Morgunblaðið - 04.07.1982, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ1982
31
Frönsk kvikmynda-
vika í Tjarnarbíó
Kvikmyndir
Ólafur M. Jóhannesson
Le Train nafn á frummáli.
Leikstjórn: Pierre Granier-
Deferre.
Handrit: Pierre Granier-Deferre
og Pascal Jardin eftir skáldsögu
Georges Simenon.
Sýningarstaður: Tjarnarbíó.
Lofsvert framtak hjá þeim
fjalaköttum að efna til franskr-
ar kvikmyndaviku mitt í þeirri
hryllingsmyndaótíð sem nú
hrjáir kvikmyndahús borgarinn-
ar. Kvikmyndahátíðin í Tjarn-
arbíói ber vott um bjartsýni og
víðsýni. Að vísu háir það nokkuð
þeim myndum sem þarna eru
sýndar að ekki fylgir íslenskur
skýringartexti, það er ekki víst
að allir skilji enskan skýringar-
texta. Þá hefðu myndirnar mátt
véra fleiri en þær eru jafn marg-
ar virkum dögum eða fimm tals-
ins. Verða nú fjórar þeirra
nefndar en í lok greinar litið ögn
nánar á þá fimmtu.
Le dernier Millardaire er létt
gamanmynd frá 1934 gerð af
René Clair. L’Adolescente er gerð
árið 1978 af hinni frægu leik-
konu Jeanne Moreau og fjallar
um gelgjuskeiðið margumrædda.
Guerre des Police (1979) flokkast
sem hasarmynd. Um mynd fjög-
ur, Le Crabe, sem Pierre Schoen-
doerffer lauk við árið 1977 er
best að hafa sem fæst lýsingar-
orð en snúa sér að frumsýn-
ingarmyndinni Le Train sem
Pierre Granier-Deferre leik-
stýrði árið 1973 samkvæmt
handriti er hann samdi í sam-
vinnu við Pascal Jardin eftir
skáldsögu Georges Simenon.
Iæ Train eða Lestin gerist á
þeirri örlagastundu franskrar
sögu er Þjóðverjar gera innrás í
landið — nánar tiltekið árið
1940. Lýsir myndin flótta út-
varpsvirkja nokkurs sem kemst
við illan leik upp í lest sem er á
leið til Parísar. Vegna þrengsla í
lestinni neyðist útvarpsvirkinn
að skilja eftir konu sína kas-
ólétta á fyrsta farrými en sjálfur
lendir hann í gripavagni með
hálfgerðum rustamennum. Þó er
ágætis fólk inn á milli í vagnin-
um, þar á meðal tíguleg þýsk
gyðingastúlka sem ferðast undir
fölsku nafni. Stúlka þessi sem
leikin er af hinni nýlátnu Romy
Schneider er eins og áður sagði
tíguleg og svo fer að klassísk
fegurð hennar heillar útvarps-
virkjann og hann gleymir ger-
samlega kasóléttri eiginkonunni.
En ástin er stutt en hjónabandið
langt og svo fer að lokum að út-
varpsvirkinn hverfur aftur til
eiginkonunnar og lítils drengs
sem nú hefir bæst við fjölskyld-
una. Ástin er læst niður í skúffu
og feilsporið verður eitt af best
geymdu sameiginlegu leyndar-
málum fjölskyldunnar. Útvarps-
Úr myndinni L’adolescente: Sim-
one Signoret til vinstri.
virkinn er sem sagt aftur kom-
inn til starfa þægur og stilltur
rétt eins og láglaunamennirnir
innan ASI.
En Le Train lýsir ekki aðeins
óvæntu ástarævintýri veluppal-
ins útvarpsvirkja. Myndin gerist
í síðari heimsstyrjöldinni og ber
öll merki stríðsádeilu. Við fáum
að fylgjast með áhrifum stríðs á
hinn almenna borgara þar sem
við fylgjum örlögum flótta-
mannanna í járnbrautarvagnin-
um. Fólkið kemst ekki út úr
vagninum og neyðist því til að
semja frið við næsta nágranna
jafnvel þótt sá sé af gerólíkri
þjóðfélagsstétt. Höfundur þess
texta sem myndin byggir á,
Georges Simenon, er hér að
venju að velta fyrir sér viðbrögð-
um venjulegra mannvera við
óvenjulegum aðstæðum, í þessu
tilviki stríði. Hvernig bregst
hinn venjulegi borgari við því að
missa skyndilega samband við
fjölskyldu sína en neyðast þess í
stað að eiga samskipti við mann-
eskjur sem hann venjulega
sneiðir hjá? Texti Simenon vek-
ur þessa og ótal fleiri spurningar
— svarar reyndar sumum. í það
minnsta er þar tekin ákveðin af-
staða til stríðs! Stríð á aldrei
rétt á sér,“ segir Simenon. „Það
vekur upp morðæði sem bitnar
fyrst og fremst á hinum al-
menna borgara."
I einu áhrifamesta atriði
myndarinnar, þar sem þýsk
flugvél steypir sér yfir farþega-
lestina ælandi byssukúlum,
kristallast þessi hugsun, eða
hver var tilgangurinn með að
skjóta á farþegalest sem ber-
sýnilega var yfirfull af flótta-
fólki og hver er í rauninni mun-
urinn á nazistanum, sem lætur
þannig byssukúlur dynja á far-
þegalest, og starfsbróður hans,
sem í gær lét sprengjuregn
dynja á íbúðarhverfum Beirút-
borgar? Ég held að þessum
spurningum verði best svarað
með tilvitnun í Macbeth en þar
segir: Blóð krefst blóðs. Hér er
Shakespeare að lýsa þeim sjúk-
dómi sem nefndur er stríð og
virðist heltaka þátttakendur
hvort sem þeir telja sig „Guðs
útvalda" eða nefna sig „Hinn
hreina kynstofn“.
Grenivík:
Súlan hefur
bjargað frysti-
hússvinnunni
„Hér um slóðir hefur verið mikill
þurrkur,” sagði Vigdís Kjartansdóttir,
fréttaritari Mbl. á Grenivík, „en það
hefur ekki komið dropi úr lofti hátt á
annan mánuð. Fram undir miðjan
mánuð var talsverður kuldi en eftir
þann 17. fór að hlýna og hefur hitinn
komist í 18 stig um miðjan daginn.
Spretta er léleg og ég veit ekki til að
það sé nokkurstaðar farið að slá.
Það hefur aflast lítið upp á síð-
kastið, en segja má að Súlan frá
Akureyri hafi bjargað frystihúss-
vinnunni hér. Hún er nýbúin að
landa 100 tonnum. Báðir bátarnir
okkar hættu veiðum um mánaða-
mótin vegna þorskveiðibannsins.
Þeir hafa ekki einu sinni fyrir olíu-
kostnaði með línuveiðinni."
Um síðustu helgi komst Sigríður
Sverrisdóttir formaður Kvenfélags-
ins í hreppsnefnd. Hún er fyrsti
kvenmaðurinn sem þar situr frá
upphafi, enda skörungur til verka.“
(Mj MOTOftOLA
' MICOM 100
100 watta SSB-bílatalstööin
Krístinn Gunnarsson & Co.
Grandagaröi 7, Reykjavík. Símar 21811 og 11228.
Véladeild
Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavík Sími 38900
VEL HANNAÐAR — STERKAR
SÝNINGARVÉLAR Á STAÐNUM
Kynnið ykkur verð og skilmála.
lii FAI
TRAKTORSGRÖFUR
4ra hjóla drifnar til á lager