Morgunblaðið - 13.01.1983, Blaðsíða 22
22
Deildu um sjónvarpsþátt:
Stakk son
sinn til bana
llaasdonk, Belciu, 12. jan. Al*.
Belgískur heimilisfaöir, 45 ára gam-
all, grandadi 18 ára syni sínum í
gær, er þeir deildu um hvaöa sjón-
varpsþátt á skyidi horft.
Þannig var mál með vexti, að sá
eldri sat í stofu sinni og horfði á
kvikmynd með Alain Delon í aðal-
hlutverki. Kom þá sonurinn inn og
hafði enginn umsvif, heldur skipti
um sjónvarpsstöð án þess að yrða
á föður sinn. Því vildi sá eldri ekki
una og réðist á strákinn. Hófust
miklar sviptingar sem enduðu
með því að faðirinn þreif hníf og
stakk piltinn. Lést hann á sjúkra-
húsi, en faðirinn hefur verið
ákærður fyrir manndráp.
Deilt um heiðurs-
borgaranafn-
bót Hitlers
Trier, Vestur-I»yskalandi, 12. jan. AI*.
Borgarráösmenn í þýsku borginni
Trier deila mjög um þaö þessa dag-
ana hvort að Adolf Hitler teljist enn
heiöursborgari borgarinnar. Hann
var geröur að heiðursborgara Trier
18. apríl 1933, tveimur dögum fyrir
44 ára afmæli hans og tveimur og
hálfum mánuði eftir valdatöku hans
í Þýskalandi.
Minnihlutinn í borgarráðinu,
sósíaldemókratar, vildi halda upp
á að 50 ár væru liðin frá valdatöku
Hitlers með því að svipta hann
heiðursborgaranafnbótinni. Borg-
arstjórinn, kristilegi demókratinn
Felix Zimmermann, sagði hins
vegar, að allt karpið væri út af
engu, þar sem Hitler hefði misst
nafnbótina þegar veldi nasista var
kollvarpað árið 1945. Minnihlut-
inn í borgarráðinu heimtar fund
til að ræða málið, en Zimmer-
mann á eftir að gera upp hug sinn
hvort þetta þurfi nokkuð að ræða.
Amman fékk
metvinning
í grísku
getraununum
Aþonu, 11. janúar. AP.
HÍJN DATT heldur betur í lukku-
pottinn á sunnudaginn hin 66 ára
gamla amma, Dimitra Zogopoulou.
Hún nældi sér í langhæstu upphæð
sem um getur í knattspyrnugetraun-
unum í Grikklandi á sunnudag, 49
milljónir drakma. Upphæðin svarar
til um 10,3 milljóna íslenskra króna.
Dimitra, sem vinnur við skúr-
ingar á sjúkrahúsi, var eini þátt-
takandinn að þessu sinni með alla
leiki seðilsins rétta, en úrslit urðu
víða mjög óvænt í grísku deilda-
keppninni, að sögn talsmanns
grísku getraunanna, sem eru
ríkisreknar.
„Ég fyllti bara seðilinn ein-
hvern veginn út, eins og ég hef
gert undanfarin 10 ár,“ svaraði
Dimitra er fréttamenn spurðu
hann hvað lægi að baki þessari
óvæntu velgengni. „Ég ætla að
nota peningana handa börnum
mínum og barnabarni og ætli við
byggjum ekki fallegt hús við
ströndina," sagði Dimitra, sem
verið hefur ekkja hálfa ævina.
Fyrri metvinningur í grísku
getraununum nam 15,2 milljónum
drakma og vannst árið 1981.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1983
Mynd þessi sýnir lögreglulið í Kaupmannahöfn að störfum í morgun, en þá voru rýmd fimm hús á Norrebro, þar sem atvinnuleysingj-
ar höfðu hreiðrað um sig.
Einhverjar stórtækustu aðgerðir lögreglunnar í Kaupmannahöfn:
Rúmlega 1000 lögreglumenn
ruddu íbúðir í Norrebro
Kaupmannahófn, 12. janúar. Krá Ib Björnbak,
fréltaritara Morgunblaósins.
LÖGREGLAN handtók í dag 15
ungmenni eftir að tekist hafði að
flæma þau út úr húsnæði, sem þau
höfðu sest að í í Nörrebro-hverfinu
í Kaupmannahöfn, án þess að til
átaka kæmi. Lögreglan hefur upp-
lýst, að bensínsprengjur hafi fund-
ist í húsnæðinu. Eftir handtökurn-
ar bar á ókyrrð á nokkrum stöðum
í Nörrebro-hverfinu.
