Tíminn - 25.07.1965, Síða 7

Tíminn - 25.07.1965, Síða 7
SUNNUDAGUR 25. júlí 1965 THVIINN Frá setnfngu norræna skólamótsins j Háskólabfó. ferði þeirra mun gera kvæði Einars Benediktssonar um I Fróðárhirðina langlíft í ís- I lenzkri sögu. Mikill sigur Á undanförnum þingum hef ur gengið illa að fá styrki til ungmennafélaganna hækkaða í samræmi við önnur framlög til félags- og íþróttamála. Því hefur verið haldið fram, að ungmennafélögin væru orðin úrellt og ættu ekki lengur sama tilverurétt og áður. í samræmi við þessa skoðun hafa verið felldar tillögur um auknar fjár veitingar til þeirra. Hin stórglæsilega íþróttahá- tíð, sem ungmennafélögin héldu nýlega að Laugarvatni, hefur með eftirminnilegum hætti kveðið niður allar þessar kenningar. Þetta er stærsta og virðulegasta samkoma, sem lengi hefur verið haldin á íslandi. Hún fór langtum bet ur fram en títt er um slíkar há- tíðir. Hún sýndi óumdeilanlega að ungmennafélögin eru enn sterk og siðbætandi hreyfing, sem aldrei hefur verið meiri þörf en einmitt nú, þegar það skiptir enn meira mála en áður að beina æskunni að góðum og mannbætandi verkefnum vegna þess, hve margt, sem áður var ekki til, glepur hana og villir um fyrir henni. Það er stórmál þjóðarinnar allrar, að þess- um mikla sigri ungmennafélag anna verði fylgt eftir með auknum stuðningi við hana. Sérstök ástæða er til að láta í Ijós ánægju yfir því, að nor- rænir kennarar hafa haldið fjölmennasta mót, sem háð hef ur verið hérlendis. Koma mörg hundruð norrænna kenn ara hingað mun hjálpa til að styrkja bönd hins andlega skyldleika við Norðurlönd. Hinar mismunandi aðstæður valda því, að Norðurlönd geta ekki unnið nema takmarkað saman á sviði efnahagsmála og stjórnmála, en á hinu menning- arlega sviði á þessi samvinna að geta orðið mikil og vaxandi. Það er t. d. mjög fróðlegt fyrir okkur að fylgjast með þeim miklu breytingum, sem eru að gerast á sviði skóla málanna í þessum nágranna- löndum okkar. Af því eigum við að geta lært marga gagnlega hluti. Það gefur okkur jafn- framt glögga vísbendingu um, hve stórfeld uppbygging þarf að verða hér á sviði skólamála, En þó við eflum skólana, megum við ekki gleyma þvi, að hlutur sjálfsmenntunarinnar má samt ekki minnka. Hann heldur áfram að verða mikil- vægastur þrátt fyrir allt. Þess vegna er ánægjulegt að geta tekið undir það, sem Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráð- herra lagði höfuð áherzlu á, þeg ar hann setti norræna skólamót ið. Hlutverk skólanna á framar öðru að vera það að glæða á- huga fyrir sjálfsmenntuninni, eða eins og menntamálaráðherra sagði: Skólinn á fyrst og fremst að bæta skilyrði hvers ttanns til sjálfsræktar, því að úr þeim jarðvegi einum vp' sönn hamingja sóknarflokksins lögðu á það megináherzlu, að öflugar ráð- stafanir yrðu gerðar til að stöðva dýrtíðina. Þeir töldu þetta svo mikilsvert, að þeir settu þetta á oddinn. Þeir ákváðu að standa eða falla með þessari stefnu sinni. Þegar þeta fékkst ekki fram, átti vinstri stjórnin ekki annars kost en að segja af sér. Þessa afstöðu getúr Fróðár- hirð nútímans vafalaust ekki skilið. Óbætanlegt óhapp Þeir, sem líta