Morgunblaðið - 04.07.1982, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ1982
25
Tímarit í uppgangi
Frelsið 2. árgangur 1981.
Félag frjálshyggjumanna.
Nú í vetur kom út þriðja hefti
annars árgangs af tímariti frjáls-
hyggjumanna, Frelsinu. Þá er lok-
ið útgáfu annars árgangs og
ástæða til að hyggja að þessum
árgangi. Útlit tímaritsins er jafn-
glæsilegt sem fyrr, pappírinn
"ijög góður, efnisskipan með svip-
uðum hætti og árið áður, með mik-
ilvægu fráviki þó. Stærðin á
hverju hefti er þægileg, lesmálið
vel upp sett, og það á við um flest
efni, sem birtist í tímaritinu, að
það er skýrt og ljóst, vel stílað, og
ætti ekki að vera neinum manni
ofraun að gera sér þess ljósa
grein, hvað höfundarnir eru að
fara.
I þessum árgangi skipar ís-
lenzkt efni mikið rúm. I fyrsta
heftinu eru 7 ítarlegar greinar um
frjálshyggjurit á íslenzku. Matthí-
as Johannessen ritar um bók Ólafs
Björnssonar Frjálshyggja og alræð-
ishyggja, Davíð Oddsson um
greinasafnið Sjálfstæðisstefnan,
Jónas H. Haralz um Uppreisn
frjálshyggjunnar, Gísli Jónsson um
bókina Frelsisbaráttan í Ráðstjórn-
arríkjunum, Ólafur Björnsson um
Leiðina til ánauðar eftir Hayek,
Davíð Ólafsson um greinasafn
Birgis Kjaran, Til varnar frelsinu,
og Hannes H. Gissurarson ritar
um Hugmyndir ungra manna, sem
nokkrir ungir menn í Sjálfstæðis-
flokknum skrifuðu.
Matthías Johannessen vitnar í
þann leyndardóm, sem Tómas
Guðmundsson orðar svo, „hvað
heilbrigt fólk getur af fúsu geði
lagt mikið í sölurnar fyrir jafn
einfaldan hlut og þann — að mega
lifa eins og manneskja". Þetta er
takmark allrar frjálshyggju. En
það er rétt að hyggja ögn að því,
hvað felst í þessu takmarki. Að
mega lifa eins og manneskja getur
vart merkt annað en að fá að lifa
óáreittur, eins og hvern og einn
langar til, eins og hann vill. Og til
þess að geta lifað lífinu með þeim
hætti, þurfa einstaklingarnir fyrst
af öllu frelsi. Þess vegna er frelsi
mikilvægustu gæði í mannlegu fé-
lagi og eru forsenda alls annars,
sem menn njóta þar. Ef það er
ekki fyrir hendi, verða önnur gæði
hjóm eitt, mannfólkið þrælar,
hversu stríðalið, sem það kann að
vera.
Helzta áhyggjuefni frjálslyndra
manna á síðari árum hefur verið
aukning hlutdeildar ríkisvaldsins
í fjármálum vestrænna þjóða.
Jónas H. Haralz fjallar um þetta í
grein sinni. En það eru fleiri en
hann, sem orða þetta. Það má með
nokkrum sanni segja að F.A. Hay-
ek hafi leitazt við að sýna fram á
það í Leiðinni til ánauðar, að þjóð-
nýting framleiðslutækjanna, sem
hlýtur að verða afleiðing þessara
auknu þátttöku ríkisvaldsins í
fjármálum og atvinnulífi, stuðli að
Bókmenntir
Guömundur Heiðar
Frímannsson
samfélagi, sem sé í grundvallar-
atriðum andstætt frelsi. Ólafur
Björnsson reynir að svara því,
hvort boðskapur Hayeks eigi enn
við rök að styðjast og svarar því
þannig, að hvorki fræðimenn né
reynslan hafi leitt nokkuð í ljós,
sem dragi úr gildi hans. Andófs-
menn í Ráðstjórnarríkjunum eru
lýsandi dæmi um, hvernig fer, ef
menn fá ekki að njóta frelsis. Þótt
undarlegt megi virðast, þá sýnist
svo, sem Kommúnist.aflokkur ís-
lands og síðar Sósíalista-
flokkurinn hafi verið áhrifamestu
stjórnmálaflokkar í landinu á
þessari öld, ef tekið er mið af
stefnuskrám flokkanna, jafnvel
þótt þeir hafi aldrei notið verulegs
fyigis. Hannes Hólmsteinn rekur
rökin, sem hniga til þessarar skoð-
unar, þegar hann fjallar um
Hugmyndir ungra manna, og þarf
engan að undra, að sumum finnist
kominn tími til að spyrna við fót-
um.