Handtökurnar í dag áttu sér
stað í kjölfar einhverra stórtæk-
ustu aðgerða lögreglunnar í
Kaupmannahöfn, sem um getur,
í gær þegar borgaryfirvöld leit-
uðu á náðir hennar til þess að fá
hjálp til að ryðja fjölda húsa,
þar sem ungt fólk hafði sest að.
Um 1000 lögreglumenn tóku
þátt í aðgerðum þessum og þótt
þær hafi verið stórtækar er ekki
laust við að þær hafi orðið dálít-
ið broslegar. Unga fólkið hafði í
margar vikur undirbúið sig und-
ir það að þurfa að yfirgefa hús-
næðið fyrirvaralítið.
A meðan lögreglan beitti
kranabílum til að ryðjast til inn-
göngu á fjórðu hæð eins hússins,
skreið unga fóikið út úr húsinu í
gegnum göng, sem það hafði
grafið undir götuna, og kom upp
á verkstæði pípulagningamanns,
sem vissi ekki hvaðan á sig stóð
veðrið.
Því miður tóku unglingarnir
til við gripdeildir síðar um dag-
inn og í nótt og mölvuðu rúður í
ráðhúsinu og ýmsum verslunum.
Einnig kveiktu þeir í bifreið, sem
lagt hafði verið þversum á eina
götuna.
Vandræðin í Nörrebro-hverf-
inu stafa af því að verið er að
hreinsa til í því og endurskipu-
leggja. Hluti unga fólksins, sem
tekið hefur sér búsetu í gömlum,
niðurníddum húsum í hverfinu,
er án atvinnu. Það krefst fleiri
íbúða fyrir ungt fólk og húsa,
þar sem það getur komið saman,
og séð um sjálft.
Hreinsunarverkamennirnir
eru þeirrar skoðunar, að mörg
þeirra húsa, sem unglingarnir
hafa hreiðrað um sig í, séu alls
, ekki hæf sem mannabústaðir
eftir margra ára umhirðuleysi
og niðurníðslu. Vegna þessa hef-
ur unga fólkið tekið sér bólfestu
í þessum húsum og lagt kröfur
sínar fram til að sýna svart á
hvítu hversu bágborið ástandið í
húsnæðismálum þeirra er.
Líkur eru taldar á áframhald-
andi ókyrrð í hverfinu úr því
borgaryfirvöld gripu til þess
ráðs að kalla lögregluna til liðs
við sig.
Bankarán
Myndin er frá mislukkuðu bankaráni í Köln í Vestur-Þýskalandi, en sjálfvirkar mynda-
vélar í bankanum festu atburðinn á filmu. Ræninginn er lengst til vinstri á myndinni, en
hinir tveir sem byssur munda eru lögreglumenn. Til skotbardaga hefur komið og hefur
ræninginn sært lögreglumanninn sem næstur honum er. Sá slapp þó vel, þvi talstöðvar-
tæki sem hann hélt á tók mestan kraftinn úr skotinu. Lögreglumaðurinn lengst til hægri
hleypir af skotum á ræningjann.
Ferja fórst
102 saknað
Sandakan, Malaysiu, 12. jan. Al*.
ALLSTÓRRI ferju hvolfdi skammt
frá Tambisaneyju, 125 kílómetra
suður af Sandakan í S-Kínahafi í
gær og er 102 farþcga saknað. Fjög-
ur lík höfðu fundist síðast er fréttist,
en 120 farþegum var bjargað. Sterk-
ur monsúnvindur geysaði og var
öldurót mikið. Alls voru 216 farþeg-
ar um borð auk 10 manna áhafnar.
Allir sem um borð voru, voru Filipps-
eyingar.
Fréttamenn ræddu við nokkra
þeirra sem sluppu heilir á húfi.
Björguðust þeir flestir með því Að
hanga í spýtnabraki. Flestir
heyrðu mikil óp og óhljóð í
drukknandi fólki, en gátu ekki
rönd við reist vegna hins mikla
sjávargangs. Leit er haldið áfram,
en yfirvöld eru vondauf um að
fleiri finnist á lífi úr því sem kom-
ið er.
Monsúnvindarnir í Suður-Kína-
hafi hafa verið með sterkara móti
að undanförnu og umrædd ferja er
þriðja haffarið sem ferst á þessum
slóðum á þremur vikum. 992 tonna
flutniilgaskip fórst þann 28. des-
ember, en mannbjörg varð. Hins
vegar fórust fjórir skipverjar er
breskt 113 tonna flutningaskip
fórst eigi all fjarri daginn eftir.