Morgunblaðið - 23.07.1982, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ1982
55
Hvað dvelur Orminn langa?
Sigurbjörn Ketilsson, Ytri-
Njarðvík, skrifar 17. júlí:
„Hinn 4. marz sl. lét Áki Gránz,
núverandi forseti bæjarstjórnar
Njarðvíkur, Morgunbl. hafa það
eftir ser í viðtali, að lengur yrði
ekki unað við þá „hávaðamengun",
sem hlytist af flugi bandarískra
herflugvéla yfir bæjum og byggð-
um á Suðurnesjum.
Áki skýrði ekki nánar, hvernig
hann hygðist framkvæma þetta
þrifaverk fyrir Suðurnesjamenn,
lét sér aðeins nægja að taka
munninn fullan: Þetta verður bara
ekki þolað lengur.
Þar sem maðurinn hefur ekki
hingað til verið talinn byltingar-
sinnaður og mun að sjálfsögðu
ekki ráða yfir þeim tólum eða
mannafla, sem geri honum kleift
að standa við hótanir sínar með
valdi hins sterka, þá má gera ráð
fyrir að samningaleiðin sé sú eina
færa af hans hálfu.
Nú væri forvitnilegt að vita
meira og Áki er hér með beðinn að
upplýsa án tafar: Hvernig ganga
samningatilraunir hans við
Bandaríkjamenn um breytta notk-
un flugbrautanna, þannig að um-
rætt flug geri ekki okkur Njarð-
víkingum lífið eins leitt og það
hefur gert öðru hvoru sl. 30 ár?
Eða hvað dvelur Orminn langa?
Svo virðist sem málaleitan hans
og hótanir hafi iítinn árangur bor-
ið, sbr. skrif í Dagbl. og Mbl. um
þjóðhátíðarhöld Njarðvíkinga 17.
júní sl. og ótvíræða „hávaða-
mengun" nú dag hvern.
Hafa Bandaríkjamenn farið eft-
ir tillögum Áka um hönnun nýju
flugrautanna?
Ef ég man rétt, gaf hann í skyn
í umræddu viðtali, að auðvelt væri
að breyta stefnu flugbrautanna
frá því sem áætlað hafði verið,
sem þýddi að við Njarðvíkingar
losnuðum við „hávaðamengunina".
Þess er að vænta, að Áki láti
það verða eitt af forgangsverkefn-
um sínum að upplýsa kjósendur
sina og aðra Njarðvíkinga um
gang þessa máls.“
Þessir hringdu . . .
Er þetta
nægilegur
stuðningur?
8355—9853 hringdi og hafði
eftirfarandi að segja: — Mig
langar til að bera upp fyrirspurn
varðandi rétt einstæðra mæðra.
Þannig er mál með vexti, að
mæðralaun eru nú 127 kr. á
mánuði. Meðlag er 1.019 kr. á
mánuði. Og þá er það fyrirspurn-
in: telja ráðamenn okkar þetta
nægilegan stuðning við einstæð-
ar mæður, t.d. ungar stúlkur sem
hafa verið „svo óheppnar" að
eignast barn, meðan þær eru enn
í skóla? Mundi heilbrigðis- og fé-
lagsmálaráðuneytið vilja svara
þessu?
Bara uppþorn-
aðar múmíur?
Helga Guðjónsdóttir hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: —
Ég vil taka undir orð Sigríðar
sem birtust í dálkum þínum 20.
þ.m. og fjölluðu um útvarps-
dagskrána. Halda stjórnendur
Útvarpsins að fullorðna fólkið,
sem er farið að draga sig út úr
skemmtanahringiðunni, sé bara
uppþornaðar múmíur? Ég sat al-
ein heima síðastliðið laugar-
dagskvöld, og það var litla af-
þreyingu að hafa í útvarpinu. Þó
tók nú fyrst steininn úr, þegar
Árni Björnsson byrjaði um mið-
nættið. Að bjóða hlustendum
upp á slíkt á laugardagskvöldi er
móðgun við hlustendur, en Árni
þykist vist vera að varðveita
sálarheill okkar gamla fólksins.
