Tíminn - 25.07.1965, Blaðsíða 13
SUNNUDAGUR 25. júlí 1965
MÁLEFNI
Framhald af bls. 9
a'ð segja, segir frú Sivertsen,
að það takj æði langan tíma
að fá almennt viðurkennt, að
vangefnu einstaklingarnir séu
jafn réttháir þjóðfélagsborgar-
ar og þeir, sem ganga heilir til
skógar. Borgaryfirvöldin í Osló
hafa viðurkennt, að það starf
í þeirra þágu er jafn rétthátt
og aðrar greinar félagsmála,
svo sem heilsuvernd, barna-
vernd og æskulýðsstarf.
Stjórn Styrktarfélags vangef
inna hér, hefur ritað landlækni
bréf um það, hvort ekki sé
framkvæmanlegt að rannsaka
hvert barn sem fæðist og ganga
úr skugga hvort það hafi Föll-
ingssjúkdóm, og einnig að
rannsaka blóðflokka stúlkna,
svo að vitað sé hvort þær hafa
Rhesus-blóðflokk þann, sem
valdið getur andlegum van
þroska. Eru nokkur ákvæði um
slíkt í Noregi?
Það eru framkvæmdar þvag-
rannsóknir öllum bömum,
sem fæðast á fæðingarheimil-
um, að því er lýtur að Föll-
ings-sjúkdómnum og að það er
ákaflega þýðingarmikið. Yfir-
leitt er það þýðingarmest af
öllu, að nógu snemma sé leit-
að læknis með vangefin börn,
því það getur skipt óendan-
lega miklu fyrir þroska þeirra,
að þau komist, til dæmis
snemma á dagheimili, þar sem
hægt er að þjálfa þau í dag-
legri umgengni og þoka þeim
síðan stig af stigi til þess
þroska, sem geta þeirra leyf-
ir. Það skiptir líka miklu máli,
að starfslið þeirra stofnana,
sem börnin annast, geri sér
það ljóst, ag allir eru þar raun
verulega að kenna. Það getur
verið erfitt nám fyrir vangef-
ið barn að læra að hnýta skó-
reim eða borða með gaffli og
það getur skipt ótrúlega miklu
máli fyrir framtíð þess, að það
geti aðlagazt venjulegum um-
gengnisháttum. Sem betur fer
er sá hugsunarháttur að hverfa,
að það sé skömm að því, að
vangefi,ð barn fæðist í einni
fjölskyldu. Það er vonandi lið-
in tíð að þau böm finnist fal-
in og innilokuð, eða að for-
eldrar haldið því leyndu, að
þau eigi vangefin börn á vist-
heimili. Raunar virðist furðu-
legt, að nokkum tíma skuli
hafa verið litið öðruvísi á þessa
sjúkdóma en þá, sem orsaka
líkamlegar fatlanir.
Nú var kominn tími til að
fara á flugvöllinn og ég þakk-
aði frú Sivertsen viðtalið.
Það er ekkert að þakka anz
aði hún. Vilji einhver hlusta,
Þá set ég mig ekki úr færi að
tala um þetta efni. Málefni
þeirra vangefnu koma okkur
öllum við, þvi enginn veit
hvenær nærri honum sjálfum
kann að verða höggvið.
Framan af samtali okkar öf-
undaði ég frú Sivertsen af því,
hve mörgum og góðum stofn-
unum Oslóborg hefði á að,
skipa á þessu sviði og að fast-
ur grundvöllur skuli þar feng-
inn fyrir rekstri þeirra. Nú öf-
unda ég borgarstjórn Oslóar
fyrir að hafa svo ágætan full-
trúa, að fela þessi ábyrgðar-
miklu störf.
Sigríður Thorlacius.
JJMINN
13
' mmmmmmmmmmmmmummmmm
1 <h?fr.skrifstofan
Iðnaðarbankahúsinu
IV. hæð.
Vilhjálmur Arnason.
Tómas Arnason og
Austin Gipsy er farartæki, sem hvarvetna
vekur athygli fyrir vandaðan og smekkleg-
an frágang — utan sem innan.
Aksturshæfni og mýkt í akstri er talin í
sérflokki um þessar gerðir bifreiða.
Stærsta atriðið í sambandi við bílakaup
er, að vélin sé góð, um það þarf ekki að
efast, þegar Austin á í hlut.
------------------------------
Framdrifslokur eru nú fáanlegar <>g stýr-
ishöggdeyfar væntanlegir.
Nokkrir benzínvagnar til afgreiðslu um
mánaðamót.
Verðið er hagstætt — um gæðin þarf ekki
að orðlengja — þau eru þekkt.
Umboðsmenn úti á landi:
AKUREYRI:
Bifreiðaverkstæði
Jóhanesar Kristjánssonar
EGILSSTAÐIR:
Varahlutaverzlun
Gunnars Gunnarssonar
BLÖNDUÓS:
Vélsmiðja Húnvetninga.
BORGARNES:
Bifreiða- og Trésmiðja Borgarness.
SAUÐÁRKRÓKUR:
Kaupfélag Skagfirðinga,
bifreiðaverkstæði
Þér getið treyst Austin.
Bifreiðaverzlun.
UTBOÐ
Óskað er tilboða 1 vélar, tæki og annan útbúnað
fyrir dráttarbrautir.
Útboðsgagna má vitja á skrifstofu vora næstkom-
andi mánudag og þriðjudag gegn kr. 5000,00
skilatryggingu.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS,
Borgartúni 7.
Girðinganet
Túngirðinganet 5 og 6 strengja — Garðanet.
byggingavöruverzlun kópavogs,
Kársnesbraut 2.
Auglýsið í TÍMANUM
STILLANLEGU
HÖGGDEYFARNIR
Ábyrgð 30.000 km. akstur
eða 1 ár. — 9 ára reynsla
á íslenzkum vegum sannar
gæðin.
ERU í REYNDINNI ÓDÝR-
USTU HÖGGDEYFARNIR.
SMYRILL
Laugav. 170, sími 1-22-60
Afgreiðslumaður óskast
Viljum ráða afgreiðslumann, sem taki til starfa
i september n.k. í vörugeymslu vorri.
KAUPFÉLAG HRÚTFIRÐINGA,
Borðeyri.