Morgunblaðið - 15.10.1982, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1982
35
Hnégerviliður (total condylar).
Lærbeinsliðhlutinn er úr málmi
en liðhluti leggs úr plastelni.
En er hægt að koma í veg fyrir
festumein? Um þetta segir Kári
Sigurbergsson í grein sinni:
„Á dðgum hóglífis og þæginda í
velferöarríkjum Vesturlanda má
enn minna á að hreyfing er okkur
öllum nauösynleg og holl. Besta
ráðið til að koma í veg fyrir festu-
mein er aö auka líkamlegt þrek og
þol smám saman og ofbjóöa ekki
einstökum vöðvum, sinum og lið-
böndum."
ORSÖK FJÖLDA
GIGTSJÚKDÓMA
ÓKUNN
En hvað er það sem veldur gigt?
Prófessor Víkingur Heiöar Arn-
órsson víkur aö þessu í grein er
hann skrifar í 2. tbl. tímarits Gigt-
arfélags islands áriö 1979:
„Læknavísindin eöa þekkingin á
líkamanum er ekki komin lengra á
veg en þaö aö ekki er enn vitað um
orsök aö fjölda gigtsjúkdóma eöa
gigtarverkja. Ef til vill sér læknirinn
eöa finnur ytri einkenni sjúkdóms-
ins, svo sem bólgna liði eöa hnykla
í vöövum. Meö rannsóknum til
dæmis á blóöi og liövökva getur
hann ef til vill fundiö sýkla sem
sjúkdómsorsök eöa í Ijós kemur
hvítblæöi, sem er tiltölulega
sjaldgæfur sjúkdómur, sem betur
fer, en hefur oft liöbólgu í för meö
sér, sérstaklega i byrjun sjúk-
dómsins. I öörum tilvikum kemur
ef til vill eitt eöa annaö athugavert
fram viö rannsóknina án þess aö
hin eiginlega frumorsök sjúkdóms-
ins finnist og má þá vera aö hægt
sé eftir gangi sjúkdómsins, þegar
til lengri tíma er litið, aö áætla í
grófum dráttum um hvers konar
tegund gigtar sé aö ræöa."
Sama hné eftir gerviliðaaögerð.
Hér hefur einnig verið skipf um
liðflöt hnéskeljar.
Arthrosa í hné, sem er
mest innanfótar og gerir
sjúkling hjólbeinóttan.
Liðbil uppurið og þétting
á nærliggjandi bein.
ASPIRIN ER
ÞEKKTASTA
GIGTARLYFIÐ
En þó aö fólk fái gigt og orsök
sé ókunn, þá er samt hægt aö
hjálpa fólki. Athuganir hafa til
dæmis sýnt, aö 20% þeirra sem
sýkjast af liöagigt batnar aö fullu
án skemmda í liöum. Aörir hafa
viövarandi liöagigt, misslæma,
sem hefur mismikla fötlun í för
meö sér. En sumir fatlast mjög al-
varlega.
En hvernig er gigtarsjúklingum
hjálpaö? Er þaö gert með ýmsu
móti eins og taliö veröur upp hér á
eftir.
Á síöustu árum hefur komiö
fram mikill fjöldi lyfja, sem draga
úr liöbólgum og sársauka, en ekk-
ert þeirra er undralyf, sem leiðir til
fulls bata. Þetta lyfjaúrval hefur
hins vegar komiö aö miklu gagni,
því ekki hentar öllum sjúklingum
sama lyf og aukaverkanir eru mis-
jafnar hjá hinum ýmsu sjúklingum.
Aspirin er elsta og þekktasta
gigtarlyfiö, er þaö oröið 80 ára.
Þaö er ekki bara verkjastillandi
heldur einnig bólgueyöandi, þegar
þaö er tekiö á réttan hátt í nægi-
lega stórum skömmtum.
í grein í tímariti Gigtarfélags ís-
lands, 4. tbl. 1979, fjallar Jón
Þorsteinsson yfirlæknir um aspirin.
Hann segir meðal annars:
„Rannsóknir á síöustu árum
hafa leitt í Ijós, aö sérstakt efni,
sem heitir prostaglandin, finnst í
auknum mæli í öllum bólgum og
sérstaklega í liöbólgum og verkar
sem hvati á aöra bólgumiðla og
þar af leiöandi bólgumyndandi og
verkjaframkallandi. Aspirin í nægi-
lega stórum skömmtum hindrar
cA\atUvöld
föstudagSK -r*
Ferðdkynning: Amsterdam
„Eina sanna Evrópuhjartað“
Þríréttadur
hátíAarkvöldverður:
Quiche Hollandaise
Hollensk eggjakaka
Gigot D'Agneau dans une
croute d’Aromates
Glóðarsteikt lambalæri
með kryddhjúp
Le chariot des Desserts
Fjölbreytt úrval eftirrétta
frá hollenska vagninum
Verð aðeins kr. 290.-.
Eftir matinn bjóðum við upp á ekta
hollenska vindla.
Sýningar
Módel ’79 sýna frá Torginu, Aust-
urstræti. Sýningin er sett upp af Sóleyju
Jóhannsdóttur í Dansstúdíói Sóleyjar.
Erlendir
skemmtikraftar
Hljómsveitin
Gautar frá Siglufirði
leikur fyrir dansi föstudagskvöld
og laugardagskvöld til kl. 03.00
og sunnudagskvöld til kl. 01.00.
Bingó
Að venju veröur
spilað bingó um
glaesileg feröa-
verölaun.
Sérstakar
þakkir til
Arnarflugs hf.
fyrir
þátttökuna.
Hinn trébæri jafnvægis-
snillingur Walter Wasil
skemmtir og hollenskur
söng- og dansflokkur sér
um ad skapa réttu
stemmninguna.
Ath.: Hótel Saga og Arnarflug bjóöa sérstök vildarkjör á gistingu og flugi
í tengslum viö Sólarkvöldin.
Upplýsingar hjá umboösmönnum Arnarflugs um land allt.
Aögöngumiðasala og boröpantanir i Súlnasalnum eftir klukkan 16.00 i
dag, sími 20221.
Kynnir: Magnús Axelsson. Stjórnandi: Siguröur Haraldsson.
Sólarkvöldin — Vönduð og vel heppnuð skemmtun við allra hæfi.
Húsið opnað kl. 10 fyrir aðra en matargesti.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTFUET112 - SÍMAR 27077 & 28899