Morgunblaðið - 13.01.1983, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANUAR 1983
47
• AlfraA lék «kki með í gær.
Hann fékk blóöeitrun í lærið.
Man. City áffram
Manchester City sló
Sunderland út úr ensku bik-
arkeppninni í gær, er liðin
léku aftur, en þau skildu jöfn
á laugardaginn. City sigraði
2:1 og hafði mikla yfirburði í
leiknum. Þetta var í fyrsta
skipti í sex ár sem City hefur
unnið Sunderland. Asa Hart-
ford (14. mín.) og David
Cross (39. mín.) skoruðu
mörk City, og leikmenn liðs-
ins áttu þrívegis skot í
tréverkið á marki Sunder-
land áður en Gordon Chis-
holm minnkaöi muninn fyrir
gestina. Joe Corrigan réð
ekki við skot hans af 25 m
færi. Úrslit leikjanna í gær
urðu þessi.
Bikarinn:
Chelsea — Huddersfield 2:0
Man. City — Sunderland 2:1
Newcastle — Brighton 0:1
Stoke — Sheffield Utd. 3:2
Torquay — Oxford 2:1
3. deild:
Bradford — Orient 2:3
4. deild:
Hartlepool — Peterborough 0:0
Brighton var mjög heppið
að sigra Newcastle á útivelli.
Kevin Keegan og Imre Var-
adi skoruöu báöir fyrir New-
castle á síðustu 10 mínútun-
um en mörkin voru dæmd af
þeim. Peter Ward skoraði
eina mark leiksins á 62. mín.
Keith Edwards kom Sheff.
Utd. yfir gegn Stoke en Dav-
id McAughtie jafnaði. Colin
Morris skoraði svo fyrir Un-
ited úr vfti. lan Painter og
Mike Henderson (sjálfs-
mark) skoruöu fyrir Stoke (
seinni hálfleik.
JLJ:
t‘<4
• .
KR-ingar langf frá sínu
besta en unnu IR léttilega
KR-ingar lentu í nokkru basli
meö ÍR í fyrri hálfleik í gærkvöldi
er liðin mættust í 1. deildinni í
handbolta en í þeim síðari var
aldrei spurning um hvort liðið
sigraði. Reyndar var búist viö aö
sigur KR yröi auðveldur og sú
varö raunin þegar upp var staðið.
Þeir ætluðu sér hins vegar að
skora nokkur mörk í hverri sókn j
upphafi leiksins — svo virtist
a.m.k. vera — slíkur var hama-
gangurinn í þeim. Leikurinn end-
aöi 28:13 en í hálfleik var KR yfir
12:8.
Þess má geta að Alfreö Gísla-
son lék ekki meö KR í leiknum —
sat reyndar á bekknum hjá þeim
— en hann meiddist í feröinni til
Þýskalands á dögunum. Ragnar
Hermannsson og Haukur Geir-
mundsson voru ekki heldur meö
KR þar sem þeir eru í prófum.
Fjögurra marka munurinn sem
var í hálfleik hélst ekki lengi í þeim
síöari og mestur varö hann fimm-
tán mörk — 28:13 — í lok leiksins.
Stefán Halldórsson og Gunnar
KR—ÍR
28—13
Gíslason voru bestu menn KR í
þessum leik ásamt Jens í markinu.
Hann varöi mjög vel. Annars lék
KR-liöið alls ekki vel og virkuöu
leikmenn áhugalausir og sigurviss-
ir.
Guöjón Hauksson markvörður
ÍR var besti maöur liösins og
bjargaöi því frá stærra tapi.
Mörkin.
KR: Stefán Halldórsson 8, Gunnar
Gíslason 6, Guömundur Alberts-
son 4, Anders-Dahl Nielsen 4/1,
Jóhannes Stefánsson 3, Haukur
Ottesen 3.
ÍR: Atli Þorvaldsson 4/2, Andrés
Gunnlaugsson 3, Ólafur Vilhjálms-
son 2, Þórarinn Tyrfingsson 2,
Björn Björnsson 1 og Gunnar
Kristófersson 1.
