Morgunblaðið - 13.01.1983, Blaðsíða 1
9. tbl. 70. árg.
FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ofsóknir á hendur vestrænum fréttamönnum í Póllandi:
Sat í varðhaldi í
tæpan sólarhing
— var síðan skipað aö verða á brott úr landinu
Varsjá, 12. janúar. AF.
BANDAKÍSKI fréttamaðurinn Kuth
dag eftir að hafa setið í varðhaldi í
skipað að hverfa á brott úr landinu
birti í kvöld.
Ruth Gruber er fréttamaður
bandarísku fréttastofunnar UPI
í Póllandi og lýsti hún varðhaldi
sínu í höfuðstöðvum lögreglunn-
ar í Varsjá í dag sem „martröð".
Hún hafði ekki spurnir af skip-
uninni um að hverfa úr landi
fyrr en hún var birt í fjölmiðlum
í kvöld, tveimur klukkustundum
eftir að hún var látin laus úr
varðhaldinu.
Pólskur aðstoðarmaður henn-
ar var einnig handtekinn, en
hringt var í hann í gærmorgun
og hann beðinn að koma og
sækja myndir sem áttu að vera
þeim ætlaðar og komu frá
Gruber var látinn laus í Póllandi í
23 klukkustundir. Henni var síðan
í tilkynningu sem fréttastofan PAP
Gdansk. Það var síðan vegna
þessara mynda sem yfirheyrsl-
urnar fóru fram.
Gruber, sem e.r 33 ára gömul,
sagðist álíta að þessar handtök-
ur væru í beinu framhaldi af
„áróðri stjórnvalda gegn vest-
rænum fréttamönnum" í Pól-
landi. Hún vitnaði máli sínu til
stuðnings í brottvísun frétta-
manns BBC frá Póllandi fyrir
nokkrum dögum og þá stað-
reynd, að yfirvöld hafa nú mein-
að fjölmörgum pólskum starfs-
mönnum vestrænna fréttastofa
og sendiráða framlengingu
starfsleyfa sinna.
Leikarinn Dustin Hoffman og eiginkona hans Lisa fóru frí Lundúnum
áleiðis til New York i dag ásamt taeplega tveggja ára gömlum syni sínum,
Jake. I>au vænta annars barns síns innan mánaðar og hafa þegar tekið
ákvörðun um það hvað barnið á að heita, eða því sem næst. Verði barnið
drengur mun hann heita Hamlet, Herkúles, Max eða Zack, en verði það
stúlka mun hún heita Diana, Dorothy, Vanessa eða Agatha. Til að þrengja
hringinn nánar verður siðan dregið úr þessum nöfnum þegar barnið fæð-
ist...
_
Reiði í Israel vegna fregna
um þrýsting frá Bandaríkjunum
Tel Aviv, 12. janúar. AP.
FRETTIR þess eðlis að Bandaríkjamenn muni ekki taka á móti Menachem
Begin fyrr en einhver skriður er kominn á samningaviðræður Israela og
Libana hafa vakið mikla reiði i fsrael í dag, en ísraclskir fjölmiðlar höfðu
þær eftir áreiðanlegum bandarískum hcimildum.
Þar kom einnig fram að Ronald
Reagan hefði í hyggju að bíða
frekari átekta þar til hann hefði
fengið fregnir um það hvort Huss-
ein Jórdaníukonungur hefur í
hyggju að taka þátt í viðræðum
um lausn mála fyrir botni
Miðjarðarhafs og niðurstaða er
fengin í rannsóknum á fjölda-
morðunum í Beirút.
Talsmaður Begins sagði fréttir
þessar ekki á rökum reistar, en
mikill stuðningsmaður Begins
sagði í viðtali í dag:„Ef þessar
fregnir eru sannar, er augljóst að
Bandaríkjamenn eru að blanda
sér á gróflegan hátt í innanrík-
ismál í Israel."
Begin ætlaði í upphafi að funda
með Reagan forseta í Washington
í nóvember síðastliðnum, en hann
varð að hætta við förina vegna
andláts eiginkonu sinnar. Engin
dagsetning var ákveðin fyrir
næsta fund þeirra.þá, en það hefur
verið mál manna síðan.að þeir
myndu koma saman til fundar í
byrjun febrúar.
Sérlegur sendimaður Banda-
ríkjastjórnar í Miðausturlöndum,
Philip C. Habib, kom til ísrael í
gær og hafði meðferðis skilaboð
frá Bandaríkjaforseta þar sem
farið er fram á að viðræðum verði
hraðað sem frekast er kostur, að
því að haft er eftir ísraelskum
fjölmiðlum í dag.
Bandaríska sendinefndin er að
reyna að miðla málum í deilum
um dagskrá samningaviðræðn-
anna, en þar strandar allt á þeirri
kröfu ísraela að tekið verði inn í
dagskrá viðræðnanna atriði um
eðlileg samskipti ríkjanna tvéggja
og þeirri kröfu Líbana að einblínt
verði á brotthvarf ísraela af líb-
önskum landsvæðum.
