausn fá nú á þessum vettvangi? • Tómas Árnason, bankaráð- herra, sagði bankakerfið, við- skiptabanka og sparisjóði, lána u.þ.b. 100 milljarða gkróna til hús- næðismála. • Karvel Pálmason (A) sagði m.a. að það væru „hugmyndir ríkis- stjórnarflokkanna að skerða enn frekar framlög til verkamanna- bústaðakerfisins með afgreiðslu lánsfjárlaga hér á Alþing: vænt- anlega á næstu dögum". Endirinn í þessum þætti yrði „rjúkandi rúst- ir“, eins og í öðrum þjóðmálaþátt- um í tíð núverandi ríkisstjórnar. o>V ■NYTTl Hmsmbíq mAirn s (r m Allir krakkar vilja fá gott páskaegg. En þegar þú gefur þeim venjulegt páskaegg, er ánægjan allt of fljótt yfir, því eggið er étiö upp á svipstundu. Nú geturöu fengiö varanlegra egg — hanaeggiö! Hanaeggiö er stórt og veglegt ekta íslenskt gæðasúkkulaðiegg fyllt meö nammi og meö málshætti inní. En rúsínan í pysluendanum er aö egginu fylgir sprellfjörugur upptrekktur hani, sem hoppar og skoppar fyrir krakkana alla páskana, þrælsniöugt varanlegt leikfang. Egginu fylgir líka fyrsta flokks hanaoröa, sem krakkarnir næla í barminn. Ótrúlegt en satt, samt kostar hanaeggiö ekkert meira en venjulegt páskaegg. En þau eru fágæt, og finnast ekki hvar sem er. Hanaeggið færö þú aöeins hja Magasín í Kópavogi. Komdu strax í dag og tryggöu þér egg! Áöur en þau seljast upp. VÖRUHUSIÐ Magasín Auðbrekku 44-46, Kópavogi — Sími póstversiunar 45300 Ps. ef þú trúir ekki þessari auglýsingu, biöjum við þig að taka eftir sjónvarpsauglýsingum í næstu viku. En þá náttúrulega seljast öll hanaeggin upp!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.