Morgunblaðið - 13.01.1983, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1983
13
Hver rýfur þjóðarsamstöðu?
— eftir Birgi Isl.
Gunnarsson, alþm.
Eitt af fyrirferðarmestu málum
stjórnmálanna á sl. ári var álmál-
ið. Iðnaðarráðherra var harðlega
gagnrýndur jafnt af stjórnar-
andstöðu sem stjórnarsinnum
fyrir meðferð sína á þessu máli.
Ékkert hefur verið ofsagt í þeirri
gagnrýni, enda með ólíkindum,
hversu klaufalega hefur verið
haldið á málinu.
Rangar áherslur
Helstu gagnrýnisatriði, sem
fram hafa verið borin á iðnaðar-
ráðherra, eru þessi:
í þessu máli hafa verið rangar
áherslur. Öll áhersla hefur verið
lögð á skattaþátt málsins. Auðvit-
að ber ÍSAL að greiða skatta í
samræmi við samninga og til að
tryggja það eru ákvæði í samning-
um um að íslendingar geti látið
endurskoða ársuppgjör ISAL. Iðn-
aðarráðherra vanrækti að láta
framkvæma slíka endurskoðun,
þar til á árinu 1981 að hann birti
að hluta niðurstöður endurskoð-
unar fyrir árið 1980. Síðar hefur
verið farið í endurskoðun lengra
aftur í tímann. Ráðherra hefur
hins vegar gert þennan þátt að að-
alatriði málsins og verið í stöðug-
um deilum við Alusuisse um þetta
atriði. Hann týndi í tvö ár aðalat-
riðum málsins, sem er endurskoð-
un samninga og hærra rafmagns-
verð.
GóÖu tækifæri sleppt
Með því sat hann af sér mjög
gott tækifæri til að ná fram hækk-
un á rafmagnsverði. Þegar á árinu
1980 hafði orkuverð í heiminum
hækkað mikið og verð á áli var
mjög hátt og spáð var áframhald-
andi velgengni í þessari atvinnu-
grein. Þá var lagt til að ná fram
hækkuðu rafmagnsverði. Þá stóð
iðnaðarráðherra í slagsmálum um
súrál og skatta, en gleymdi raf-
magnsverðinu. Nú hafa ytri að-
stæður snúist okkur í óhag. Alverð
hefur lækkað úr 2000 dollurum á
tonn í 1000 dollara.
Samningatækni ráðherrans hef-
ur reynst illa og honum er ekki
lagið að hafa með höndum við-
kvæma og erfiða samninga. Hann
sigldi t.d. í strand samningum við
bændur og aðra heimamenn við
Blöndu. Þar urðu aðrir að taka við
og leysa málin, þegar stærilæti og
hroki ráðherrans ásamt með fjöl-
miðlagleði höfðu komið öllu í
hnút. Sama gerist í álmálinu.
Þröngur vinaklúbbur
Iðnaðarráðherra hefur kosið að
halda þessu máli, bæði undirbún-
ingi og samningaviðræðum, í
þröngum hópi skoðanabræðra og
vina. Hann hefur ekki af heilind-
um efnt til eðlilegs samstarfs,
hvorki við stjórnarandstöðu né
samstarfsmenn sína í ríkisstjórn,
eins og ummæli Guðmundar G.
Þórarinssonar á dögunum sanna
og sýna. í Sjálfstæðisflokknum
hafa menn boðið iðnaðarráðherra
upp á samstarf, en hann hefur
hafnað því. Enginn á því meiri
þátt en sjálfur iðnaðarráðherra að
rjúfa þjóðarsamstöðu í þessu máli.
Þegar er ljóst að ekki verður nein
samstaða um axarsköft ráðherr-
Hafnað samvinnu
við Landsvirkjun
Enn eitt dæmi má nefna um
það, hvernig ráðherra kýs að ein-
angra sig í vinahópi í þessu mik-
Birgir ísL Gunnarsson
„í Sjálfstæðisflokknum
hafa menn boðið iðnaðar-
ráðherra upp á samstarf,
en hann hefur hafnað því.
Enginn á því meiri þátt en
sjálfur iðnaðarráðherra að
rjúfa þjóðarsamstöðu í
þessu máli. Þegar er Ijóst
að ekki verður nein sam-
staða um axarsköft ráð-
herrans.“
ilvæga máli. Samningurinn um
rafmagnssölu til ÍSALs er gerður
við Landsvirkjun. Hinn formlegi
samningsaðili um rafmagnsverðið
og aðra þætti rafmagnssamnings-
ins er því Landsvirkjun. Þrátt
fyrir þá staðreynd hefur Hjörleif-
ur haldið Landsvirkjun alveg utan
við málið. Landsvirkjun hefur
hvað eftir annað farið þess form-
lega á leit við iðnaðarráðherra að
fyrirtækið eigi aðild að viðræðum
um allar breytingar á orkusölu-
samningnum. Þessu hefur ráð-
herra jafnoft hafnað.
