Morgunblaðið - 13.01.1983, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANUAR 1983
5
Sunnudagskvöld:
Áramótaspilakvöld
Varðar í Súlnasal
HIÐ árlega áramótaspilakvöld lands-
málafélagsins Vardar verður haldið á
Hótel Sögu á sunnudagskvöldið.
Verður það haldið í Súlnasal, og hefst
klukkan 20.30.
Ræðu kvöldsins flytur varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins, Frið-
rik Sophusson alþingismaður. Þá
mun Ómar Ragnarsson flytja
skemmtiþátt og að spilamennsku
lokinni leikur hljómsveit Ragnars
Bjarnasonar fyrir dansi til klukkan
01.00. Stjórnandi spilakvöldsins er
Hilmar Guðlaugsson borgar-
fulltrúi.
I frétt frá Verði, sem Morgun-
blaðinu hefur borist, segir að í
verðlaun séu margir góðir vinn-
ingar, meðal annars flugfar fyrir
tvo til Danmerkur, samtals að
verðmæti 34 þúsund krónur.
Spilakvöldið verður sem fyrr seg-
ir í Súlnasal klukkan 20.30 sunnu-
daginn 16. janúar, en skemmtun-
inni var frestað um síðustu helgi
vegna ófærðar og illviðris.
Dómar í deilum vörubílstjóra og verktaka:
Staðfesta einka-
rétt vörubílstjóra
Friðrik Sophusson,
Sjálfstæðisflokksins.
varaformaður
Verzlunarskólinn heldur 5
starfsnámskeið fyrir starf-
andi fólk í atvinnulífínu
Fyrri námskeið hafa gefið góða raun, segir Þorvarður Elíasson
VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS heldur námskeið fyrir starfandi fólk í atvinnu-
lífinu í ýmsum undirstöðugreinum viðskipta á tímabilinu 17. janúar til 25. marz
nk., en að sögn Þorvarðar Elíassonar, skólastjóra, er þetta í þriðja sinn sem
svona námskeið eru sett upp, en þau hafa gefið mjög góða raun.
I boði eru fimm námskeið. Haldið
verður vélritunarnámskeið, sem
stendur yfir í 60 stundir. Þar verður
kennd fingrasetning, upphafssetn-
ing bréfa, hraðæfingar og notkun
diktaphones. Stefnt er að vélritun-
arhraða upp á 40 orð á mínútu.
Tölvufræðinámskeið verður hald-
ið og tekur það 60 klukkustundir.
þar verður kynning á tölvunotkun,
tölvum og helztu hugtökum við
tölvuvinnslu. Undirstöðuatriði
BASIC forritunarmáls, kennd og
unnin æfingaverkefni, forrit lesin
og skýrð. Skráargerð á kassettu og
diskettu kynnt, svo og útprentun
þeirra ásamt tölvuvæddri skýrslu-
gerð og bókhaldi.
Þá verður haldið 60 klukkutíma
bókfærslunámskeið, þar sem farið
verður yfir almenná færslutækni í
tvöföldu bókhaldi og uppgjöri, auk
æfingaverkefna.
Haldið verður 40 klukkustunda
námskeið í enskum verzlunarbréf-
um, þar sem farið verður í orða-
forða og uppsetningu enskra bréfa,
telexskeyta og í símtölum, stílgerð
og málæfingar.
Loks verður haldið námskeið í
rekstrarhagfræði, sem tekur 40
klukkustundir. Þar verða helztu
grundvallarhugtök rekstrarhag-
fræðinnar kynnt og farið yfir æf-
ingar í rekstri verzlunarfyrirtækja
og gerð greiðsluáætlun. Raunhæf
dæmi með aðstoð tölvu.
Kennsla fer fram í húsakynnum
Verzlunarskólans og fara nám-
skeiðin fram klukkan 17,30— 20,30
þrjá daga vikunnar. Þeir, sem hafa
áhuga á þessum námskeiðum, geta
fengið umsóknareyðublöð á skrif-
stofu skólans og ber að skila þeim
útfylltum, ásamt námskeiðsgjöld-
um fyrir 15. janúar nk. Fræðslu-
sjóður Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur styrkir fullgilda fé-
lagsmenn til þátttöku í starfsnám-
inu. Endurgreiðsla hluta nám-
skeiðsgjaldsins fæst á skrifstofu fé-
lagsins.
Samkvæmt upplýsingum Þor-
varðar Elíassonar, skólastjóra, eru
yfirleitt um 25 starfsmenn í hverj-
um hópi.
TVEIR dómar hafa nýlega^Migið til
staðfestingar lögbannsaðgerðum,
sem hílstjórar í Hafnarfirði og á
Húsavík fengu lagða vegna meintra
ólöglegra vöruflutninga. Með dóm-
um þessum hefur einkaréttur vöru-
bilstjóra á þessum flutningum verið
staðfestur. í báðum tilvikum hefur
staðfesting lögbanns verið áfrýjað til
Hæstaréttar.
í maí síðastliðnum kom til deilu
í Hafnarfirði um meinta ólöglega
flutninga. Fyrirtækin Ferro hf. og
Hafsteinn og Sæmundur hf. voru
fengin til þess að flytja salt úr
danska flutningaskipinu Caren
Danielsen í Hafnarfjarðarhöfn
fyrir Saltsöluna. Vörubílastöðin í
Hafnarfirði krafðist lögbanns, en
vörubílstjórar töldu að þeir einir
ættu rétt á að annast flutningana,
og náði krafan fram að ganga
þann 7. maí.
