Morgunblaðið - 04.07.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.07.1982, Blaðsíða 1
84 SÍÐUR 145. tbl. 69. árg. SUNNUDAGUR 4. JÚLl 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Á leid í róður í blíðskaparveðri Morgunbladid/ Kristján Einarsson Israelar loka vestur- hluta Beirút með öllu Beirút, 3. júlí. AP. SHAFIK Wazzan forsstisráöherra bar til baka fregnir ríkisútvarpsins í Líbanon um að samkomuiag heföi náðst milli Líbana og Palestínu- skKruliða um fyrirkomulag uppgjaf- ar og brottflutning skæruliða frá Líbanon. Hann sagði líbanska og bandaríska samningamenn komna „miðja vegu“ til samkomulags, en áreiðanlegar heimildir hermdu að viðræður fulltrúa deiluaðila væru komnar í strand, og að diplómatísk lausn Líbanondeilunnar væri ekki á næstu grösum. Þegar Morgunblaðið fór í prent- un í gaer bárust þær fregnir frá Beirút, að ísraelski herinn hefði farið inn í austurhluta Beirút og lokað götum á græna beltinu, sem liggja inn í vesturhlutann. Þessar aðgerðir koma í kjölfar hótana ísraela um að þeir ætli að herða betur kverkatak sitt á vesturhlut- anum, en engar vísbendingar voru um að þeir væru að undirbúa árás- ir á skæruliða PLO. Hins vegar hafa þeir með þessu tekið fyrir flutning helztu nauðsynja inn í vesturhlutann, eldsneytis og mat- væla, en þeir hafa ekki gripið til aðgerða af þessu tagi fyrr í inn- rásinni. Yitzhak Shamir utanríkisráð- herra ísraels ítrekaði þá kröfu Israela að skæruliðar PLO hypj- uðu sig á brott frá Líbanon, og að þeir færu til eins fjarlægs Araba- ríkis og unnt væri. Hann sagði litlar vísbendingar hafa borist um að samkomulag í Líbanondeilunni væri í sjónmáli. Um sama leyti og Shamir kom fram í útvarpi, særðust fjórir ísra- elskir hermenn, er þeir óku bifreið sinni yfir jarðsprengju skammt suður af Týros í Líbanon. Þeir voru fluttir í sjúkrahús til að- hlynningar. Héldu ísraelar sálrænum þrýst- ingi á skæruliða í vesturhluta Beirút og vörpuðu orrustuþotur niður reyksprengjum og blysum yfir Beirút í nótt, þriðja daginn í röð. Skutu skæruliðar af loftvarn- arbyssum, en þoturnar sakaði ekki. Ibúar vesturhlutans voru enn í dag hvattir til að yfirgefa borgina, því „aðeins örfáar stundir væru til stefnu" til að komast í öruggt skjól. Wazzan sagði í morgun að yfir fimmtungur 600 þúsund íbúa vesturhlutans hefði yfirgefið Beir- út vegna þessara aðgerða. Ósló: Sprengja springur á járnbrautarstöð (>hIÓ, 3. júli. AP. MIKIL sprenging varð á járnbraut- arstöð í Oslóarborg í gær með þeim afleiöingum, að ung kona lést og 11 slösuðust. Ekkert er vitað hverjir komu sprengjunni fyrir eða í hvaða tilgangi og stendur lögreglan ráð- þrota frammi fyrir þessum atburði. Sprengingin varð um klukkan hálf fimm í farangursgeymslu á gömlu járnbrautarstöðinni í Ósló og var svo öflug, að geymsluhólfin ásamt öllu, sem í þeim var, tætt- ust í sundur og allar rúður í bygg- ingunni sprungu út. Unga konan, sem lést, var gestkomandi í Ósló og var stödd í símaklefa næst við farangursgeymsluna þegar sprengjan sprakk. Talið er, að hún hafi látist samstundis. Ellefu aðr- ir slösuðust en aðeins tveir hættu- lega. Að sögn vitna sáust tveir ungir menn og kona hlaupa út úr stöð- inni rétt áður en sprengingin varð og hefur lögreglan lýst eftir þeim. Á tæpum þremur mánuðum hafa Sórar aðrar sprengjur sprungið í sló og hefur enn ekki tekist að upplýsa hverjir þar voru að verki. Fyrir hálfum mánuði lá við stór- slysi þegar sprengja sprakk undir brú í borginni, nokkrum mínútum áður en yfirfull farþegalest átti leið um hana, en áður hafði sprengja sprungið úti fyrir fang- elsismúrum og önnur undir bíl á