Af þessum ástæðum ekki síst
hefur stjórn Landsvirkjunar nú
ákveðið að kjósa sérstaka nefnd
stjórnarmanna og starfsmanna
„til að fja.Ua um verðlagningu og
söluskilmála raforku til orkufreks
iðnaðar". Verkefni nefndarinnar
eru síðan nánar skilgreind í ítar-
legri ályktun stjórnarinnar. Öllu
samstarfi við Landsvirkjun hefur
verið hafnað til þessa og því er
nauðsynlegt að fyrirtækið leggi
sjálfstætt mat á þennan mikil-
væga þátt í samskiptum okkar við
Alusuisse.
Auðvitað hefði verið æskilegra
að allir aðilar settust saman og
ynnu að þessu máli í sameiningu
og mótuðu sameiginlega stefnu,
sem bera mætti fram til sigurs.
Því hefur ráðherrann hafnað.
Hann leggur alla áherslu á að ein-
angra sig í vinaklúbbnum sinum. í
þessu máli hefur hann einn rofið
þjóðarsamstöðu.
Sállæknir
heldur fyr-
irlestur og
námskeið
BRESKI sállæknirinn Terry Cooper
mun á vegum Miðgarðs halda helg-
arnámskeið í lifeflissálfræði Wil-
helm Reich í Reykjavík dagana
14.—16. janúar. Helgarnámskeiðið
ber heitið „Tjáskipti, náin tengsl og
líkamleg vellíðan“.
Terry Cooper mun einnig verða
með fyrirlestur í Norræna húsinu
fimmtudaginn 13. janúar kl. 20.30
sem ber yfirskriftina „Kynlíf og
sjálfsafneitun", segir í frétt frá
Miðgarði. I fréttinni segir enn-
fremur m.a.:
„Terry Cooper er einn af for-
stöðumönnum Spectrum sem er
sálvaxtarmiðstöð í London og hef-
ur síðastliðin ár haldið námskeið
víða um heim fyrir áhugafólk um
líkamlegt og andlegt heilbrigði.
Hann var fyrstur til að innleiða
kynfræðslu fyrir bæði kynin í
Englandi en hefur upp á síðkastið
einbeitt sér æ meira að þróun eig-
in hugmynda varðandi samspil
líkama og sálar.“
Rit um börn
og unglinga
í fóstri
BÆNIMSKÓLINN á Hvanneyri
hefur gefið út rit eftir Björn S.
Stefánsson dr. scient. um börn og
unglinga í fóstri (fjölrit nr.
43/1982).
Er þar gerð grein fyrir vistun
bágstaddra barna í sveit, og
viðhorfum sveitafólks og starfk-
fólks félagsmálastofnana til
þeirra mála. Athugað var hvað
dreifbýlið gæti boðið upp á í
þágu barna.
Samstarfsráð Norðurlanda
um afbrotafræði lagði fram fé
til verksins og sömuleiðis Stétt-
arsamband bænda og félags-
málastofnun Kópavogsbæjar.
Áskriftarsiminn er 83033
esv'<s'
>k
pm
I ' M
r /
' r
I Sl i
Feróaskrifstofan
otsVn
kJii/
ýársfagnaður
U ■ ýn; i og
^Árshátíð
Heimsreisuklúbbsins
CCCAIDWAT
föstudaginn 14. janúar kl. 19.30
. 19.30 Húsið opnað fordrykkur, happdrætti, músík og myndasýning. Mætið stundvíslega og missið ekki af neinu.
Kl
Kynnir:
Bryndís
Schram
Félagar í „Heimsreisuklúbbnum“ vitji aðgöngu-
miða sinna hjá Útsýn, Austurstræti 17, í dag
fimmtudag, 4. hæð.
mtwwwunmt/imimww —
Kl. 20.00
Kvikmyndasýning:
„Heimsreisa I II III" Ingólfur
Guöbrandsson. Minningar
frá Mexico, Brasik'u og Kenya.
Kl. 20.30
Nýársveislan hefst - Þn-
réttaður hátíðakvöldverður.
Verð aðeins kr. 270 við
dinnermúsík Magnúsar og Finn-
boga Kjartanssonar, áramóta-
ávarp Ingólfs Guðbrandssonar og
einsöng hins efnilega, unga ten-
órsöngvara Páls Jóhannessonar
— nýkomnum frá Italiu, við undir-
leik Jónasar Ingimundarsonar.
Danssýning — dansflokkur
frá Sóleyju Jóhannsdóttur sýnir
hinn frábæra dansþátt „STRIPP-
er:
Bingó — Spilaö um 3 Útsýnar-
ferðir.
Ferðavinningar aö upphaeö 35.000.
Dans — Hljómsveit Björgvins
Halldórssonar leikur tyrir dansi til
kl. 03.00 — eitt allra besta band-
ið i bænum.
Týzkusýning:
Modelsamtökin
sýna frá íslenzkum
heimilisiðnaði,
Herragarðinum og
Tískuverzl. Assa.
Diskótekari
Gísli Sveinn
Loftsson.
Forsala aögöngumiöa og boröapantanir í BROADWAY í dag kl.
9—17, sími: 77500. Pantið miöa tímanlega. sparikiæðnaður.
Happdrætti — Ferðavinning-
ur dreginn úr miðum gesta, sem
koma fvrir kl. 20.30.
Fegurðarsamkeppni
„Ungfrú og Herra UTSYN"
— forkeppni.
valin úr hópi gesta.