Morgunblaðið - 22.10.1982, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 22.10.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1982 39 Hér má «já hluta af sevafornri veggmynd frá Egyptalandi, an hún aýnir leirkerasmid við vinnu sína um 1900 fyrir Krist. ... og hér töfrast skál af rennibekknum og er sett upp á hillu þar sem hún er látin þorna í nokkra tíma áöur en hægt er að renna á hana botninn og ganga end- anlega frá henni. klukka til á heimilinu, nema þessi sem hér er í eldavélinni. Annars höfum viö útvarpiö í gangi yfirleitt allan daginn, og vitum þannig hvaö tímanum líöur.“ Hvernig finnst þér að hafa vinnustofuna heima? „Mér finnst þaö miklu þægi- legra. Viö erum búin aö vera hér í um tvö ár, en áöur var ég meö verkstæöi á Skemmuveginum, þá bjuggum viö í Kópavoginum og mér fannst ég alltaf vera á feröinni milli heimilis og vinnustaðar. Maö- ur þarf líka aö fylgjast þaö vel meö ofnunum, þegar þeir eru aö hitna og ná réttu hitastigi. Svo veröur vinnutíminn frjálslegri, ég hef alltaf veriö skorpumaður og get sagt með sanni aö ég vinn aldrei frá 9—5. Þaö er hinsvegar ekki óal- gengt aö ég sé aö vinna til klukkan tvö á nóttunni, en er yfirleitt ekki byrjaöur fyrir en um 9 á morgnana, og tek ég mér oft frí um miöjan daginn. Ég held ég vinni yfirleitt mun meira en 40 stunda vinnuviku, og eflaust vinnur maöur meira þegar vinnustofan er heima hjá manni. En þetta hefur auövitaö sína ókosti Itka, aö minnsta kosti meöan viö búum hérna í vinnustof- unni, þaö er oft geysilegur um- gangur hérna, börnin aö koma inn og fólk kemur miklu meira í heim- sókn á daginn þegar viö erum bæöi heima. En þetta breytist þeg- ar viö flytjum yfir í hitt húsiö, ætli þaö veröi ekki tilbúiö um næstu áramót. Maður veröur Ifka aö búa yfir ákveönum sjálfsaga til aö geta unnið á þennan hátt, þaö er enginn sem rekur á eftir og ekki hægt aö miöa afköstin viö vinnufélagana." En hvernig er með sumarfrí og þess háttar? „Maöur tekur sér eiginlega ekki fri nema eiga eitthvaö á lager. Annars hafa húsbyggingarnar eig- inlega haft þau áhrif aö maöur hef- ur ekki tekiö sér frí í nokkur ár.“ Er þetta skemmtilegt starf? „Já, þaö er mjög skemmtilegt, mest finnst mér þó gaman að búa til sérstaka hluti og leika mér í leirnum. Mestur tími minn fer þó í aö búa til leirbolla, skálar og þess háttar, en þaö eru margir farnir aö safna tekönnum eöa bollum og maöur verður því dálítið bundinn af því aö halda framleiöslunni áfram. Ég sel vöru mína í þrem verslunum, Kúnigúnd, Blómahöll- inni og Blómabúöinni Laufási á Akureyri og anna varla eftirsþurn.“ Hefuröu unnið lengi meö þann- ig hluti? „Fyrst eftir aö ég lauk námi vann ég í Funa, en siöan langaöi mig til aö breyta til og reyna eitthvaö nýtt en leirtegundin sem viö unnum ílf Ekki er vitaö hvenær menn byrj- uöu að brenna leirinn í sérstök- um leirbrennsluofnum, en upp- runalega var leirinn eingöngu lát- inn standa og þorna í ákveðinn tíma. Steinleirinn sem mest er notaður í nytjahluti í dag er brenndur við um 1280 gráður á Celsíus. Sumar skálarnar eru skreyttar með járnoxíö og Helgi sýnir okkur hvernig hann fer að því. ,Hef verið með vinnustofuna hérna í tæp tvö ár, en var áður í Kópavoginum. meö í Funa bauð ekki upp á mikla möguleika. Viö notuöum mikiö jaröieir þar og framleiddum aðal- lega skrautmuni, en mig langaöi til aö búa til eitthvað meira af nytja- hlutum og gera tilraunir meö fram- leiðslu á steinleirnum og setti síö- an sjálfur uþþ verkstæöi í Ármúl- anum áriö 1975, keyþti mér ofn og byrjaöi á þessu smátt og smátt. Síöan flutti ég verkstæöiö yfir á Skemmuveginn og síöan í Breiö- holtiö, hér höfum viö sem sagt ver- iö í tvö ár.“ Helgi sýnir okkur nú vinnuaö- stööuna og þau verkfæri sem hann notar. Þarna má sjá ýmsa kera- mikhluti á ólíkum framleiöslustig- um, diska, bolla og skálar. Hann sest viö rennibekkinn og setur vænan skammt af leir á miöja skíf- una og innan skamms tekur leir- klumpurinn á sig form og veröur aö stórri skál. „Það hefur áreiöanlega hver og einn leirkerasmiður ákveöiö hand- bragö og tækni viö aö renna leir- inn,“ segir Helgi og segist senni- lega vera einn af fáum sem alltaf er með lítinn svamp í annarri hend- inni til aö auövelda rennsluna. En er ekkert erfitt að sitja jafn- vel tímum saman viö rennibekk- inn? Helgi segir aö þetta reyni tals- vert á axlir og bak þegar til lengd- ar lætur, og þaö geti veriö talsverö átök, þegar stór stykki eru rennd. „Maöur er stundum meö allt aö 7—10 kíló í einu.“ Og hvaða leír er aðallega notaöur? „Ég vinn aðallega úr innfluttum leir, og flest önnur efni sem ég nota eru einnig erlend. Nei, ég hef ekki prófaö íslenska leirinn, en hann var notaöur talsvert hérna á fyrstu árunum, Guömundur frá Miödal var t.d. með blöndu úr ís- lenskum og erlendum leir og nú er verið aö gera tilraunir meö nýtingu á íslenska leirnum í Búðardal. Ég hef stundum veriö gagnrýnd- ur fyrir aö vera of mikiö í fram- leiðslunni, en viö sem erum í þessu í fullu starfi veröum aö byggja uþþ ákveöna söluvöru til aö viö getum lifaö af þessu starfi okkar. Allir leirkerasmiöir eru auövitaö líka framleiðendur. Þeir sem hafa at- vinnu sina af einhverju ööru og eru aö fást viö þetta meira sem hobbý eru auövitað frjálsari aö því sem þeir eru aö gera. En hjá mér er leirlistin hobbý númer eitt, tvö og þrjú.“ Og Helgi tekur leirvörurnar út úr ofninum, en þar brennur leir- inn viö 1280 gráöur á Celcíus, raö- ar keramikhlutunum á hillurnar í vinnustofu sinni og þaöan eru þeir síðan tilbúnir í verslanirnar og til væntanlegra kaupenda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.