Morgunblaðið - 23.07.1982, Síða 7

Morgunblaðið - 23.07.1982, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ1982 39 HUSBUNADUR Sófinn er fré því um aldamót og skápurinn er u.þ.b. 100 áre. Postulíniö er hinsvegar ekki gamalt en framleitt í þessum gamla stíl. Mikilvægt að hafa mátu- legt rakastig í húsum, því ef hitinn er of mikill og þurr, fara öll húsgögn illa hvort sem þau eru gömul eða ný. sinnum fengiö merkta muni, en þá eru þeir merktir þeim sem smíö- uöu þá.“ — Hvernig varóveitast avo þessi gömlu húsgögn best? „Þaö þarf aö fara vel meö þau eins og öll önnur húsgögn. En þaö sem fer verst meö gömul og ný húsgögn í dag er of lítið rakastig í flestum íslenskum húsum. Hitinn er alltof mikill og þurr. Þetta fer illa meö bæöi olíumálverk og hús- gögn, húsgögnin fara gjarnan á límingunni, hvort sem þau eru gömul eöa ný.“ Af Hverfisgötunni höldum viö á Laufásveginn og hittum þar fyrir Magneu Bergmann í verslunlnni Antikmunum. „Ég hef veriö meö verslunina hérna í um 6 ár, en áöur var ég á Týsgötunni og er nú reyndar aö opna þar aftur. Flest kaupi ég frá Danmörku, þaö er erfitt aö fá hús- gögn á góöu veröi hér innanlands, fólk vill fá svo mikið fyrir þau. Ég kaupi helst smádót hér innan- lands. Áður en ég byrjaöi að versla meö antikmuni hérlendis, var ég meö forngripaverslun úti í Kaup- mannahöfn. Þá keypti ég yfirleitt flest beint af eigendunum og vissi jafnvel eitthvaö um sögu hlutanna. Þaö kom líka oft fyrir aö maöur keypti heilu dánarbúin, spuröí gjarnan hvaöan hlutirnir höföu komiö í búiö og gat fylgst betur meö þessu en hægt er núna.“ Þarna ægir ýmsu saman. Ljósa- krónum, sem Magnea segist hafa fengiö úr dönskum kirkjum, ruggu- stólum, skrifborö eru þarna nokk- ur, borö og skápar, klukkur og loftvogir, postulín og silfurplett. Við spyrjum hvort klukkurnar séu allar í lagi. Magnea segir aö þaö sé ótrúlega gott verk í flestum þess- um gömlu klukkum. „Eg fer alltaf meö klukkurnar til úrsmiös til aö láta hann líta á þær. Klukkan þarna á veggnum er t.d. um tvö hundruö ára gömul, en al- veg í fullkomnu lagi. Hann hefur sagt mér þaö úrsmiðurinn aö þaö sé endalaust hægt aö gera viö þessi gömlu úrverk.“ Magnea segist ekki hafa nema hluta af þeim húsgögnum sem hún sé meö á boöstólum í versluninni, hitt þurfi aö vera í geymslu. En hvaöa hlutur skyldi vera elstur hér í búöinni? „Ætli þaö sé ekki þessi gamla brúöarkista þarna, en hún er frá því um 1830. Annars eru margir hlutanna hérna um tvö hundruð ára gamlir og einnig er mikiö frá því í kringum aldamótin.“ Magnea segir, aö viöskiptavin- irnir séu á öllum aldri en mest er þó um ungt fólk, líkt og hjá starfs- systrum hennar viö Hverfisgötuna. „Fólk kemur líka mikiö hingaö til aö athuga hvort þaö geti fengiö eitthvaö inn í gömul postulínssett, en ég er meö heilmikið af þeim hérna.