Brottvísánir: iR-ingar voru reknir
útaf í samtals sex mínútur en
KRingar í fjórar.
Guöjón Hauksson varöi eitt vfti
frá Anders-Dahl og annaö misnot-
aöi Daninn meö því að stíga á lín-
una. Dómarar voru Stefán Arn-
aldsson og Rögnvaldur Erlingsson.
— SH.
Stjörnugjöfin
KR:
Jens Einarsson ★ ★ ★
Stefán Halldórsson ★ ★
Gunnar Gíslason ★ ★
Guömundur Albertsson ★
Guöjón Hauksson ★ ★ ★
Atli Þorvaldsson ★
Andrés Gunnlaugsson ★
Alfreð fékk blóðeitrun
Alfreð Gíslason, landsliðsmaö-
urinn kunni í handboltanum, lék
ekkert meö félögum sínum í KR
gegn ÍR í gærkvöldi. KR-ingar eru
nýkomnir frá Þýskalandi þar sem
þeir tóku þátt í mjög sterku
handknattleiksmóti. ( síðasta leik
KR fékk Alfreð tvö þung högg á
lærið og er hann nú kominn meö
blóðeitrun í fótinn.
„Ég veit ekki hve lengi þetta
veröur aö lagast — viö eigum aö
leika gegn Fram á þriðjudaginn og
ég veit ekki hvort ég verö tilbúinn
til aö leika þá.“
Aö sögn Alfreös var þetta mjög
góö ferö til Þýskalands. „Feröin
var hugsuó sem undirbúningur
fyrir fjögurra liöa keppnina í Is-
landsmmótinu og var hún alveg til-
valin til þess. Þaö voru fjögur liö
sem tóku þátt í mótinu auk okkar:
Dankersen, Bukarest, Kiel og Zar-
ajevo. Viö unnum Kiel en töpuöum
öllum hinum leikjunum. Þaö var
reyndar mjög klaufalegt. Viö vor-
um meö þriggja marka forystu
gegn Dankersen en töpuöum því
niður. Dómararnir snéru þeim leik
algerlega okkur í óhag — dæmdu
allt á okkur sem þeir gátu. i leikn-
um viö Bukarest klúöruöum viö
fjórum vitaköstum."
Hvaö helduröu um fjögurra liöa
keppnina hér heima?
Ég held aö sú keppni veröi mjög
erfið. Víkingarnir eru aö koma mik-
ið upp núna og ég held aö þetta
veröi fyrst og fremst barátta milli
Víkings, KR og FH. Stjarnan á ör-
ugglega eftir aö reita stig, en ég
held aö hún komi ekki til meö aö
blanda sér í baráttuna um titilinn,"
sagði Alfreð.
— SH.
1. umfferð knattspyrnunnar í vor:
íslandsmeistararnir fá
Breiðablik í heimsókn
• V'
Æé
4
. .- -x *
____’Vtí
s3lRÍ''Íi«*
SWI
lÉBli
• Ómar Torfaaon og Siguröur Jónsson kljást hér um knöttinn í leik
liöa þeírra í fyrra. Víkingar — íslandsmeistararnir — mæta UBK í fyrsta
leiknum í vor, en Sigurður og félagar í ÍA fara til Akureyrar og leika
gegn Þór.
íslandsmeistarar Víkíngs (
knattspyrnu leika gegn Breiöa-
blik í Reykjavík í 1. umferö
íslandsmótsins í knattspyrnu (
vor, en dregið var í töfluröö hiá
KSÍ í gær, og bikarmeistarar IA
mæta nýliðum Þórs á Akureyri.
íslandsmótiö hefst að þessu sinni
um hvítasunnuhelgina, sem er 21.
til 22. maí. Dregið var um töfluröö
( 1. og 2. deild karla og 1. deild
kvenna.