Þriðja hefti Frelsisins fjallar,
eins og það fyrsta, um íslenzkt
efni. Þar er þýðing á grein Davids
Friedman um lagasetningu og
réttarvörzlu í íslenzka þjóðveld-
inu. Hugmyndin hjá Friedman er
sú, að æskilegt sé, að einstakl-
ingar taki að sér í sem mestum
mæli þá starfsemi, sem verið hef-
ur á hendi rikisins. Þessa skoðun
hefur hann rökstutt í bókinni The
Machinery of Freedom með ein-
dregnari hætti en tíðkast. Dæmi
um slíka starfsemi er réttar-
varzla. Nú um stundir er hún að
mestu í höndum ríkisins, en til
forna var hún hér á landi í hönd-
um einstaklinga. Friedman athug-
ar, hvernig þetta réttarkerfi hafi
gengið og leitast við að svara þeim
spurningum, sem óhjákvæmilega
vakna við athugun á borð við
þessa. Hannes H. Gissurarson
rekur umræður um lýðræði, sem
urðu hér á árunum 1924—1927,
þegar nokkrir mætir menn efuð-
ust um gildi þess og fundu ýmis
skarpleg rök gegn þeirri skipan.
Hannes felst á sum þeirra, en tel-
ur lýðræðið þrátt fyrir allt skásta
kostinn, en það þurfi að setja al-
mannavaldinu ströng takmörk.
Friðrik Friðriksson rekur sögu
Hayeks á íslandi frá því Ólafur
Björnsson þýddi þrjár greinar,
sem voru útdráttur úr bók Hayeks
Leiðin til ánauðar í Morgunblað-
inu árið 1945 og þar til Hayek kom
hingað til lands árið 1980. Þýðing
Ólafs olli nokkrum deilum, þegar
hún kom út. Þá var Sjálfstæðis-
flokkurinn í stjórnarsamvinnu við
Sósíalistaflokkinn. Þjóðviljinn leit
á þessar þýðingar og birtingu
þeirra sem árás á stjórnarsam-
vinnuna. í honum segir: „Það má
Ný plata Björgvins:
Á hverju kvöldi
Á HVERJU kvöldi heitir þriðja sóló-
plata Björgvins Halldórssonar þar sem
hann blandar saman bæði eldfjörug-
um og dreymandi lögum, en platan var
tekin upp i London i samvinnu við
brezka tónlistarmcnn og upptökustjór-
ann Geoff Calver. Björgvin er um það
bil að leggja af stað í hringferð um
landið með nýrri hljómsveit og „Úllen
dúllen dofr*, en siðan liggur fyrir löng
tónlistarferð um Sovétríkin. A hverju
kvöldi Björgvins Halldórssonar er sú
plata hans að sögn útgefanda Fálkans,
sem mest hefur verið vandað til.
Björgvin fór vel útbúinn í upptök-
urnar með tromp frá flestum okkar
bestu lagasmiðum, eins og Gunnari
Þórðarsyni, Jóhanni Helgasyni, Jó-
hanni G. Jóhannssyni og Magnúsi
Sigmundssyni. Auk þess var hann
með fjögur erlend lög sem hann lét
gera íslenska texta við.
Eins og sjá má á laga- og texta-
höfundum var ekki hastað í lagavali
og aðeins valið „besta fóður" eins og
þar stendur. Tónlistarmennirnir
sem hjálpa til á plötunni eru allir
enskir. Mike Macnaught lék á
hljómborð og söng í vocoder auk
þess að hánn gerði flestar útsetn-
ingarnar, Louis Jardin lék á bassa-
gítar, slagverk og prophet, sequenc-
er og linn. Stuart Elliot þekkja ein-
hverjir út 10 CC og Pilot til dæmis
en hann lék á trommur. Ray Russell
er gamalreyndur og góður gítarleik-
ari sem hefur víða komið við sögu á
undanförnum 20 árum í enska popp-
inu og jazzinum. Og þeir Stan
Sulzman, tenórsax og Derek Watk-
in, flúgel-horn, eru mjög eftirsóttir
blásarar í jazzinum og hafa leikið
með flestum nafntoguðum jazzist-
um í Bretlandi. Ken Freeman sér
síðan um strengi og hljómborð.
