Morgunblaðið - 04.07.1982, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 04.07.1982, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ1982 37 Securitas veitt undanþága til hundahalds vegna eignavörzlu BORGARSTJÓRN samþykkti á fundi sínum i fyrrakvöld aö veita fyrirtækinu Securitas, sem annast eignavörzlu á höfuðborgarsvæðinu, undanþágu frá reglum um hunda- hald til reynslu i eitt ár. Samkvæmt umsókn fyrirtækisins, hyggst það nota varðhund við eignavörslu á at- hafnasvæðum Hafskips i Norður- mýri og við höfnina. Snarpar umræð- ur urðu um málið í borgarstjórn, en þar var það tekið upp eftir að erindið hafði verið fellt í borgarráði sl. þriðjudag. Davíð Oddsson borgarstjóri lagði til við borgarstjórn að Securitas yrði veitt undanþága frá banni við hundahaldi til reynslu í eitt ár. I borgarráði fékk erindið stuðning Alberts Guðmundssonar og Ingibjargar Rafnar, gegn at- kvæðum Öddu Báru Sigfúsdóttur og Guðrúnar Jónsdóttur, en Magnús L. Sveinsson sat hjá. Þorbjörn Broddason sagði óvenjulegan hroka í garð borgaryfirvalda koma fram í um- sókn Securitas, og hvatti til þess að goldinn yrði varhugur við er- indum þessa fyrirtækis í framtíð- inni. Hann kvað forstöðumenn Securitas menn ósjálfráða í orð- um, og því mætti e.t.v gera ráð fyrir að það væru þeir til æðis líka. Hann kvaðst vantreysta þeim til að hafa hunda á aðeins afmörk- MARKVISS SKYNDIHJALP VIÐ MEÐVITUNDARLAUSA ef hann andar og hinni um hokuna Hökunni er sfðan ýtt fram og höfuðið sveigt eins langt aftur og unnt er Við það lyftist tungan fram og öndunarvegur- inn opnast Hlustið siðan meö eyrað fast við nef og munn hins meðvitundar- lausa Athugið hvort hmn slas- aði er meðvitundarlaus - talið við hann - ýtið við honum Athugið hvort hinn með- vitundarlausi andar með þvi að hlusta eftir andar- drættinum eða leggja aðra höndina á brjóst- kassann og fmna hvort hendurnar hreyfast fyrir áhnf andardráttarms Ondunarvegurinn er opnaður með þvl að taka annarri hendi um ennið beitið blástursaðferðmni uðum svæðum, og sagði hunda vopn í höndum Securitas, rétt eins og kylfur, táragas og skotvopn væru vopn í höndum þeirra, sem slík tól hefðu undir höndum. Hann sagði að allt eins mætti búast við að fyrirtækið teldi sig þurfa skotvopn vegna öryggis annarra eftir 1—2 ár með sama áfram- haldi. Þorbjörn kvaðst mótmæla því að einhverjum aðila væru falin völd til að siga hundum á fólk. Hann sagði að samþykkt erindis- ins yrði ávísun á aukið ofbeldi. Hér væri um að ræða hundakyn sem étið hefði börn og menn í öðr- um löndum, og yrði að ganga út frá því að slíkt gæti allt eins gerst hér. Sagði Þorbjörn engar reglur til um hvernig þessum hundum yrði haldið, og vildi hann koma í veg fyrir að menn yrðu fyrir árás- um hunda yfir höfuð. Þorbjörn sagðist hafa fyrir því heimildir að fyrirtækið hefði haft hund við sín störf frá í vetur, því væru þessir menn lögbrjótar, og því ekki hætis hót merkilegri en aðrir lögbrjótar. Þorbjörn Broddason dró í efa að almenn öryggisgæzla ætti að vera í höndum einkaaðila, og spurði að því hvers vegna þessir sjálfkjörnu löggæzlumenn, eins og hann nefndi starfsmenn Securitas, þyrftu hunda meðan hin almenna löggæzla, lögreglan, þyrfti þeirra ekki við. Davíð Oddsson sagði Securitas ekki hafa leyfi til löggæzlu, og ef starfsmenn fyrirtækisins yrðu varir mannaferða á eftirlitssvæð- um sínum bæri þeim að gera lög- reglu viðvart, þeir hefðu ekki heimild til aðgerða sjálfir. Því væri ekki um það að ræða að veita fyrirtækinu leyfi til að siga hundi á fólk, hundarnir væru til þess að vernda gæzlumannin fyrir því að fyrir honum væri setið, hundar skynjuðu úr mikilli fjarlægð ef eitthvað óeðlilegt væri á seiði inn- an gæzlusvæðisins, og gætu því komið í veg fyrir að öryggisvörður rati í aðstæður, sem reynzt gætu honum hættulegar. Jafnframt sagði Davíð, að á síð- asta kjörtímabili hefðu tvær und- anþágur frá hundahaldi verið veittar, önnur til Tollvörugeymsl- unnar, og hin til Hjálparsveitar skáta. Hér væri því ekki um hættulegt fordæmi að ræða. Guðrún Jónsdóttir kvaðst hafa greitt erindinu mótatkvæði þar sem henni fyndist ekki koma fram nógu mikil rök með nauðsyn hunds í bréfi fyrirtækisins. Öryggi varðanna mætti leysa með þvi að hafa tvo verði í einu saman á þeim svæðum, sem ætlunin væri að láta hundinn leysa manninn af hólmi. Ingibjörg Rafnar sagði það sjálfsagðan rétt borgaranna að verja eigur sínar með löglegum aðgerðum. Hægt