Töflurööin í 1. deild karla litur
þannig út:
1. ÍBK
2. ÍBV
3. Þróttur
4. Þór, Akureyri
5. Víkingur
6. UBK
7. ÍA
8. KR
9. ÍBl
10. Valur
Síöan er raðað niöur eftir fyrir-
fram ákveönu kerfi sem gefiö er
upp í mótabók KSÍ. Þessir leikir
veröa í 1. umferöinni:
ÍBK — Valur
ÍBV — ÍBÍ
Þróttur — KR
Þór — ÍA
Víkingur — UBK
í 2. deild veröa þessir leikir á
dagskrá í 1. umferöinni:
Njarövík — Einherji
Reynir — KA
Fylkir — Fram
KS — FH
Völsungur — Víöir
i 1. deild kvenna leika fyrst sam-
an ÍA — Viöir, KR — Víkingur og
Valur — UBK.
— SH.
H
• Nói Björnsson, fyrirliöi nýliða
Þórs frá Akureyri. Liöiö fær bik-
armeistara ÍA í heimsókn í fyrstu
umferöinni í vor.
Sigurður
áfram á
Skaganum
Siguröur Lárusson, fyrirliði
Skagamanna í knattspyrnu,
ákvað ( gær ö leika áfram meö
liöinu. Líkur voru á því aö Sigurö-
ur gengi til liðs viö sina gömlu
félaga í Þór, Akureyri, en af þvi
veröur ekki nú. Siguröur mun því
leika a.m.k. eitt sumar enn meö
ÍA. — SH.
Borötennismenn
í Evrópukeppni
Landsliðiö í borötennis heldur
utan í dag til þátttöku í Evrópu-
keppni landsliða, 3. deild. Aö
þessu sinni fer keppnin fram á
Guernsey. Aðrar þjóöir en ísland
og Guernsey sem taka þátt í
keppninni í ár eru Malta og Jers-
ey. Keppt verður laugardaginn
15. og sunnudaginn 16. janúar.
Liöiö sem keppir að þessu sinni
er þannig skipað, landsleikja-
f jöldi í sviga:
Stefán Konráðsson, Víking (41),
Hilmar Konráösson, Víking (19),
Ragnhildur Siguröardóttir, UMSB
(16).
Þjálfari liðsins og fararstjóri er
Björgvin Jóhannesson.
Fresturinn er
aö renna út...
Frestur til aö skila inn tilkynn-
ingum til KSÍ um þátttöku í fs-
landsmótinu í knattspyrnu næsta
sumar, rennur út 20. janúar. Sam-
bandinu hefur aöeins borist ör-
fáar þátttökutilkynningar og ættu
félögin því aö drífa sig í því aö
senda þær.
— SH.
Zeljeznicar
á góða
möguleika
Zeljeznicar Nis, sem sló KR út
úr Evrópukeppni bikarhafa (
handbolta fyrir jólin lék á dögun-
um í 8-liða úrslitum keppninnar
viö sænsku bikarmeistarana
Drott. Var þar um fyrri leik liö-
anna aö ræöa og fór hann fram (
Svíþjóö. Svíarnir höföu góöa for-
ystu mest allan tímann en á síö-
ustu stundu tókst Júkkunum að
jafna 24:24. Eiga þeir því góöa
möguleika á því að komast (fjög-
urra liða úrslitin. Þaö var Mladen-
ovic sem gerði Svíunum lífiö leitt
— skoraði tíu mörk, en hann
skoraöi einmitt níu mörk í seinni
leiknum viö KR.
í Evrópukeppni meistaraliöa
léku sænsku meistararnir Heim
gegn Barcelona frá Spáni og
máttu þola tap á heimavelli sín-
um. Spánska liöið vann 20:16.
Karlskrona — enn eitt sænskt
lið — tekur þátt í IHF-keppninni.
Liðið lagði Helsingör frá Dan-
mörku á heimavelli sínum 23:20
og ætti því að eiga raunhæfa
möguleika á því að komast
áfram.
Skíðagöngu
kennsla
Skíöafélag Reykjavíkur og
Skíðaráð Reykjavtkur gangst fyrir
skíðagöngukennslu nú næstu
daga, og fer hún fram á Miklatúni.
Leiðbeinandi verður Ágúst
Björnsson.
Námskeiöiö hefst í kvöld kl. 18
og stendur yfir í eina klukkustund.
Á morgun veröur þaö á sama tíma,
en á laugardag og sunnudag
stendur námskeiöið yfir frá kl.
14.00—16.00.