Morgunblaðið - 15.10.1982, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 15.10.1982, Qupperneq 8
40 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1982 Suöræn óþægindi REGNBOGINN: DAUDINN í FENJUNUM („Southern Comfort") Handrit: Michael Kane. Kvik- myndataka: Andrew Laszlo. Tónlist: Ry Cooder. Leikstjórn: Walter Hill. Bresk/bandarísk, gerð 1981 af EMI. Aðalhlutverk: Keith Carradine, Powers Boothe, Fred Ward, Franklyn Sealers og Peter Coyote. Umhverfið er illræmdir fenja- skógar Louisiana-fylkis, þar sem fáir aðrir þrífast með góöu móti en hinir franskættuðu veiöimenn, „cajuns". Á þessar slóðir er sendur hóþur þjóðvarðliða til þjálfunar yfir helgi. Er þeim ætlaö að komast á milli ákveöinna staöa í vandrötuöum fenjunum á sem skemmstum tíma. mun hæggengari — einkum um miöbikiö — þersónurnar óljósari og efnislega mun ólíklegri. Á hinn bóginn glæöir Hill myndir sínar löngum seiömögn- uðu, Ijóörænu handbragði, og svo er einnig farið með DÍF, þrátt fyrir ónotalega mikiö ofbeldi og djöfulskap. Myndatökuvélarnar, undir stjórn Laszlos, svífa yfir ómennskulegu landslaginu og lit- irnir eru einkar drungalegir, gráir og guggnir og Ijá myndinni einkar nöturlegt yfirbragð. Persónusköpun Hills er hálf- gert klór en hinsvegar er leikara- valið nokkuð gott, einkum. í aukahlutverkunum auk Carra- dines sem stendur fyrir sínu, aö venju. Tónlist Cooders á rætur sínar að rekja til Delta-bluesins Þjóðvarðliðar í mannskæöum fenjaskógum Louisiana í Dauðinn í Fenjunum. Fljótlega kemur í Ijós að lítið gagn er í kortunum, hinn sund- urleiti hópur varöliöanna rænir bátum cajunanna sér til hægðar- auka og hræðir þá með hríð- skotarifflum. Áður en varir eru þeir orðnir kolvilltir og komnir í blóðugt stríð viö veiðimennina sem sækja að þeim úr myrk- viönum. Sem sjá má er söguþráöurinn fjarstæðukenndur en upplagöur til aö skapa spennandi þriller. Tæpast er þó frumlegheitunum fyrir að fara þvi DAUÐINN í FENJUNUM minnir óþægilega mikið á þá ágætu mynd DELIV- ERANCE. Hún þolir illa saman- burðinn þar sem DÍF er bæði og hljóöfalls cajuna og er hinn vænsti þáttur i myndinni. Maður gerist nú orðiö nokkuö langeygöur eftir verki frá Hill, sem jafnast á viö hans fyrstu mynd, HARD TIMES. Þar gaf hann tóninn sem haldist hefur nokkurn veginn í gegnum síöari myndir hans, eins og THE DRI- VER, THE WARRIORS og THE LONG RIDERS. Hann sýnir okkur inní kynngimagnaða veröld þar sem karlmennska og garpskapur eru í hávegum höfö. Þennan heim glæöir hann einkennilegum sjarma, en hefur því miður ekki tekist að gera hann heilsteyptan og fullnægjandi nema í frum- rauninni. GEIMSTÖÐIN dregur óneitanlega talsverðan dám af þeim fræga vestra HIGH NOON, en hér eru þau Cary Cooper og Grace Kelly í þeirri ágætu mynd.. Sean Connery sem framtíðarsheriffinn O’Neil í Geimstöðinni. GEIMVESTRI AUSTURBÆJARBÍÓ: GEIMSTÖÐIN („Outland") Leikstjóri og höfundur handrits: Peter Hyams. Framleiðandi: Richard A. Roth. Tónlist: Jerry Gold- smith. Aðalhlutverk: Sean Connery, Peter Boyle, Frances Sternhagen. Bandarísk frá Warner Bros. (The Ladd Company), gerð 1981. Sýnd í Dolby. í GEIMSTÖÐINNI er verið að brjóta og nema nýtt land, en nú er sögusviðið ekki Kansas eða Kalifornía nít- jándu aldarinnar, heldur