hlutlaust yfir sögu seinustu sex ára, geta hins vegar áreiðanlega skilið, hvílíkt óbætanlegt óhapp það var, að ekki var horfið að ráði Framsóknarmanna um stöðvun dýrtíðarinnar haustið 1958. Þá myndi þjóðin ekki þurfa að horfast í augu við margvíslega upplausn og ringulreið i efna- hagsmálunum eftir hjð lang- mesta góðæri, sem hún hefur nokkru sinni búið við. Þá hefði kaupmáttyir tímakaupsins getað aukizt verulega, eins og í ná- grannalöndum okkar. Þá hefðu atvinnuvegirnir staðið á traust um grunni eftir undangengið góðæri. Þá hefði ekki verið stór felldur húsnæðisskortur í bæj- unum, en hann minnkaði óðum í tíð vinstri stjórnarinnar. Þá hefðu skattakjörin verið hófleg. Þung er ábyrgð þeirra, sem tóku við af vinstri stjórn inni og haldið hafa áfram lát- laust síðan hrunadansi dýrtíð ar og upplausnar — mann- anna, sem hafa keppzt við að sitja og ýtt hafa erfiðleikun- um á undan sér með nýjum og nýjum frestum, í stað þess að marka stefnu sem þeir hafa staðið eða fallið með Fram- öllum öðrum. í þeim flokki voru þeir Jón Sigurðsson, Hannes Hafstéin og Björn Jónsson. í hinum flokknum eru þeir, sem gera allar skýrar línur stjómmálanna óskýrar, mennirn ir, sem hafa sérstaka hæfileika til að smjúga, mennirnir, sem gætu verið í öllum flokkum, mennirnir, sem allt vilja vinna til þess að fá fremur frið, menn irnir, sem engum gera fyllilega til hæfis, en vilja helzt engan styggja mjög mikið, mennirnir, sem fúsir eru að bregðast fóst- bræðrum og telja það ákjósan legt að hlaða hæfilega undir þá, sem eru í bili andstæðing- ar“ Hversvegna fór vinstri stjórnin? Ef að líkum lætur, munu íhaldsblöðin nú brátt fara að hefja sinn gamla söng um vinstri stjórnina. Þegar illa geng ur hjá núv. stjóm, er sá áróð ur jafnan magnaður í íhalds blöðunum, að allt hafi verið komið í kalda kol hjá vinstri stjórninni. Þegar sýnt er fram á, að afkoma atvinnuveganna hafi verið traustari þá en nú, skuldirnar við útlönd lægri, kaupmáttur tímakaupsins meiri og ástandið í húsnæðismálun- um miklu betra, setja stjórnar blöðin jafnan upp spekingssvip og þykjast geta kollvarpað þess um staðreyndum með einni spurningu: Hvers vegna fór þá vinstri stjórnin frá völdum fyrst ástandið var svona gott? Svarið við þessari spurningu, verður sennilega aldrei skiljan legt þeim mönnum, sem hafa það eitt höfuðmarkmið að hanga í ráðherrastólunum. Vinstri stjórnin fór frá völdum vegna þess, að ráðherrar Fram Þegar Einar orfi um Fróðárhirðina Tryggvi Þórhallsson reit fyrir 45 árum grein í Tímann, þar sem hann dró upp eftirminni- lega mynd af tvenns konar for- ustumönnum, sem hefðu fátt sameiginlegt. Grein Tryggva var miðuð við þáv. ástand í ís- lenzkum stjórnmálum, en línur þeirra voru þá mjög óskýrar, þar sem sjálfstæðisbaráttunni við Dani var nýlokið, en nýir flokkar höfðu enn ekki myndazt hreinlega um innan- landsmálin. Framsóknarflokkur inn vann þá að því undir for- ustu þeirra Jónasar Jónssonar og Tryggva Þórhallssonar að skerpa línur milli framsóknar og íhalds, en íhaldsöflin leit- uðust hins vegar við að gera allt sem loðnast og óljósast og tóku ekki fullkomlega saman höndum í íhaldsflokki (borgara- flokknum) fyrr en 1923, þegar horfur voru á, að Framsóknar flokkurinn og Alþýðuflokkur- inn gætu fengið meirihluta í þingkosningunum. Þeir Jón Magnússon og Magnús Guð- mundsson sátu í stjóm, þegar Tryggvi skrifaði þessa grein sína. Stjórn þeirra studdist við ótraust fylgi. Þeir þurftu því að semja sitt á hvað og hugs- uðu bersýnilega meira um það en að standa eða falla með ákveðinni stefnu. Stjórnmála- ástandið einkenndist þannig mjög af því, að stjórnin vildi sitja næstum hvað, sem það kostaði. Það var um þetta á- stand, sem Einar Benedikts- son orti hið fræga kvæði sitt um Fróðárhirðina. Þetta ástand gaf Tryggva Þórhallssyni jafn- framt tilefni til að skrifa grein sína um hina ólíku foringja. Tvennskonar leiðtogar Grein Tryggva Þórhallssonar hefst á þessa leið: „TvennS' konar tegundir manna eru það einkum, sem verða leiðtogar þjóðanna í stjórnmálum. Og það erú ein mitt hinar allra ólíkustu tegund ir manna. Er það ein sönnun margra um það, að öfgarnar mætast, þ.e. að til hins sama starfs veljast einkum hinir ó- líkustu menn. Annars vegar eru leiðtogarn ir af Guðs náð, hinir fæddu for göngumenn þjóðanna — menn irnir, sem hafa það mikið á hrifavald, þá miklu andans yfir burði, að fjöldinn skipar sér fús undir merki þeirra, hlítir for- ustu þeirra og vinnur mikil verk undir stjórn þeirra. Af nýrri tíðar mönnum er Jón Sigurðsson frægastur þessara manna. En sömu teg undar eru fyrstu leiðtogar okk ar íslendinga, eftir að stjórn landsins varð innlend, þeir Hannes Hafstein og Bjöm Jónsson. Hins vegar eru þeir pólitískir foringjar, sem ekki mega kall ast leiðtogar, nema því aðeins að frummerking þess orð sé gersamlega gleymd. Því að ein- kenni þessara manna er ekki það, að þeir vísi leiðina. Hæfi leiki þeirra er einmitt í gagn stæða átt, hæfileiki til þess að láta fjöldann, hið kvikula al- menningsálit, teyma sig. Þáð er alveg sérstakur hæfileiki og virðist um stund a. m. k. sérstak- lega hentugur til að halda þess um mönnum í valdasæti.“ „Þeir setja ekkert á oddinn“ Tryggvi Þórhallsson segir enn fremur: „Fyrri flokkurinn — leiðtog arnir af Guðs náð — eru mennirnir sem láta brjóta á sér. Þeir eiga mikil áhugamál, sem þeir gera að hitamálum. Þeir setja þau mál á oddinn. Þeir standa eða falla með þeim málum. Þeir marka stóru spor in á framsóknarbraut þjóðanna. Þetta á við um Jón Sigurðsson, þetta á við um Hannes Hafstein og Björn Jónsson. í síðari flokknum eru hinir, sem ekkert mál gera að sínu máli, þeir eiga ekkert svo mik ið áhugamál, að þeir vilji fóma ráðherrasæti eða neinu veru- legu fyrir það. Þeir setja ekkert á oddinn. Þeir eru alltaf reiðu búnir til að slá af kröfunum á báða bóga, og semja við einn og alla.“ Mikill mannamunur Tryggvi Þórhallsson segir að lokum: „í fyrri flokknum eru menn irnir, sem marka skýra drætti í hinu pólitíska lífi þjóðanna. Mennirnir, sem skapa flokka, mennirnir, sem hreinsa hið pólitíska andrúmsloft, mennirn ir, sem trúa á málstað sinn, mennirnir, sem þora að eign ast óvini, mennirnir, sem eign- ast trúfasta vini mennirnir, er eru hataðir og elskaðir fremur

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.