Morgunblaðið - 04.07.1982, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 04.07.1982, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ1982 41 Gagnfræðaskóla Akureyrar slitið ham Lincoln og Thomas Jeffer- son borðuðu ekki Quiche, Jimmy Carter og Jerry Brown borða Quiche og Alexander Haig nart- ar í Quiche þegar enginn sér til. Sannir karlmenn nenna að horfa endalaust á Clint Eastwood en myndu aldrei fara að sjá Jill Clayburg reyna að finna sjálfan sig í Unmarried Woman. Þeir klæðast Levi-Strauss gallabux- um en ekki buxum merktum Calvin, Yves eða Clovis. Þeir myndu frekar vinna á Aski en Horninu. Varasalvi, hreinsi- tyggjo eða miðar á operuna myndu aldrei finnast í vasa sannra karlmanna. Þeir eru þó sjarmerandi, upplýstir og skiln- ingsríkir, alla vega þangað til þeir hafa kynnst konu nógu vel til að halda að þeir hafi hana í vasanum. Russell Baker, dálkahöfundur New York Times, og stjórnendur fréttaþáttarins All Things Considered hjá NPR-útvarps- stöðinni hafa fallið fyrir bókinni um sanna karlmenn. Hlustendur hafa sent þættinum hugmyndir um alvöru fólk. Dæmi um sanna konu er td. kona á stutterma- blússu um miðjan vetur í al- menningsþvottahúsi norður í Maine. Dæmi um sannan karl- mann er maður sem hikar ekki við að borða Quiche ef honum þykir það gott. Og dæmi um al- vöru fólk er fólk, sem fellur ekki fyrir bók um menn sem borða ekki Quiche. En þótt viss hreyfing sé komin af stað gegn hálfgerðu Evrópu- snobbi, skokki og sálgreiningu þá er ekki þar með sagt að séð sé fyrir endann á vinsældum þess. Þjóðin sem gaf heiminum tyggi- gúmmí flytur nú inn danskt tyggjú í silfurlitum pökkum ... í auglýsingum er höfðað til hinna vel stæðu og sagt: „Nú hafa ríkir eitthvað að japla á“ eða eitthvað í þeim dúr. Margir hafa fengið nóg og nenna ekki að standa í þessu fíngerða fínheita kapp- hlaupi lengur. Þeir viðurkenna að þeir vilji heldur fara á völlinn en til sálfræðings og þyki meira varið í poppkorn en í grasafæðu. Reagan hefur komist vel áfram án þess að falla fyrir tískufyr- irbrigðum. Hann er útaf fyrir sig sannur karlmaður. ab GAGNFRÆÐASKÓLA Akureyrar var slitið 28. maí. Innritaðir nem- endur voru alls 669, 457 í grunn- skóla og 212 í framhaldsskóla. Kennarar voru 67, fastakennarar 39 og stundakennarar 28. Yfirkennarar voru Bernharð Haraldsson í fram- haldsskóla og Magnús Aðalbjörns- son í grunnskóla, en brautastjórn í framhaldsdeildum önnuðust Mar- grét Pétursdóttir á heilbrigðissviði, Bernharð Haraldsson á uppeldis- sviði og Guðmundur Bárðarson á viðskiptasviði. 9 nemendur luku verslunarprófi hinu meira eftir 3 ára nám, og þar hlaut Sigríður Jóhannsdóttir hæstu einkunn, 8,2. 