Morgunblaðið - 04.07.1982, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.07.1982, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ 1982 HELGARFERÐIR TIL KAUPMANNAHAFNAR Á HREINT ÓTRÚLEGU VERÐI Brottför alla föstudaga Heimkoma alla mánudaga. Hótel Cosmole/ Hótel Union Verö í tveggja manna herbergi kr. 3.962.- Barn með 2 fullorðnum kr. 980.- Hótel Sheraton Verð í tveggja manna herbergi kr. 4.304,- Barn með 2 fullorðnum kr. 1.178.- Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar Feröaskrifstofan Laugavegi 66, 101 Reykjavík, Sími: 28633. Farðu að sofa „en hengdu fötin þín upp fyrst“ r zz Karoline sett m/dýnu 22.240 — 4.240 út, 2.000 kr á mán. Rúm með klæðaskápum. Rúm með stereoútvörpum. Rúm úr eik, furu og trefjaplasti. Rúm í öllum stærðum og ótal gerðum. ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ FARA ANNAÐ HÚSGdCNAEÖLLIN BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVlK S 91-81199 og 81410 IVMÍSMONISTA okkar pakkar og sendlr hvert á land sem er. I sfma 91-81410 færðu upplýslngar um verð, gæði og afborgunarkjör. VANTAR ÞIG VINNU VANTAR ÞIG FÓLK O Þl ALGi.YSIR l'M M.I.T LAND ÞEGAR I>1 Al'G- LYSIR j MORGINBLADIM Med Sissí (Elísabetu keisarafrú Austurríkis) varð Romy kornung fræg kvikmyndastjarna. Úr því urðu 8 vinsælar myndir. Það tók hana 10 ár að losna við ímynd Sissíar, sem festist við leikkonuna. Karl Heins Böhn, sonur hljómsveitarstjórans, lék Frans Jósep keisara. Kvikmyndaleikkonan Romy Schneider látin 43ja ára gömul Romy Schneider reyndi að vinna til að gleyma. Hún var á sífelldum flótta. Flutti með Söru milli hótela og vina, skipti 28 sinn- um um aðsetur. En hún hafði loks keypt sér nýtt hús í þorpi utan við París, þar sem hún hugðist ala upp Söru litlu, þegar hún hvarf frá þessu lífi. Hún sagðist ætla að vinna mikið, ekki þó 3 myndir á ári eins og oft áður. Síðasta kvikmyndin Kvikmyndin, sem Romy Schneider byrjaði að leika í strax eftir lát sonar síns, er gerð eftir sögu Josep Kessels, sem hún hafði lesið og í það skipti valið sér sjálf efnið og óskað eftir að fá að túlka hlutverkið. Hún hafði fengið leik- stjórann Jacques Roufio til að gera myndina og hún var byrjuð á henni áður en hún veiktist og áður en David dó. Nú kastaði hún sér út í vinnuna. Til þess þurfti hún að fara til Berlínar, fæðingarstaðar Davids, þar sem hún hafði búið með föður hans og þar sem hún varð nú að leika á móti dreng á hans aldri. Vofurnar eru alls stað- ar og á hverju kvöldi eftir vinnu sótti óttinn að, óttinn við að vera ein og geta ekki sofið. En henni tókst að ljúka myndinni. Hún hafði Söru litlu hjá sér, sagðist aldrei framar ætla að skilja að starf sitt og einkalíf. Og vinirnir segja það útilokað, að hún hafi ætlað að stytta sér aldur, svo ákveðin sem hún hafi verið í að helga sig Söru og uppeldi hennar. Þegar þessi síðasta kvikmynd var komin á tjaldið og mikið sótt, hvarf leikkonan Romy Schneider úr þessum heimi, á jafn hörmu- legan hátt og söguhetjan Elsa Wiener, sem varð fyrir barðinu á nasistum um 1930. í myndinni leikur Romy tvær konur, Elsu og Línu Baumstein. Myndin hefst þegar þekktur friðarsinni kemur til að flytja fyrirlestur og með honum ung kona hans, Lína. Þeg- ar hann sem sendiherra Suður- Ameríkulands þekkir aftur nas- istaforingjann sem myrt hafði og svikið fólkið sem bjargað hafði honum sem litlum gyðingadreng, styttir hann líf þessa manns, sem lifir enn svo vel. Elsa Wiener hafði flúið til Parísar með vega- lausan gyðingadrenginn eftir að foreldrar hans voru drepnir, til að bíða þar manns síns. En nasist- arnir ná honum og hún lætur allt til að bjarga honum, semur við nasistaforingjann, sem síðan drepur þau bæði. Þetta var síðasta mynd Romy Schneider, sem ef- laust á eftir að sýna hér síðar. Sjálf sagði hún skömmu áður en hún dó: „Hver getur útskýrt það fyrir mér, hvers vegna lífið er svo mis- kunnarlaust? Þegar slysið varð, þá hefði ég vel getað sagt að „La Passante de Sans-Souci“ yrði mín síðasta mynd, en þá hefði fólk strax slegiö því föstu, að ég ætlaði að kasta mér út um gluggann dag- inn eftir að kvikmyndun yrði lok- ið.“ Það var alls ekki ætlun henn- ar, því hún hafði undirritað samn- ing um nýja kvikmynd, þar sem hún léki aftur á moti Alain Delon, og hún talaði um að fara aftur að leika á sviði, e.t.v. Mutter Courage eftir Brecht eða Heilaga Jóhönnu. Slíkt verður ekki. 43 ár og 60 kvikmyndir verða að duga. (E.Pá. tók saman úr frönskum blöðum.) í seinni myndum sínum, eins og þeirri sem nú á að fara að sýna í Regnboganum, Madame Emma, var Romy glæsikonan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.