Morgunblaðið - 26.03.1982, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 26.03.1982, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1982 Kökubasar hjá KFUM og K í húsi KFIJM og K við Langagerði 1 verður á morgun, laugardag, haldinn kiikuhasar. Hefst hann klukkan 15. Segist basarnefndin hafa þar í boði glæsilegar kökur og er ágóðanum varið til eflingar félagsstarfi KFIJM og K þarna í hverfínu og til að kosta frágang á lóðinni við húsið. Myndin er tekin í vorferð yngri deildar KFUM. Ljósm. (;hi EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐENU Til fermingargjafa skrifborð úr furu Stærö 65x150 sm. Kr. 1000 útborgun og eftirstöövar á þrem mánuöum. Furuhúsið h/f Suðurlandsbraut 30. Sími 86605. Alan Hacker er lengst til hægri á myndinni og hér er hann að rieða við nemendur og kennara Tónlistarskólans á námskeiði sínu. , Ljósm. B.P. Alan Hacker á Islandi: Spilar gamla tónlist með gömlum hljóðfærum Hér á landi er staddur um þessar mundir breski klarin- ettleikarinn Alan Hacker í boði Tónlistarskólans í Reykja- vík og British Council. Heldur hann námskeið fyrir klarin- ettnemendur Tónlistarskólans og mun auk þess halda í kvöld tónleika í Norræna húsinu ásamt konu sinni og síðdegis á morgun hafa eins konar „opna æfingu“ þar sem hann kynnir gömul tónverk og hljóðfæri. — Aðalverkefni mitt hefur annars vegar verið að leika nútímatónlist og hins vegar að nálgast gamla tónlist með nú- tímaaðferðum ef svo mætti segja, en það geri ég iðulega með gömlum hljóðfærum, sem ég hefi mikinn áhuga á, sagði Alan Hacker í samtali við Mbl. — Gömul tónlist hefur fram til þessa svo til eingöngu verið leikin á hljóðfærin eins og þau eru í dag, en nú fer áhugi manna vaxandi á því að dusta rykið af gömlu hljóðfærunum. Það gildir um öll hljóðfæri, pí- anó, við stillum gamlar fiðlur, og notum á þær sérstaka og létta boga, við tökum aftur upp gömlu blásturshljóðfærin, óbóið, klárinettuna og hornið og þannig mætti telja áfram. Alan Hacker rekur eins kon- ar miðstöð í York í Englandi þar sem menn koma og leggja stund á gamla tónlist. Þar er árlega haldin tónlistarhátíð og Jón Nordal skólastjóri Tónlist- arskólans heyrði til Hackers þar og bauð honum að koma hingað til lands. Sem fyrr segir heldur hann hér tónleika og kennir á námskeiði fyrir nem- endur Tónlistarskólans, en hann heldur til síns heima á sunnudag. — Þetta er eins og spennandi ævintýri og það er mjög gaman að fást við þessa gömlu tónlist, sagði Alan Hacker. — Það er gaman að grafa upp af háaloft- inu hljóðfæri sem langafi eða einhver ennþá lengra aftur í tímann hefur spilað á, pússa það og fága, stilla og taka til við að spila og fá tónlistina matreidda á sama hátt og for- feður okkar. Þá fyrst spilum við tónlistina eins og höfund- arnir sömdu hana, segir Hack- er ennfremur en hann er þekktur fyrir að leika 18. aldar tónlist á þeirra tíma hljóðfæri. Ásamt Alan Hacker spilar kona hans, Karen Evans píanó- leikari, á tónleikum í Norræna húsinu í kvöld. Flytja þau m.a. verk sem samin hafa verið fyrir Hackert og verk eftir þekkt sem lítt þekkt skáld, m.a. eftir Bergmuller, Stanford, Williams, Davies og Schubert. Á laugardag kl. 16 verður í opna húsinu svokölluð opin æf- ing þar sem öllum er heimill ókeypis aðgangur. Mun Hacker þar spjalla við tónleikagesti og leika m.a. með strengjatríói Guðnýjar Guðmundsdóttur kvartett eftir Hummel á 250 ára gamalt hljóðfæri. KYNNING Komdu og láttu Dröfn sýna þér byltingu í matreiðslu í örbylgjuofnunum í verslun okkar á Bergstaðastræti 10A á morgun, laugardaginn 27. marz kl. 10—12. Sjáöu hvernig bakaö er á 1 mínútu, matur hitaöur á örskammri stund, hvernig krakkarnir geta poppaö án þess aö brenna sig eöa eyðileggja pottana þína. Og sunnudagslæriö stiknar á 20—30 mínútum. TOSHIBA-örbylgjuofnarnir bjóöa upp á stórkostlega möguleika fyrir fjölskyldur, sem boröa á mismunandi tíma, boröa mismunandi fæöi (megrun, magasjúkl- ingar). Toshiba ofnarnir eru svo einfaldir og öruggir í notkun, aö börn geta matreitt í þeim. Toshiba örbylgjuofn er meira en bara venjulegur örbylgju- ofn, þú getur matreitt og bakað í honum flestar uppskrift- irnar þínar. I Til Drafnar H. Farestveit, hússtjórnarkennara Einar Farestveit & Co. hf. Bergstaðastræti 10A. Toshiba Verð frá 4.200,- Vinsamlega póstsendið frekari upplýsingar. Nafn Heimilisfang Og síöast en ekki síst, svo þú fáir fullkomið gagn af Toshiba ofninum þínum, býöur Dröfn þér á mat- reiöslunámskeið án endurgjalds. Stærstir í gerð örbylgjuofna Brezk hjón halda fyrir- lestra IIRKZKU hjónin E.P. Thompson og D. Thompson, sem bæði eru sagn- fræðingar, eru stödd hér á landi í fyrirlestrarferð. Eiginmaðurinn, E.P. Thompson mun halda fyrirlestur kl. 17.15 í dag, föstudag, í hátíðarsal Háskól- ans. Fyrirlesturinn nefnist „Social History and Anthropology", og er fluttur í boði heimspekideildar. Eiginkonan, D. Thompson, held- ur fyrirlestur kl. 13 í dag í Nor- ræna húsinu og fjallar hann um Kvennahreyfingar síðastliðin 150 ár. Leiðrétting I fyrstu málsgrein minningar- greinar Haralds Sigurðssonar um Jón Gunnlaug Sigurðsson í blað- inu í gær féll niður ein lína. Setn- ingin á að vera þannig: „Biturleik- inn eykst þegar jafn náinn vinur og Jón Gunnlaugur, eða Gulli eins og hann var kallaður, er hrifinn á braut." — Blaðið biðst velvirð- ingar á þessum mistökum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.