Morgunblaðið - 23.07.1982, Page 17

Morgunblaðið - 23.07.1982, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ1982 49 Fólk í Iðcamsrækt á að sýna hóf í neyslu á vítamínpillum. (farinn að svitna). Geröu síðan teygjuæfingar í um 5 mínútur. Stutta skokkið hækkar vöövahit- ann um eina til þrjár gráöur og varnar meiðslum sem veröa á vöðvum þegar teygt er á þeim köldum. 10. Þú átt aö telja hjartslögin meðan þú »fir. Þú þarft aldrei að telja hjartslög- in meöan þú æfir. Þegar þú hefur náö minnstu þjálfunarákeföinni (þaö álag sem þarf til aö þjálfun eigi sér staö) eöa um 120 slögum á mínútu, gefur líkaminn frá sór merki þess eðlis aö ákeföin só dugandi. Þú ferö að þurfa aö lyfta öxlunum aöeins til aö ná fullri önd- un. Þú átt ekki aö taka andköf og átt aö geta talaö sæmilega eðli- lega. Reyndu aö halda áfram meö þessari ákefö í um 30 mínútur. 11. Aukin vítamínneysla er nauö- synleg samhliða aukinni hreyf- ingu. Algengt er aö fólk sem stundar íþróttir og æfingar í miklum mæli neyti vítamína í risastórum skömmtum. Þessi aukna vítamín- neysla.er í flestum tilfellum ónauö- synleg og í mörgum tilfellum hættuleg. Vissulega þurfa þeir sem búa viö aukiö líkamlegt álag af ein- hverju tagi á meiru magni snefil- efna, þar meö talið vítamína, aö halda, heldur en kyrrsetufólk. Slíku fólki ætti í flestum tilfellum aö nægja hollt og gott mataræöi sem sér fyrir þessari auknu þörf snefil- efna. Þeirri skoöun vex sífellt fiskur um hrygg meöal lækna aö þeir sem þurfi á vítamíntöflum aö halda séu einkum: börn í vexti, þungaöar konur á seinni hluta meögöngu, gamalt fólk meö skerta líkams- starfsemi, slasaö fólk og sjúkt, ennfremur ef langtímanotkun ákveöinna lyfja er nauösynleg og ef fólk er vannært. Þegar rætt er um skaösemi af völdum ofneyslu vítamína ber að hafa í huga mismuninn á fituleys- anlegum vítamínum og vatnsleys- anlegum vítamínum. Umframmagn vatnsleysanlegu vítamínanna (B og C), sem líkaminn notar ekki, skilst út í þvagi jafnóöum. Ofneysla þessarra vitamína hefur því ekki annaö i för meö sér en aukiö álag á þau líffæri sem sjá um útskilnaö þeirra. Risastórir skammtar af C-vítamíni geta einnig, svo vitaö sé, aukiö sýrustig í maga og valdiö þannig ertingu. Einnig geta slíkir ofskammtar aukiö hættu á mynd- un nýrnasteina. Fituleysanlegu vítamínin, eink- um A- og D-vítamínin, skiljast mun hægar út úr líkamanum. Ofskammtar þessara vítamína í langan tíma geta því auöveldlega leitt til eitrunar sem lýsir sér meöal annars sem þreyta, sljóleiki, höf- uðverkur, klígja og uppsala. Þeir sem stunda líkamsrækt af einhverju tagi ættu því aö fylgja gullnu reglunni um aö nhóf só best í öllu“, og boröa vítamínpillur i hófl. Regngallarnir eftirspurðu nýkomnir, kr. 300,- CoflXoH' karlmannafötin kr. 998 og 1098. cofinca karlmannafötin einhneppt og tvíhneppt. Terylinbuxur, fjölbreytt úrval. Gallabuxur, úlpur, margar gerðir. Skyrtur, skyrtubolir og m. fl. á frábæru veröi. Andres, Skólavörðustíg 22. Húsavík Tilboð óskast í húseignina FOSSBERG á Húsavík, steinhús á tveim hæöum. Upplýsingar gefa: Árni Jónsson, Ásgarðsvegí 16, Húsavík. Sími 96-41319 og Benedikt Blöndal hrl. Ingólfsstræti 5, Reykjavík, sími 91-22144. S.Í.N.E. Sumarþing S.Í.N.E. verður haldið í Fé- lagsstofnun stúdenta laugardaginn 24. júlí kl. 14.00. Fundarefni: 1. Skýrsla stjórnar og fulltrúa S.Í.N.E í - LIN. 2. Stjórnarskipti. 3. Fréttir úr deildum. 4. Kosning fulltrúa S.Í.N.E. í stjórn LÍN. og sambandsstjórn ÆSÍ. 5. Önnur mál. Félagar fjölmenniö. Stjórn S.Í.N.E.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.