eitt af tunglum Júpiters, lo, ein- hverntíma í framtíöinni. Er þar rekin risavaxin námu- vinnsla af fyrirtæki á Móður Jörð. Hér hefur lögreglustjór- inn sínar áhyggjur — ekki af lestarraufurum né kýrrekum, heldur viðsjárverðum atvinnurekendum sem með hjálp eiturlyfjabyrlara dæla Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson baneitruðum hraða (speed) ofaní námumenn til aö auka afkastagetuna. Connery kemst í málið og hefur eins- mannsstríð gegn kerfinu. Námurekendur, með Peter Boyle í fararbroddi, reyna ár- angurslaust að ryðja Connery úr vegi. Þá er gripið til þess ráös að senda þaulvana atvinnudrápsmenn til höfuðs honum með næstu geim- skutlu. Og Connery fylgist með rafeindaklukkunni telja niður tímann til komu skutl- unnar — víðsfjarri er nú hin fornfálega, upptrekkta brautarpallsklukka — og bíð- ur andskota sinna einn, án hjálpar nokkurra þeirra sem hann er að berjast fyrir. Það leynir sér ekki að Hyams sækir hér meira en lít- ið í hinn sögufræga stór- vestra HIGH NOON, færir að- eins söguna fram um nokkrar aldir. Sviðsmyndirnar og búningarnir eru ári góð, lík- önin eru hreinasta afbragð og yfirbragð myndarinnar fjarlægt og framtíðarlegt. Átökin utan geimstöövarinn- ar, í myndarlok, vel gerö og æsileg. Hyams er bráðflinkur atvinnumaður í gerö vandað- ra afþreyingarmynda og meö GEIMSTÖDINNI bætir hann einni í safniö. Connery er vel viðunandi í hlutverki lögreglustjórans — þó hann sé náttúrlega enginn Gary Cooper. Þá er Frances Sternhagen eldhress í vel skrifuðu hlutverki Lazarus læknis. Tónlist Goldsmiths er áhrifarík að venju svo og hljóð og Dolby-effektar. Liðsmenn söngflokksins The Platters brugöust ekki vonum manna frekar en fyrri dagínn. Ljósm. Mbl. KÖE. Lifnar yfir næturlífinu Skemmtanalífið í Reykjavík tekur venjulega fjörkipp þegar vetur gengur í garð enda eölilegt að menn þurfi helst á upplyftingu að halda í skammdeginu. Þess eru líka þegar farin að sjást nokkur merki að heldur hefur lifnað yfir næturlífinu í höfuðborginni og má sem dæmi nefna skemmtanir, sem haldnar hafa verið á skemmtistaðnum Broadway að undanförnu, en í síðustu viku rak þar hver stórviöburðurinn annan. Á miðvikudag í síðustu viku var haldin jasshátið á Broadway, en þar komu fram nokkrir þekktustu jassleik- arar landsins. Hljómsveitin „Nýja Kompaníið" kynnti meðal annars lög af nýútkominni plötu sinni „Kvölda tekur", en hljómsveítina skipa þeir Jó- hann G. Jóhannsson, píanó, Sigurður Valgeirsson, trommur, Sveinbjörn I. Baldvinsson, gítar, Tómas R. Einars- son, bassi, og Sigurður Flosason, alt- sax og flauta. Þeir félagar í „Nýja Kompaníinu" hafa þá sérstöðu meðal íslenskra jassleikara að flytja eingöngu frum- samda jasstónlist. Þá kom fram jasspianistinn Guðmundur Ingólfsson ásamt félögum sínum úr hljómsveit sinni, þeim Pálma Gunnarssyni, Guð- mundi Steingrímssyni og Birni Thor- oddsen, og kynntu þeir lög af væntan- legri hljómplötu, sem Guömundur Ing- ólfsson er skrifaður fyrir. Loks kom fram hljómsveitin „Blues Company" en hún var skipuð Magnúsi Eirikssyni (gitar) og Baldri Má Arngrímssyni (gít- ar), Sigurði Karlssyni (trommum), Pálma Gunnarssyni (bassa) og Guð- mundi Ingólfssyni (pianói).

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.