Morgunblaðið - 22.10.1982, Side 8
40
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1982
Skálar, vasar og veggskreytingar úr leðri
Litið inn í vinnustofu Lárusar Þorleifssonar
„Viltu sjá vinnuaðstöðuna? Það fylgir þessari leðurvinnu dálítið drasl
~ eins og sjá má,“ segir Lárus Þorleifsson, er við gongum inn í vinnu-
herbergið hans. Þarna má sjá leður af ýmsum gerðum, ýmis áhöld og
hluti sem eru í vinnslu.
Nokkrir vatar og akálar úr leðri, en eingöngu nttaðir þurrkuðum
blómum. (Ljósmyndir Emilía).
.Hér er ég að búa til lampa,"
segir Lárus og bendir á einn hlut-
inn sem er greinilega aö taka á sig
lögun þess sem veröa skal. Fyrir
framan vinnustofuna er síöan
talsvert af fullunnum hlutum, þarna
má sjá ýmsar leöurskálar,
veggskreytingar, leöurvasa undir
þurrkuð blóm o.fl. I einu horninu er
fullgerður lampi úr leöri. „Þetta er
nú eiginlega stoltiö mitt,“ segir
Lárus og sýnir okkur hvernig stilla
má Ijósgeislann á lampanum og
láta hann lýsa á mismunandi vegu.
.baö eru liöamót hérna í lampa-
fætinum sem gera þetta mögu-
legt.“ Á veggnum fyrir ofan er
veggskreyting úr leöri meö þurrk-
uðum blómum og sveppum. „Ég
fann þessa sveppi uppi i Heiömörk
og þurrkaöi þá í ákveöinn tíma,
síöan djúpsteikti ég suma þeirra
upp úr kertavaxi og þá halda þeir
sér alveg, annars er hætt viö aö
þeir haldi áfram aö skreppa sam-
an.“ Þarna eru einnig fleiri munir,
stór leöurskál er á boröinu meö
kexkökum og ööru góögæti,
mappan utan um símaskrána er
einníg unnin úr leöri á einhvern
sérstakan hátt. Viö spyrjum Lárus
hvaö hann hafi lengi fengist viö
þessa iðju.
„Ég byrjaði á þessu í maí á
þessu ári,“ svarar Lárus. „Þá var
ég meö aöstööu á Hverfisgötunni
og þaö byrjaöi meö því aö ég ætl-
aöi aö þrykkja myndir og munstur
i apalskinn, en þaö er mjög
skemmtilegt skinn aö vinna úr og
hægt aö meðhöndla þaö á marg-
víslegan hátt. Ég haföi hugsaö mér
aö þrykkja dreka og blómamynst-
ur i skinnið, en siöan fór ég aö
reyna mig áfram meö efniö, hvern-
ig væri hægt aö meöhöndla þaö á
misjafnan máta og fór í framhaldi
af því að leita aö öörum leöurefn-
um sem betra er að móta og herö-
ist betur og komst þá inn á þessa
braut.
Nú vinn ég mest ýmsar skreyt-
ingar fyrir þurrkuö blóm og nota
yfirleitt nautshúð. Hingað í Skeif-
una flutti ég svo fyrir um tveim
mánuöum og hef veriö hér meö
aöstöðu síöan.“
Haföirðu unniö eitthvað við leö-
ur áður?
„Nei, ég haföi ekkert komiö ná-
lægt svona vinnu, en mig haföi allt-
af langaö til aö vinna úr einhverj-
um þeirra hugmynda sem ég haföi.
Ég hef gert mikiö af því aö flakka á
milli vinnustaða, eöa allt frá því ég
var um 16 ára gamall. Þannig hef
ég aflaö mér upplýsinga um vinnu-
aöferöir og nota þá reynslu viö
þetta. Þegar ég var 16 ára ætlaöi
ég að veröa smiður, en fékk til aö
byrja meö ekki aö gera neitt nema
sópa gólf og fór þá aö gamni mínu
aö skera út og hef búiö aö því
síöan.“
Og það er auðvitað hernaðar-
leyndarmál hvernig þú vinnur
þetta?
... og lampinn sem haegt er að stiila á ýmsa vegu. „Aðallega lært á hinum ýmsu vinnustöðum sem ég
Skermurinn var ekki tilbúinn svo þessi var settur hef unnið á,“ sagði Lárus.
til bráðabirgða.
„Já, þetta er árangur tilrauna-
starfsemi, ég veit ekki til þess aö
nokkur annar hafi búlö til svipaöa
hluti, og ef menn vilja reyna sig viö
þetta veröa þeir bara aö prófa sig
áfram. Mér hefur fundist mjög
skemmtilegt aö móta úr þessu og
verö líklega meö sýningu á því sem
ég er búinn aö vinna í nóvember
eða desember og býst viö aö
veröa þar meö fleiri stóra hluti svo
sem lampa og borð.“
En hvernig gengur þér að lifa á
þessu, finnst þér þú fá nægilega
mikið fyrir þessa hluti miöað við
þá vinnu sem lögð er í þá?
„Ja, maöur hefur tóraö af þessu,
en þó er varla hægt aö segja aö
tekjurnar hafi verið miklar. Maöur
veröur líka sífellt aö kaupa ný efni
og þess háttar og prófa sig áfram
og þaö er jafnvel þaö kostnaðar-
samasta, þaö er mjög dýrt aö
prófa sig áfram meö hin ýmsu efnH
en það er jafnframt eina leiöin til
einhvers árangurs.“
Og hvað er svo framundan?
„Ég ætla aö halda áfram í þessu
eins lengi og ég get og reyna aö ná
þeim árangri sem óg vil ná meö
þetta efni, og fara síöan út í nýt-
ingu á öðrum efnum."
Helduröu að áhugi á handunn-
um vörum sé að aukast?
„Ég veit ekki, en mér finnst aö
þaö þurfi aö örva listræna sköpun
og handverk yfirhöfuö. Ég veit um
fullt af fólki sem hefur áhuga á aö
fara út í framleiöslu á listiönaöi og
koma hugmyndum sínum á fram-
færi, en þeir eiga margir erfitt meö
aö byrja og vita jafnvel ekki hvern-
ig þeir geta komiö vörum sínum á
framfæri, og því gæti veriö æski-
legt aö nokkrir aöilar tækju sig
saman og opnuðu sameiginlega
sölubúð þar sem íslenskur listiön-
aöur væri eingöngu á boöstólum.
Nú, þaö gæti einnig veriö mögu-
leiki á aö selja eitthvaö úr landi, ég
veit t.d. að það hafa tveir útlend-
ingar, annar franskur og hinn
þýskur, sýnt þessum leöurvörum
mínum áhuga jafnvel meö þaö fyrir
augum aö flytja þá út.“
ítölsk reyrhúsgögn hafa
notiö mikilla vinsælda á
undanförnum árum, hér á
landi sem annarstaöar í
Evrópu. Þaö er ekki síst aö
þakka hinum þekkta Gio-
vanni Gervasoni, ítalanum
sem hóf þessa gerð hús-
gagna til vegs og virðingar,
en fyrirtæki hans Gervasoni
er um eitt hundruö ára gam-
alt. Gervasoni-húsgögn
hafa veriö fáanleg hór á
landi undanfarin ár, og viö
birtum hér sýnishorn af
framleiöslu ítalanna.