Vörubílstjórar hindruðu akstur
að hafnarbakkanum á sínum tíma.
Dómurinn var kveðinn upp þann
8. nóvember síðastliðinn og lög-
bannsgerðin staðfest. Lögmaður
I»orrablót Átthaga-
félags Strandamanna
ÁTTHAGAFÉLAG Stranda-
manna heldur árlegt þorrablót
sitt í Domus Medica laugardaginn
15. janúar og hefst það klukkan 19.
Fyrirhugað er að miðar verði
afhentir á sama stað á fimmtudag
á milli klukkan 17 og 19.
Saltsölunnar hefur áfrýjað málinu
til Hæstaréttar.
Á Húsavík kom til svipaðra
deilna í apríl síðastliðnum vegna
flutninga Norðurverks hf. og BJG
hf. fyrir Kröfluvirkjun vegna
flutninga á sementi frá Húsavík
til Kröflu. Bílstjórar kröfuðust
lögbanns á flutningana og í seinni
hluta desember gekk dómur og var
lögbannið staðfest og hefur þeim
dómi einnig verið áfrýjað til
Hæstaréttar.
Kæra kvik-
myndina
„Cannibal
Holocaust“
RÍKISAKSÓKNARA barst í gær
kæra frá Þjóðviljanum vegna
kvikmyndainnar „Cannibal Hol-
ocaust“, sem leigð er út af
myndbandaleigu í Kópavogi.
Mynd þessi hefur valdið miklu
fjaðrafoki víða í Evrópu og hefur
því verið haldið fram, að indíána-
kona hafi raunverulega verið
myrt á meðan á kvikmyndatöku
stóð.
Ríkissaksóknari hefur sent
Rannsóknarlögreglu ríkisins
málið með beiðni um rannsókn.
Tvær bækur
eftir Kosinski
í stuttri kynningu á tveimur
greinum um „andrúm morðsins" í
Svíþjóð og Bandarikjunum, sem
birtust hér í blaöinu sl. sunnudag,
hélt ég því fram, að aðeins ein bók
eftir Jerzy Kosinski hefði verið
þýdd og komið út á íslensku, þ.e.
Fram í sviðsljósið (Being There)
sem Bókaklúbbur Almenna bókafé-
lagsins gaf út 1981.
Síðan hefur mér verið á það
bent að önnur bók eftir Kosinski
hafi verið þýdd og gefin út á ís-
lensku. Og þurfti ég ekki annað
en að fara í Bókaverslun Sigfúsar
Eymundssonar til að sannreyna
það. Gissur Ó. Erlingsson hefur
þýtt bókina The Painted Bird og
heitir hún á íslensku Skræpótti
fuglinn, útgefandi Skjaldborg á
Akureyri árið 1979. Undirtitill
bókarinnar er: „Hrikaleg frásögn
Kosinski
frá Austur-Evrópu um vitfirr-
ingu síðari heimsstyrjaldarinn-
ar.“ í grein William Safire hér í
blaðinu á sunnudag var sagt um
þessa bók, að hún væri skáldsaga
„sem af flestum er talin lýsa
ógnarstjórn alræðisafla meist-
aralega vel ..."
Björn Bjarnason
Fulltrúar ferðaaðila á
ferðakaupstefnu í Hol-
landi á vegum Arnarflugs
MIKIL fcrðakaupstefna var opnuð í lltrecht í Hollandi í vikunni, að sögn Stefáns
Halldórssonar hjá Arnarflugi, en félagið er með sérstaka sýningarbás á kaup-
stefnunni.
Stefán Halldórsson sagði, að full-
trúar allra stærstu ferðaaðila hér á
landi hefðu farið í boði félagsins á
kaupstefnuna, auk þess sem sendi-
herra íslands í Hollandi, Einar
Benediktsson, sem aðsetur hefur í
Loúdon, mun sækja kaupstefnuna
heim.
Stefán Halldórsson sagði þetta
aðalferðakaupstefnuna í Hollandi
og skiptu sýnendur hundruðum.
„Fyrstu dagarnir eru fyrst og
fremst ætlaðir þeim sem stunda
viðskipti í ferðamannaheiminum,
þannig að til kaupstefnunnar kemur
gífurlega fjöldi erlendra aðila til
samningagerða. Síðan er kaupstefan
opin almenningi fram á sunnudag,"
sagði Stefán Halldórsson.
04 W
Hefur þú kynnst sígildum hljómburði Scala óperunnar í Mílanó, Boston Symphony
Hall, Planetarium eða Royal Albert Hall í London?
Vissir þú að á slíka staði eru Ei hátalarar valdir, auðvitað vegna hljómgæðanna?
Það er því engin tilviljun, að heimsfrægt kunnáttufólk á borð við Herbert von
Karajan, Miles Davis og strákana í hljómsveitinni Electric Light Orchestra (ELO)
kjósa JiJ hátalara til eigin nota, auðvitað vegna hljómgæðanna.
M hátalarar hafa einstakt tónsvið. Það sem skiptir þó öllu máli í reynd er hinn
hárnákvæmi tónblær þeirra, hvernig þeir endurhljóma nákvæmlega hin ólíkustu hljóð-
færi, einmitt þannig sem kunnáttufólk kýs og kann að meta.
Suðurlandsbraut 8, sími 85884