væri að fá þjón- ustu lögreglunnar gegn greiðslum, en mannafli lögreglunnar væri slíkur að hún gæti ekki sinnt störfum af þessu tagi. Tillaga borgarstjóra um undan- þágu til reynslu í eitt ár var sam- þykkt með atkvæðum borgarfull- trúa Sjálfstæðisflokksins og at- kvæði Jósteins Kristjánssonar fulltrúa Framsóknarflokksins, gegn atkvæðum borgarfulltrúa Alþýðubandalags, Alþýðuflokks, Kvennaframboðs og atkvæði Gerðar Steinþórsdóttur borgar- fulltrúa Framsóknarflokksins. „Ég fagna þessum málalokum. Hundar skapa okkar mönnum mikið öryggi á þessum tilteknu svæðum og við erum staðráðnir í að sýna fram á, að þessir hundar eru hinum almenna borgara hættulausir," sagði Jóhann Óli Guðmundsson, framkvæmdastjóri Securitas, í samtali við Mbl. Námskeið í skyndi- hjálp í Kópavogi Rauða-krossdeild Kópavogs gef- að veita sem mesta verklega ur bæjarbúum og öðrum sem hafa þjálfun með raunhæfum verk- áhuga kost á námskeiði í almennri efnum. Einnig verða sýndar kvikmyndir um blásturs- aðferðina og áhrif kulda á skyndihjálp Námskeiðið verður í Víghóla skóla og hefst miðvikudaginn 7. mannslíkamann. júlí kl. 20.00. Það verður 5 kvöld, samtals 12 tímar. Þátttaka til- Þess má geta að námskeiðinu kynnist í síma 41382 kl. 19—21 lýkur með verkefni sem er hægt þann 6. júlí Á námskeiðinu verður reynt og iðnskólum. Bretland: að fá metið í fjölbrautaskólum Tilvinaog kunningja í KÁNADA J 23. júlí - 5. ágúst. Tveggja vikna ferð í beinu leiguflugi til Winnipeg. íslendingadagur- inn í Gimli 2. ágúst með tilheyrandi hátíðarhöldum. Leiguflugið lækkar verðið! Enn boðað verkfali hjá járnbrautunum I/ondon, 1. júlí. AP. NÝ VERKFÖLL hjá bresku járn brautunum eru nú yfirvofandi og að þessu sinni eru það lestarstjórar, sem hóta ótímabundinni vinnustöðv- un frá miðnætti aðfaranótt sunnu- Borgarstjórn: Varamaður í útgerðar- ráðileystur frá starfi BORGARSTJÓRN Reykjavíkur féllst á það á fundi sínum sl. fimmtudagskvöld að verða við ósk Stellu Stefánsdóttur og veita henni lausn frá starfi varamanns í útgerð- arráði. Stella var kosin varamaður í útgerðarráð af V-lista. Jafnframt samþykkti borgar- stjórn tillögu Guðrúnar Jónsdótt- ur borgarfulltrúa Kvennafram- boðsins um að Guðbjörg Benja- mínsdóttir yrði kjörinn varamað- ur í stað Stellu. dags. Margaret Thatcher, forsætis- ráðherra, skoraði í dag á lest- arstjórana að íhuga afieiðingarnar af verkfallinu fyrir þjóðina en ef af verður er það i annað sinn á fimm dögum, að allar járnbrautasamgöng- ur leggjast af í Bretlandi. Deila lestarstjóranna við stjórnvöld snýst ekki eingöngu um launakjör heldur einnig um þá ákvörðun stjórnar járnbrautanna að breyta vinnutilhögun og draga nokkuð úr þjónustunni en lestar- stjórar segja, að það muni hafa uppsagnir í för með sér. Formaður félags þeirra kvaðst í dag hafa fram að færa „athyglisverðar til- lögur" í deilunni en fulltrúi stjórn- arinnar sagði, að ekki yrði sest að samningaborði fyrr en verkfallinu hefði verið aflýst. Embættismenn segja, að ný stöðvun ríkisjárnbrautanna gæti haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir þær. Árlegt tap á þeim nemur um 3630 milljónum kr. ísl. þrátt fyrir opinbert framlag upp á nærri 15 milljarða kr. Michael Foot, leið- togi Verkamannaflokksins, sagði á þingi í dag, að enn eitt verkfallið hjá járnbrautunum myndi hafa „skelfilegar afleiðingar fyrir járnbrautirnar og landið allt“ og skoraði á Thatcher að gera hvað hún.gæti til að leysa deiluna. 2 BÆNDAFERÐ Skipulögð af Agnari Guðnasyni Við efnum til sérstakrar bændaferðar um Kanada í tengslum við Winnipegflugið 23. júlí - 5. ágúst. Víða verður komið við á búgörðum og öðrum athyglisverðum stöðum fyrir landbúnaðarfólk og að sjálf- sögðu farið á íslendingadaginn. 3 HÓPFERÐ í SAMVINNU VIÐ ÞJÓÐRÆKNISFÉLÖGIN 26. júlí -16. ágúst. Stórglæsileg hópferð sem skipulögð er í samvinnu við þjóðræknis- félögin. Flogið er Toronto og síðan áfram til Winnipeg og Calgary, en á öllum þessum stöðum er dvalist í nokkra daga og efnt til ýmissa ferða um gamalgróin íslendingahéruð, auk þess sem ekið er um gullfallegt landslag Kanada yfir til Klettafjallanna og víðar. íslendingadagurinn í Gimli, opnun „STEPHAN G. STEPHANSEN HÚSSINS” o.m.fl. Flug, gisting, rútuferðir og íslensk fararstjórn á einu heildarverði. Þetta er ferð sem lengi verður í minnum höfð. Aðeins örfá sæti laus , „ -Alvnar-bað er 09 Þú heldur’. Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.