Morgunblaðið - 13.01.1983, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1983
3
Borgarnes:
Framtíðarskíðasvæði í Skarðs-
heiði vestan við Skessuhorn?
Borgarneni, 12. janúar.
Á VEGUM hreppsnefndar Borg-
arness vinnur nú nefnd að því að
finna hentugt skíðasvæði í ná-
grenni Borgarness. Að sögn Ás-
geirs Magnússonar sýslufulltrúa,
sem er ritari nefndarinnar, hefur
áhugi nefndarmanna hingað til að-
allega beinst að svokölluðum Álf-
steinsbotnum í Skarðsheiði en þeir
eru vestan við Skessuhorn. Nefnd-
armenn hafa verið að kanna svæð-
ið og líst þokkalega á það að sögn
Ásgeirs. Þarna eru miklir mögu-
leikar á að gera skemmtilegt
skíðasvæði og nægur snjór langt
fram á vor. Þó sagöi Ásgeir að við
þetta svæði væru einnig ákveðnir
ókostir. Nokkuð langt væri að
svæðinu frá vegi og þyrfti að leggja
þar veg og eins væri veðurfar
þarna ekki nægjanlega vel kannað
ennþá.
Ásgeir sagði að nefndin hefði
kannað nokkra aðra staði í hér-
aðinu með tilliti til skíðaaiðkana
en ekki hefði komið neitt út úr
þeim athugunum og væri ljóst,
að hér í héraðinu væru fá svæði
sem kæmu til greina í þessu
sambandi. Helst virtust Álf-
steinsbotnar koma til greina en
einnig væri verið að athuga með
svæði uppi á Draghálsi. Þessi
svæði myndi nefndin athuga
nánar í vetur en ljóst væri að
ekki yrði af frekari framkvæmd-
um í vetur.
Það eru tiltölulega fá ár síðan
raddir fóru að heyrast hérna í
Borgarnesi um að koma þyrfti
upp skiðasvæði hér í nágrenninu
og var það aðallega frá fólki sem
alist hefur upp á stöðum þar sem
þessi aðstaða hefur verið fyrir
hendi og hefur saknað hennar
hér. Einnig hafa skólarnir í hér-
aðinu alltaf verið á hrakhólum
með aðstöðu til að koma nem-
endunum á skíði. Skiðabakterían
hefur verið að ágerast nú á allra
síðustu árum og smitað út frá
sér með aukinni almennri kynn-
ingu á skíðaíþróttinni sem
heilsusamlegri útivist og hreyf-
ingu fyrir alla fjölskylduna.
Ásgeir Magnússon sagði að
hugmyndin væri að leita til
nágrannasveitarfélaganna með
samvinnu um uppbyggingu sam-
eiginlegs skíðasvæðis þegar at-
huganir væru lengra komnar, en
nú þegar hefði verið haft óform-
legt samband við Akurnesinga
og virtist þar áhugi fyrir sam-
vinnu þó ekki hafi enn verið
komið á formlegu samstarfi við
þá. Ljóst væri að sömu vand-
kvæði væru hjá þeim á því að
finna hentugt svæði og væri ekki
ólíklegt að samstarf kæmi báð-
um sveitarfélögunum til góða
sem og fleirum, sem áhuga
kynnu að hafa á þessu máli. HBj.
A PESSUM KEMSTU
TILVINNU
PRATTFYRIR
OFÆRÐINA
Hann er framhjóladrifinn meö framúrskarandi áksturseiginleika, og sé hann vel búinn til vetraraksturs ferðu
allra þinna feröa á honum í íslenskri vetrarófærð.
SAAB-SÁ ER BÍLLINN
TÖGGUR HF. |
SAAB |
UMBOÐIÐ
BÍLDSHÖFÐA 16, SÍMI 81530 ®