Morgunblaðið - 16.09.1982, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1982
5
Nú skal greiða söluskatt
af líkamsræktarþjónustu:
PILTIIR var (luttur í slysadeild eftir að hafa lent í árekstri við strætisvagn ura
klukkan 17 i gær. Pilturinn ók bifhjóli sinu austur Breiðholtsbraut þegar stræt-
isvagni var ekið norður Seljaskóga og út á Breiðholtsbraut í veg fyrir hann. Hann
lenti á hlið strætisvagnsins við afturhjólin. Meiðsli piltsins reyndust ekki eins
alvarleg og í fyrstu var óttast. Mynd Mbl. Júlíus.
Aldrei farið fram
á styrki
frið fyrir
Líkamsræktarstöðvum á höfuð-
borgarsva-ðinu hefur nýverið borist
bréf frá skattstofum þar sem til-
kynnt er um kröfu fjármálaráðu-
neytisins í bréfi dags. 19. ágúst sl.
þess efnis, að skattstofur leggi sölu-
skatt á starfsemi líkamsræktar-
stöðva frá 1. september nk. Starf-
semi slíkra stöðva hefur ekki verið
söluskatLskyld fram að þessu en
slíkum stöðvum hefur fjölgað mjög
upp á siðkastið samfara auknum
áhuga almennings á almennri lik-
amsrækt og eigin hcilsuvernd að
sögn forráðamanna stöðvanna.
„Þeim, er stundar líkamsrækt,
er annt um heilsu sína og þar af
leiðir að honum verður síður hætt
við smákvillum, kvefi, flensu og
einnig alvarlegri sjúkdómum. Við-
komandi þurfa því síður á dýrri
heilbrigðisþjónustu hins opinbera
að halda. Það kemur þar af leið-
andi þessu fólki, sem borgað hefur
algjörlega sjálft fyrir aðstöðu til
þessarar ræktunar, í opna skjöldu
— viljum
bákninu
að fá allt í einu framan í sig, að
því sé gert að skyldu að borga
söluskatt ofan á eðlilegan kostnað
af líkamsrækt sinni," sagði Viggó
M. Sigurðsson framkvæmdastjóri
Jógastöðvarinnar Heilsubótar í
Reykjavík í samtali við Mbl., en
hann er einn af þeim sem fengið
hafa í hendur ofangreint bréf.
Viggó sagði einnig að sér hefði
brugðið harkalega við að fá bréfið.
„Við höfum starfrækt líkams-
ræktarstöðina hér í Hátúni í níu
ár í febrúar nk. Fólkið sem hingað
kemur borgar kostnaðinn við hús-
næðið, rafmagn og fleira. Hér fær
það aðstöðu til æfinga undir hand-
leiðsiu leiðbeinenda og aðgang að
gufu-, ljósa- og vatnsböðum.
Rekstrarkostnaðurinn sem hinn
almenni borgari þarf að greiða er
nægur, þó slíkur skattur bætist
ekki ofan á. Það hefur og er eng-
inn að biðja um styrki. Það er það
sem við viljum síst biðja um. Við
viljum eingöngu fá frið fyrir
bákninu," sagði hann að lokum.
Nú fer hver
að verða síðastur!
Stórútsölumark
Bfldshöf
frá kl. 1—8 föstudag,
frá kl. 10—4 e.h. laugardag
Nýjar vörur teknar fram
daglega.^ á
NU MAT
PRUTTA!
ALLT ER AÐ HÆKKA
HJÁ OKKUR ER ALLT AÐ LÆKKA
Karlabær — Belgjagerðin — Steinar — Hummel-
umboðið — Nylon Plast — Z-brautir — Gluggatjöld hf.
SjjBlSI
Sigurður Ftosason
Jóhann G. Jóhannsson
Tómas R. Einarsson
Sveinbjöm I. Baldvinsson
Sigurður Valgeirsson
|3lgS|
iiiii
.