Meðferðar-
hæfur en ekki
læknanlegur
Tómas A. Tómasson hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: —
Ég hringi vegna tveggja smá-
greina, sem birtust í dálkunum
hjá þér með stuttu millibili, eftir
Halldór á Kirkjubóli og Steinar
Guðmundsson, þar sem þeir
spinna út af misskilningi blaða-
manns hjá Dagblaðinu i viðtali
við Frank Herzlin, lækni á
Freeport-spítalanum, sem birt-
ist í því blaði 13 þ.m. Þar er á
ferðinni augsýnilegur misskiln-
ingur blaðamannsins á enskri
tungu. Hann heldur að verið sé
að tala um „læknanlegan" sjúk-
dóm, þegar Herzlin notar lýs-
ingarorðið „treatable". Ef lækn-
irinn hefði ætlað að gera alkó-
hólisma læknanlegan, sem hann
gerði vissulega ekki, hefði hann
notað lýsingarorðið „cureable".
Hann sagði að alkóhólismi væri
meðferðarhæfasti sjúkdómur,
sem hægt væri að hugsa sér.
Þetta hefur valdið leiðum mis-
skilningi, sem er síst í anda
Herzlins.
Sæll
er sá
sem
gott
gerir
Nauta T-bone steik
Nauta-grillsteik
Nauta-bógsteik
Nauta-snitzel
Nauta-gullach
Nauta Roast-beef
Nautahakk 10 kg.
Nautahamborgari
Nautabuffsteik
Nauta Turn-bauti
Lambagrillsneiöar
Lambaframhryggur í
Lambageiri
Lambaherrasteik
Lambarif marineruð
Okkar Skráð
verð verð
95,00 118,00
64,00 72,00
64,00 72,00
183,00 215,00
148,00 169,00
159,00 185,00
79,00 115,00
8,00 10,40
165,00 186,00
215,00 244,00
79,00 „
B-A 69,00
97,50 115,00
79,00 88,00
28,00 37,00
Útbúum
ÞAÐ
BEZTA
m
A
GRILLIÐ
Svínalundir
<244—289
Svínakótelettur
174—199
heila lambaskrokka á grilliö
ABENDING:
Svo stórar steikur sem hér er sagt frá er ekki hægt aö steikja á
venjulegu garðgrilli heldur miklu frekar á hlóöum sem búa má
til utan dyra við hús sin, eins og þaö sem sést á meðfylgjandi
mynd. Ef geyma á lambakjötiö eitthvaö eftir steikingu verður
aö halda því heitu i ofni, þvi miövolgt glóöarsteikt kjöt er ekki
sérlega spennandi.
Glóöarsteikt kjöt verður alltaf að vera vel heitt.
SERTILBOÐ
GÓÐ MATARKAUP
t pantiö
itíman'eðS
Nýtt hvalkjöt 27,00
Lambalifur 29,00
Ódýra baconið 75,00
Nýrlax1/1 99,00
Lax í sneiðum 138,00
Rúllupylsa 40,00
OPIÐ í HÁDEGINU
OPIÐ Á FÖSTUDÖGUM TIL KL. 7
Kjötbúðingur" ’ 46,
Heimalöguð lifrarkæfa 68,
Kindahakk 38,
Folaldahakk 36,
Kálfakótelettur 46,
Kálfahryggir 38,
Sannfærandi?
„He hæ, Vclvakandi!
Ég er tólf ára og á heima fyrir
norðan. Ég tók þátt í að hjóla í
kringum landið og fékk í staðinn
voða flott nælumerki. Á framhlið
þess stendur stórum stöfum EFL-
UM ÍSLENSKT! en á bakhlið þess
er áletrun með smáum stöfum sem
gefur til kynna, að merkið sé
dönsk framleiðsla.
Sannfærandi? Torfi.“
GÆTUNI TUNGUNNAR
Oft er sagt: Svo var til forna. Naumast verður það kallað
rangt, þó komið sé úr dönsku.
En gott mál er: Svo var að fornu.
S2FSlGeAWóGA £
LOKAD í SUMAR Á LAUGARDÖGUM
rott er gott að
eiga Hauk í horni
f KJÖTMIÐSTÖPIN Laugalæk 2.s.865II
PN'b OG QAQY^ANN
'dAóvi w mnn m
wmA \IEVNA 0 H
W\6INN 0G\W 4LVE6,
OWAQ Ylffl: VÁ.WtioM
ssssss