Morgunblaðið - 22.10.1982, Page 17

Morgunblaðið - 22.10.1982, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1982 49 félk í fréttum Yoko Ono sá um veraldarvafstrið + í nýútkominni bók, „The Ballad of John and Yoko“, eftir Chet nokkurn Flippo kemur fram aö Yoko hafi haft bæði töglin og hagldirnar í heimilisrekstri þeirra hjóna. Eins og kunnugt er, var John mikiö heima meö soninn Sean og sinnti heimilisverkum, á meðan Yoko var á kafi í veraldarvafstrinu. Hún tók enga mikil- væga ákvöröun án þess aö ráöfæra sig við einhvern ráögjafa sinna. Þeir voru m.a. stjörnuspekingar, sálfræöingar, ýmiss kon- ar spámenn, sérfræðingar í kínverskri heimspeki og rekstrar- hagfræðingar. Braut Liberace á elskhuga sínum? + Hinn 63 ára gamli píanóleik- ari og skemmtikraftur Liberace stendur um þessar mundir í miklum málaferlum, eftir aö hafa kastaö elskhuga sínum og „hjálparhellu“ á dyr. Sá er 23 ára gamall dansari og dýra- temjari aö nafni Scott Thorson. Hann hefur nú höföaö skaöa- bótamál á hendur Liberace og nemur upphæöin sem hann fer fram á aö fá vegna þessa brots á samningum gagnvart sér 113 milljónum dollara, hvorki meira né minna. Liberace segist munu berj- ast fyrir rétti sínum í máli þessu, sem sé einungis höföaö í þeim tilgangi aö skemma mannorö hans. Samningur sá er hann hafi gert viö Scott Thorson hafi einungis veriö munnlegur og ekki alvarlegs eölis, en samiö hafi veriö um aö hann héldi Scott uppi til æviloka og greiddi honum aö auki 7.000 dollara á mánuöi fyrir utan ýmis önnur hlunnindi. Samband þeirra stóö í sex ár og lauk á síöasta ári er Liber- ace kastaöi dansaranum á dyr. Liberace og Scott Thorson á moAan aA allt lák í lyndi. Varúð rrailli fimm og sex + Hættulegasta tímabiliö í tilveru mannsins er milli klukkan fimm og sex á morgnana, fullyröir tímaritiö „Science Digest” eftir aö hafa rannsakaö máliö út i hörgul. Það deyja nefnilega fleiri á þessum eina klukku- tíma en nokkrum öörum. Liv Ullman hyggst setjast viö skriftir + Liv Ullman, sem um þessar mundir er aö leika í verki Henrik Ibsen „Gen- gangere“ á Broadway, hef- ur nú nýlokið viö aö skrifa í samvinnu við fimm skand- inavískar konur handrit aö sjónvarpsþáttum fyrir bandaríska sjónvarpiö. Hún hefur einnig tilkynnt aö hún hafi í hyggju aö taka sér hvíld frá leikstörfum í hálft ár til að helga sig ritstörf- um, er hún hefur lokiö störf- um á Broadway. Og hún segir: „Þaö mun veröa bók, sem ekki mun koma til meö aö fjalla um mig sjálfa og minn máta til aö lifa lífinu, heldur veröa blanda af skáldskap og því sem ég hef upplifað sjálf. Ekkert í líkingu viö fyrri bók mína, Umbreytinguna, sem var nokkurs konar ævisaga. Innilegar þakkir til allra sem glöddu mig meö heimsóknum, gjöfum og skeytum á 80 ára afmæli mínu 3. október sl. og geröu mér daginn ógleymanlegan. Sérstakar kveöjur til ættingja og vina í Fljótum og á Siglufiröi. Guö blessi ykkur öll. Símon Márusson Öllum þeim, sem minntust mín meö hlvium um og góöum gjöfum á sjötugsafmæli minu þann 10. október síðastliöinn, sendi ég hjartanlegar þakkir og árnaðaróskir. Siguröur Gunnarsson, fyrrv. skólastjóri. NÝTT! Sambyggöur hverfisteinn meö hjóli til blautslípunar og hjóli úr gúmmíbundnum ál-ögnum til brýningar. Hljóðlátur iönaðarmót- or 200W, 220v, 50 HZ, einfasa, snýst 70 snún inga á mín. Laust vatnsílát. Sérstök stýring fyrir sporjárn o.þ.h. Laugavegi29 Símar 24320 — 24321 24322. SÍMI 28855. TDLVUSKÚLDMN —— Skipholti 1, >ími 2S4QQ*"——_ / Tölvunámskeið fyrir börn 9—16 ára Kennd eru grundvallaratriöin í meöferö og forritun tölva. Aö loknu námskeiöi geta nemendur skrifaö einföld forrit. Kynnt er einnig bygging og eiginleikar tölva meö aöstoö litskyggna. Nemendur hafa frjálsan aögang aö tölv- unum mestan hluta dagsins utan venju- legs kennslutíma til æfinga. Leiktímar eru aö kvöldinu. y Viö kennsluna eru notaöar vandaöar einkatölvur frá ATARI meö lit og hljóöi. Framsýnir foreldrar láta börn sín læra á tölvur. Tölvunámskeiö eru bæöi þrosk- andi og skemmtileg og opna börnunum nýja möguleika í lífinu. Innritun í síma 25400

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.