Tíminn - 25.07.1965, Blaðsíða 1
HANDBÓK
VERZLUNARMAKINA
ÁSKRIFTARSÍMI
18686 <9688 «0088
HANDBÖK
VERZLUNARMANNA
ÁSKRIFTARSÍMI
«0088 10888 t6683
Ainniftiii isili«
ÍHÍpp8i?Hmj
L
tt,"+i|******i*****Miiiia
.
'S fli!
p !?
’i '
ÞINGFULLTRÚAR
Á 25 BÍLUM Á
ÞINGVÖLL í GÆR
EJ-Reykjavík, laugardag.
Mikill mannfjöldi var saman
kominn á Grandagarði upp úr
kl. 2 í dag. Voru þar erlendu
kennararnir á norræna skóla-
mótinu, sem voru að fara til
Þingvalla, en þar var mótinu
slitið seinna í dag. Myndin hér
að ofan var tekin, þegar kenn-
aramir voru að flykkjast inn
í langferðabifreiðamar. Annar
hópur fór frá Hagaskólanum, en
alls fóra 25 rútur austur.
Lokafundur mótsins hófst
síðan, þegar fulltrúamir komu
austur um fjögurleytið. Söfn
uðust þeir saman á Lögbergi og
stjórnaði Jónas B. Jónsson
fræðslustjóri, þar fundinum.
Kristján Eldjárn, þjóðminja-
vörður, gerði grein fyrir sögu
Þingvalla, en síðan flutti Gylfi
Þ. Gislason, menntamálaráð-
herra, ræðu. Að því loknu
fluttu fulltrúar frá Noregi, Dan
mörk, Svíþjóð og Finnlandi
kveðjuorð fyrir hönd landa
sinna, og var fundinum sfðan
slitið.
Flestir erlendu fulltrúanna
á rpótinu fara heim á leið í
byrjun næstu viku.
SAMNORRÆNN LAND-
BÚNAÐARMARKAÐUR?
EJ-Reykjavík, laugardag.
Aðalfundi Norræna bændasam-
takanna (Nordens Bondeorganis
ationers Centralrád) lauk á mið-
vikudag í Málmey í Svíþjóð. Á
fundinum voru gerðar ýmsar sam
þykktir, þar á meðal var sam-
þykkt að skora á ríkisstjórnir Norð
urlanda að reyna að koma því
til leiðar, að eftirspumin efir land
búnaðarafurðum í einu Norður-
landanna umfram það, sem viðkom
andi land getur framleitt, verði
mætt með framleiðslu hinna Norð
urlandanna.
Aðalfundurinn hófst í Málm
ey á þriðjudaginn og sátu hann
7 fulltrúar frá íslandi, en þejr
voru fulltrúar Stéttarsambands
bænda, Framleiðsluráðs landbún
aðarins, Búnaðarfélags íslands,
Sláturfélags Suðurlands, SÍS og
Mjólkursamsölunnar.
Áskorun um að reyna að sam
ræma framboð og eftirspurn land
búnaðarafurða á Norðurlöndum
var samþykkt eftir langar um-
ræður um þær viðræður, sem
standa yfir um landbúnað-
arafurðir og sölu þeirra innan
EFTA, Efnahagsbandalagsins og
GATT og einnig um þær tilraunir
sem nú eru gerðar til aukinnar
samvínnu Norðurlanda á sviði
verzlunar og viðskipta.
Á fundinum var einnig sam-
þykkt að fela stjórn sambands
ins að koma því til leiðar, að rík
isstjórnir Norðurlanda bendi í
sameiningu brezku ríkisstjórninni
á nauðsyn þess, að meira tillit
verði tekið til útflutnings EFTA
ríkjanna á smjöri á enska mark-
aði.
Á aðalfundinum flutti Gunnar
IMýrdal ræðu um matvælafram
leiðsluna í heiminum og sagði,, að
erfitt væri að koma auga á, hvem
ig hægt væri að koma í veg
fyrir stórfelldan matvælaskort og
hungursneyð í heiminum innan
fárra ára, og lagði áherzlu á
nauðsyn þess, að ríku löndin legðu
af mörkum alla þá aðstoð, sem þau
gætu til uppbyggingar matvælaiðn
aðinum í vanþróuðum ríkjum.
SVANUR LEGGST Á FÉ
JHM-Reykjavík, laugardag.
Oft kemur það fyrir á sumr
in að kvartanir berast hér í
borg vegna þess hve svanirnir
á Tjörninni geti verið grimmir,
þegar þeir em með unga. Nú
hefur blaðið frétt að á Elliða-
vatni sé svo grimmur svanur
að hann hafi hvað eftir annað
ráðist á kindur. Nýlega gekk
svo langt að hann flaug frá
vatninu til að ráðast á sauð-
kind og lamb, sem vegfaranda
rétt tókst að bjarga undan svan
inum.
Þessi svanur, sem er karlfugl,
var til skamms tíma með kerlu
sinni og ungum, en vegna geð-
illsku og grimmdar þá voru
þau aðskilin. Hann hefur að
undanförnu haldið sig í víkinni
rétt við Heiðmörk. f hvert sinn
sem kindur hafa komið of ná-
lægt vatninu hefur hann ráð-
izt að þeim með gargi og barið
þær miskunnarlaust með vængj
unum. Stundum hefur hann
snúið aftur út á vatnið loðinn
um gogginn af ull, sem hann
hefur reytt af kindunum.
Maður nokkur sem á bústað
þarna, tjáði blaðinu að hann
hefði séð fuglinn um daginn
fljúga góðan spöl frá vatninu og
ráðast þar á kind. Kindin sem
var með lambi, reyndi að
stanga fuglinn, en hann náði
að reka hana út í urð, þar
sem hann svo hamaðist á
henni með kjafti og vængjum.
Maðurinn hljóp á staðinn og
gat með grjótkasti hrakið fugl
inn á burt, en hann sagði að
svanurinn hefði ekki verið að
flýta sér of mikið, þrátt fyrir
grjótkastið. Hann sagði að
lokum að kindin hafi verið
hálf illa farinn eftir þessi ó-
sköp.
Blaðinu er einnig kunnugt um
að þessi sami svanur hafi ráð
ist á börn sem hafa verið að
leika sér við Elliðavatn.
KEYPTI) MIKIÐ AF SÍLD HÉR
MB-Reykjavík, laugardag.
Nýlega voru hér á ferð full-
trúar frá fyrirtækinu Skandia Kon
serv í Svíþjóð, en það fyrirtæki
er meðal stórvirkustu síldarkaup-
enda okkar þar í landi. Skandia
Konserv er eign sænska samvinnu
sambandsins og á tvær verksmiðj
ur, aðra í Lysekyl og hina í
Elliös og er síld bæði lögð niður
og soðin niður í þessum verk
smiðjum. Hingað komu fulltrúar
Skandia Konserv til þess að sernja
um kaup á saltsíld og munu þeir
hafa keypt með mesta móti að
þessu sinni. Gunnlaugur P. Krist
insson tók þessa mynd af full-
trúum í íkirkjutröppunum á Ak-
ureyri, en þeir em Kjeld Hansen,
E. Johanson, Martin Stidner, for
stjóri Skandia Konserv, og V.
Artursson. Auk síldar kaupir
Skandia Konserv talsvert af sölt
uðum þorskhrognum héðan og
mun hafa í hyggju að auka þau
kaup einnig. Samband íslenzkra
samviunufélaga annaðist alla fyrir
graiöslu hérlendis.