Tíminn - 25.07.1965, Blaðsíða 2
2
TIBV8INN
SUNNUDAGUR 25. júlí 1965
ÞÁTTUR KIRKJUNNAR
Baráttan gegn kungri
Það er gleðilegt tákn tím-
anna og mannlegs skilnings að
Æskulýðssamfband ísl. hefur
nú ákveðið að taka virkan þátt
í þeirri alþjóðlegu baráttu
gegn böli eftirstríðsáranna,
sem hafin var markvisst um
1960. Og nú er baráttunni
beint sérstaklega gegn hung-
urvofunni, sem ógnað hefur og
ógnar stöðugt % hlutum mann
kyns.
Það er sérstök ánægja fyrir
mig, sem þessar línur rita, að
hér skyldi hafizt handa af unga
fólkinu, þar eð ég flutti erindi
um þessi vandamál, sérstaklega
hungrið í útvarpið um síðast-
liðin áramót á vegum fslenzkra
ungtemplara og Bandalags
æskulýðsfélags Reykjavíkur.
Mætti því vænta, að flest æsku-
lýðssamtök landsins yrðu sam-
taka í myndarlegu átaki, sem
yrði þjóðinni allri til sóma á
vettvangi alþjóðlegra málefna.
Ilin glæsilega íslenzka æska,
sem er alin upp við allsnægtir
virðist hafa skilið, ef vel er
þarna unnið, að „sælla er að
gefa en þiggja." Og vel mætti
kirkjan styðja að þessu verk-
efni og árangri þess með ráð-
um og dáð. Væri t. d. ein-
sætt, að koma fram með söfn-
unarlista í öllum æskulýðsfé-
lögum kirknanna. Þau ættu
bæði að safna innan sinna vé-
banda og þá ekki síður að
vinna markvisst að söfnun með
al fullorðna fólksins og ýmissa
stofnana í söfnuðum og utan
þeirra.
Vel mætti ha' i huga,
að ótrúlega fáar Kar krón
ur þarf til að bjarga bami
frá hungri og skorti jafnvel
í langan tima. Verðlag á mat
í hungurlöndum er trúlega
lágt á okkar mælikvarða, þótt
það sé hátt fyrir allslausa. En
það er orð, sem við getum sem
betur fer naumast skilið, hve
mikla örbirgð rúmar. Hundrað
krónur er lítilsvirði fyrir okk-
ur flest, en það gæti verið allt
lífið fyrir hungrað barn, með-
an verið er að bjarga því.
Auðvitað má segja, að gjafir
bjarga ekki heiminum frá
hungri. Það þarf að kenna
fólkinu í hungurlöndunum að
bjarga sér sjálft, veita því
þekkingu á þeim krafti til
sjálfsbjargar, sem í eigin
barmi bærist, og þá ekki síð-
ur skilning á að notfæra. sér
þá auðlegð, sem þeirra frjó-
sömu lönd geta fært því vlð
ræktun, virkjun og vinnu.
Þetta eru yfirleitt auðugustu
og frjósömustu lönd jarðarinn-
ar, ef þjóðimar vissu sitt hlut
verk.
En slílc fræðsla tekur lang-
an tíma. Það er auðsætt. En
hungrað fólk má engan tíma
missa til að bíða eftir hjálp
til bráðabirgða. Skorturinn tær-
ir á skammri stund og dauð-
jnn bíður við dyrnar meðan
þjáning og vonleysi gagntaka
líkama og sál.
Flest viljum við hjálpa þeim,
sem eiga bágt. En flest erum
við líka tómlát og skilnings-
lítil á kjör annarra bæði í ná-
lægð og fjarlægð, nema okkur
sé beinlínis bent á neyð þeirra.
En sannarlega ætti ekki hin
svokallaða menning og öryggi
velferðarríkisins að blinda okk-
ur. Þá er verr farið og þá
minnkum við en vöxum
af velgengninni. Rödd h;
semi og líknsémi þarf að koi,..
innan frá til að skapa sanna
fórnfýsi og drenglund. En hins
vegar geta orð sem þú lest í
blaði eða heyrir í útvarpinu
vakið samvizkuna í brjósti þér.
Eitthvað, sem ekki er af þess-
um heimi sprettur fram , af
uppsprettu góðleikáns óg á
sinn guðlega Uþp¥tÉh:';'frá 'óí'ð-
um hans, sem sagði: „Verið
miskunnsamir."
Ansgar, postuli Norðurlanda
var að sögn bænarinnar barn.
En fegursta bæn hans var að-
eins þessi orð:
„Drottinn, vertu mér náðug-
ur og gerðu mig góðan mann.“
Það var honum aðalatriði, að
verða svo góður, að hann skildi
neyð og þörf fólksins í kring-
um sig og meira að segja
hinna grimmu víkinga, sem of-
sóttu hann, rægðu og mis-
skildu.
Ekkert mun duga betur í
baráttunni við hungur og böl
heimsins en sú mannúð, sem
jafnan vill breyta við aðra
eins og óskað er að aðrir
breyti.
Óskandi að íslenzk æska
skilji þannig hlutverk sitt sem
þess göfugmennis, sem vill
bæta úr hverju böli og gengur
fram til sigurs til að skapa
frið og bræðralag þjóða og
kynþátta. Ekkert mun þyngra
á vogarskál friðarviljans en
slík viðleitni. Kannske kyndir
hungrið heitari elda en nokk-
uð annað til að kveikja bál
nýrrar heimsstyrjaldar. Sam-
einumst því .öll .gegn hungur-
vofunni og rekúm hana af
höndum.
Árelíus Níelsson.
ILJUIl mi
QD
QD
OD
OD
rrm
Einangrunargler
Framleitt einungis úr
úrvals gleri — 5 ára
ábyrgð.
Pantið tímanlega.
Korki'Sjan h. f.
Skúlagötu 57 - Sími 23200
BÆNDUR
Verkið gott vothey og
notið maurasýru.
Fæst í kaupfélögunum
um allt land.
* í öllum
kaupfélagsbúdum
The Gourock Ropework Co LTD
Port Glasgow — Scotland. — Stofnsett 1736.
framleiða rekstrarvörur, heimskunnar að gæðum,
fyrir bæði útgerð og iðnað, — útibú í 15 hafnar-
borgum á Bretlandseyjum og álfka mörgum stöð-
um utan þeirra í öllum heimsálfum.
FSKINET, allar gerðir og stærðir fyrir þorsk- og
síldveiðar.
KAÐLA úr manila, sísal, hampi, svo og úr nælon,
terylene og öðrum gerviþráðum.
FISKILÍNUR, handfæri, ðsigultauma úr ofannefnd-
um efnum.
STÁLVÍRA fyrir skip, vinnuvélar og til hvers
konar annarra nota.
SEGLA- OG TJALDDÚK úr baðmull, hör eða
nælon.
YFIRBREIÐSLUDÚK úr sömu efnum, fúa- og
rakavarinn.
FULLGERÐAR YFIRBREIÐSLUR úr þessum dúk
— eftir máli.
FULLGERÐ TJÖLD, stór og smá, einnig risatjöld
yfir vörubirgðir, blásin upp með vél og innangeng
fyrir bifreiðir-
Verð og sýnishorn fyrir hendi hjá umboSsmönn-
um:
Austurstræti 17, 5. hæS — Sími 1-16-76.