bílastæði Stórþingsins norska. Mesta sprengingin varð þó þegar dýnamítgeymsla í grjótnámu sprakk í loft upp með þeim afleið- ingum að hundruð nærliggjandi húsa stórskemmdust. Kunnugir segja, að ef skærulið- ar PLO fallist á kröfu ísraela um að fara frá Líbanon, klofni hreyf- ingin upp í margar sundurleitar fylkingar, sem jafnvel eigi eftir að elda grátt silfur saman. Fá Araba- ríki vilja hýsa skæruliðana, og skæruliðar geta ekki komið sér saman um hvar þeir séu bezt niðurkomnir, og ekki vilja þeir eiga á hættu að vera undir þum- alfingri einnar og sömu ríkis- stjórnarinnar. Líklegast er talið að PLO setji áróðursskrifstofu á laggirnar í Egyptalandi, en að Arafat verði á faraldsfæti milli Arabaríkja til þess að verða ekki bendlaður um of við eitt þeirra. Kanadískur læknir, sem starfað hefur með hjálparstofnun Palest- ínumanna, Rauða hálfmánanum, sakaði ísraelska innrásarliðið um illa meðferð á föngum sínum í Líbanon. Á blaðamannafundi, sem PLO stóð fyrir hjá Sameinuðu þjóðunum, sagðist hann hafa orðið vitni að því er ísraelskir hermenn börðu fjóra fanga til dauða. Rússar reknir Amsterdam, 3. júlí. AP. TVEIR sovézkir diplómatar hafa verið reknir frá Hollandi fyrir njósn- ir, að sögn hollenzks blaðs í dag. Hljótt var farið með mál þeirra, en þeir urðu uppvísir að því að njósna um hernaðarmannvirki Hollendinga og Atlantshafsbandalagsins. Diplómatarnir voru sendir til Moskvu án mótmæla af hálfu sov- ézkra yfirvalda, sem þykir vís- bending um hversu öruggar sann- anir voru fyrir hendi í máli dipló- matanna. Formælandi utanríkisráðuneyt- isins vildi hvorki játa né neita að Rússunum hafi verið vísað úr landi, og engin skýring hefur fundizt á því hversu leynt var far- ið með mál þeirra. Diplómatarnir höfðu dvalizt lengi í Hollandi. 6 skotnir 1 Suður- Afríku Jóhannesarborg, 3. júlí. AP. SEX svartir námamenn voru skotnir til bana í nótt og morgun þegar til átaka kom milli þeirra og suður- afrísku lögreglunnar. Ástæðan fyrir óeirðunum er rakin til þess, að nýlega voru laun þeirra námamanna, sem vinna í námagöngunum, hækk- uð um 12%, en þeirra, sem vinna uppi á yfirborðinu, að- eins um 11%. Einnig er talið, að alvarleg námaslys að und- anförnu hafi átt sinn þátt í að upp úr sauð. Óeirðirnar hófust við Drief- ontein-gullnámuna og breidd- ust þaðan út til annarra þriggja. Námamennirnir grýttu bíla og báru eld að hús- um og var þá lögreglan kvödd til liðs við öryggisverðina. Að sögn suður-afrískra dagblaða neituðu námamennirnir að hverfa á braut þótt táragas- sprengjum væri varpað að þeim og að þá hafi lögreglan hafið skothríð á þá og drepið sex. Mörg hundruð manna voru handtekin. Árlega deyja 2 milljónir Afríkubúa úr malaríu WashinKton. 3. júlí. AP. MALARÍA verður tveimur milljón- um Afríkubúa að aldurtila á ári hverju, að sögn bandarisks heilsu- gæzlusérfræðings. Flest fórnardýr- anna eru börn undir 5 ára aldri. Talið var fyrir 15 árum að hægt yrði að uppræta malaríu, en bitvargurinn, sem bar smitið, þróaði mótefni gegn DDT og öðru skordýraeitri, og því hafs menn gefist upp fyrir flugunni. Malarían er hvað mannskæð- ust á svæðinu sunnan Sahara og norðan Suður-Afríku. Malaría er einnig útbreidd í Rómönsku- Ameríku, á Indlandi og í Suð- austur-Asíu. Sérfræðingurinn sagði bðrn verða hvað verst fyrir barðinu á Malaríu, en þau sem á annað borð lifðu veikina af yrðu meira og minna ónæm fyrir henni. Ein af ástæðum þess hversu malaría er mannskæð í Afríku er sú, að heilsugæzla er nánast engin utan stórborganna, en aðeins 20% íbúa svörtu Afríku eru þéttbýlingar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.