vel vera, að Morgunblaðið hafi
ekki áttað sig á þessari lymsku-
legu árás á stefnu ríkisstjórnar-
innar, þegar henni var lætt inn á
síður þess.“ Blaðið fer síðan óbeint
fram á, að frekara framhald verði
ekki á skrifum af þessu tæi. Sá,
sem andmælti Ólafi af hvað skyn-
samlegustu viti á þessum tíma,
var Jónas H. Haralz. Það er lær-
dómsríkt að sjá, hvað Jónas hefur
haft að segja um frjálshyggjuna á
þessum tíma. Hann segir um lýð-
ræðið og séreignarskipulagið á
einum stað: „Stjórnmálalegt lýð-
ræði hlýtur fyrr en seinna að leiða
til þess, að hinar fjölmennu stéttir
þjóðfélagsins, sem í séreignar-
skipulagi hafa ekki nein áhrif á
rekstur atvinnufyrirtækjanna,
krefjist íhlutunar á þessu sviði til
að geta öðlast tryggingu fyrir at-
vinnu sinni og afkomu. Þá verður
annaðhvort að víkja, séreignar-
skipulagið eða lýðræðið." Ólafur
svaraði ádeilu Jónasar og benti á
meðal annars, að miðstýrða hag-
kerfið, sem Jónas taldi, að væri á
næsta leiti, leiddi til kúgunar og
frelsissviptingar, en séreignar-
skipulagið hins vegar ekki. Hér
verða þessi skoðanaskipti ekki
rakin frekar, en mönnum ráðlagt
að verða sér út um tímaritið til að
skoða þau frekar.
Birgir ísleifur Gunnarsson segir
frá því, er hann og fleiri ungir
menn stóðu fyrir fundum gegn
ófrelsi og kommúnisma á sjötta
áratugnum. Ragnar Ingimarsson
fjallar um varnarmál íslendinga,
og Halldór Guðjónsson gerir at-
hugasemdir við stærðfræðilega
framsetningu Ragnars Árnasonar
á hagfræðilíkani fyrir starfsemi
lífeyrissjóða. Hannes Hólmsteinn
segir frá þingi Mont Pélerin-sam-
takanna, sem haldið var í Stokk-
hólmi um mánaðamótin ágúst-
september í fyrra.
Til viðbótar þessu, sem þegar
hefur verið talið, eru í fyrsta og
riðja heftinu bókadómar og þátt-
urinn Fréttir úr hugmyndabarátt-
unni.
Annað hefti tímaritsins er
frábrugðið öðrum, sem hafa verið
gefin út. Það ber heitið Vopnabúr-
ið í hugmyndabaráttunni og er
bókalisti frá upphafi til enda, listi
yfir bækur, sem fjalla um frjáls-
hyggju eða beita sjónarmiðum
hennar i glímu við hinar margvís-
legustu spurningar. Það má taka
svo til orða, að þetta sé nytsam-
asta heftið, sem komið hefur út
fram að þessu, því að það kemur
að ómetanlegum notum, þegar og
ef menn vilja kynnast viðhorfum
f rj álshyggj umanna.
Eitt einkenni á stjórnmálaum-
ræðu síöustu ára er viðreisn við-
horfa frjálshyggjunnar. Hún hafði
ekki átt upp á pallborðið um nokk-
urt skeið, og einhvern veginn var
eins og borgaralegir menn hirtu
ekki um að koma viðhorfum sínum
nægilega vel til skila. Á þessu hef-
ur orðið breyting og er Frelsið
bezta dæmið um það i þessu landi.
Davíð Oddsson orðar þetta svo í 1.
hefti Frelsisins: „Það hefur stund-
um verið að því fundið að lýðræð-
issinnum og borgaralegum öflum
sé ekki sýnt um að kynna málstað
sinn og verði undir í því óstöðv-
andi flóði af hvers konar vaðli,
sem einmitt er rakinn til gamla
Marx, reyndar stundum allt að því
honum að ósekju. Stundum þarf
ekki nema einn drifkraft til að
snúa slíku dæmi við. Og það er
ekki laust við, að menn hafi þóst
finna fyrir slíkri driffjöður, vel
spenntri, á siðustu árum. Og er
það vel.“
Ánægjulegur
sunnudagur í
.j Hðm k.
Við viljum minna ykkur á að útigrillið hjá okkun
er f fullum gangi. Njótið góðs matar i' tæru
hreinu lofti og fallegu umhverfi.
Sértilboðin
stórgóðu:
Innifaliö kvöldveröur — morgun-
veröur — hádegisveröur og aö
sjálfsögöu gisting 390 kr. per
mann.
Gildir mánud., þriöjudag og miö-
vikud.
Á staðnum er:
Gufubað — sólaríum —
líkamsræktaraöstaöa — nudd
(sértímar) — minigolf — báta-
leiga — sjónvarp — video.
Sætaferðir
með Ingvari
Sigurðssyni
frá BSÍ ki. 2.
JONAS
ÞÓRIR
leikur kl. 3 í dag og
kl. 8 í kvöld.
Ath. Viö hugsum um börnin og
höfum sérstakan barnaleikvöll.
Hugsaöu máliö, þú sórö ekki eftir
degi í Valhöll.
Slökum á. Sérstak-
ur nuddari veröur á
staönum, alla daga.
Aöeins fyrir hótel-
gesti.
Sími 99-4080.