Habib mun ræða við Begin á
morgun, en í dag ráðfærði hann
sig við bandaríska stjórnarerind-
reka í Israel.
Yasser Arafat kom hins vegar
til Moskvu í dag, þar sem hann
ræddi við Yuri Andropov og aðra
helstu leiðtoga Sovétríkjanna.
Sovétmaðurinn Vladimir Chernov, sem rekinn var frá Bretlandi i dag.
Enn eitt njósnamál í Bretlandi:
Sovéskum túlki
yfsað úr landi
Lundúnum, 12. janúar. Al\
BRESK yfirvöld visudu í dag sovéskum starfsmanni alþjóðlega
hveitiráðsins úr landi vegna „starfa sem samræmast ekki stöðu hans“, en
þessi setning er ávallt notuð í tilfellum sem varða njósnir.
Yladimir Alexandrovitch Chernov, 31 árs gamall, fékk vikutima til að
hafa sig á brott, en hann hefur starfaö sem túlkur hjá ráðinu frá því í
septcmher 1978, að því er segir í opinberri tilkynningu.
Þar kemur einnig fram að
bresk stjórnvöld hafa sent sov-
éska sendiráðinu formleg mót-
mæli varðandi „misnotkun Sov-
étmanna á sjálfstæðum alþjóð-
legum samtökum". Ekkert kom
fram um þá hluti sem Chernov
er ákærður fyrir.
Chernov þvertók fyrir það í
Lundúnum í dag að hafa gert
nokkuð það sem skaðað gæti
breska hagsmuni og sagði í við-
tali við blaðamann AP-frétta-
stofunnar: „Þessi yfirlýsing
utanríkisráðuneytisins er mjög
ónákvæm, eftir því sem ég fæ
best séð. Ég hef ekki gert neitt
það sem brýtur í bága við lög og
reglur er varða útlendinga hér í
landi."
Þessi brottvísun Chernov úr
landi kemur í kjölfar fjölmargra
annarra í Bretlandi á síðastliðnu
ári.
Chernov, sem býr ásamt eig-
inkonu sinni og barni í Lundún-
um, er ekki á lista yfir opinbera
starfsmenn, en nýtur samt nokk-
urra forréttinda.
Austur-I>ýskaland:
Fréttaritari
Stern gerður
brottrækur
Berlín, 12. janúar. AF.
AUSTUR-ÞÝSK yfirvöld tilkynntu í
dag að þau hefðu rekið Dieter Bub
fréttaritara tímaritsins Der Stern úr
landi, eftir að blaðið birti fregnir
þess eðlis að reynt hefði verið að
myrða Erich Honecker leiðtoga
austur-þýska Kommúnistaflokksins
þann 31. desember síðastliðinn.
í tilkynningu fyrirvalda segir að
starfsleyfi Bub hafi verið tekið af
honum og honum gefinn tveggja
sólarhringa frestur til að fara úr
landi þar sem hann hefði gerst
„gróflega brotlegur" við austur-
þýsk lög og fréttamennska hans
væri „ósönn og illkvittin." Ekki
var minnst á frétt hans um morð-
tilraunina sérstaklega.
Frétt hans um morðtilræðið var
birt í tímaritinu í gær, og var þeg-
ar í stað neitað af austur-þýskum
yfirvöldum. Hins vegar voru nokk-
ur atriði fréttarinnar staðfest af
yfirvöldum, svo sem að maður
nokkur hefði skotið að bifreið
lögreglu skömmu fyrir áramót og
sært þar einn mann áður en hann
svipti sig lífi.
Sovétríkin:
Nikolai V.
Podgorny
fyrrum forseti látinn
Moskvu. 12. janúar. AP.
NIKOLAI V. Podgorny fyrrverandi
forseti Sovétríkjanna er látinn, 79
ára að aldri, eftir langvarandi veik-
indi. Þetta kemur fram i tilkynningu
yfirvalda í dag, en ekki er kveðið
nánar á um hvenær hann lést.
Podgorny var forseti Sovétríkj-
anna um tólf ára skeið frá 1965 til
1977 og var þá einn þriggja leið-
toga landsins ásamt Leonid I.
Brezhnev, aðalritara Kommúnista-
flokksins, og Alexei N: Kosygin,
forsætisráðherra.
Kosygin lést í desember 1980 og
Brezhnev lést 10. nóvember 1982,
fimm árum eftir að hann hafði
vikið Podgorny úr forsetastóli og
tekið sjálfur við embættinu.
Talsmaður stjórnarinnar vildi
ekkert tjá sig um andlátið, en
sagði að allar frekari upplýsingar
myndu koma fram innan skamms.
I Sovétríkjunum er talið að hann
hafi látist á mánudag eða þriðju-
dag.
Éinnig var í dag tilkynnt um
andlát Tikhon Kiselev, auka-
fulltrúa í stjórnmálaráðinu. Hann
var 65 ára að aldri.