“ Móskarðshnúkar Móskarðshnúkar nefnist sá hluti Esjunnar, sem austast liggur, en milli þeirra og Skála- fellsins er Svínaskarð. Hnúkarn- ir sjálfir eru auðþekktir vegna lits og lögunar. Hinn ljósbleiki litur vekur athygli vegfarandans en blekkir oft á tíðum því það er eins og sólin skíni alltaf á Mó- skarðshnúka, þótt veðurstofan segi annað. Hnúkarnir eru fjórir en milli þeirrá eru grunn skörð. Þunnur klettahryggur tengir þá við meg- infjallið en hann liggur milli tveggja dalabotna, Þverárdals að sunnan og Eyjadals að norðan. Fyrrum lá þjóðleiðin milli Kjósar og Mosfellssveitar um Svínaskarð og um skarðið fór fjöldi ferðalanga úr fjarlægum landshlutum, en það breyttist þegar akvegurinn var lagður vestur fyrir Esjuna skömmu eft- ir 1930.' Ganga á Móskarðshnúka er auðveld og er venjulegast gengið á þá að sunnan. Þá er ekið að Leirvogsá, hjá Hrafnhólum, og gengið þaðan eftir gömlu götun- árdals og Eyjadals og vestur á Esjuna. Krækt fyrir botn Þver- árdals, gengið á Hátind (909 m) og haldið síðan niður Þverár- kotsháls að Hrafnhólum. Þessi leið er bæði fjölbreytt og falleg, og veitir víðari sjóndeildarhring en Móskarðshnúkar einir. Þó er rétt að hafa það í huga, að þessi gönguleið tekur meginhluta dagsins, ef farið er rólega og án alls óðagots. En hvernig mynduðust Mó- skarðshnúkar og hvers vegna eru þeir frábrugðnir öðrum nærliggjandi fjöllum bæði að lit og lögun? Jarðvísindamenn segja að Esjan sé mynduð við eldsumbrot fyrir 2'/i—3 millj. árum. Fyrir um 2 milljónum ára var stór og mikil askja fyllt vatni á svæði sem nú er á milli Skálafells, Móskarðshnúka, Þverárkotsháls og allt suður undir Grimmannsfell. Á börm- um þessarar öskju voru tíð eld- gos og þá mynduðust Móskarðs- hnúkar. Þeir eru því fornar eldstöðvar myndaðir úr líparíti, en það berg gefur þeim Ijósa lit- um áleiðis að Svínaskarði. Skammt fyrir norðan bæinn liggur leiðin yfir Skarðsána. Hún er ekki mikil að jafnaði svo auðvelt er að stikla yfir hana á steinum. Mörgum hættir til að taka stefnuna beint á hnúkana eftir að komið er yfir ána. Sú leið er vel fær, en þó er léttara að ganga áfram eftir götunni uns komið er að gili, sem liggur niður frá hnúkunum. Farið er yfir það, en síðan upp með því að austanverðu og stefnt beint i skarðið milli tveggja austustu hnúkanna. Úr skarðinu ér létt að ganga á austasta hnúkinn, en hann er hæstur (807 m) og af honum er besta útsýnið. Ekki er mikið víð- sýni af Móskarðshnúkum, nema helst til austurs og suðurs, því fjöll kreppa að til annarra átta, svo minna er þar að sjá en vænta mætti. Um fleiri en eina leið má velja, þegar halda skal tii baka. Senni- lega liggur leið flestra af aust- asta hnúknum niður skriðurnar og ofan í Svínaskarð (það er í 481 m hæð) og ganga gömlu götuna til baka. Þetta er mjög þægileg leið og falleg. En ef tíminn er nægur er sjálfsagt að lengja leiðina nokkuð og ganga þá vest- ur hnúkana áleiðis að Esjunni. Þá eru efstu brúnir hnúkanna þræddar og eykur það ekki síst á tilbreytinguna. Síðan er gengið yfir klettahrygginn milli Þver- Spölkorn 'JT7 út í buskann Eftir Tómas Einarsson inn og gerir þá svo auðkennda, sem alkunnugt er. En síðan hafa ísaldarjöklarnir, frost, vatn og vindar máð burtu þessi fornu eldvörp að mestu og gefið fjall- inu þá lögun, sem það hefur í dag. Með skarpskyggni sinni og nútímatækni hefur vísinda- mönnum okkar tekist að ráða þessar rúnir. En um leið hafa þeir veitt okkur óbreyttum leik- mönnum tækifæri til að gefa hugarfluginu lausan tauminn meðan við fetum okkur áfram áleiðis að áfangastað.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.