Tíminn - 25.07.1965, Side 3
SUNNUDAGUR 25. júlí 1965
ííSííft-í-ííííí'íS!:-:::!
.
'
55 ■> ~<
TÍMINN
Hún heitir AUhea Smith,,
21 árs, en hesturinn hennar
heitir Rockwell. Myndiraar
voru teknar á kappreiðavelli
í London, þar sem þetta
óhapp skeði kvöldiS sem hin
konunglega hestasýning var
opnuð. A efstu myndinni flæk
ist hægri framfóturinn í
slánni. Næst falla Þau bæði,
og sláin ofan á hestinn.
Neðst stendur Rockwell upp
og stígur ofan á Altheu og
hún var borin út af vellinum.
Adam Faitb. hefur ekki hugsað
sér að stoppa á frægðarbraut
sinni sem söngvari til þess að
geras tkappakstursmaður en
hann þjálfar sig af miklu kappi
í kappakstri um þessar mundir.
Það gerir hann með það fyrir
augum að þegar frægð hans
sem dægurlagasöngvari fer að
dvína, geti hann ef til vill orð-
ið kappakstursmaður.
7 t .. .. t t" * r -t 1 * 4 ••’• •*• • »
» T ' i i. Jl
Þessi mynd var tekin um
daginn á Rau'ða torginu í
Moskvu, af hinni kunnu
ítölsku leikkonu, Soffíu
Loren, og rússneska leikaran
um Zergo Zakariadze
voru þau þátttakendur í
rússnesku kvikmyndahátíð-
inni, en þar var Soffía kjörin
bezti kvenleikari ársins.
er það talandi tákn þess, að
hún er jafnvinsæl hvort sem
það er austan eða vestan
járntjaldsins.
Tuttugu og tveggja ára ít-
öls'k stúlka, græneygð og svart
hærð, Mariengela Sangalli, á
erfitt starf fyrir höndum.
Fyrst þarf hún að taka próf
á tungumálanámskeiði, sem
hún var á í Mílanó, og því næst
tekur hún við borgarstjóraemb
ættinu í litla bænum Rogano,
sem hefur 366 íbúa. Stjórn-
málaferill Mariengela er mjög
óvanalegur. Hún er ekki ein-
ungis yngsti borgarstjórinn,
sem verið hefur á Ítalíu, held
ur er hún fyrsti kvenborgar-
stjórinn í Rogano og auk þess
fyrsti kristilegi demókratinn
sem kosinn er borgarstjóri þar
frá því fyrir stríð.
Hvernig það heppnaðist
henni að tryggja sér 8 atkvæði
í borgarráði, sem er skipað
fjórum kristilegum demókröt
um og 10 kommúnistum og
sósíalistum er hulin ráðgáta í
bænum, því fjórir hinna vinstri
sinnuðu hafa svikið lit og kosið
hinn fagra borgarstjóra.
★
Hillevi Rombin Shine, er eitt
sinn var ungfrú Svíþjóð, og
síðar ungfrú Alheimur 1955,
á von á sjötta barni sínu í
haust. Hún og eiginmaður
hennar, sem er hótelauðkýf-
ingur í Los Angeles, vona helzt
að þetta verði dóttir. Þau eiga
fjóra syni, en elzta barnið er
dóttir. Þegar þau gengu í
hjónaband 1957, ákváðu þau
að eignast átta börn.
★
Abbadísin á elliheimilinu i
Isleworth bauð Sophiu Loren
nýlega í kaffi. Við það tæki-
færi mótmæltu nunnumar þar
þeirri gagnrýni, sem nunna
ein í Philadelphiu hefur beint
gegn Sophiu vegna þess, að
hún á að leika móður Gabrini,
sem er eini dýrlingur Amer-
íku. Sophia var stödd í Isle-
worth til þess að leika í kvik-
myndinni Arabesque, og leikur
hún á móti Gregory Peck.
M^rgrét Englandsprinsessa
^efur nú látið Davíð, son sinn
koma qpinþerlega fram í fyrsta
skipti. Davíð, sem er 3 ára gam
all, var brúðarsveinn í brúð-
kaupi hálfbróður föður síns er
fór fram í kirkju heilags Mich-
aels í London.
★
Þetta er Dr. Sam Sheppard,
sem sat inni í ríkisfangelsinu
í Ohíó, dæmdur fyrir að hafa
myrt konu sína. Hann hefur
ætíð sagzt vera saklaus af
þeim glæp. í fyrra var hann
látinn laus og þá kvæntist
hann þessari Ijóshaerðu blóma
rós frá Þýzkalandi, en þau
kynntust með bréfaviðskiptjum.
Nú ku Sheppard eiga að fara
aftur í steinninn að því er dóm
stólar segja, og sitja þar það
sem hann á etir ólifað. Mynd
Þrettán ára dengur á Nýju-
Gíneu frétti um hina furðu-
legu hegðun hvíta mannsins að
slá „egg“ með kylfu — og
hann fór því á golfvöll til að
kynnast fyrirbrigðinu. Hann
varð yfir sig hrjfinn, þegar
einn kylfingurinn sló „egg“
með mikilli kylfu og það sigldi
gegnum loftin blá án þess að
brotna. Drengurinn tók á sprett
greip „eggið“ og þaut með það
heim og sauð það. Þrátt fyrjr
mikla suðu reyndist það of hart
undir tönn — en drengur dó
ekki ráðalaus og klauf það með
exi. Faðir hans fann hann síð
ar tyggjandi golfkúluna.
Norsk fjölskylda í Havna hjá
Jar brá sér að heiman í klukku
stund og þegar hún kom til
baka sást greinilega að innbrots
þjófur eða þjófar höfðu notað
þennan stutta tíma vel, farið
inn í íbúðjna með því að
brjóta upp tvöfalda hurð, og
haft á brott með sér silfur-
bikara og brennivín. Annað var
ekki hreyft. Norska lögreglan
hefur enn ekki komizt til botns
í málinu — og sennilega er
erfitt að eiga við Þjófa, sem
eru svo fínir með sig að ekki
nægir minna en silfurtau fyrir
þá til þess að drekka úr
brennivín.
Hver er hún? Engin önnur
en sjálf Brigitte Bardot. Hún
er hér að sóla sig á baðströnd
inni í St. Tropez, en þar á
hún litla villu, sem heitir
„La a Madrugue“. Eins og svo
oft áður fékk hún ekkí frið
fyrir ljósmyndurum og forvitn
um ferðamönnum, og er ekki
furða því allir vilja sjá Brigitte
með eigin augum.
in var tekin á eins árs brúð
kaups afmælinu þeirra.