19 nemendur Ijúka fullgildu sjúkra- liðaprófi með starfsréttindum á þessu vori, 14 luku almennu verslun- arprófi og 7 prófi á uppeldissviði. Grunnskólaprón luku 157 nem- endur, og þar af fengu óskoraðan rétt til framhaldsskólanáms 132 eða 84%. Meðaltal stiga hjá nemendum GA á samræmdu grunnskólaprón var allmiklu hærra en landsmeðaltal i öllum prófgreinum og meðaltal meðalgilda hærra en í Reykjavik, þar sem árangur varð bestur í ein- stöku fræðsluumdæmi. Haustið 1981 fékk skólinn 4 tölv- ur ásamt viðeigandi búnaði til kennslu og notkunar við stjórnun. Einnig var tekin í notkun sér- kennslustofa viðskiptagreina, eink- um bókfærslu, vélreiknings og tölvu- fræði. Einnig voru keyptar 25 raf- eindareiknivélar, en fyrir voru 16 af eldri gerð. Þegar þess er gætt, að skólinn á einnig 16 IBM-kúluritvél- ar, telst hann allvel búinn tækjum til kennslu i verslunarfræðum. Kolbeinn Gíslason, 2.V, formaður nemendaráðs, Einar Jón Einarsson, l.V, Ólafur Árnason, 9.B, og Eiríkur Jóhannsson, 7.B, fengu verðlaun frá skólanum fyrir félagsstörf og Hólmfríður Þóroddsdóttir, 9.A, fyrir glæsilegan námsárangur. Böðvar Stefánsson, 2.V, fékk farandbikar frá Kaupmannafélagi Akureyrar fyrir hæstu samtölu einkunna á al- mennu verslunarprófi og bókaverð- laun fyrir hæstu einkunnir í verslun- argreinum. Sigriður Jóhannsdóttir fékk einnig bókaverðlaun frá sama félagi. Allmargir nemendur fengu bækur frá sendiráðum Danmerkur og Sambandslýðveldisins Þýska- lands fyrir kunnáttu í dönsku og þýsku. Hópur 50 ára gagnfræðinga var viðstaddur skólaslitin ásamt þretnur kennurum sinum, Hermanni Stef- ánssyni, Jóhanni Frímann og Stein- dóri Steindórssyni. Páll Helgason talaði fyrir hönd þessara fyrstu gagnfræðinga GA, sem gáfu skólan- um mynd af Konráð Vilhjálmssyni kennara, sem sr. Bolli Gústavsson teiknaði. — Einnig afhenti Páll 5000 króna gjöf frá frú Þorbjörgu Hall- dórs frá Höfnum, sem var eiginkona fyrsta skólastjórans, Sigfúss Hall- dórs frá Höfnum, og jafnframt í hópi fyrstu kennara skólans. Af hálfu 30 ára gagnfræðinga tal- aði Kristjana Svavarsdóttir og af- henti peningagjöf frá þeim. Björg Þórðardóttir var fulltrúi 20 ára gagnfræðinga og afhenti 5000 - krónur sem minningargjöf um þrjá látna bekkjarbræður, Guðmund Pál Jóhannesson, Guðmund Inga Ara- son og Gylfa Stefánsson. Kveðja barst frá 15 ára gagnfræð- ingum. Að lokum ávarpaði Sverrir Páls- son skólastjóri nemendur, minnti á ætlunarverk skólans fyrr og nú og óskaði brottfararnemendum gæfu og gengis. Tíbrá gefur út hljómplötu HLJÓMSVEITIN Tíbrá hefur nú sent frá sér fyrstu hljómplötu sína. Heitir hún „Svart í hvítu“ og á henni eru 6 frumsamin lög og textar eru ýmjst íslenskir eða enskir. Útgefandi hljómplötunnar er Dolbit sf. á Akranesi, sem einnig sér um dreifingu. Upptökur hófust i maí- byrjun og lauk um miðjan þann mánuð. Happdrætti Innri-Njarð- víkurkirkju Dregið hefur verið í leikfanga- happdrætti Systrafélags Innri- Njarðvíkurkirkju. Nokkrir vinningar eru ósóttir og komu þeir á eftirtalin númer: 1757, 354, 188, 69, 1831, 67, 1981, 2175, 1241, 1113, 1424, 282, 1141, 283, 888, 1268, 1336, 1118, 1617, 1055,54, 1140,612. (Birt án ábyrgóar.) AUGLÝSINCMSIMINN ER: 22480 iMargunblabib ■ ngar þig í ítölsk Þú færð þau hjá okkur. PREMIO LINEAD’QRO Dcsign & r Stvle "ú> Gullverðlaun fyrir hönnun og stíl HIJSGÖGN Langholtsvegi 111 R, símar 37010

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.